Morgunblaðið - 25.07.1987, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. JÚLÍ 1987
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Vinnupallurinn sem mennirnir stóðu á sporðreistist og þeir féllu niður ásamt timbri og öðru lauslegu
sem var á pallinum.
Fjórir menn hröpuðu 12
metra í súrheysturni
Festivír í vinnupalli slitnaði og pallurinn sporðreistist
Selfossi.
FJÓRIR menn, sem unnu við
byggingu súrheysturns á bænum
Akurgerði í Olfúsi, hröpuðu
síðdegis í gær 12 metra innan í
turninum þegar vinnupallur
þeirra sporðreistist. Mennirnir
komu niður á steinsteypt gólfið
í turninum. Þeir hlutu töluverð
beinbrot en eru ekki taldir i
lífshættu.
Mennirnir unnu við að taka niður
skriðmót efst í tuminum þegar tveir
vírar af fjómm, sem héldu pallinum
uppi, slitnuðu. Mennimir stóðu allir
öðmm megin á pallinum og féllu
niður ásamt timbri og öðm lauslegu
sem á pallinum var. Það varð þeim
til happs að koma niður á fætuma
eða búkinn, en ekki höfuðið og að
pallurinn hékk uppi ásamt mótun-
um.
Þegar komið var að vom menn-
imir allir með meðvitund en ringlað-
ir. Þrír sjúkrabílar vom sendir frá
Selfossi eftir mönnunum og þurfti
að taka þá út um litla lúgu á tumin-
um, í tveggja metra hæð. Mennimir
vom allir fluttir á slysadeild Borg-
arspítalans í Reykjavík.
— Sig. Jóns.
Líkjör með
kaffinu
Borgarráð hefúr samþykkt
fyrir sitt leyti að veita Brauð hf.
vínveitingaleyfi á nýjum veit-
ingastað, „Myllan konditori",
sem fyrirtækið hyggst reka í
Kringlunni.
„Við emm að reyna að skapa
kaffihúsastemmningu eins og hún
gerist best í Evrópu,“ sagði Kol-
beinn Kristinsson, einn eiganda
fyrirtækisins. „Auk hefðbundins
súkkulaðibolla verður hægt að fá
líkjör og koníak með kaffinu. A
kvöldin verður sérstakur matseðill
og þar boðið upp á ostatertur, osta-
bakka og kaffikökur en smárétti
og salöt á daginn, sem gott er að
hafa léttvín með.“ Í veitingasal
verður rúm fyrir 160 til 170 manns
og verður þjónað til borðs.
Þröstur
vann Alan
ÞRÖSTUR Þórhallsson vann
Filippseyinginn Alan i 6. umferð
heimsmeistarmóts 20 ára og
yngri á Filippseyjum og er í 6.-12.
sæti á mótinu ásamt sex öðrum
skákmönnum með 4 vinninga.
Hannes Hlífar Stefánsson tapaði
skák sinni í 6. umferð fyrir Wollf
frá Bandaríkjunum og er með 2
vinninga.
Eftir sex umferðir em efstir og
jafnir á mótinu Shimen Agdestein
frá Noregi og Klinger frá Aust-
urríki með 5 vinninga og í 3.-5
sæti em Sovétmennimir Serper og
Ivanchuk ásamt Amant frá Indlandi
með 4,5 vinninga. Frídagur verður
í dag og 7. umferðin tefld á sunnu-
dag.
Súrheystuminn í Akurgerði sem mennirair unnu við er til hægri á
myndinni.
Morgunblaðið/BAR
Heimsmeistarinn kominn heim
Héðinn Steingrímsson, heimsmeistari baraa yngri en 12 ára í
skák, kom í gær til landsins frá Puerto Rico, þar sem hann vann
til heimsmeistaratitilsins.
Bera Nordal for-
stöðumaður Lista-
saíhs Islands
BERA Nordal listfræðingur hef-
ur verið settur forstöðumaður
Listasafns íslands til bráða-
birgða frá og með júlí 1987. Dr.
Selma Jónsdóttir forstöðumaður
safnsins lést þann 5. júlí síðastlið-
inn.
Bera er fædd 25. september
1954. Hún lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum í Reykjavík 1974.
Eftir stúdentspróf hóf hún nám í
listasögu við Háskólann í Lundi og
lauk þaðan fíl. kand-prófi í listasögu
1978. Árið 1979 lauk hún masters
prófi í listasögu frá Courtauld Inst-
itute of Art í London. Hún stundaði
doktorsnám við sömu stofnun frá
1979.
Bera var settur safnvörður við
Listasafn íslands 1980 og skipuð í
stöðuna frá 1982.
Eiginmaður Beru er Sigurður
Ármann Snævarr hagfræðingur.
Bera Nordal
Mikið Ijón hjá SS vegna salmonellu:
Beinn kostnaður
hátt í tvær
milljónir króna
„MIKILL samdráttur hefúr átt
sér stað í sölu svínakjöts í síðustu
viku og er hann auðvitað til kom-
inn vegna sölustöðvunar fyrir-
tækisins. Við kölluðum inn allt
svínakjöt úr verslunum og höfúm
ekkert framleitt í vikutíma,“
sagði Steinþór Skúlason, fram-
leiðslustjóri hjá Sláturfélagi
Suðurlands, í samtali við Morg-
unblaðið er hann var inntur eftir
tjóni fyrirtækisins vegna salmon-
ellu í svínakjöti frá SS.
Steinþór sagði að sýkingin væri
ekki til komin innan fyrirtækisins
heldur hefði hún borist með sjúku
dýri frá einu svínabúi fýrir austan
fjall. Byijað verður að slátra svínum
hjá SS á mánudag og þá verður
eingöngu slátrað frá búum sem
ekki hefðu sýnt salmonellu-sýkingu.
„Beinn útlagður kostnaður SS
vegna salmonellunnar mun vera
hátt í tvær milljónir króna, en erf-
itt er að gera sér grein fyrir
óbeinum áhrifum vegna hennar sem
eru þá hugsanlega vegna minni
sölu. Greinilegt er að fólk er orðið
mjög hrætt við sýkingu í matvæl-
um.“
Steinþór sagði að tekin hefði
verið sú ákvörðun hjá SS að héðan
í frá yrðu öll svínabú, sem SS skipti
við, skoðuð mánaðarlega með tilliti
til salmonellu-sýkingar. Heilbrigðis-
skoðunin færi fram í samvinnu við
dýralækna, en slíkar skoðanir hefðu
ekki áður farið fram hjá fyrirtæk-
inu.
Sala á dilkakjöti hefur aukist til
muna í verslunum. Steinþór sagði
að sú aukning væri frekar á kostn-
að kjúklingakjöts heldur en svína-
kjöts þar sem salmonellan í
svínakjötinu væri það ný til komin.
Magnús Ingi Sigurðsson Rafn Ragnarsson
Þeir sem fórust
við Blönduós
ÞEIR sem fórust í flugslysinu við 25 ára, Jörfabakka 30, Reykjavík,
Blönduós á fimmtudag voru auk og Rafn Ragnarsson flugvirki, 29
Friðriks Dungal og Gunnars Guð- ára, Meistaravöllum 31,
mundssonar, þeir Magnús Ingi Reykjavík. Rafn lætur eftir sig
Sigurðsson viðskiptafræðingur, níu ára gamla dóttur.