Morgunblaðið - 25.07.1987, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 25.07.1987, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. JÚLÍ 1987 Langlínusamtöl hafa ver- ið of hátt verðlögð miðað við innanbæjarsímtöl - segja talsmenn Pósts og síma PÓST- og símamálastofnunin efhdi í gær til blaðamannafundar vegna þeirra gjaldskrárbreytinga sem urðu 1. júlí síðastliðinn, en þá hækkuðu gjöld fyrir póst- og símaþjónustu um 9,5% að meðal- tali auk þess sem gerðar voru ýmsar breytingar á uppbyggingu gjaldskrárinnar. í þeim breyting- um felst meðal annars að langlínutaxti lækkaði og skref lengdust á langlínuleiðum en gjald fyrir staðarsímtöl eða inn- anbæjarsímtöl hækkaði. Að sögn talsmanna Pósts og síma miða þessar breytingar að þvf að færa símgjöld nær raunkostnaði, auk þess sem gjald fyrir langlínusamt- öl hafi verið hlutfallslega of hátt miðað við verð á staðarsímtölum. „Það er ekki rétt sem haldið hefur verið fram í fjölmiðlum að Reyk- víkingar borgi nú hærri símgjöld en aðrir landsmenn. Símgjöld hækka hlutfallslega mest hjá þeim sem ein- göngu nota síma innanbæjar, en lækkar ef mikið er um langlínusamt- öl. Kostnaður við byggingu og rekstur langlínukerfa héfur farið lækkandi undanfarin ár miðað við staðarkerfí og þessar breytingar taka mið af því,“ sögðu talsmenn Pósts og síma. Bent var á að hlutur langlínusamtala væri alltaf að auk- ast og 60% af skrefanotkun Reyk- víkinga væri í gjaldflokki 2 og 3 sem eru langlínutaxtar. Hins vegar eru 85-90% skrefanotkunar fólks utan höfuðborgarsvæðisins á langlínut- öxtum. Sem dæmi um verðbreytingar má nefna að dagtaxti fyrir þriggja Þorsteinn Geirsson ráðuneytisstjóri í dómsmálaráðuneytinu: Sérstakur saksókn- ari skipaður fljótlega JÓN Sigurðsson dómsmálaráð- herra mun á næstunni skipa sérstakan saksóknara í Hafskips- málinu. Ekki er Ijóst hvenær það verður. Að sögn Þorsteins Geirssonar ráðuneytisstjóra í dómsmálaráðu- neytinu er ekki fyllilega ljóst hvort sami maðurinn verði skipaður sak- sóknari í máli Hafskipsmannanna og máli bankastjóra Útvegsbank- ans. Leiðrétting Selfossi. MISRITUN varð undir mynd af alelda sumarbústað í Grímsnesi. Sagt var að Sigurður Jónsson hefði tekið myndina. Svo var ekki heldur er Sigurjón Skúlason höfúndur myndarinnar. Eru hlutaðeigendur beðnir velvirð- ingar á þessu. — Sig. Jóns. Jón Magnússon lögmaður Ragn- ars Kjartanssonar fyrrverandi stjómarformanns Hafskips hf. sendi á sínum tíma dómsmálaráðu- neytinu afrit af bréfí til ríkissak- sóknara, þar sem hann fór fram á að hann viki sæti. Aðspurður um hvort það hefðu ekki verið mistök að fallast ekki á þessa beiðni, sagð- ist Þorsteinn ekki telja svo. „I þessu bréfi voru tilteknar ýmsar ástæður fyrir vanhæfi Hallvarðar, en ekki minnst á tengsl Hallvarðar við Jó- hann. Þar eð Sakadómur og Hæstiréttur hafa hafnað öllum öðr- um vanhæfísástæðum, hefði það ekki verið rétt að skipa sérstakan saksóknara á grundvelli þessa bréfs. Almenna reglan er sú að ríkis- saksóknari fari með ákæruvald og er ekki ástæða til þess að fela öðr- um það vald, nema fyllilega sé ljóst að um vanhæfí sé að ræða. Það sést af skiptingu Hæstaréttar, að það var ekkert augljóst mál,“ sagði Þorsteinn Geirsson. Fiskverð á uppboðsmörkuðum mínútna staðarsímtal, öðru nafni innanbæjarsímtal, var fyrir hækkun kr. 1,98 á dagtaxta en er nú kr. 2,34, en utan dagtaxta var verðið kr. 1,32 fyrir 1. júlí en er nú kr. 1,95. Miðað við þriggja mínútna langlínusamtal, hærri