Morgunblaðið - 07.11.1987, Síða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 1987
DREKALILJUR
Drekaliljur — Cordyline — eru
af Agavaceae-ætt. Af þeim eru
tii 15 tegundir runna og tijáa, sem
líkjast pálmum. Þær eru náskyld-
ar drekatijám (Dracaena) og
pálmaliljum (Yucca) og líkjast
þeim mjög. Allar tegundimar eru
frá suðlægum slóðum, aðallega
frá Suðaustur-Asíu, Ástralíu og
Nýja Sjálandi. Tvær tegundir,
Cordyline australis og Cordyline
indivisa, báðar ættaðar frá Nýja
Sjálandi, una sér í svölu veðri og
þola því íslenska sumarveðráttu
en þurfa frostlaust skjól að vetrar-
lagi. Báðar þessar tegundir hafa
verið í ræktun hér og þrífast þær
vel.
Cordyline australis getur orðið
mjög hávaxin í heimkynnum
sínum eða allt að 12 metra há,
en C. indivisa aðeins um helming-
ur þess. Tegundimar em mjög
líkar að útliti og getur verið erfitt
að þekkja þær í sundur. En megin-
munur á tegundunum er sá að
C. australis getur haft marg-
greindan stofn en C. indivisa
aðeins einn stofn eins og nafnið
bendir til.
Fyrstu kynni mín af Cordyline
voru við garðaskoðun Garðyrkju-
félags íslands sumarið 1981. í
garði Svövu Erlendsdóttur (sem
nú er iátin) og Hjalta Jónatans-
sonar á Sogavegi 82, sem þá var
opinn félagsmönnum, vom tvær
plöntur af tegundinni C. indivisa.
Þær vom í pottum, sem grafnir
vom niður úti í garðinum. Þessir
litlu pálmar settu suðrænan blæ
á umhverfíð og fylltu mann þeirri
trú að fyrst slíkar plöntur mætti
rækta á íslandi væm íslensku
garðyrkjufólki allir vegir færir.
Vorið 1983 rakst ég fyrir tilvilj-
un á fræpoka af Cordyline indi-
visa. í pokanum vom 40 fræ, sem
Frá garðaskoðun GÍ.
spímðu öll. Fyrsta sumarið litu
plöntumar út eins og gras og
hugsaði ég að langur tími mundi
líða þar til þær yrðu að þessum
glæsilegu plöntum, sem ég hafði
heillast af hjá Svövu og Hjalta.
Um veturinn vom plöntumar í
svölu gróðurhúsi en sumarið eftir
gaf ég flestar til Garðyrkjufélags
Islands þar sem þær dreifðust til
ýmissa félagsmanna og hef ég
haft litlar spumir af því hvemig
þær döfnuðu. Sjálfur hélt ég eftir
fímm plöntum. Eina reyndi ég að
rækta sem inniblóm, en hún virt-
ist ekki þola hitann og þurra loftið
inni og drapst fljótlega. Hinar
fjórar hafði ég úti um sumarið
og virtust þær kunna því vel og
uxu mjög hratt. Á þriðja sumri
höfðu blöðin náð fullri stærð. Nú
em þær um 1 metri að hæð og
BLÓM
VIKUNNAR
75
Umsjón:
Ágústa Bjömsdóttir
Cordyline í garði.
era famar að mynda dálítinn
stofn. Þær virðast kunna vel við
íslenska sumarveðráttu og hef ég
sett þær út í lok maí en tekið þær
inn í svalt gróðurhús í byijun
október þar sem þær em við
5—10° hita og hafa góða birtu.
Eftir að ég hóf ræktun dreka-
liljanna hef ég tekið eftir því á
ferðum mínum erlendis að þær
em mikið ræktaðar í pottum sem
stillt er upp í almenningsskrúð-
görðum. Vöxtur og þroski þessara
erlendu plantna er síst meiri en
hinna íslensk ræktuðu og hefur
það styrkt mig í þeirri trú að hér
sé um plöntur að ræða sem eigi
skilið meiri útbreiðslu hér en nú
er.
Sigurður Þórðarson
Höfundur er varaformaður
Garðyrkjufélaga íslands.
