Morgunblaðið - 25.07.1987, Qupperneq 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. JÚLÍ 1987
Indland:
Árás á fyrrver-
andi ráðherra
-ung-liðahreyfing stjórnarflokksins
sögð bera ábyrgðina
Nýja Delhi. Reuter.
RA.IIV Gandhi, forsætisráðherra
Indlands, viðurkenndi í gær að
meðlimir ungliðahreyfingar
fiokks hans hefðu i fyrrakvöld
staðið að árás á fýrrverandi
vamar- og Qármálaráðherra,
sem rekinn var úr embætti sl.
sunnudag. Fordæmdi hann
verknaðinn harðlega. Stjórnar-
andstaðan hefiir krafist þess að
þingi verði slitið og kosningar
látnar fara fram.
Ráðherrann fyrrverandi, Vish-
wanath Pratap Singh, sem rekinn
var frá störfum vegna gagnrýni
hans á Gandhi, var á leið til þess
að halda fyrirlestur við háskóla í
norðurhluta Nýju-Delhi er æstur
múgur réðst að honum. Hrópaði
fólkið „Lengi lifi Rajiv Gandhi" og
„Dauði yfir V.P.Singh". Singh slapp
ómeiddur og átti fótum fjör að
launa. Tveir námsmenn voru barðir
til óbóta, kveikt var í bílum og
múgurinn réðst inn í hús og kveikti
í því, er Singh var veitt eftirför.
Gandhi sem að undanfömu hefur
sætt mikilli gagnrýni, jafnt innan
Kongressflokksins sem utan, sagði
við stuðningsmenn sína er fluttir
voru til fundar í höfuðborginni í gær
að rangt væri að beita slíkum
brögðum sem árásin á Singh hefði
verið. Kongessflokkurinn myndi
einungis tapa á slíkum vinnubrögð-
um. Hét hann því að beijast gegn
spillingu hvar sem hana væri að
finna.
í síðustu viku rak Gandhi fjóra
þingmenn úr Kongressflokknum er
gagnrýnt höfðu forsætisráðher-
rann. Einn þeirra var Arif Mo-
hammed Khan, fyrrum ráðherra.
Daginn eftir að hann var rekinn
réðst mannfjöldi að húsi hans og
var skotvopnum beitt. Lögreglu
tókst að bægja fólkinu frá.
Sri Lanka:
Átökin á Srí Lanka milli singhalesa og tamfia hafa staðið í Qögur ár og kostað rúmlega 6000 manns
lífið. Eitt blóðugasta hryðjuverkið var unnið í apríl sl. þegar sprengja sprakk á umferðarmiðstöðinni
í Colombo með þeim afleiðingum, að á annað hundrað manns fórst.
Lagt til að tamílar fái
takmarkaða sjálfstjórn
Suður-afríska þróunar-
ráðið:
Þjóðir heims
veiti aðstoð
Lusaka, Zambíu. Reuter.
NÍU ríki í suðurhluta Afríku hétu
þvi i gær, að afloknum fiindi
æðstu manna þeirra í Lusaka f
Zambíu, að efla samvinnu sín í
milli til þess að þau væru ekki
eins háð Suður-Afríku, efhahags-
lega og verið hefði. Einnig hvöttu
þau þjóðir heims til að aðstoða þau
við að draga úr fæðuskorti og
minnka viðskiptasktddir.
Botswana, Tanzania, Angóla, Moz-
ambique, Lesotho, Swasiland,
Zambia, Zimbabwe og Malawi mynda
með sér samtök er kallast Suður-
afríska þróunarráðið (SADCC).
Sögðu leiðtogar ríkjanna að loknum
eins dags fundi, að samstarf þeirra
á liðnu ári hefði verið árangursríkt,
sérstaklega hvað varðaði fjárfesting-
ar og framleiðslu.
Gæti orðið til að binda enda á hryðjuverkin á eyjunni
Colombo, Reuter.
JUNIUS Jayawardene, forseti
Srí Lanka, hefiir lagt til, að aust-
ur- og norðurhéruðin á eyjunni
verði sameinuð sem eitt heima-
land tamíla með takmarkaðrí
sjálfstjórn. Kemur þetta fram í
bréfi, sem hann hefiir sent Rajiv
Gandhi, forsætisráðherra Ind-
lands.
Hér er um að ræða merkilegustu
uppástunguna til þess um lausn á
átökum þjóðanna tveggja, sem
landið byggja, og vekur það at-
hygli, að hún er sett fram í íjarveru
utanríkisráðherrans, Ranasinghe
Premadasa, sem nú er í Japan.
Hefur hann verið manna andsnún-
astur sameiningu héraðanna fyrr-
nefndu og viðræðum við Indverja
um það, sem hann telur vera innan-
landsmál.
Gandhi hefur nú þegar svarað
Jayawardene og nú í vikunni átti
indverskur embættismaður leyni-
legan fund með helsta foringja
Tamílsku tígranna, skæruliðahreyf-
ingarinnar, sem barist hefur fyrir
sjálfstæðu ríki tamíla.
Uppástunga Jayawardenes tekur
miklu meira tillit til krafna tamíla
en fyrri tillögur og eru helstu atriði
hennar þessi:
• Samningsaðilar fallast á að
standa vörð um óskorað fullveldi
Sri Lanka og sameiginlega stjórnar-
skrá.
• Ríkisstjómin viðurkennir, að
landið byggja fleiri en ein þjóð; sér-
staka menningararfleifð tamíla og
réttindi þeirra á „þeim svæðum,
sem þeir hafa byggt frá fomu fari“.
• Kosið verður til níu héraðsstjóma
fyrir árslok. í hveiju héraði verður
héraðsstjóri, aðalráðráðherra og
aðstoðarráðherrar. Norður- og
austurhéruðin verða sameinuð í eitt.
