Morgunblaðið - 07.11.1987, Qupperneq 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 1987
Guðjón Ketílsson sýnir
Myndlist
Valtýr Pétursson
í FÍM-salnum við Garðastræti
er nú sýning á verkum eftir ung-
an mann, sem ber nafnið Guðjón
Ketilsson. Guðjón er Reykvíking-
ur, sem numið hefur hér í
Myndlista- og handíðaskólanum.
Síðan lá leið hans til Nova Scotia
í Kanada og er óvenjulegt, ef
ekki einsdæmi, að menn héðan
hafí farið þangað til framhalds-
náms í myndlist. Ég veit að
minnsta kosti ekki um annan en
Guðjón, sem þar hefur dvalið í
þeim erindagerðum. Sjóndeildar-
hringur okkar á listasviðinu ætti
að víkka að mun, þegar leitað er
víðar en var nýverið, þegar það
var tízka hjá myndlistamemum
að leita nær eingöngu til hins
blauta Hollands. Mér virðast og
verk Guðjóns um margt frábrugð-
in þvi sem frá Hollandi kemur.
Þetta mun vera fímmta einka-
sýning Guðjóns og af því má sjá,
að hann er ekki alger byijandi í
faginu. í efri sal eru 16 olíumál-
verk, sem eru þungamiðja þess
er Guðrjón sýnir. í neðri sal eru
nokkrar teikningar, og fannst mér
þær nokkuð síðri en olíumálverkin
á fyrstu hæð. Guðjón byggir
myndir sínar ákveðið og notar
sterka og þróttmikla liti. Pensil-
skrift hans er persónuleg og
myndflöturinn nýtist yfírleitt vel.
Mannslfkaminn er helzta við-
fangsefni Guðjóns og fer hann
ftjálslega með fyrirmyndir sínar.
Þetta er ekki mjög frumleg mynd-
bygging, en nokkuð örugg, og
enginn fær efast ekki um það ein-
læga áform listamannsins að
skapa sem heillegast málverk.
Þegar bezt lætur tekst það, en
það kemur fyrir, að hlutimir verða
ekki nógu sannfærandi, en við
skulum hafa það hugfast, að Guð-
jón er enn í mótun og þroski hans
nú þegar auðsær á köflum og því
engin ástæða til að álíta, að hann
geti ekki gert betur. Það mun
koma í ljós á komandi tímum, en
eins og ég er alltaf að staglast á
í þessum skrifum mínum, tekur
allt sinn tíma og ástæðulaust að
flýta sér um of. Verk Guðjóns eru
um margt í ætt við nýja málverk-
ið svokallaða, en samt ólík því.
Hann fer meir í saumana á sjálfu
myndverkinu og leggur auðsjáan-
lega meira upp úr hinu hefð-
bundna málverki — fyrir vikið
verður myndflöturinn ríkari í litn-
um og þróttmeiri, en gerist í nýja
máiverkinu að öllum jafnaði. Ef
til vill er hér um áhrif frá skólun
í Nova Scotia að ræða, ég veit
það ekki, en mér finnst það líklegt.
í heild er þetta mjög snotur
sýning og lofar góðu. Hún er heil-
steypt og ber vott um gott
handbragð og alvarleg vinnu-
brögð. Það er ástæða til að óska
Guðjóni til hamingju árangur, sem
blasir við á sýningu hans í Garða-
strætinu.
FRIÐRÍKUR
Myndlist
Valtýr Pétursson
Ungur listamaður að nafni
Fred Boulder, Bandaríkjamaður
í aðra ættina, en íslendingur í
hina, sýnir þessa dagana verk
sín í Menningarstofnun Banda-
ríkjanna við Nesveg. Hann hefur
tekið sér listamannsnafnið
Friðríkur, og sýnir undir því
nafni. Hér er á ferð algerlega
sjálfmenntaður listamaður, sem
hefur fengizt við myndlist
síðustu tíu árin, og tvisvar áður
hefur hann efnt til sýningar á
verkum sínum á höfuðborgar-
svæðinu.
