Morgunblaðið - 11.10.1987, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. OKTÓBER 1987
49
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Vélstjóri
starf ílandi
Vélstjóri með full réttindi frá Vélskóla íslands
óskar eftir vel launaðri atvinnu í landi. Hefur
margra ára reynslu sem vélstjóri á kaupskip-
um og þekkingu á vélum almennt. Margt
áhugavert kemur til greina. Tilboð sendist
auglýsingadeild Mbl. fyrir 16. 10. merkt:
„V - 5395“.
Hefurþúáhugaá
líflegu starfi
Lögreglan í Reykjavík óskar eftir að ráða
fólk til tímabundinna lögregluþjónsstarfa.
Þetta er tilvalið tækifæri fyrir þá, sem vilja
kynnast lögreglustarfinu og öllum þeim
mannlegu samskiptum, sem það býður upp á.
Upplýsingar um störfin veitir starfsmanna-
stjóri í síma 10200 eða á lögreglustöðinni,
Hverfisgötu 115.
Lögreglustjórinn í Reykja vík.
" LANDSPÍTALINN
Öryggisfulltrúi
Ríkisspítalar óska eftir að ráða öryggisfulltrúa.
Starfssvið: Umsjón með öllum þáttum er
snerta öryggi á vinnustað, svo sem hávaða-
mengun, slysahættu, efnamengun og
vinnuaðstöðu. Einnig að hafa umsjón með
rekstri og hönnun á bruna- og þjófavarna-
kerfum og sjá um fræðslu fyrir starfsfólk í
öryggismálum.
Nauðsynlegt er að viðkomandi geti unnið
sjálfstætt og hafi góða framkomu.
Nánari upplýsingar um starfið gefur fram-
kvæmdastjóri tæknisviðs í síma 29000-215.
Skriflegar umsóknir þurfa að berast skrif-
stofu ríkisspítala, tæknideild, fyrir 26.
október nk.
Reykjavík 11. október 1987.
Aðalbókari (547)
Fyrirtækið er þjónustufyrirtæki úti á landi.
Starfssvið aðalbókara: Yfirumsjón með bók-
haldi fyrirtækisins, afstemmingar, uppgjör
og ýmiss skýrslugerð. Önnur verkefni tengd
bókhaldi og áætlanagerð. Aðalbókari ber
ábyrgð á að bókhald fyrirtækisins sé fært
reglulega og sé ávallt í lagi.
Við leitum að viðskiptafræðingi (endurskoð-
unar/fjármálasvið) eða manni með aðra
haldgóða viðskipta-/verslunarmenntun.
Reynsla af bókhaldsstörfum nauðsynleg.
Reynsla af stjórnunarstörfum æskileg.
Nánari upplýsingar veitir Þórir Þorvarðarson.
Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir
merktar: „Aðalbókari“ til Ráðningarþjónustu
Hagvangs hf. fyrir 19. október nk.
HagvangurM
Grensósvegi 13
Reykjavík
Sími83666
Ráðningarþjónusta
Rekstrarráðgjöf
Skoðanakannanir
Bókhaldsþjónusta
Bæjarstjóri
Bæjarstjórn Bolungarvíkur auglýsir hér með
laust til umsóknar starf bæjarstjóra Bolung-
arvíkurkaupstaðar.
Umsóknir með upplýsingum um menntun
og fyrri störf sendist til forseta bæjarstjórn-
ar, Olafs Kristjánssonar, á skrifstofu Bolung-
arvíkurkaupstaðar, ráðhúsinu við Aðalstræti,
merkt: „Umsókn um starf bæjarstjóra".
Umsóknarfrestur rennur út 31. október
1987.
Forseti bæjarstjórnar mun jafnframt veita
allar nánari upplýsingar um starfið.
Bæjarstjórn Boiungarvíkur.
Skrifstofufólk
Afiðlunin
Afleysinga- og ráðningaþjónusta
Armúla 19 -108 Reykjavík • 45 689877
Okkur vantar fólk á skrá í eftirtalin störf sem
eru ýmist hálfs- eða heilsdags- svo og hluta-
störf.
1. Ritari.
2. Almenn skrifstofustörf.
3. Símavarsia.
4. Gagnaskráning á tölvu.
Æskileg er einhver menntun eða starfs-
reynsla þó ekki skilyrði.
Nánari upplýsingar veittar á skrifstofu okkar.
Framkvæmdastjóri
Félag rækju- og hörpudisksframleiðenda
vill ráða framkvæmdastjóra til starfa sem
fyrst. Um er að ræða fullt starf.
