Morgunblaðið - 25.07.1987, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. JÚLÍ 1987
17
Á efri myndinni er ensk fiðla frá upphafi 18. aldar. Sú neðri er
eldri, en henni hefur verið breytt og hálsinn og fingrabrettið lengt,
tvö atriði, sem greina barokk- fiðlu frá nútímafiðlu.
um stráka á það hið gagnstæða við.
En í tónlist er nauðsynlegt að tileinka
sér alla eiginleika og þeir búa allir í
okkur. Það gildir bara að þroska þá
með sér, svo leikurinn verði tilbreyt-
ingar- og blæbrigðaríkur.
Það skiptir miklu máli að örva
nemandann, svo hann verði sjálfstæð-
ari. Það þarf auðvitað að segja ungum
nemendum meira til en þeim eldri,
þarf að stjórna þeim meira og miðla
þeim af eigin reynslu, svo hún verði
þeirra og þeir geti á endanum staðið
á eigin fótum, sem sjálfstæðir tónlist-
armenn.
Gagnrýni verður að vera upp-
byggjandi og skynsamleg. Ég læt
ekki þar við sitja, að segja þeim mína
skoðun, heldur rökstyð hana, því að-
eins rökstudd skoðun gagnast þeim
áfram. Mér hefur sjálfri verið kennt
með skoðunum eingöngu og það er
það versta, sem ég veit. Það þarf
ástæður líka.
Ég vil heyra hljómandi leik, en
ekki að allir spili eins. Ég geri mikið
af því að spyija nemendur mína, af
hveiju þeir spila. Það verður að liggja
einhver ákveðin hugsun að baki leikn-
um, hugsun sem tónlistarmaðurinn
ætlar og vill miðla áheyrendum. Tón-
list er miðlun og liggi engin hugsun
að baki, þá er engu að miðla.
Nemendurnir tveir, sem ég hitti í
Skálhoiti þennan dag, voru þær Dóra
Björgvinsdóttir og Svava Bemharðs-
dóttir, hvorugar neinir nýgræðingar
í tónlistinni. Dóra lærði í Reykjavík
og London, spilaði í tvö ár með Sin-
fóníuhljómsveitinni í Malmö og býr
nú í Chicago. Þar í býnum er mikill
áhugi á barokk-tónlist, svo henni
fannst freistandi að komast í kynni
við þessa tónlist, til þess að geta þá
hugsanlega gengið til liðs við fólk
með þetta áhugamál. Svava á eftir
einn vetur í námi í New York og
fannst þetta tilvalið tækifæri til að
öðlast innsýn inn í þennan tónlistark-
ima. Og það var sannarlega ekki
annað á þeim að heyra, en að Ann
Wallström hefði tekist mæta vel það
sem hún ætlaði sér, sumsé að sá með
nemendum sínum fræi forvitninnar,
sem brýndi þá til að leita sér meiri
og dýpri þekkingar og reynslu af
þessu heillandi tímabili, barokk-
inu ...
V- þyZMLAKJO
DORNBII
bl m *
GALLEN
HOHENEMS ['
INNSBRUCK
FELDKIRCH
AuSTmbiiti
ARLBERG
^RENNER
ITALIA
Schubertíaðan kom Hohenems á kortið og hér sjáið þið hvar bærinn er.
ZtlRICH
rnaí'
.Klp
LIECHTE
STEIN L
Melos-kvartettinn, sem hafa allir get-
ið sér gott orð fyrir flutning á verkum
Schuberts, auk annarra verka. Og svo
var þama kvartett ungs fólks frá
Salzburg, Hagen-kvartettinn, sem
hefur þegar gefið út plötu og spilað
nokkuð víða, harðsnúið tónlistarfólk.
Á Schubertíöðunni núna lá frammi
dagskrá fyrir næsta ár, svo áhuga-
samir hátíðargestir gátu þegar farið
að hlakka til júnímánaðar í Hohenems
að ári, nánar tiltekið dagana 10.-26.
júní 1988. Þá opnar Dietrich Fischer-
Dieskau hátíðina með ljóðakvöldi,
syngur Schubert-lög við texta Goet-
hes. Hann var reyndar á hátíðinni í
fyrra, en kom ekki í ár, að óábirgri
sögn vegna þess að hann var eitthvað
óánægður með blaðaumsagnir, ekki
sízt um konu sína, en kemur sumsé
næsta ár. Á öðrum ljóðakvöldum
koma fram Olaf Bar, Robert Holl,
Andreas Schmidt, Brigitte Fassbind-
er og Peter Schreier, allt þýzkir
ljóðasöngvarar og sem öll voru á
hátíðinni í ár. Schreier verður með
heilar þijár dagskrár, flytur Myllu-
stúlkuna fögru, Svanasöng og
Vetrarferðina á þrennum tónleikum,
hvorki meira né minna.
