Morgunblaðið - 25.07.1987, Qupperneq 12
12
i
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. JÚLÍ 1987
Lunning-verðlaunin
eftirStefán
Snæbjörnsson
í dag, laugardaginn 25. júlí, verð-
ur opnuð á Kjarvalsstöðum sýning
á listiðnaði frá Norðurlöndum.
Sýning þessi er að því leyti sér-
stök að hér er um að ræða sýnishom
af verkum hönnuða sem á sínum
tíma hlutu hin eftirsóttu hönnunar-
verðlaun, sem kennd voru við
Frederik Lunning, eiganda umboðs-
verslunar Georgs Jensen í New
York.
Lunning-verðlaunununum var
úthlutað í fýrsta sinn árið 1951 á
70 ára afmæli Lunnings, 21. desem-
ber. Þeir sem þá hlutu verðlaunin
voru danski húsgagnaarkitektinn
Hans J. Wegner (1914) og hinn fjöl-
hæfí „galdrameistari" fínnskrar
hönnunar Tapio Wirkkala (1915—
1985). Verðlaununum var síðan
úthlutað með sama hætti til tveggja
hönnuða í senn fram til ársins 1970
er þau voru lögð niður.
Það var hlutverk sérstakrar út-
hlutunamefndar, nánast einskonar
akademíu, en í henni áttu sæti
menn á borð við Alvar Aalto, Ake
H. Huldt, Viggo Sten Möller, Tor-
olf Pryts og fleiri, að finna þann
Jöfnuð" milli landanna sem að var
stefnt af hálfu stofnanda verðlaun-
anna. Dómnefndarmenn sem áður
en jrfír lauk urðu tuttugu og fímm,
átta í senn, áttu það sameiginlegt
að vera í fararbroddi í norrænni
hönnun, ýmist sem starfandi hönn-
uðir eða skólamenn er beittu sér
fyrir auknum skilningi á gildi hönn-
unar, hvort sem var af félagslegum
eða_ viðskiptalegum toga.
A sýningunni verða þannig kynnt
verk 40 hönnuða úr hópi þeirra sem
hæst bar á Norðurlöndum á því 20
ára tímabili sem Lunning-verðlaun-
unum var úthlutað. Flestir þeirra
em enn í dag í röðum þeirra sem
fram úr skara og koma stöðugt á
óvart með nýjum hugmyndum í
glímunni við efni og tækni.
Hver var Frederik
Lunning
Árið 1923 hófst Frederik Lunn-
ing, sem verið hafði forstöðumaður
söludeildar Georgs Jensen, silfur-
smiðjunnar í Kaupmannahöfn,
handa um að byggja upp sölufyrir-
tæki í New York, en því var ætlað
að fínna markað fyrir framleiðslu
fyrirtækisins vestanhafs.
Þrátt fyrir efasemdir flestra um
að slíkt mætti takast setti hann á
stofn verslun á eigin ábyrgð undir
nafninu Georg Jensen Incorporated.
í lítilli verslun í 53. götu hóf hann
að falbjóða hina vönduðu, dönsku
silfurvöru. Ifyrirtæki hans blómstr-
aði og áður en varði hafði það
haslað sér völl við Fimmta breið-
stræti og óx stöðugt. Silfur Georgs
Jensen og postulín Hinnar konung-
legu dönsku postulínsverksmiðju
skapa fram að síðari heimsstyijöld-
inni andlit fyrirtækisins.
Á stríðsárunum dregst fram-
leiðslan í Danmörku saman og eftir
að Bandaríkin dragast inn í styij-
aldarátökin lokast leiðir aðfanga.
Óhjákvæmileg breyting verður á
fyrirtækinu. Ekki er lengur hægt
að takmarka vöruval við gæðafram-
leiðslu fárra fyrirtækja. Yfírbragð
„sölutorgsins" færist yfír Georg
Jensen Incorporated, verslað er á
þremur hæðum og starfsmenn nálg-
ast 300.