taxta, var dagtaxti áður kr. 21,12 en er nú 19,22. í stað eins kvöld- og nætur- taxta á langlínusamtöl sem áður var kr. 14,52, er nú kvöldtaxti frá kl. 18.00 á kr. 13,26 fyrir þriggja mínútna samtal og nætur- og helg- artaxti sem gildir frá kl. 23.00 til kl. 08.00 virka daga og um helgar frá kl. 23.00 á föstudegi til kl. 08.00 á mánudegi. Hringi fólk á þessum tíma langlínusamtal kostar það kr. 10,33 fyrir þriggja mínútna samtal. Rétt er að taka fram að þessi verð eru án söluskatts. Gagnrýnt hefur verið að tekin hefur verið upp skrefatalning á kvöldin og um helgar á innanbæj- arsímtölum sem áður töldust eitt skref og bent á að hún muni koma sérstaklega illa niður á ellilifeyris- þegum sem hafa frían síma að því leyti að þeir fá fastagjaldið borgað en ekki umframskref. Þessu svöruðu talsmenn Pósts- og síma á þann veg að á fímmta þúsund aldraðir nytu nú eftirgjafar á afnotagjöldum af hálfu Pósts og síma og hlyti því að teljast eðlilegt að aðrir aðilar, svo sem Tryggingastofnun ríkisins, kæmi að öðru leyti þar inn í mynd- ina. „Það fólk sem fyrst og fremt líður fyrir háan símareikning eru Qölskyldur sem skiptar eru á milli landshluta. Það eru þeir sem háðast- ir eru símanum til að halda tengslum sín á milli og langlínutaxtinn lækkar nú verulega." Inniföldum skrefum í afnotagjaldi var 1. júlí fækkað utan höfuðborgar- svæðisins úr 600 í 400 og á höfuð- borgarsvæðinu úr 300 í 200. Á höfuðborgarsvæðinu er hægt að hringja á staðartaxta á milli 10 stöðva og er það ástæðan fyrir færri innifoldum skrefum í afíiotagjaldi en utan höfuðborgarsvæðis. Morgunblaðið/Sverrir Vilhelmsson. Framkvæmdastjóri og starfsmenn félagsins talið firá vinstri: Guðbjörg Pétursdóttir, Ragnheiður Jónsdóttir, Jóna Maria Jóns- dóttir, Gerður Helgadóttir og Sigrún Kristjánsdóttir. Bros hf. gefur út bókina Tökum lagið Útgáfúfélagið Bros hf. hefúr nýlega sent frá sér söngbókina Tökum lagið. Félagið hóf starf- semi sina 20. júlí s.l. og er útgáfa söngbókarinnar þess fyrsta verk. í fréttatilkynningu frá félaginu segir að tilgangur þess sé almenn útgáfustarfsemi eins og útgáfa bóka, tímarita, forrita o.fl. og hafí forráðamenn félagsins ákveð- ið að gefa út söngbók til þess að landsmenn gætu tekið lagið sam- an um Verslunarmannahelgina. Söngbókin Tökum lagið er 323 síður í litlu vasabroti og í henni eru tæplega 400 textar bæði nýir og gamlir. Bókinni er skipt' í sex kafla sem innihalda þjóðlög, ættj- arðarsöngva, ástarsöngva, drykkjuvísur og sjómannasöngva auk erlendra laga. í bókinni er efnisyfírlit eftir heitum kvæðanna og upphafi þeirra. Útgáfufélagið Bros hefur nú þegar sent fréttabréf inn á flest heimili landsins þar sem söng- bókin er boðin á sérstöku kynn- ingarverði eða 495 krónur til þeirra sem panta hana bréflega eða símleiðis. Framkvæmdastjóri félagsins er Guðbjörg Pétursdóttir en auk hennar starfa fjórir starfsmenn á skrifstofu félagsins. Söngbókin Tökum lagið ásamt fréttabréfi félagsins. Hæstiréttur um mál forsvarsmanna Hafskips: Hallvarður vanhæfur sem ríkissaksóknari 24. júlí FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði Hassta Lœgsta Moðal- Magn Heildar- varA varð verð (lestir) verð (kr.) Þorskur 35,80 32,50 34,72 44,2 1.533.851 Ýsa 52,50 30,00 43,88 4,3 187.273 Karfi 15,80 15,80 15,80 0,7 11,060 Lúöa 126,00 100,40 118,11 0,329 38.875 Annað - - 21,95 0,856 18.785 Samtals 35,51 50,3 1.789.826 ( dag verða seld 190 tonn mest úr togaranum Karlsefni, 110 tonn af þorski, 