Morgunblaðið - 25.07.1987, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 25.07.1987, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. JÚLÍ 1987 27 Amtsbókasafiiið: Útlán hafa dregist sam- an á þessu ári ÚTLÁN Amtsbókasafnsins hafa dregist verulega saman á undan- förnum árum og á þessu ári hafa útlán verið u.þ.b. tveimur þúsund bindum færri á mánuði en í fyrra. „Þó dapurlegt sé að segja frá því sýnist mér gegnumsneitt að útlán bóka hafa dregist verulega saman hjá okkur,“ sagði Lárus Zóphanías- son, amtsbókavörður, í samtali vi blaðamann Morgunblaðsins, er hann var inntur eftir því hvort bókarlestur og útlán á bókum safnsins væri að dragast saman í kjölfar fjölgun sjón- varpsstöðva. „Fjðldi útlána hefur verið svolítið sveiflukenndur síðustu ár, en því miður hefur fækkun útlána greinilega farið vaxandi að undanfömu. Frístundir fólks eru famar að dreif- ast meira og bókin á örugglega í samkeppni við sjónvarpsstöðvamar og myndböndin. Það er hins vegar gleðilegt í þessu sambandi að útlán til skipa hafa aukist nokkuð upp á síðkastið, en þau lán drógust verulega saman á tímabili og var mér sagt að myndbandavæðingin hefði haft þar sitt að segja. Þetta er greinilega að breytast aftur og er það vel. Utlán hafa verið það sveiflukennd í gegnum tíðina, að ég á frekar von á að útlán bóka eigi eftir að glæðast aftur. Árið 1973 vom lánuð hér út u.þ.b. 100 þúsund bindi, en útlán í fyrra vom um 118 þúsund bindi. Þetta hefur því sveiflast talsvert til í gegnum tíðina og ástæðulaust að örvænta," sagði Láms að lokum Morgunblaðið/Sverrir Verkað í vetrarforðann Áslaug Árnadóttir bókavörður í Reykjavík stóð við að verka fisk á Hjalteyri þegar Sverrir Vilhelmsson ljósmyndari Morg- unblaðsins kom þar við í vikunni. Áslaug er fædd og uppalin á Hjalteyri og dvelur oft á sumrin í gamla húsinu sínu. Tíminn er notaður til að veiða fisk og verka hann í frysti- kistu heimilsins. Hollensk náttúruvernd- ar samtök sleppa sex selum við Grímsey í dag HÓPUR Hollendinga með 6 seli í farteskinu er væntanlegur hingað til Akureyrar í dag og er ætlunin að fara með selina út til Grímseyj- ar og sleppa þeim þar. Um er að ræða fjóra vöðuseli og tvo hringanóra sem lifa á norðlægum slóðum en flæktust fiilllangt suður á bóginn. Það er selaverndunarstofhun Hollands, Zeehonden Creche, sem að þessu stendur og með þeim í för eru fulltrúar allra helstu fjölmiðla þar í landi. Lenie ’t Hart, stofnandi selaspít- alans, sem stofnunin rekur, kom hingað til lands í gær til að und- irbúa komu hópsins og selanna, en þetta er í fjórða sinn sem hún stend- ur að því að sleppa selum hér við ísland. Hefur hún í öllum sínum ferðum sleppt þeim hér við Eyja- §örð. En af hveiju eru þau að þessu? „í þau þijú skipti sem ég hef komið hingað áður hef ég bara haft einn sel meðferðis hveiju sinni, og borið hann sem handfarangur á MENNTAMÁLARÁÐ ákvað á fiindi sínum hér á Akureyri á fímmtudag að færa Háskólan- um á Akureyri að gjöf allar útgefnar bækur Menningar- sjóðs sem enn eru fáanlegar. Halldór Blöndal, alþingismaður og formaður háskólanefndar, sagði í samtali við Morgunblaðið, leiðinni, og ég hef alltaf sleppt þeim héma við Akureyri," sagði Lenie, en hún stofnaði selaspítalann í Hol- landi fyrir 16 árum og hefur unnið að selavemdun síðan. Selirnir sem komið verður með hingað til lands eru selir sem Lenie sagði að hefðu flækst norðan úr Barentshafí og af Jan Mayen- svæðinu í ætisleit, og hefðu fundist nær dauða en lífi af hungri við strendur Belgíu, Hollands og Þýskalands. „Okkar starf hefur verið að bjarga þessum selum og að um væri að ræða töluverðan fjölda bóka. Þama væri kominn fyrsti vísir að bókasafni við Há- skólann á Akureyri og mættu fleiri bókaútgefendur fara