Leitað er að viðskiptafræðingi eða aðila með
góða menntun sem nýtist í þessu starfi.
Viðkomandi þarf að hafa einhverja reynslu
eða þekkingu á þessari atvinnugrein.
Verksvið er m.a. gagnasöfnun, útreikningar
auk almennra verkefna fyrir samtökin.
Góð laun í boði fyrir réttan aðila.
Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu
okkar.
Umsóknir er tilgreini aldur, menntun ásamt
starfsreynslu sendist skrifstofu okkar, fyrir
21. okt. nk.
Qiðni Tónssqn
RAÐGJÖF 6 RAÐNI NCARÞJON LISTA
TÚNGÖTU 5. 101 REYKJAVÍK — PÓSTHÓLF 693 SÍMl 621322
Stjórnandi
ráðstefnudeildar
Stórt og vaxandi fyrirtæki á sviði ferðaþjón-
ustu vill ráða deildarstjóra ráðstefnudeildar.
Starfið er laust fljótlega, t.d. um næstu áramót.
Nauðsynlegt að viðkomandi hafi þekkingu
og reynslu á þessu sviði og hafi tamið sér
sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð. Góð
tungumálakunnátta er skilyrði vegna dag-
legra samskipta við erlenda viðskiptavini.
Farið verður með allar umsóknir í trúnaði.
Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu
okkar. Laun algjört samningsatriði.
Umsóknir er tilgreini aldur, menntun ásamt
starfsreynslu sendist skrifstofu okkar fyrir
18. okt. nk.
OtðntTónsson
RAÐCJÓF bRÁÐNlNCARNÓNllSTA
TÚNGÖTU 5, 101 REYKJAVÍK - PÓSTHÓLF 693 SÍMl 621322
„Au pair“
„Au pair“-stúlka, 18 ára eða eldri, óskast á
heimili á Suður-Englandi.
Upplýsingar eru gefnar í síma 9044-
271812018 (Helga) eða 9044-271812022
(Inga) á Englandi.
Auglýsingateiknari
Auglýsingastofa í Reykjavík ósk-ar að ráða
auglýsingateiknara sem fyrst.
Áhersla er lögð á að umsækjendur hafi
reynslu af auglýsingateiknun og geti starfað
sjálfstætt.
Um heilsdagsstörf er að ræða og laun eru
samkomulag.
Umsóknarfrestur er til og með 16. október nk.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar
á skrifstofunni frá kl. 9-15.
Aíleysmga- og radningaþ/onusta
Lidsauki hf.
Skóldvördustig 1 b - 101 fíeykinvik - Simi 621355
Nýjung
Lifandi og spennandi starf hjá nýstárlegu
þjónustufyrirtæki.
Vegna ört vaxandi starfsemi skortir GULU
LÍNUNA nú starfsmann til símasvörunar og
sölustarfa. Til greina kemur að ráða í tvö
hálfsdagsstörf. Vinnutími er eftir samkomu-
lagi á tímabilinu 08.00-20.00 virka daga og
2.-3. hvern laugardag.
Þetta er kjörið starf/hlutastarf fyrir upplýst
og frískt fólk.
Umsóknir sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir
mánudaginn 19. október, merktar: „G -2517“.
fVWVM
GIIIA
62 33 88
RSK
RÍKISSKATTSTJÓRI .
Embætti ríkisskattstjóra auglýsir
laus til umsóknar eftirtalin störf:
Almenn deild:
Staða deildarlögfræðings á gjaldasviði
Helstu verkefni eru skýringar á lögum og
reglugerðum er snerta álagningu óbeinna
skatta, samningu úrskurða og álitsgerða er
snerta skattskyldu o.fl.
Staða viðskiptafræðings á skattasviði
Helstu verkefni eru endurskoðun ársreikn-
inga, úrskurðir á skatterindum og tölulegar
álitsgerðir í umsögnum ríkisskattstjóra fyrir
ríkisskattanefnd.
Staðgreiðsludeild:
Staða skrifstofumanns á tölvusviði
Helstu verkefni eru færsla upplýsinga inn í
staðgreiðsluskrá, skjalavistun og önnur al-
menn skrifstofustörf.
Staða ritara á upplýsingasviði
Helstu verkefni eru ritvinnsla og vélritun.
Umsóknir, er greini aldur, menntun og fyrri
störf, sendist ríkisskattstjóra, Skúlagötu 57,
150 Reykjavík, fyrir 31. október nk.
RSK
RÍKISSKATTSTJÓRI