60-70 tonn af karfa og eitthvað af ýsu, stórlúðu og grá- lúðu. FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík Hærta Laagata Meðal- Magn Helldar- verð verð verð (lestir) verð (kr.) Þorskur 42,00 25,00 32,01 10,8 346.247 Ýsa 39,50 34,50 36,99 4,0 149.449 Karfi 19,00 16,50 17,86 2,8 50.887 Koli 32,50 30,00 31,50 7,2 666,919 Samtals 30,98 25,0 774.975 Næst verður uppboð á markaðnum klukkan 07.00 á mánudag. Til sölu verður skarkoli og þorskur af dragnótabátum. Dómur Sakadóms óraskaður Einn dómari á andstæðri skoðun HÆSTIRÉTTUR staðfesti í gær þann dóm Sakadóms Reykjavíkur frá 16. júlf, að Hallvarður Ein- varðsson ríkissaksóknari væri vanhæfúr til þess að fara með mál ákæruvaldsins gegn forsvars- mönnum Hafskips. Einn dómari af fimm greiddi sératkvæði. í meirihlutaáliti Hæstaréttar er frávisunardómur Sakadóms stað- festur með vísan til forsendna hans. Forsendumar, sem Sakadómur byggði á voru þær að skyldleiki Hallvarðs og Jóhanns Einvarðssonar gerði það að verkum að Hallvarður væri vanhæfur, þar eð Jóhann sem bankaráðsmaður f Útvegsbanka ís- lands hefði hagsmuna að gæta af úrslitum málsins. Taldi Haraldur Henrýsson sakadómari að þar eð hin- ir ákærðu í málinu væru saksóttir fyrir að hafa misgert stórlega við Útvegsbanka íslands, með því áð leggja fyrir hann röng og villandi gögn og hafa með sviksamlegum hætti náð að auka skuldir Hafskips við bankann, færi ekki hjá því að málið varðaði mjög bankaráð Út- vegsbankans, enda lægi fyrir að málefni félagsins hefðu oft verið til umfjöllunar á fundum ráðsins. Taldi hann að með hliðsjón af þessu yrði að líta svo á að Hallvarður væri þann- ig skyldur einum banka-ráðsmanni Útvegsbankans að samkvæmt van- hæfísreglum einkamálalaga væri hann vanhæfur til þess að gegna störfum dómara í málinu og þar með væri honum ekki rétt að fjalla um málið sem ríkissaksóknari, sbr. 22. gr. laga um meðferð opinberra mála. Meirihluti Hæstaréttar féllst á for- sendur Sakadóms og staðfesti niðurstöðuna. Að því áliti stóðu hæstaréttardómaramir Magnús Thoroddsen, Guðmundur Jónsson, Guðrún Erlendsdóttir og dr. Gaukur Jörundsson prófessor, settur hæsta- réttardómari. Halldór Þorbjömsson hæstaréttar- dómari greiddi sératkvæði f máli þessu. Hann taldi að vísa ætti kröfu verjenda forráðamanna Hafskips frá héraðsdómi. Forsendur hans fyrir þeirri niðurstöðu vom þær að sam- kvæmt 1. mgr. 22. gr. laga um meðferð opinberra mála ætti ríkis- saksóknari að tilkynna það dóms- málaráðherra, ef hann væri svo við mál riðinn að hann mætti ekki gegna dómarastörfum í því og skipaði ráð- herra þá annan mann í hans stað. „Mat á því hvort slfkrar ráðstöfunar sé þörf, ber endanlega undir dóms- málaráðherra, enda er hvorki í nefndri 22. gr., 124. gr. sömu laga né í öðmm lögum gert ráð fyrir því að máli verði vísað frá dómi sakir þess að handhafí ákæruvalds mætti eigi gegna dómarastörfum í því.“ Sakir gagnstæðrar niðurstöðu meirihluta dómara, tók dómarinn þátt í efnisúrlausn málsins, með vísan til 1. mgr. 53. gr. laga um Hæstarétt. Efnisleg niðurstaða Halldórs var sú, að ríkissaksóknari væri í engum slíkum tengslum við vamaraðila málsins, er gerðu hann vanhæfan sem dómara í máli á hend- ur þeim, né heldur hefði verið sýnt fram á vanhæfí hans af öðram ástæðum. Taldi hann því að fella ætti hinn kærða frávísunardóm úr gildi og leggja fyrir Sakadóm Reykjavíkur að taka málið til með- ferðar að efni til.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.