Morgunblaðið - 07.11.1987, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 1987
Aðalfundur LIU lýsir
andstöðu við „kvótaskatt“
Sóknarmarksskipum verði heimilt að kaupa kvóta
AÐALFUNDUR LÍÚ lýsti sig
mótfallinn ráðgerðum um hækk-
un svokallaðs kvótaskatts úr 10%
af afla seldum erlendis í 20%.
Alyktun þess eðlis var samþykkt
með miklum meirihluta atkvæða,
þrátt fyrir að í umræðum hefði
komið fram stuðningur við þess-
ar ráðgerðir. Fundarmenn voru
fylgjandi því að veiðar á úthafs-
rækju yrðu takmarkaðar og
kvóti settur á hvert skip, sem þær
veiðar stundaði. Ennfremur var
fallizt á breytingar á sóknar-
marki fiskiskipa, sem fram koma
í drögum að frumvarpi þar að
lútandi með nokkrum breyting-
um. Meðal annars því, að sóknar-
marksskipum verði leyft að
kaupa kvóta, en svo hefur ekki
verið.
Fundarmenn voru einnig sam-
mála því, að stjómun fiskveiða yrði
ákveðin til þriggja ára og að réttur-
inn til til veiða á fiski úr sjó yrði
áfram alfarið í höndum útgerðar-
innar.
Um breytingar á sóknarmarki
var samþykkt að með tilliti til vænt-
anlegrar skerðingar á heildarafla á
næsta ári og ástands fiskistofn-
anna, féllust menn á þær tillögur
um breytingar á sóknarmarki, sem
fram hefðu komið frá sjávarútvegs-
ráðuneytinu, enda yrði í reglugerð
gætt jafnvægis milli svæða miðað
við þorskígildi. Sóknarmarksdagar
yrðu sveiganlegri frá því, sem nú
væri og heimildir til að flytja sókn
milli tímabila yrðu rýmri. Jafnframt
yrði sóknarmarksskipum heimilt að
kaupa aflakvóta og selja með
óbreyttum sóknardögum, enda
hefði það ekki áhrif á reiknaða afla-
reynslu þeirra og yki ekki heildar-
afla.
Ennfremur var samþykkt að taka
bæri sérstakt tillit til mikillar rýrn-
unar tekna af loðnuveiðum hjá
loðnuskipum við ákvörðun fiskveiði-
stefnu næstu ára.
Kristján Ragnarsson var endur-
kjörinn formaður LÍÚ með lófataki.
TUkynntum
eld í apóteki
SLÖKKVILIÐIÐ var í gær kallað
að Reykjavíkurapóteki, þar sem
eldvarnarkerfi fyrirtækisins
hafði farið af stað. Enginn eldur
fannst í húsinu og er talið að um
bilun í kerfinu hafi verið að ræða.
Það var ekki eingöngu eldvamar-
kerfið, sem fór af stað, því þjófavam-
arkerfið gerði það einnig. Slökkviliðið
sendi mikinn mannskap á vettvang,
en sem betur fer þurftu slökkviliðs-
menn ekki að hafast að. Allur er þó
varinn góður.
VEÐURHORFUR í DAG, 7.11.87
YFIRLIT á hádegi f gær: Skammt norður af Jan Mayen er 1032
millibara hæð, en 995 millibara lægð skammt suðaustur af Hvarfi
þokast norðvestur og grynnist. Um 1000 km suðsuðvestur af
landinu er lægðardrag á leið norður. Hlýtt verður áfram.
SPÁ: í dag verður austan og suöaustan gola eða kaldi. Dálítil -ign-
ing öðru hverju sunnanlands en yflrleitt þurrt fyrir norðan. Hiti 4—8
stig.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA
SUNNUDAGUR OG MÁNUDAGUR: Suðlæg átt og hiti á bilinu
5_10 stig. Víða súld eða rigning sunnan- og vestanlands en þurrt
að mestu norðaustanlands.
TÁKN:
Heiðskírt
Léttskýjað
Hálfskýjað
A
m Skýjað
Alskýjað
x Norðan, 4 vindstig:
S Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
* * *
* * * * Snjókoma
-J 0 Hitastig:
10 gráður á Celsíus
ý Skúrir
*
V El
= Þoka
= Þokumóða
’, ’ Súld
OO Mistur
—Skafrenningur
Þrumuveður
xn VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma hltl veflur Akureyri 8 alskýjaft Reykjavik 9 (xAumóöa
Bergen Helslnki Jan Mayen Kaupmannah. Narssarssuaq Nuuk Osló Stokkhólmur Þórshöfn 8 alskýjað 1 slydduél +6 skýjað 10 hálfskýjað 11 úrkomafgr. +2 skýjað 0 þoka 8 skýjað 8 alskýjað
Algarve 16 rigning
Amsterdam 9 mistur
Aþena vantar
Barcelona 18 mistur
Berlln 8 súldis.klst.
Chicago +1 lóttskýjað
Feneyjar 10 þokumóða
Frankfurt 5 þokumóða
Glasgow 9 mistur
Hamborg 9 súldás.klst.
Las Palmas 25 léttskýjað
London 7 þoka
LosAngeles 13 skýjað
Lúxemborg vantar
Madríd 16 mlstur
Malaga vantar
Mallorca 21 hálfskýjað
Montreal +4 alskýjað
NewYork 3 láttskýjað
París 4 þokumóða
Róm vantar
Vfn 9 léttskýjað
Washlngton 2 léttskýjað
Winnipeg +8 léttskýjað
Valencia 18 heiðskfrt
Morgunblaðið/Bjamj
ítalimir frá Assisi á fundi með Vigdísi Finnbogadóttur, forseta ís-
lands, á fimmtudag.