Kjötbollur og -búðingur
HeimilSshorn
Bergljót Ingólfsdóttir
Bollur og búðingur úr hökkuðu
kjöti em herramannsmatur og
möguleikar til matreiðslu nær
óþijótandi. Margir láta eigið hug-
arflug ráða samsetningu farsins
en aðrir þurfa nákvæma forskrift
til að fara eftir. í Heimilishomi í
dag em uppskriftir af tvennskon-
ar kjötbollum og einum kjötbúð-
ingi.
Romanoff-kjötbollur
750 g hakkað kjöt, lamba-, svína
eða nautahakk,
1 egg,
V2 bolli brauðmolar, heilhveiti eða
hveiti,
V2 bolli mjólk,
V2 bolli smátt brytjaður laukur,
IV2 tsk. salt,
V2 tsk.
V4 tsk. pipar,
2 matsk. hveiti,
2 matsk. smjörlíki,
soð í sósuna eða vatn og súputen.
Gesta-kjötbúðingur.
Kjöt, egg, brauðmolar, mjólk,
laukur og krydd sett í skál og
hrært vel saman. Úr farsinu em
gerðar fremur litlar bollur sem
velt er upp úr hveiti og brúnaðar
á pönnu. Áð steikingu lokinni er
annaðhvort hægt að sjóða bollum-
ar á pönnunni, bæta á þær soði
(eða vatni og súputen.) eða að
bollumar em soðnar í ofnföstu
fati í ofni. Suðutími fer eftir
stærðinni á bollunum, ef þær era
litlar og soðnar á pönnu nægir
ca. 10—15 mín. suða en lengur
ef það er gert í ofni. Gott er að
hafa soðsósu með (setja ekki
hveiti saman við.) En í staðinn
fyrir soðsósu af bollunum er hægt
að hafa kalda tilbúna eða heimala-
gaða sósu úr sýrðum ijóma eða
öðm. Ætlað fyrir 6—8 manns.
Kjötbollur með
„zucchini“
500 g hakkað nautakjöt,
1 egg, aðeins þeytt,
V2 bolli þurrir brauðmolar (ca. 1
sneið hveiti eða heilhveitibrauð)
V4 tsk. salt,
1 matsk. brytjuð steinselja,
3 matsk. vatn,
2 matsk. smjörlíki,
V2 bolli brytjaður laukur,
1 hvítlauksrif, marið,
V2 tsk. kúmen,
V2 tsk. salt,
1 dós niðursoðin tómatsósa (8
únsur),
3 „zucchini".
Hakk, egg, vatn, brauðmolar,
salt og steinselja sett saman í
skál, blandað vel saman og gerðar
úr farsinu ca. 18 bollur. Smjörlík-
ið hitað á pönnu og bollumar
brúnaðar, laukur, hvítlaukur og
kúmen sett út á jafnframt og fí-
tunni síðan hellt af. Tómatsósu,
salti og zucchini í þykkum sneið-
um sett út í og látið sjóða við
vægan straum í 15—20 mín.
Ætlað fyrir 4—6 m .nns.
Gesta-kj ötbúðingur
2 egg,
1 bolli brauðmylsna,
V2 bolli mjólk,
V2 bolli brytjaður laukur,
V2 bolli græn paprika í bitum,
IV2 tsk. salt,
Ví tsk. þurrkað timian lauf,
V4 tsk. pipar.
750 g nautahakk,
250 g svínahakk.
Gljáhjúpur:
V2 bolli tómatsósa,
2 matsk. púðursykur,
V4 tsk. sinnepsduft.
Egg, brauðmolar, mjólk, lauk-
ur, timian og pipar sett í skál og
blandað saman með gafli. Aðeins
látið standa áður en kjötinu er
bætt í. Búðingurinn settur á
bakka úr álpappír einnig sett yfir
hann og sett í kæliskáp eða frysti
smástund fyrir matreiðslu. Kjöt-
búðingurinn settur á ofnfast fat
og bakað í meðalheitum ofni í
45—60 mín. Á meðan að á bakstri
stendur er búðingurinn smurður
með sósunni, svo úr verði gljá-
hjúpur.
Sósan: Tómatsósa, púðursykur og
sinnepsduft hitað saman í potti
og smurt á hliðar og ofan á búð-
inginn. Ætlað fyrir 8 manns.