Hollendingurinn Nikolaus Harn-
oncourt stjórnar flutningi Missa
Solemnis Beethovens á tvennum tón-
leikum ásamt Haag-hljómsveitinni og
Arnold Schönberg-kórnum frá Vín.
Einsöngvarar eru Julia Varady, sem
er reyndar eiginkona Dieskaus, Maij-
ana Lipovsek, sú júgóslavneska,
Schreier og Dieskau. Auk þess stjórn-
ar Harmoncourt þremur öðrum
hljómsveitartónleikum. Af einleikur-
um má nefna áðurnefndan píanóleik-
ara András Sehiff, sellóleikarann
rússneska Mischa Maisky, sem spilar
hér með sinfóníunni næsta vetur, og
meistarann Alfred Brendel.
Þeir, sem hafa áhuga á að fá dag-
skrána senda, geta skrifað til
Schubertiade Hohenems, Postfach
100, A-6845 Hohenems, Österreich.
Sími 55762091. Miðaverðið er frá
300 og upp í 1200 austurríska skild-
inga (margfaldist með um 3,3 þessa
dagana til að fá íslenzka verðið), eft-
ir því i hvaða sal tónleikarnir eru og
hvar setið. Vonandi að einhveijir
íslenzkir tónlistarunnendur geti glatt
sig við Schubertíöðuna að ári, eða
síðar, því hún er greinilega komin til
að vera. Það sézt á undirtekt um-
heyrenda, vilja tónlistarmannanna til
að koma ár eftir ár og brennandi
áhuga Nachbauers á að halda
áfram . . .
Manuela á ferð og flugi
Manuela Wiesler flautuleikari
gerði stuttan stans hér um daginn
og spilaði á sumartónleikum í Skál-
holti með Einari G. Sveinbjörnssyni
fiðluleikara. Efnisskráin var harla
fjölbreytt, bæði gömul og ný verk.
Manuela hefur búið í ferðatösk-
um síðan í janúar, verið á sífelldum
tónleikaferðum og ekkert lát verður
á. 16. ágúst heldur hún einleikstón-
leika á árlegri sumartónlistarhátíð
í Vín, leikur þar nútímaverk, bæði
íslenzk verk og erlend. 23. ágúst
leikur hún einleik með sinfóníu-
hljómsveitinni í Malmö. Þar á
staðnum er siður að halda tónleika
einu sinni á ári á útileikvangi í
borginni og að þessu sinni er Manu-
ela einleikari á þeim. Hún leikur
Karnival í Feneyjum í öllum til-
brigðum með hljómsveitinni, verk
sem hún hefur spilað eftirminnilega
hér heima sem einleiksverk. Auk
þess spilar hún létt og skemmtileg
verk eftir sænskt tónskáld, Lars
Manuela Wiesler
Erik Larsson.
Eftir þessa tónleika gerir Manu-
ela hlé fram í október, en fer þá í
tónleikaferð um Noreg ásamt þar-
lendum píanóleikara, Tom Ernst. Á
efnisskránni verður rómantísk tón-
list og nútímaverk. í Árósum kemur
hún fram í annað skiptið á þessu
ári. Auk þess að spila, heldur hún
námskeið sem tónlistarháskólinn
þar og í Álaborg halda í samein-
ingu. Að sögn Manuelu er flautu-
deildin í Árósum fíma skemmtileg,
ungir og færir kennarar og hver
um sig með sinn sérstaka blæ.
Hugsanlega forvitnilegt 'fyrir
íslenzka flautunemendur, sem
skima of heiminn eftir spennandi
kennurum og stöðum.
Þetta hefur Manuela sumsé fyrir
stafni á næstunni. Þeir sem eiga
leið um ofannefnda staði geta hug-
að að tónleikum hennar. Athugið
að það er stutt sigling og tíðar ferð-
ir milli Kaupmannahafnar og
Malmö, sem býður upp á líflegt
tónlistarlíf og reyndar líka eftirtekt-
arvert nútímalistaverkasafn.
Auglýslng
Milljónamærings
saknað
Hver er hinn óþekkti milljónamæringur?
Leit er hafin að óþekktum
milljónamæringi. Um er að
ræða karl eða konu, sem kom
í verslun við Óðinstorg í
Reykjavík laugardaginn 16.
maí síðastliðinn og keypti þar
Lottómiða klukkan 13:38
með tölunum 4, 22, 25, 26 og
29. Viðkomandi er beðinn að
gefa sig fram á skrifstofu
Islenskrar Getspár í Reykja-
vík og taka þar við
2.111.437,00 krónum, sem
hafa enn ekki verið sóttar.
Milljónir á hverjum
laugardegi
KYNNINGARÞJÖNUSTAN/SlA