Morgunblaðið - 25.07.1987, Blaðsíða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. JÚLÍ 1987
Hallberg á Bessastöðum
Ljósmynd/Guðmundur Kr. Jóhannesson.
Knud Hallberg hefur verið sæmdur ýmsum viðurkenningum fyrir mikilvæg störf í þágu íslenskrar æsku, m.a.
æðsta heiðursmerki ÍSÍ, og í vikunni sæmdi Forseti íslands hann riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu. Á mynd-
inni eru frá hægri, Lise Wolfbrandt Hallberg, en móðir hennar var dóttir Marinós Hafstein sýslumanns, sem var
bróðir Hannesar Hafstein, eiginmaðurinn Knud Hallberg, Forseti íslands frú Vigdís Finnbogadóttir, Sveinn Bjöms-
son forseti ÍSÍ og Gísli Halldórsson formaður ólympíunefndar íslands og heiðursforseti ÍSI.
Knud Hallberg sæmdur
riddarakrossi hinnar
íslensku fálkaorðu
„ÉG var mjög undrandi, viöur-
kenningin kom mér á óvart,
en um leið var ég ánægður
og þakklátur og það var okkur
hjónum mikils virði að fá
tækifæri til að heimsækja for-
seta íslands, sem er gífurlega
mikils metinn í Danmörku,'1
sagði Knud Hallberg arkitekt,
en í vikunni sæmdi Forseti
íslands frú Vigdís Finnboga-
dóttir hann riddarakrossi
hinnar íslensku fálkaorðu fyr-
ir mikil og farsæl störf að
samskiptum danskra og
íslenskra íþróttamanna í
rúma þrjá áratugi.
Knud Hallberg hefur greitt
götu margra íslenskra knatt-
spymufélaga í Danmörku síðan
1954, er hann tók á móti fyrsta
■■■I unglingaliðinu, en
Steinþór þá var hann form-
Guðbjartsson aður knattspymu-
skrifar deildar Bagsværd.
„Sigurður Halld-
órsson heitinn var frumkvöðull-
inn. Hann hafði ávallt trú á að
kenna þeim yngri sem mest og
vildi koma liðum í æfingabúðir
erlendis, en Sigurgeir Guðmanns-
son, sem nú er framkvæmdastjóri
IBR, sá um bréfasambandið. Við
höfðum haft náið samstarf við
félög í Noregi, Svíþjóð og Vestur-
þýskalandi og þegar auglýst var
eftir liðum til að taka á móti ungl-
ingaliði frá íslandi ákváðum við
að taka enn frekar þátt í norr-
ænni samvinnu og buðum 3. flokki
KR á afmælismót Bagsværd. Árið
eftir komum við til íslands og
síðan höfum við haldið góðu og
nánu sambandi við mörg íslensk
félög," sagði Hallberg, sem er
fæddur 24. júní 1916.
Ánægjulegt samstarf
Hallberg hefur staðið fyrir skipu-
lagningu og móttöku íslenskra
unglingaliða nær samfellt í rúma
þíjá áratugi og þegar hann átti
sæti í stjóm Knattspymusam-
bands Sjálands vom mikil
samskipti milli knattspymuliða
sambandsins og íslenskra meist-
araflokksliða að verulegu leyti
vegna hans frumkvæðis. „Ég hef
kynnst mörgum góðum mönnum
héma, hef ekki eignast eins góða
vini annarsstaðar og hefur það
haft mikið að segja fyrir mig.
Mér er minnisstætt, þegar Sigur-
geir hringdi í mig einu sinni sem
oftar, mig minnir árið 1962, og
spurði hvort ég gæti ekki hjálpað
Eyjamönnum. „Jú, jú,“ svaraði ég,
„hvenær koma þeir?“ „Þeir em á
leiðinni," svaraði Sigurgeir. Fyrir-
varinn var ekki mikill, en ég tók
á móti þeim og við fómm m.a. til
Berlínar. Séra Jóhann Hlíðar var
með liðinu og þetta vom ánægju-
leg kynni, sem síðan hafa haldist.