Friðríkur virðist mjög upptek-
inn af ýmsum andlegum við-
fangsefnum og hefur áhuga á
listsköpun í komandi þjóðfélagi
séða út frá andlegum vísindum
Martínusar, og hélt listamaður-
inn fyrirlestur til að útskýra
viðhorf sín í þessum efnum
síðastliðinn sunnudag. Þessi ungi
maður virðist mjög leitandi í
myndgerð sinni, og verk hans
bera þess vissulega merki. Slíkar
heimspekilegar vangaveltur og
kannanir virðast vera meir og
meir í vindinum hjá ungu lista-
fólki, og er forvitnilegt að fylgj-
ast með framvindu mála á þessu
sviði.
Á sýningu Friðríks er meiri-
hluti þeirra verkanna teikningar
í lit, oft í blandaðri tækni, þar
sem listamaðurinn notfærir sér
litað túsk og annan efnvið. Sum-
ar af þessum teikningum bera
vott um hugmyndaflug og hæfi-
leika, sem að vísu eru nokkuð
óbeizlaðir enn sem komið er. Það
er mikið merkjamál (symbolismi)
í þessum verkum, og þori ég
ekki að fara frekar út í þá sálma,
en það má vel segja um þessi
verk í heild, að þau séu snyrtileg
og snotur.
Það verður forvitnilegt að
fylgjast með framvindu mála hjá
þessum unga listamanni, og hver
veit nema honum eigi eftir að
takast að stuðla að betra og rétt-
látara þjóðfélagi á komandi
tímum.
SIMAR 21150-21370
SOLUSTJ LARUS Þ VALDIIVIARS
LOGM JOH ÞOROARSON HDL
Til sölu í smíöum á góöu veröi - frábær greiðslukjör:
3ja herb. íbúð
á 1. hæö 98,5 fm nettó. Sórlóð. Sólverönd. Sérþvottaaöstaöa.
4ra herb. íbúðir
á 2. og 3. hæö 110,3 fm nettó. Tvennar svalir. Sérþvottaaöstaöa.
3ja herb. íbúðir
á 2., 3. og 4. hæö 82,3 fm nettó. Góðar vestursv. og sérþvottaaðstaöa.
íbúðirnar verða fokheldar
á næstu vlkum. Afh. fullb. u. tréverk og málningu næsta sumar. Öll
sameign fullfrág. Ibúöirnar eru f 7-fbúða fjölbhúsi við Jöklafold f
Grafarvogl. Byggjandi Húni sf. Munið gott verð og frábær greiðslukjör.
Tveir bílskúrar
ennþá óseldir. Skúrarnir verða afhentir fullfrágengnir.
Glæsileg eign á góðu verði
á útsýnisstað f Garðabæ. Nýlegt steinhús rúmir 300 fm nettó. Vandað
og velbyggt. Arinn í stofu. Saunabaö með hvildarherb. Stór sólverönd
auk svala. Tvöf. bílskúr meö vinnuaöstööu. Stór lóö með skrúðgarði.
Margskonar eignaskipti möguleg.
Háaleitisbraut - Reynimelur
Góöar 3ja og 4ra herb. ibúöir viö þessar götur i ákv. sölu.
Lítil samþykkt íbúð við Lindargötu
2ja herb. lítil ib. í þribhúsi. Laus strax. Verð aðeins 1,7 mlllj. gegn
góðri útb.
Fjöldi fjársterkra kaupenda
Höfum á skrá óvenju marga fjársterka kaupendur aö íbúðúm, einbýlis-
og raöhúsum og ennfremur sérhæöum. Margskonar eignaskipti mögu-
ieg. Margir bjóða útborgun fyrir rótta eign.
Opið í dag,
laugardag,
kl. 11.00-16.00.