Eftir að stríðinu lýkur komast
eðlileg samskipti á og framleiðsla
tekur við sér á ný og þarf engan
að undra að jafn metnaðarfullur
verslunarmaður og Frederik Lunn-
ing hefur verið taki þá til við að
leita leiða til að tryggja fyrirtæki
sínu fyrri reisn og virðingu. Bak-
svið hans var hin stranga hefð
danskrar silfursmíði — þar sem
formfegurð og gæði handverksins
sátu í fyrirrúmi.
Finnski hönnuðurinn Timo Sarpaneva, „skáldið í forminu", glerhlutur (object) Kajak, Ahlström-Ittala.
Hönnun 1954.
„í margvíslegri umjQöll-
un, í fagritum, sýning-
arskrám og listfræði-
legri úttekt á norrænni
hönnun á árunum eftir
1950, kemur fram sú
skoðun að Lunning-
verðlaunin hafí haft
mikla þýðingu á þessu
þróunar og blómaskeiði
norrænnar hönnunar,“
Kaj Dessau
Það virðist að meira að minna
leyti fyrir tilviljun að leiðir Kaj
Dessau, sem lengi var fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins Bo í
Kaupmannahöfn, og Frederiks
Lunning liggja saman. Lunning
ræður hann til sín 1949. Hlutverk
Kaj Dessau verður að endurskipu-
leggja starfsemi Georg Jensen
Incorporated. Með hliðsjón af því
að fyrirtækið hafði í upphafí fyrst
og fremst boðið „hágæðavöru" frá
Danmörku beina menn sjónum að
því að taka upp að nýju fyrri sam-
bönd. Að takamarka þau ekki við
silfur og postulín, heldur að opna
„norrænum" listiðnaði og iðnhönn-
un í háum gæðaflokki, hveiju nafni
sem nefndist, leið að nýju og stóru
markaðssvæði.
Ekki hefur það heldur latt að
skandinaviskur eða norrænn list-
iðnaður stefndi fljótlega eftir styij-
öldina inn í framfara- og
þroskaskeið, þar sem hið „mann-
lega mjúka", virðingin fyrir eðli
hráefnisins og tækni sem bauð upp
á nýjar lausnir, var aðlagað nota-
gildishugmyndum funksjónalism-
ans á 3. áratugnum. Það var Kaj
Dessau sem átti hugmyndina að
stofnun Lunning-verðlaunanna.
Tilgangurinn hefur án efa verið
tvíþættur:
I fyrsta lagi að styrkja efnilega
hönnuði og vekja á þeim verðskuld-
aða athygli. Verðlaunin voru alltaf
í formi ferða og námsstyrkja. Þau
stuðluðu þannig að aukinni faglegri
þekkingu og yfírsýn þeirra sem þau
hiutu.
Mikilvægi þessa fyrirkomulags
verður að skoða í ljósi tímans. Upp
úr 1950 voru samgöngur milli landa
og möguleikar til ferðalaga með
öðrum hætti en nú er og þó að
slíkar ferðir hafí ekki undir lok
þess tímabils, sem Lunning-verð-
laununum er úthlutað, verið sú
nýlunda sem í upphafí tryggði þetta
þó að þær voru ávallt famar í fag-
legum tilgangi.
í öðru lagi skapaðist með þessum
hætti samband við rramleiðendur á
Norðurlöndum. Samband sem
nauðsynlegt var til að takast mætti
Norski leirkerasmiðurinn Erik Plöen. Vasi úr steinleir með þrykktri
skreytingu. Hönnun 1960.
Danski húsgagnaarkitektinn Hans J. Wegner hannaði hinn svokall-
aða Páfuglsstól 1947. Jóhannes Hansen A/S Soborg.
að opna þann kynningarglugga við-
skipta fyrir norrænar listiðnaðar-
og iðnaðarvörur í Bandaríkjunum,
sem Georg Jensen Incorporated
stefndi að.
Frederik Lunning dó árið 1960.
Þá tekur sonur hans, Just Lunning,
við rekstri fyrirtækisins, en þegar
hann fellur frá árið 1970 er fyrir-
tækið selt og Lunning-verðlaunin
eru lögð niður.