• Innan árs verður efnt til þjóðarat-
kvæðagreiðslu í austurhéraðinu og
íbúamir, þriðjungurinn tamílar,
annar þriðjungur singhalesar og sá
þriðji múslímar, spurðir hvort þeir
Archer vann
meiðvrðamálið
London, Reuter. 1/
Archer með eina af bókum
sínum
JEFFREY Archer, metsölurít-
höfundur og fyrrum varaform-
aður breska íhaldsflokksins,
vann í gær meiðyrðamál, sem
hann hafði höfðað á hendur
dagblaðinu The Star. Archer
voru dæmdar 500.000 sterlings-
punda (rúmlega 30 milljóna
króna) bætur fyrir skaðann,
sem pólitískur feríll hans hlaut
af skrífum blaðsins.
Rithöfundurinn Archer, höfund-
ur metsölubókanna „Kain og Abel"
og „Fremstur meðal jafningja"
varð að segja af sér embætti vara-
formanns Ihaldsflokksins er dag-
blaðið birti fréttir um að hann hefði
átt mök við vændiskonu.
Það tók tólf manna kviðdóm
hálfan fimmta klukkutíma að kom-
ast að niðurstöðu í málinu að
loknum mest umtöluðu réttarhöld-
um í meiðyrðamáli, sem haldin
hafa verið í Bretlandi í mörg ár.
Að sögn lögfróðra manna eru bæt-
umar þær hæstu, sem nokkrum
hafa verið dæmdar í meiðyrðamáli
í breskri réttarsögu.
Archer staðfesti í réttinum fyrri
framburð sinn um að hann hefði
látið hinni 35 ára gömlu vændis-
konu Monica Coghlan 2.000 pund
í té til þess að hún gæti komist til
útlanda, en sagðist aldrei hafa hitt
hana, hvað þá átt við hana mök.
Mál þetta hefur vakið gífurlega
athygli í Bretlandi, og frétta-
mannafundur, sem haldinn var í lok
réttarhaldanna í gær, varpaði
skugga á yfirheyrslur Bandaríkja-
þings yfir sjálfum George Shultz,
utanríkisráðherra Bandaríkjanna.
„Ég er afar ánægð með úrslit-
in,“ sagði Mary, kona Archers í
gær. Hún hefur staðið við hlið
manns síns eins og klettur, hvað
sem á hefur gengið. „Við ætlum.
ekki að slá upp stórveislu," sagði
hún. „Bara halda upp á þetta í friði
og ró heima hjá okkur."
vilji áfram vera sameinaðir norður-
héraðinu.
•Hermenn munu halda til í stöðv-
um sínum og tamílskir skæruliðar
leggja niður vopn.
•Indveijar munu halda uppi eftir-
liti á Palk-sundi til að koma í veg
fyrir, að tamílar af meginlandinu
geti stundað undirróður á eyjunni.
• Indveijar munu framselja hvern
þann Sri Lankabúa, sem sakaður
er um hryðjuverk.
• 125.000 Sri Lankabúar í Indlandi
munu snúa aftur til síns heima og
100.000 indverskum verkamönnum
á teekrunum í Sri Lanka verða veitt
borgararéttindi þar.
Búast má við mikilli andstöðu
meðal ýmissa singhalesa og aðal-
lega vegna þess, að meirihluta
þeirra og leiðtoga stjómarandstöð-
unnar, Sirima Bandaranaike,
fyrrum forsætisráðherra, finnst
sem of mikið sé látið undan kröfum
tamíla. Allir leiðtogar tamíla hafa
hins vegar tekið vel í tillögumar.
Skæmliðastarfsemi tamíla hefur
staðið í fjögur ár og kostað meira
en 6000 manns Hfið. Hafa skærulið-
ar í nokkum tíma ráðið mestum
Jaffnaskaga en í síðasta mánuði
hóf Sri Lankaher mikla sókn á
hendur þeim samtímis því sem Ind-
veijar tóku að koma hjálpargögnum
til þeirra svæða, sem tamflar ráða.
Kýpur:
Engar þjalfunar-
búðir fyrir Kúrda
Nikósíu. Kfaur. Rpnfpr.
Nikósíu, Kýpur, Reuter.
RÍKISSTJORN gríska hluta Kýp-
ur sagðist í gær myndu senda
formleg mótmæli til Sameinuðu
þjóðanna vegna ásakana Tyrkja
um meinta þjálfim kúrdískra
uppreisnarmanna á Kýpur.
Turgut Ozal, forsætisráðherra
Tyrklands, sagði í fyrradag að hann
hefði sannfrétt að „and-tyrkneskir
undirróðurs- og klofningsmenn"
hlytu þjálfun á Kýpur. Ozal sagði
að vopn, sem tekin hefðu verið af
kúrdneskum uppreisnarmönnum,
hefðu sannanlega komið frá suður-
hluta Kýpur, þar sem grísk-ættaðir
Kýpurmenn búa.
Talsmaður stjórnar Kýpur-
Grikkja vísaði á bug fréttum
breskra og tyrkneskra dagblaða
þess efnis að palestínski hryðju-
verkamaðurinn Abu Nidal þjálfaði
grísk-ættaða Kýpurbúa auk arm-
enska og kúrdneska skæruliða í
vopnaburði í Troodos-fjöllum á Kýp-
ur.
Leiðtogi Kýpurbúa af tyrknesk-
um ættum, Rauf Denktash, sagði
fréttamönnum í gær að ásakanimar
ættu við rök að styðjast og tyrk-
neska stjómin vissi meira en látið
hefði verið uppi.
Morgunblaðið/AM