Morgunblaðið - 07.11.1987, Blaðsíða 29
Vestur-Skaftafellssýsla
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 1987
29
Rætt um skatta
og verkaskiptingu
Kirkjubæjarklaustri.
ALLIR oddvitar og sveitarsljóri
í V-Skaftafellssýslu héldu fund í
Tunguseli í Skaftártungu, þar
sem rædd voru hin ýmsu mál
sveitarfélaganna, þá sérstaklega
um breytingar sem nú eru á döf-
inni varðandi staðgreiðslu skatta
og hugmyndir um gjaldheimtu
ríkis og sveitarfélaga, sem settar
verða á stofn.
Einnig var rætt um drög að
breytingum um verkaskiptingu ríkis
og sveitarfélaga og. létu fundar-
menn frá sér fara þessa ályktun
um málið:
„Fundur oddvita og sveitarstjóra
í V-Skaftafellssýslu, þann 29. októ-
ber 1987, lýsir þeirri skoðun að
þrátt fyrir ánægju yfir auknu sjálf-
stæði sveitarfélaga í hinum ýmsu
málaflokkum, sem fram fara kemur
í drögum að breytingu á verkaskipt-
ingu ríkis og sveitarfélaga, telur
fundurinn að tekjur á móti séu alls
ekki tryggðar þar sem eingöngu er
gengið út frá að þær komi í gegnum
Jöfnunarsjóð sve:tarfélaga. Reynsla
liðinna ára sýnir ótvírætt, að á þann
tekjustofn er ekki treystandi, en
framlag hans hefur farið eftir geð-
þóttaákvörðun ríkisstjórna á hveij-
um tíma. Bendir fundurinn á að
aðra tekjustofna, tryggari, hefði
verið hægt að færa til sveitarfé-
laga, svo sem tekjuskatt, eignaskatt
o.fl. Hins vegar álýtur fundurinn
að jöfnunarsjóð þurfi að efla og
meginverkefni hans verði að jafna
aðstöðumun sveitarfélaga.
Væntum við þess að allir sem
hlut eiga að máli, og þá sérstaklega
deifbýlissveitarfélög, sem fara
halloka í tekjum við þessa hugmynd
að verkaskiptingu, láti málið til sín
taka og hvetjum til nánari athugun-
ar.“
Þá voru rædd ýmis önnur mál,
svo sem umræða um skattlagningu
skólamötuneyta sem komið hefur
til álita hjá fjármálaráðuneyti. Þyk-
ir mönnum að með þeirri skattlagn-
ingu væri enn einu sinni verið að
mismuna fólki eftir búsetu, þar sem
sannarlega er vitað að framhalds-
nám þeirra unglinga, sem ekki geta
stundað nám í sinni heimabyggð,
er dýrara.
Fram kom óánægja fundar-
manna með þáttagerð sjónvarpsins
þar sem fram kemur villandi mynd
af mannlífi og búskaparháttum til
sveita. Dregnir eru fram í dagsljós-
ið, aftur og aftur, gamaldags
búskaparhættir sem teljast til al-
gjörra undantekning, en sjaldan eru
gerðir þættir um sveitalífið eins og
það er í raunveruleikanum. Veltu
menn fyrir sér hvað lægi til grund-
vallar slíkri þáttagerö
Það myndi gleðja þá 50 Skandinava og
‘v' fjölda annarra frá öllum heimshornum að fá þig með
til IHTTI í Luzern/Sviss i
Hótelstjórnunarnám (á ensku).
Næsta 3 ára nám (námskeið 88A) byrjar mánudaginn 15. febrúar
1988. Námskostnaður pr. önn eru 23.000 svissneskir frankar. Innifal-
ið er fullt fæði og húsnæði.
'gr
Við bjóðum einnig uppá sérstakt 4 vikna námskeið í mars 1988:
Stjórnun smárra og miðlungs stórra hótela
(á ensku) (námskeið SM88/1) fyrir hóteleigendur, framkvæmdastjóra
og yfirmenn á hótelum.
