Morgunblaðið - 25.07.1987, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 25.07.1987, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. JÚLÍ 1987 7 Æ STÖÐ-2 iii ím rni'ii 18:00 uOLr I sumar mun Stöð 2 sýna þætti frá stórmótum viða um heim. ÚTVARP ALFA 13.00—14.30 Skref i rétta átt. Þáttur í umsjón Magnúsar Jónssonar, Þor- valds Daníelssonar og Ragnars Schram. 14.30—16.00 Tónlistarþáttur í umsjón Hákonar Möller. 16.00—17.00 Á beinni braut. Unglinga- þáttur. 17.00-22.00 Hlé. 22.00—24.00 Vegurinn til lífsins. Tón- listarþáttur með ritningarlestri. 24.00—04.00 Næturdagskrá. HUÓÐBYLGJAN AKUREYRI 10.00—12.00 Barnagaman. Þáttur fyrir yngstu hlustendurna, tónlist og viðtöl. Umsjón Hanna B. Jónsdóttir og Rakel Bragadóttir. 12.00—13.00 í hádeginu. Þáttur i um- sjón Pálma Guðmundssonar. 13.00—14.00 Fréttayfirlit á laugardegi í umsjón Friðriks Indriðasonar, frétta- manns Hljóðbylgjunnar. 14.00—16.00 Líf á laugardegi. íþrótta- þáttur I umsjón Marínós V. Marinós- sonar. 16.00—19.00 Alvörupopp. Tónlistar- þáttur i umsjón Ingólfs Magnússonar og Gunnlaugs Stefánssonar. 19.00—23.00 Létt og laggott. Þáttur í umsjón Hauks Haukssonar og Helga Jóhannssonar. 23.00—05.00 Næturvakt Hljóðbylgjunn- ar. SVÆÐISÚTVARP AKUREYRI 18.00—19.00 íþróttir helgarinnar á Norðurlandi. 21:10 Sunnudagur ÞRÆÐIR Sunnudagur UNDUR ALHEIMSINS Wva). Flest flugslys má rekja tilmistaka ftugmanna, en ekki . tæknibilunar, að þvier virðist. Eru flugmenn vanhæfiral- mennt? I þessum þætti er litið á málið og kannað hvað mætti tilúrbóta verða. (Lace II). Sjónvarpsmynd i tveim hlutum. Fyrri hluti. Klámmynda- drottningin Lili er tilbúin að leggja allt ísölurnar tilþess að fó vitneskju um uppruna sinn. GASIDÍ BOTN! Það er dagsatt að á bensín- stöðvum Esso er sumarlegt andrúmsloft. Þar fæst sænskt gas á hylkjum frá „Primus" auk vandaöra gaslukta og gashellna. Einnig bjóðast þar ýmsar aðrar ferðavörur svo sem létt borð og stólar, vatnspokar, veiðisett, grillvörur og margt fleira. Gasluktir frá 621 kr. Gashellur -1428kr. Gashylki (einnota) - 89 kr. Gashylki (áfyllanleg) - 800 kr. Veiðisett -1190 kr. Ly$jí* Auglýsingasími Stöðvar 2 er 67 30 30 Lyklllnn fsarð þúhjé Heimlllstsakjum Heimilistæki hf S:62 12 15 VJterkurog k-/ hagkvæmur auglýsingamióill! Fróöleikur og skemmtun fyrir háa sem lága! Frá Djúpavogi. Kaupfélag Berufjarðar: Verðum að fá botn í þessi mál - segir Ólafiir Ragnarsson sveitarslgóri á Djúpavogi GREIÐSLUSTOÐVUN Kaup- félags Berufjarðar á Djúpavogi rann út í byijun júní en enn hef- ur ekki verið gengið frá því hver muni taka við rekstri þess. Helstu kröfúhafar í fyrirtækið eru Sam- band íslenskra samvinnufélaga og önnur Sambandsfyrirtæki, þar á meðal Búlandstindur hf á Djúpavogi. Samþykkis þeirra fyrir nauðarsamningum hefur enn ekki verið leitað. Heima- menn eru orðnir langeygir eftir að línur skýrist í málinu, en margt bendir til að Kaupfélag A-Skaftfellinga yfirtaki rekstur- inn. „Við verðum að fara að fá ein- hvem botn í þessi mál, greiðslu- stöðvunin rann út 5. júní og við erum orðin aðþrengd hér útaf þessu öllu,“ sagði Ólafur Ragnarsson sveitarstjóri á Djúpavogi í samtali við Morgunblaðið. Hann sagði að þessi staða mála færi illa með byggðarlagið, en það hefur hvorki fengið greidd fasteigna- né að- stöðugjöld sem áttu að greiðast í janúar og apríl. Óli Björgvinsson, formaður stjómar Kaupfélags Beruíjarðar, sagði það væri rétt að þetta væri búið að taka allt of lang- an tíma en enn væri ekki séð fram á lausn málsins. Hann sagði að unnið væri að sölu fasteigna og undirbúningi nauðarsamninga og hann byggist við að Kaupféiag A- Skaftfellinga tæki við rekstri Kaupfélags Berufjarðar og keypti jafnframt eignir þess. KASK hefur rekið verslun Kaupfélags Bemfjarð- ar á Djúpavogi frá áramótum. Aðspurður um hveija hann teldi farsælustu lausnina á þessu máli sagði Ólafur Ragnarsson að best væri ef kaupfélagið yrði áfram rek- ið af heimamönnum, en það hefði háð rekstri þess að Sambandið hefði