Morgunblaðið - 07.11.1987, Síða 23

Morgunblaðið - 07.11.1987, Síða 23
23 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 1987 Hér hefur mold verið klístrað á grind úr mjóum trjábolum. Þetta er engin dómkirkja en guðshús samt. Myndin er frá Pókot í Vestur- Kenýju þar sem íslenskir kristniboðar hafa starfað í nokkur ár. Kristniboðsdagurinn á morgun: Starf SÍK kostar um 8 milljónir krona Kristniboðsdagurinn er að þessu sinni á morgun, sunnudag- inn 8. nóvember, og verður kristniboðsins minnst i kirkjum landsins og á nokkrum samkom- um á þessum degi. Nú eru 34 ár síðan íslenskir kristniboðar hófu að starfa með- al Konsó-þjóðflokksins í S-Eþíópíu. Þar er nú mikið unnið á vettvangi kirkju, skóla, heilsu- gæslu, þróunarhjálpar o.s.frv. Söfnuðimir í Konsó eru hluti af lúthersku kirkjunni í landinu. Hún vex einna mesi allra lútherskra kirkna í heiminum. Vakningar eru víða á starfssvæðum hennar og hefur hún eignast marga góða leið- toga. Skólastarfið gengur mjög vel í Konsó, einkum eftir að nýr maður tók við stjóm skólans. Hann er reyndar sonur fyrsta mannsins í Koinsó sem tók kristna trú. Sá var seiðmaður. Sjúkraskýlið á kristniboðsstöð- inni í Konsó er eins og vin í eyðimörk. Þangað leituðu um 30 þúsund manns á árinu sem leið. Greinilegt er að skilningur fólks á sjúkdómsvömum og heilbrigðum lifnaðarháttum fer vaxandi. Þó að stefna yfirvalda í Eþíópíu rekist að ýmsu leyti á starf kirkn- anna í landinu eru tækifæri til boðunar og hjálpar óteljandi og hafa leiðtogar lúthersku kirkjunnar lagt mjög fast að kristniboðunum að þeir haldi áfram að starfa og leggi hinum ungu söfnuðum lið eft- ir föngum. Engir íslendingar eru í Konsó eins sakir standa. Ung hjón sem eru heima í leyfi gera ráð fyr- ir að fara þangað aftur á næsta ári. Góðar fréttir berast frá íslensku kristniboðunum í Pókot í V-Kenýu. Þar hafa risið fjórir söfnuðir á starfssvæði þeirra í Cheparería og nágrenni. Fimm skólar hafa verið byggðir fyrir fé frá íslandi. Hvort tveggja eflist, starfið í söfnuðunum og uppbygging skólanna. Pókot- menn urðu löngum útundan, að því er varðaði kristilega boðun og fræðslu í landinu svo að íslending- amir hafa orðið að byggja upp starf sitt að miklu leyti frá gmnni. Hald- in eru skímar- og biblíunámskeið og er áberandi hversu æskufólk fylkir sér í raðir kristinna manna. Ein hjón starfa í Cheparen'a en önnur íslensk hjón dveljast á stað sem heitir Koingolai, um 70 km frá Cheparería. Þau komu þangað fyrir skömmu eftir rúmlega árs leyfi hér heima. Þau segja frá þvi í nýlegu bréfi að þeim hafi verið vel tekið. Em þau þegar farin að taka til hendi, þó að hitinn sé oft um 38 stig, og em verkefnin óþrjótandi. Allur kostnaður kristniboðsins í Eþíópíu og Kenýu er greiddur með fxjálsum framlögum áhugafólks. A þessu ári þarf að safna á áttundu milljón króna og vantar enn tvær milljór.ir á þá upphæð. Fjárhags- áætlun næsta árs gerir ráð fyrir rúmum 8 milljónum króna. Kristniboð meðal heiðingja er sjálfsagður þáttur í starfi kristinnar kirkju. Kristniboðssambandið vænt- ir þess að landsmenn allir vilji styðja þarft málefni. Afhenda má framlög í aðalskrifstofunni, Amtmannsstíg 2B, Reykjavík, eða á gíróseðli nr. 65100-1. Á aðalskrifstofunni liggur og frammi bækkingur um starfið. (Úr fréttatilkyimingu) Þorsteinn Pálsson, forsætisráðherra, boðar til almenns stjórnmálafundar sunnudaginn 8. nóvember kl. 15.30 í Alþýðuhúsinu við Skipagötu. Allir velkomnir. Sjálfstæðisflokkurinn NÚ GETA ALLIR EIGNAST Al WA Einstakt tilbod!!! CP 550. Útvarp með LB, MB, FM og SW. Magn- ari 2x15 W(RMS) 5 banda tónjafnari. Tvöfalt segulband með „High Speed Dubbing", Metal, CR02, plötuspilari-hálfsjálfvirkur, tenging fyrir C.D., hátalarar 30 W (RMS). Frábær tóngæði frá AIWA VERÐ AÐEINS KR. 31.980.- Opið til kl. 4 á laugardag. ATH. Þetta er aðeins ein af mörgum frábærum stæðum frá Al WA Sendum í póstkröfu. Söluaðilar: Reykjavík: Hagkaup, Skeifunni. Bolungarvík: Versl. Jóns Fr. Einarssonar. Hagkaup, Kringlunni. Sauðárkrókur: Radíólinan. Nesco, Laugavegi. Húsavík: Radióver. Kópavogur: Tónborg. Akureyri: Tónabúðin. Akranes: Skagaradíó. Egilsstaðir: Verslunarfélag Austurlands, Fellabæ. Borgarnes: Shellstöðin. D I - I (\daio Ármúla 38 (Selmúlamegin), 105 Reykjavík. Símar. 31133 - 83177. Pósthólf 8933^

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.