Það var líka gaman að horfa á
landsleik Danmerkur og íslands
1959. Þetta var í undankeppni
Ólympíuleikanna og Dönum
nægði jafntefli til að komast í
úrslitakeppnina í Róm. Úrslitin
urðu 1:1 og Danir hlutu silfur-
verðlaun á OL. Eftir leikinn sagði
Ame Sorensen, landsliðsþjálfari
Dana, að ég mætti hafa samband
við sig hvenær sem væri til að
kenna íslenskum strákum. Hann
hafði kennt í æfingabúðum hjá
mér tveimur ámm fyrr og þar á
meðal vom nokkrir strákar úr KR,
sem síðan léku í fyrmefndum leik
gegn Dönum. Sorensen heitinn
var mjög ánægður með íslensku
strákana og var oft með í æfínga-
búðum eftir þetta.
Fyrr í sumar kom Sigurjón Er-
lendsson með 5. flokk frá Siglu-
firði og það vom mjög skemmti-
legir strákar eins og allir, sem við
höfum tekið á móti að ég tali
ekki um kvennaliðið, sem kom
fyrir nokkmm ámm.“
Áíslandií16. slnn
Hallberg er nú í 16. sinn á ís-
landi, en ferðimar hafa ekki alltaf
verið í sambandi við knattspymu.
Vegna víðtækrar þekkingar hans
á dönskum byggingamálum, fékk
bygginganefnd framkvæmda-
áætlunar hann til að vera ráðgjafa
sinn um byggingu þeirra 1250
íbúða, sem nefndinni var falið að
byggja í Breiðholti á sjöunda ára-
tugnum. „En knattspyman hefur
ætíð verið mitt líf og yndi. Ég hef
tekið á móti um 30 íslenskum lið-
um, en síðustu árin hafa þau
einkum komið til að taka þátt í
„Odsherred Cup“, sem ég starfa
mikið við. Fyrr í mánuðinum var
mótið haldið í 7. sinn og vom
tæplega 1200 jjátttakendur frá
sjö þjóðum. Islendingar hafa
ávallt unnið til margra verðlauna
á þessu móti og í sumar fengu
Siglfirðingamir fyrstu verðlaun
fyrir framkomu utan sem innan
vallar, besti leikmaður úrslitaleiks
3. flokks var frá íslandi og einnig
sá besti í 3. flokki. Þetta er ekki
síður ánægjulegt fyrir mig og ég
vona að mér endist heilsa til að
halda þessu starfi lengi áfram,“
sagði Knud Hallberg, sem hefur
verið formaður Asnæs í mörg
undanfarin ár, en lét af þeim
störfum í byijun ársins.
ÍÞRÓTTIR HELGARINNAR
Meistara-
mótið í frjáls-
um ber hæst
Fimm leikir í 1. deildinni í knattspyrnu
HÁTT í 200 frjálsíþróttamenn
hafa tilkynnt þátttöku í Meist-
aramóti íslands, sem háð
verður í Laugardal í Reykjavík
um helgina. Eru nær allir beztu
frjálsíþróttamenn landsins þar
á meðal.
Miðað við skráningar eru frá
6 og upp í 13 keppendur í
grein og má búast við tvísýnni
keppni í mörgum þeirra. Til dæmis
eru 8 keppendur í sleggjukasti, en
um langa hríð hafa keppendur í
þeirri grein verið a.m.k. helmingi
færri. Keppt er í 30 greinum karla
og kvenna. Meðal keppenda eru
Einar Vilhjálmsson UIA, Helga
Halldórsdóttir_ KR, Ragnheiður 01-
afsdóttir FH, íris Grönfeldt UMSB,
Þórdís Gísladóttir HSK; Eggert
Bogason FH og Oddný Arnadóttir
ÍR.
Tímaseðill mótsins er svohljóðandi:
Laugardagur:
14.00 Mótssetning
14.05 400 grind karla, stangarstökk, spjót
kvenna, hástökk kvenna
14.20 400 gr. kvenna, kúla karla, langstökk
karla
14.30 200 karla undanrásir
14.45 200 kvenna undanrásir
15.00 5000 karla
15.15 Spjótkast karla
15.25 Kúluvarp kvenna
15.30 200 karla úrslit
15.37 200 kvenna úrslit
15.45 800 karla
16.00 800 kvenna
16.10 3000 kvenna, sleggjukast
16.30 4x100 karla
16.40 4x100 kvenna
Sunnudagur:
14.00 110 grind karla, hástökk karla, kringla
karla, langstökk kvenna
14.15 100 grind kvenna, undanrásir
14.35 100 kvenna, undanrásir
14.50 100 karla, undanrásir
15.05 400 kvenna, kringla kvenna
15.10 1500 kvenna
15.15 Þrístökk
15.25 100 grind kvenna, úrslit
15.40 100 karla, úrslit
15.47 100 kvenna, úrslit
- 15.55 1500 karla
16.10 400 karla
Mánudagur:
18.30 Fimmtarþraut karla
18.40 3000 hindrun
19.15 4x400 kvenna
19.35 4x400 karla
QoH
Landsmótið í golfi hefst á Jaðar-
svelli Golfklúbbs Akureyrar á
mánudaginn og er getið sérstaklega
um það á síðunni hér við hliðina.