AIMENNA
FASTEIGHASALAN
LAUGAVEG118 SÍMAR 21150-21370
Maður kominn af hafi
Erlendar bækur
Jóhanna KristjónBdóttir
Tore Hamsun: Mannen fra havet
Útg. Norsk Gyldendal 1984
Tore Hamsun var hér fyrir
skemmstu og flutti fyrirlestur um
foður sinn, skáldjöfurinn Knut
Hamsun, eins og margir vita. Hann
hefur fengizt við að mála og getið
sér orð á því sviði. Árið 1952 sendi
hann frá sér bók um foður sinn, sem
hefur oft síðan verið endurútgefín
og einnig hefur hann ritstýrt bréfa
og greinasafni um Knut Hamsun.
Fyrir þremur árum kom svo út
fyrsta skáldsaga hans „Mannen fra
havet" og tvær munu hafa bætzt við
Hafnarfjörður
Hverfisgata: Fallegt 6 herb.
timburhús, hæö, kj. og ris.
Kaldakinn: Mjög falleg
2ja-3ja herb. íb. Stór bílsk.
Verkstæðishús: 65 fm nýtt
einnar hæóar timburhús á góö-
um stað í Hafnarfirði.
Kópavogur: 4ra herb. íb. við
Víðihvamm. V. 3,2 millj.
Þoriákshöfn: 122 fm par-
hús, byggt 1974. V. 3,5 millj.
Opið 1 dag kl. 13.00-16.00
Ámi Gunnlaugsson m.
Austurgötu 10, sfmi 50764.
Tore Hamsun
síðan. „Mannen fra havet" segir frá
því að Norðmaður einn Abdel Brod-
ersen fínnst á reki úti fyrir þýzkri
strönd. Hann virðist í fyrstu þjást
af minnisleysi, en þó fer að rofa til
og hann man síðast eftir sér í seinni
heimsstyijöldinni og nokkru eftir að
henni er lokið. En það getur ekki
komið heim og saman, því að sá tími
er ekki runninn upp: árið sem Abel
vaknar upp í er 1887.
Abel fær ekki skilið þennan leynd-
ardóm, og enn örðugra er fyrir fólkið
í litla þorpinu að skilja hann. Læknir-
inn Berger reynir að hjálpa honum
og hvetur hann til að skrifa niður
það sem hann man úr framtíðarlífi
sínu. Þó getur læknirinn ekki fest
trú á þetta, og sama gegnir um aðra
sem vilja reyna að hjálpa honum.
Hann er látinn skrifa upp söguna,
eins og hann man, að hún gerðist.
Kannski hann geti varað Þjóðveija
við, breytt rás viðburða sögunnar.
Þótt enginn leggi við eyru, þegar
Abel reynir að skýra mál sitt hefur
hann nokkur sönnunargögn í hönd-
unum. Hvað til dæmis með fötin, sem
hann er í, svo og armbandsúrið. Þetta
er rannsakað og ef nokkuð verður
það til að rugla menn enn meira í
ríminu.
Hann kynnist stúlkunni Elise og
þau verða ástfangin hvort af öðru.
En henni er um megn að fá botn í
það sem hann segir. Og í eigin huga
getur hann varla tengzt Elise, þar
sem hann er kvæntur í Noregi...þó
sú stúlka sé samkvæmt tímanum
ekki fædd enn..
Það er sama hvar er borið niður,
allt endar í blindgötu. Enginn hlustar
á aðvaranir hans, menn telja hann í
bezta falli einhvers konar spámann,
kannski miðil - eða njósnara.
í þijú ár skrifar Abel niður hug-
renningar sinar og úr verður ævint-
ýraleg frásögn um óraunverulegan
raunveruleika. En einnig hljóð og
innileg bón úr einsemdarheimi hans.
Persónan ber sama nafn og pers-
óna í einni skáldsagna föður hans
og er það í sjálfu sér dálítið skemmti-
leg hugmynd. Bókin er skrifuð af
listrænni ögun og hugmyndafluginu
beitt af hreinustu list. í alla staði
eftirminnileg bók.