viljað ráða þar allt of miklu. Óli Björgvinsson sagði að ljóst væri að Kaupfélag Berufjarðar myndi ekki starfa áfram. Hann sagði að þó að kaupfélagsstjómin hefði viljað semja við heimamenn hefði enginn lýst sig tilbúinn til að ganga inn í dæmið eins og Kaup- félag A-Skaftfellinga hefur gert. Hann sagði að línur myndu væntan- lega skýrast á næstu dögum. Norræna hönn- unarsýningin opnuð í dag NORRÆNA hönnunarsýningin á Kjarvalsstöðum opnar í dag laug- ardag kl. 14. Davíð Oddsson borgarstjóri opnar sýninguna og Jarno Peltonen forstöðumaður finnska Listiðnaðarsafhsins fiyt- ur ávarp. Á sýningunni verða verk eftir 40 norræna hönnuði sem hlutu Lunn- ing verðlaunin fyrir hugmyndir sínar og verk á árunum 1951 til 1970. Sýningin verður opin daglega til 9. ágúst n.k. frá kl. 14 til 22. Salmonellan í Dölunum rakin til svínakjöts: Landsherferð á hendur salmonellu í bígerð - segir Ólafiir Ólafsson landlæknir UNNIÐ er nú að því að samræma aðgerðir gegn salmonellu. í bígerð er að auka eftirlit með matvælaiðnaði til muna auk þess sem fólk, sem haft hefúr ein- kenni á niðurgangi, er eindregið hvatt til að koma til rannsóknar hjá heimilislæknum sínum, að sögn Ólafs Ólafssonar landlækn- is. Greindir hafa verið hátt í 40 manns með salmonellu-sýkingu af þeim sem sóttu ættarmótið í Dala- sýslu í bytjun júlí og nú er ljóst að sýkillinn er komin úr svínakjöti frá Sláturfélagi Suðurlands, sam- kvæmt niðurstöðum Hollustuvemd- ar ríkisins. Ólafur sagði að fyrst og fremst væri verið að reyna að komast að því hversu víðtæk salm- onella-sýking væri hérlendis. Ljóst væri að hún væri víðtæk og því mun herferð gegn henni nauðsyn- leg. Jóhann Ágúst Sigurðsson hér- aðslæknir í Reykjanesi sagði að náðst hefði samband við 200 manns af þeim 324 sem á ættarmótinu í Dölunum hefðu verið, en mikilvægt væri að vita hvort einhver þeirra sýktu væri krónískur smitberi, sem þýddi að sá myndi ganga með sýkil- inn áfram. Sumir hinna sýktu urðu mjög veikir í nokkra daga og ein stúlka var lögð á sjúkrahús með botnlangabólgu sem rakin er til salmonellunnar. Jóhann sagði sýnataka yrði aukin mjög úr matvælum, en meginá- herslan yrði lögð á fyrirbyggjandi aðgerðir svo sem að passa upp á að starfsfólk í matvælaiðnaði sé ávallt heilbrigt. „Starfsfólk, sem starfar við lyfjaframleiðslu, hefur ávallt verið látið skila hægðarsýn- um áður en það hefur störf eftir dvöl erlendis og ætti það sama vissulega að ganga yfir það fólk, sem starfar að matvælaframleiðslu. MORGUNBLAÐINU hefúr borist eftirfarandi fréttatilkynning frá Sláturfélagi Suðurlands vegna salmonella mengunar í svína- kjöti: „Allir starfsmenn Sláturfélags- ins, sem meðhöndluðu svínakjötið, voru heilbrigðisskoðaðir með tilliti til salmonella sýkingar. Engin starfsmanna hefur reynst sýktur. í samráði við yfirdýralækni er verið að rannsaka sýni frá öllum svínabúum, sem skipta við Sláturfé- lagið. Svín verða ekki tekin til Að mínu mati ættu fyrirtækin sjáll að sjá um að slíkum reglum sé fram- fylgt. Á Reykjanesi vorum við hræddastir við að missa sýkingu i þann mat, sem framleiddur er á Keflavíkurflugvelli fyrir flugið, en sérstakrar nærgætni þarf vissulega fyrir svo stóra dreifingaraðila. Það má hreinlega ekkert koma upp hjá slíkum aðilum. Ef sýking kæmist til dæmis inn í kerfi, sem dreifir matvælum til fleiri hundruða manna, er ekki að spyrja að leiks- lokum,“ sagði Jóhann Ágúst. slátrunar frá búunum fyrr en fyrir liggur að ekki hafi fundist salmon- ella í umræddum sýnum. í samráði við svínabændur verður komið á reglulegu eftirliti með heil- brigði sláturdýra til að tryggja megi að sýkt dýr komi ekki til slátr- unar. Slátrun hefst í dag, föstudag, með slátrun nautgripa eftir sótt- hreinsun á sláturhúsi og vinnslusöl- um félagsins. Sláturfélagið telur að með ofangreindum ráðstöfunum sé öryggi neytenda tryggt eins og frekast er unnt “ Sláturfélag Suðurlands: Engin starfsmanna hefur reynst sýktur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.