Steinunn Sæmundsdóttir, ís-
landsmeistarinn frá því í fyrra í
kvennaflokki, ver ekki íslandsmeist-
aratitilinn á Akureyri. Hún verður
ekki með á mótinu.
Knattspyma
Fimm leikir eru á dagskrá 1. deild-
arinnar í knattspymu. Fjórir leikir
eru á morgun á einn á mánudags-
kvöld. Kl. 20.00 hefjast eftirtaldir
leikir: ÍBK-Valur, KA-Víðir, Fram-
ÍA, Völsungur-Þór. Á mánudags-
kvöldið kl. 20.00 leika svo FH og
KR í Hafnarfirði. Þess skal getið
að aðalhlið Laugardalsvallar verður
lokað, og verður gengið inn á völl-
inn að norðanverðu (nær sundlaug-
unum).
I 2. deildinni eru fjórir leikir: Sel-
foss-ÍBÍ, Einherji-KS og ÍBV-Leift-
ur. Allir heflast þeir kl. 14.00.
Gull- og Silfurmótið í knattspymu
verður sett í dag kl. 10.00 fyrir
hádegi á Kopavogsvelli. Þetta er
mót fyrir 3. flokk kvenna. í dag
verður leikið il kl. 18.00. Keppni
hefst svo að nýju á morgun kl.
10.00 og stendur riðlakeppnin til
14.40. Þá hefst keppni um sæti og
úrslitaleikurinn sjálfur á að hefjast
kl. 16.40.
Sund
Aldursflokkameistaramótið hófst í
Vestmannaeyjum í gærkvöldi og
stendur yfir í dag og á morgun.
FRJÁLSAR ÍÞRÓTTIR
SjökeppaíRóm
SJÖ frjálsíþróttamenn hafa
verið valdirtil að keppa á
heimsmeistaramótinu í frjáls-
íþróttum sem fram fer í Róma-
borg 29. ágúst til 6. september.
eir sem valdir hafa verið til
fararinnar em spjótkastaramir
Einar Vilhjalmsson, Sigurður Ein-
arsson og íris Grönfeldt. Vésteinn
Hafsteinsson keppir í kringlukasti,
Þórdís Gísladóttir í hástökki, Ragn-
heiður Ólafsdóttir í 3000 metra
hlaupi og Helga Halldórsdóttir
keppir í 100 og 400 metra grinda-
hlaupi.
Þrír þjálfarar fara með hópnum til
Ítalíu, þeir Þráinn Hafsteinsson,
Stefán Jóhannsson og Erlendur
Valdimarssom Ágúst Ásgeirsson,
formaður FRÍ, verður fararstjóri.
Tvö á EM unglinga
Tveir keppendur fara héðan á EM
unglinga sem haldið verður í Birm-
ingham dagana 6. til 9. ágúst.
Frímann Hreinsson úr FH mun
keppa þar í 10.000 metra hlaupi
og Guðrún Amardóttir úr UBK
keppir í 100 og 200 metra hlaupi.
Fararstjóri verður Jón Sævar Þórð-
arson.
Keppt um helgina
Fjórir ftjálsíþróttamenn keppa í
norrænni fijálsíþróttakeppni sem
fram fer í Danmörku um helgina.
Keppnin fer fram í Esbjerg og þar
tefla íslendingar og Danir fram
sameiginlegu liði gegn Svíum,
Norðmönnum og Finnum. Tveir
keppendur em í hverri grein.
Þeir sem fara héðan em Frímann
Hreinsson úr FH, sem keppir í 5.000
metra hlaupi, Jón Amar Magnússon
úr HSK, sem keppir í 100 m hlaupi,
Ólafur Guðmundsson úr HSK, en
hann keppir í lagstökki og Svan-
hildur Kristjónsdóttir úr UBK sem
keppir í 100 og 200 m hlaupum.