Morgunblaðið - 25.07.1987, Page 45
n/fíMjnTTMHI inm T ATinARnAmTR OK TÍTT.Í 1Q«7 dx
HESTAR / REIÐSKÓLI GUSTS HEIMSÓTTUR
Ég berst á fáki fráum!
í SUMAR hefur Hestamannafé-
lagið Gustur, í samvinnu við
Tómstundaráð Kópavogs,
haldið námskeið fyrir börn og
unglinga í hestamennsku.
Hvert námskeið hefur staðið
yfir í tvær vikur og er þá kennt
ítvo og hálfan tíma á dag.
Námskeið þetta hefur verið
mjög vinsælt og fullbókað á öll
námskeið hingað til. Enn er þó
möguleiki að komast á nám-
skeið sem haldin verða í ágúst
og er þeim sem áhuga hafa
bent á að snúa sértil Félags-
málastofnunar Kópavogs.
Við litum inn á eitt námskeiðið
í síðustu viku og fylgdumst
með krökkunum undirbúa hestana
undir reiðtúr. Nokkur krakkana eru
vön og eru þau þá á sérstöku nám-
skeiði.
„Hestar eru uppá-
haldsdýrin okkar“
Við ræddum við þtjár stúlkur sem
taka þátt í þessu námskeiði. Þær
stöllur heita Svanhildur Stefáns-
dóttir, Sandra Fairbairn og Ólöf
Ingunn Björnsdóttir. Svanhildur er
11 ára og er á námskeiði fyrir vana
hestamenn en Sandra og Ólöf sem
eru 8 ára eru á sínu fyrsta nám-
skeiði.
Þær eiga ekki sína eigin hesta en
vonast til að geta einhvern tíma
eignast hesta. Að sögn þeirra taka
þær þátt í þessu námskeiði af því
hestar eru uppáhaldsdýrin þeirra.
Verst er þeim við rottur af öllum
dýrum en segja að sem betur fer
sjái þær aldrei rottur í hesthúsun-
um. Námskeiðið var nú að fara að
byija og við leyfðum því stúlkunum
að fara að gera hestana klára og
látum myndirnar tala sínu máli.
Eftirtaldir krakkar eru í þessu nám-
skeiði hjá Gusti: Salome Sif
Önundardóttir, Erna Dóra Ágústs-
dóttir, Karólína Stefánsdóttir,
- « _ _ _______ Morgunblaöi6/KGA
Þeir eru ekkert litlir!
„Hvað voru þeir að segja að þessir íslensku hestar vaeri svo litlir.“ Það gengur
ekki alltaf vel hjá smáfólkinu að komast á bak.
Morgunblaðið/KGA
Fyrst að kemba, svo á bak
Það verður að kemba hestana áður en hægt er að fara í útreiðatúr.
Jóhannes Stefánsson, Úlfur Einar
Blandon, Henrietta Ósk Melsen,
Sólveig Gísladóttir, Stefán Sigur-
jónsson, Sævar Jóhannsson,
Gunnar Örn Amarsson, Karvel Þór
Arnarsson, Sandra Fairbairn, Ólöf
Ingunn Björnsdóttir, Arnar Hann-
esson, Einar Lárusson, Kristinn
Arnar Aspelund, Ómar Ómarsson,
Ómar Jabali, Hreggviður, Björg
María Þórsdóttir, Hildur María
Hilmarsdóttirj Rakel Sigmarsdóttir,
Ingibjörg Ósk Þorvaldsdóttir,
Margrét Bettý Jónsdóttir, Ýr Sig-
mundardóttir, Svanhildur Stefáns-
dóttir og Guðlaug Björnsdóttir.
Meiddir þú þig væni?
Morgunblaðið/KGA
Engu er líkara en Skjóni hafi áhyggjur af knapanum unga, eða eru þeir félagar að ræða hvert skuli halda. Ekki vitum við það en hitt vitum við að mikil vinátta var
með knapanum og klámum.
í
(