Nóbelsverðlaun
hönnunar
í margvíslegri umfjöllun, í fagrit-
um, sýningarskrám og listfræði-
legri úttekt á norrænni hönnun á
árunum eftir 1950, kemur fram sú
skoðun að Lunning-verðlaunin hafí
haft mikla þýðingu á þessu þróun-
ar- og blómaskeiði norrænnar
hönnunar. Það er á þessum árum
að hugtakið Scandinavian Design
verður til sem einskonar vörumerki
eða gæðastimpill. Trygging þess,
að sú hugmyndafræði sem fyrr er
getið liggi verkunum til grundvall-
ar. Einstaka menn eins og H.O.
Gummerus — sem á þessum tíma
var framkvæmdastjóri Finnska list-
iðnaðarfélagsins — taka svo djúpt
í árinni að kalla Lunning-verðlaunin
Nóbelsverðlaun hönnunarinnar. Sé
upphæð sú, sem úthlutað var á
þessu 20 ára tímabili, færð fram
til verðgildis í dag, mun hún ekki
minni en hálf milljón Bandaríkja-
dala.
Samvinna um kynningu
Það verður að telja víst að Lunn-
ing-verðlaunin hafí með afgerandi
hætti stuðlað að, eða a.m.k. flýtt
fyrir, mjög öflugri kynningarstarf-
semi á þessu sviði, sem löndin stóðu
að og þá oft sameiginlega. Þannig
var lagður grundvöllur að traustu
samstarfí norrænna hönnunarfé-
laga, sem áður höfðu með fræðslu-
starfí og umfjöllun barist fyrir
bættri hönnun, einkum fjöldafram-
leiddra nytjahluta.
Lunning-verðlaunin, og það til-
efni til urrdjöllunar sem þau gefa,
blása lífi í öflugt samstarf land-
anna. Þessu má sjá stað í röð stórra
farandsýninga fyrst til Englands
(1953) og annarra landa í Evrópu,
en síðan um allan heim, Norður-
Ameríku og Kanada, Mið- og
Suður-Ameríku, Asíu, Afríku og
Ástralíu. Þá hafði þátttaka land-
anna í Mílanó-triennalnum afger-
andi áhrif til að auka veg norrænnar
hönnunar.
ísland átti fulltrúa í einni fram-
angreindra sýninga, Formes
Scandinaves í París 1959, og verður
vikið að því síðar.
Hönnuðirnir
Það væri vissulega ástæða til að
fara hér nokkrum orðum um hönn-
uðina, sem verk eiga á þessari
sýningu, sem mun fylla vestursal
Kjarvalsstaða. Til þess eru þeir þó
of margir. Það má hinsvegar með
vissu fullyrða, að nöfn þeirra munu
láta kunnuglega í eyrum margra.
Eins má búast við að mörg íslensk
heimili eigi í fórum sínum hluti, sem
þeir hafa hannað, hvort sem um
væri að ræða „signeruð" listiðnað-
arverk eða fjöldaframleidda nytja-
hluti.
Sögnleg- yfirlitssýning'
Þó að flestir hönnuðimir séu eins
og áður sagði virkir enn í dag er
þessi sýning fyrst og fremst söguleg
yfírlitssýning, sem ætlað er að lýsa
ákveðnu tímabili. Það eru listiðnað-
arsöfn á Norðurlöndum, sem að
henni standa, en þau eru: Hið
danska listiðnaðarsafn í Kaup-
mannahöfn, Listiðnaðarsafnið í
Helsinki, Listiðnaðarsafnið í Osló,
Ríkislistasafnið í Stokkhólmi,
Röhsska listíðasafnið í Gautaborg
og Listiðnaðarsafnið í Bergen.
Jamo Teltonen, forstjóri Listiðnað-
arsafnsins í Helsinki, hefur haft
yfírumsjón með samsetningu sýn-
ingarinnar. Menningarmálanefnd
Reykjavíkur og félagið Form ísland
hafa greitt fyrir komu sýningarinn-
ar hingað. Hf. Eimskipafélag
íslands hefur veitt ómetanlega fyr-
irgreiðslu við flutning þessarar
stóru sýningar til landsins.