Friðarhópur hjá
forseta Islands
HÉR Á landi er nú staddur fimm
manna hópur frá ítölskum frið-
arsamtökum, og gekk hann á
fund Vigdísar Finnbogadóttur,
forseta Islands, á fimmtudag.
ítalimir eru í samtökum sem
kalla sig „Alþjóðleg miðstöð fyrir
friði meðal þjóða“, en þau voru
stofnuð í borginni Assisi árið 1982
í tilefni þess að 800 ár voru þá lið-
in frá fæðingu heilags Frans frá
Assisi. Sendinefndir frá samtökun-
um voru sendar á fund þjóðarleið-
toga 34 Evrópulanda í gær, og er
hugmyndin að hópar frá samtökun-
um gangi á fund allra þjóðarleið-
toga í heimi á næstu árum.
Italirnir fengu áheyrn hjá forseta
íslands á fimmtudagsmorgun, og
færðu þeir henni að gjöf veggspjald
með mynd af friðartáknum, og
brauð, sem er bakað í klaustrinu í
Assisi. Hópurinn heldur utan á
mánudaginn nk.
SIF:
Stuðmngur við
„siglingaskattinn44
Sijórnvöld ræði
við EB um tolla á
saltfiski
STJÓRN Sölusambands
íslenzkra fiskframleiðenda sam-
þykkti á föstudag stuðning í
megin atriðum við framkomið
frumvarp um stjórnun fiskveiða,
srstaklega hvað varðar svokall-
aðan kvótaskatt vegna siglinga.
Jafnframt var skorað á stjórn-
völd að þau beiti sér fyrir
viðræðum um tollamál saltfisks
við Evrópubandalagið.
Samþykktir stjómarfundarins
þar að lútandi fara hér á eftir:
„Stjóm SÍF er sammála frumvarp-
inu í megin atriðum, en tekur
sérstaklega undir það atriði frum-
varpsins, sem gerir ráð fyrir aukinni
kvótaskerðingu vegna útflutnings á
ferskum físki. Stjóm SÍF telur að
slík niðurstaða sé eðlileg málamiðl-
un og ásættanleg fyrir alla aðila.
Sú uggvænlega þróun, sem nú
er að eiga sér stað í tollamálum
saltfisks í Evrópubandalaginu, hlýt-
ur að valda íslenzkum sjávarútvegi
áhyggjum. Bæði tollfijálsir kvótar
og kvótar, sem fela í sér tollalækk-
un, eru nú uppumir í ýmsum
markaðslöndum og skerðir því 13%
tollur samkeppnisq-etu íslenzks salt-
fisksiðnaðar, bæði á mörkuðunum
og greiðslugetu á hráefni. Ekkert
liggur fyrir um fyrirkomulag tolla-
mála saltfisks í Evrópubandalaginu
á árinu 1988. Stjórn SÍF skorar á
stjómvöld að beita sér fyrir viðræð-
um um tollamál saltfisk við Evrópu-
bandalagið."
Viðbrögð við ræðu formanns LÍÚ:
Aðdróttanir sem
dæma sig best sjálfar
- segir Friðrik Pálsson forsljóri SH
„RÆÐA framkvæmdastjóra LÍÚ
kom mér að því leyti á óvart að
ég átti frekar von á því að hann
leitaði sátta,“ sagði Friðrik Páls-
son forstjóri Sölumiðstöðvar
hraðfrystihúsanna þegar leitað
var álits hans á ræðu Kristjáns
Ragnarssonar formanns Lands-
sambands íslenskra útvegs-
manna við setningu aðalfundar
sambandsins. í ræðunni gagn-
rýndi Kristján starfsmenn sö-
lusamtakanna fyrir afstöðu
þeirra til sölu á ferskum fiski
erlendis og kröfu þeirra um að
veiðikvóti rými við það og fyrir
hugmyndir þeirra um dreifingu
á kvóta á milli veiða og vinnslu.
Friðrik sagði einnig: „Ég tel það
tæpast þjóna neinum tilgangi að
svara óverðugum orðum hans á
opinberum vettvangi í garð starfs-
fólks sölusamtaka, fulltrúa fisk-
vinnslu og annarra, sem lýst hafa
áhyggjum sínum af vaxandi út-
flutningi á óunnum fiski til vinnslu
erlendis. Þær aðdróttanir dæma sig
því miður best sjálfar."
Magnús Gunnarsson forstjóri
Sölusambands íslenskra fiskfram-
leiðenda (SÍF) sagði þegar hans
álits var leitað: „Mér er ekki kunn-
ugt um að starfsmenn Landssam-
bands íslenskra útvegsmanna hafi
neitt einkaleyfi á skoðunum á físk-
veiðistefnunni og þeim áhrifum sem
hún hefur á þróun íslenskra at-
vinnu- og efnahagsmála. Núverandi
stefna hefur haft ýmisleg alvarleg
áhrif á þróun íslensks sjávarútvegs,
bæði til lengri og skemmri tíma lit-
ið og væri mönnum nær að finna
einhverja þá leið sem samstaða
gæti náðst um, frekar en að vera
að skammast og rífast opinberlega
í ræðu og riti.