Biðjið um bæklinga fyrir námskeið 88A eða SM88/1 hjá:
IHTTI International Hotel and Tourism Training Institutes Ltd., Box 95,
4006 Basel/Switzerland.
Sími (61) 42 30 94, telex 965 216 TC CH.
Vinsamlegast takið fram í hvaða dagblaði þiö sáuð auglýsinguna.
Per Olof Forshell
Nýr
sendiherra
PER Olof Forshell hefur verið
skipaður sendiherra Sviþjóðar á
íslandi.
Per Olof Forshell er fæddur árið
1928 í Gautaborg og lauk kand.
jur.-prófi frá Stokkhólmsháskóla
árið 1954. Sama ár hóf hann störf
við sænsku utanríkisþjónustuna.
Forshell hefur meðal annars starfað
í Róm, Genf, New York og París
og verið aðalræðismaður Svía í
Minneapolis. Síðastliðin sex ár hef-
ur hann starfað sem sérlegur
ráðgjafi sænska utanríkisráðherr-
ans í alþjóðamálum.
Forshell er kvæntur Helenu Fors-
hell fornleifafræðingi og eiga þau
sex börn.
BRUNAÐU MED
Tlí
BADGASTEIN 0G MERIB
Úrvals skídaferðir í bestu skíðalönd Evrópu!
BADGASTEIN
í Austurríki
Badgastein er í Gastein dalnum, sem er
eitt kunnasta vetraríþróttasvæði Alpanna.
Badgastein er ekki aðeins þekktur fyrir
stórkostlegar skíðabrekkur heldur líka fyrir
heitar vatnsuppsprettur.
Petta tvennt, öðru fremur, gerir
Badgastein að draumastað þeirra sem vilja
endurnýja kraftana um leið og þeirslaka á.
Skíðalöndin í Badgastein henta öllum,
jafnt byrjendum sem reyndum skíðagörp-
um.
Badgastein býður upp á fjölbreytta
dœgradvöl og fjölskrúðugt nœturlíf.
Við bjóðum Úrvals gististaði við hæfi
hvers og eins.
Brottfarardagar: 23. jan. ’88 -2 vikur.
6. feb. ’88 - 2 vikur.
20. feb. ’88 - 2 vikur.
34.600
Innifalið í verði: Flugfar, akstur til og frá
flugvelli erlendis oggisting í tveggja manna
herbergi með morgunverði.
Bókaðu þig sem fyrst í skíðabrekkurnar
í Badgastein.
MERIBEL
í Frakklandi
Meribel er staðsett miðsvæðis i „Dölun-
um þremur,“ einu stærsta skíðasvœði
heims, þar sem eru um 500 km af skíða-
brekkum og 200 lyftur.
Þar finnurþú allar tegundir afsktða-
brekkum m.a. sérstakar brekkur með
púðursnjó.
Snjórinn á þessu svœði helst alveg
einstaklega góður langt fram á vor.
íbúðahótelið sem við bjóðum heitir
Residences Orion og er i miðjum bœnum
Meribel.
Þar hefurðu skíðalyfturnar nánast við
hóteldyrnar. / Meribel er fjölskrúðugt
nœturlíf, fjöldi veitingahúsa og diskóteka.
Brottför: 5. mars í 2 vikur.
2 í studio íbúð, verð kr.
47.414
3 í studio íbúð, verð kr. m m *%Æ ák
41.360
Innifalið í verði: Flugfar, gisting og
flutningur til og frá flugvelli erlendis.
Renndu við eða hringdu og fáðu nánari
upplýsingar.
Að sjálfsögðu bjóðum við líka ferðir til
þeirra skíðasvœða sem eru á vetraráœtlun
Flugleiða.
Skíðabœklingurinn er kominn!
FERÐASKRIFSTOFAN ÚRVAL
fólk sem kann sitt fag!
Pósthússtrœti 13 - Sími 26900