að dæmi Menningarsjóðs. Þá samþykkti ráðið einnig að Menningarsjóður skyldi gefa út nýja skáldsögu eftir Guðmund Daníelsson, sem heitir Vatnið. koma þeim aftur sem næst fyrri heimkynnum. Þessir selir sem við komum með nú hafa fundist á und- anfömum vikum og mánuðum, en við höfum sel aldrei lengur hjá okk- ur en sex mánuði í einu. Það er fólk hvaðanæva að sem lætur okkur vita ef selur strandar og því getum við komið honum fljótlega til hjálp- ar og á þennan hátt höfum við bjargað um 20 selum frá dauða,“ sagði Lenie. Aðalstarfsemi stofnunarinnar sagði hún þó vera aðra en þá að bjarga selum sem villst hefðu of langt suður á bóginn, því landselur- inn, sem lifir við Holland, væri í mikilli hættu og væri mikið starf að hlúa að honum. „Við Holland eru nú um 700 landselir, en þeir voru í mikilli út- rýmingarhættu þangað til stofnunin hófst handa við að bjarga þeim. Þeim hafði fækkað allvemlega vegna mengunar og voru á tímabili rétt um 350 að tölu. Okkur hefur því tekist að fjölga þeim um 450 og erum nokkuð ánægð með það. Þessi starfsemi okkar er ríkisstyrkt og hefur notið nokkurrar athygli, en við rekum eina selaspítalann í Evrópu. Spítalar af þessu tagi eru einnig í Bandaríkjunum, en nú er í ráði að stofna fleiri selaspítala í Evrópu; í Grikklandi og hugsanlega á Ítalíu, því selurinn sem lifír í Miðjarðarhafínu, munkaselurinn svokallaði, er í talsverðri hættu. Fjöldi munkasela er um 850 og steðja að honum ýmsar hættur fyr- ir utan mengun, en aukinn ferða- mannastraumur á þessu svæði hefur mjög truflandi áhrif á hann.“ Lenie sagði að lokum að vonandi Menntamálaráð gefiir bækur Menningarsjóðs: Fyrsta bókagjöfin til háskólans hér yrði veðrið gott í dag því ef spáin væri slæm yrði að fresta ferðinni, en hún kom einmitt nokkru fyrr til að athuga hvort ekki væri allt í lagi að fara af stað með selina í dag. Hjá selavemdunarstofnun Hol- lands starfa nú 7 einstaklingar, sem flestir eru sérfræðimenntaðir, en styrktarfélagar eru um 23 þúsund talsins. Þriðja sumar- tónleikaröðin ÞRIÐJA tónleikaröð sumartón- leika verður um helgina i Akureyrarkirkju, Húsavíkur- kirkju og Reykjahlíðarkirkju. Að þessu sinni koma fram þeir Úlrik Ólason, kirkjuorganisti á Húsavík, sem leikur á píanó, og Kanadamaðurinn Mark Evans, sem leikur á klarinett. Flutt verða verk eftir Brahms, Mozart, Messager, Cavalleri og Saint-Sains. Fýrstu tónleikarnir verða að venju í Akureyrarkirkju á sunnu- daginn kl. 17.00 og á mánudag verða tónleikar klukkan 20.30 í Húsavíkurkirkju og á þriðjudag í Reylq'ahlíðarkirkju og hefíast þeir einnig klukkan 20.30. Banaslys í Öxnadal BANASLYS varð við Bakkasel í Oxnadal í fyrrinótt. Kona, sem var ein á ferð í fólksbíl, ók út af veginum og var látin þegar að var komið. Lögreglunni á Akureyri barst til- kynning um atburðinn um klukkan 2.30 um nóttina, en ekki var vitað hvenær hann hefði átt sér stað. Nafn hinnar látnu er ekki hægt að birta að svo stöddu því ekki hafði tekist að ná til allra ættingja hennar. Þá var óvenju mikið um um- ferðarárekstra hér á Akureyri eftir hádegið í gær. Að sögn lögreglunn- ar var sólin vart fyrr farin að skína en ökumenn fóru að aka á í hrönn- um. Alls urðu árekstramir 6, en sem betur fer urðu engin slys á fólki og engar verulegar skemmdir á bif- reiðum. Bifreiðastjórar: Hafið bílbænina í bílnum og orð hennar hugföst þegar þið akið Drottinn Guó, veit mór vernd þina. og lát mig minnast ábyrgðar minnar er ég ek þessari bifreiö. I Jesú nafni. Amen. Fæst í Kirkjuhúsinu, Klapparstíg 27, í verslun- inniJötu, Hátúni2a, Reykjavík og í Hljómveri, Akureyri. Verð kr. 50,- Orð dagsins, Akureyri. Morgunblaðið/Kristinn Jens Sigurþórson Lenie ’t Hart

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.