Morgunblaðið - 07.11.1987, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 1987
31
lyfjameðferð ef sjúklingurinn væri
ekki samvinnuþýður og umdeilan-
legt væri hvort rétt geti talist að
neyða fólk til að neyta lyfla.
Högni taldi það þó rétt þegar um
kynferðisafbrotamenn væri að ræða
og reifaði þann möguleika að menn
yrðu að afþlána dóma sem þeir hefðu
fengið skilorðsbundna ef þeir gengj-
ust ekki undir lyfjameðferð.
Hann sagðist fagna frumvarpi
Salome Þorkelsdóttur, ekki síður
vegna afbrotámannanna en fómar-
lambanna enda væri mikilvægt að
ekki liði of langt á milli afbrots og
refsingar. Hann taldi það þó ákaf-
lega frumstæða lausn að senda
afbrotamennina einungis í fangelsi,
mikilsvert væri að reyna að hjálpa
þeim.
Breytingar á ákvæðum
um skírlífisbrot
Sólveig Pétursdóttir varaþing-
maður (S-Rvk) kynnti frumvarp sitt
til breytinga á ákvæðum um skírlífis-
brot. I frumvarpinu er gert ráð fyrir
því að eins verði tekið á óleyfilegu
samræði við persónu af sama kyni
og við persónu af gagnstæðu kyni.
I núgildandi lögum er hámarksrefs-
ing vægari ef um samræði við
persónu af sama kyni er að ræða.
Sólveig sagði þessa breytingu
meðal annars gera það að verkum
að ungir drengir nytu meiri vemdar
en nú er fyrir afbrotum eldri karl-
manna.
Einnig er í frumvarpinu gert ráð
fyrir að hægt verði að beita hám-
arksrefsingu fyrir kynferðisbrot þótt
samræði eigi sér ei.ki stað ef um
mjög alvarlegt brot er að ræða.
Hún sagði það nú vera algjörlega
á valdi dómstóla að ákveða viðurlög
við kynferðisafbrotum þar sem sam-
ræði ætti sér ekki stað en þessi
kynferðisafbrot væm oft ekki síður
alvarleg en hin.
Hallvarður Einvarðsson ríkissak-
sóknari sagði mikilvægt að stjóm-
völd og almenningur héldu vöku
sinni í þessum málum. Taldi hann
brýna þörf á endurskipulagningu
refsilöggjafarinnar í heild. Hætta
væri á að sérákvæði sem sett væm
í lög samrýmdust illa þeim sem fyr-
ir væm. Til dæmis þyrfti að athuga
gaumgæfílega áhrif tillögu Salome
Þorkelsdóttur á refsilög.
Hallvarður sagði og að huga
þyrfti að aðstöðu þeirra stofnana
sem þjóðfélagið hefur falið að vinna
að þessum málum en hún þyrfti að
vera góð.
Eftir að hafa unnið í röskan aldar-
fjórðung við meðferð opinberra mála
og kynnt sér meðferð þeirra hjá
nágrannaþjóðunum væri hann sann-
færður um að vissra endurbóta væri
þörf þótt margt hefði vissulega ver-
ið vel gert.
Húsavík:
Nýr bát-
ur í
flotann
Húsavík.
NÝR bátur bættist í gær við báta-
flota Húsvíkinga, Siglunes ÞH
60, sem er 101 tonn að stærð og
keyptur frá Hvammstanga.
Bræðumir Aðalsteinn og Óskar
Karlssynir hafa lengi gert út tvo
báta frá Húsavík, Sæborgu og
Guðrúnu Björgu. í haust seldu þeir
til Hafnarfjarðar Guðrúnu Björgu
sem er 15 tonn að stærð en keyptu
Siglunesið sem smíðað var á Akra-
nesi 1970. Báturinn er útbúinn til
línu-, neta- og rækjuveiða.
Skipstjóri á Siglunesinu verður
Óskar Karlsson og fer hann á línu-
veiðar í næstu viku.
— Fréttaritari.
Hefði ekki bjargast
án flotbúningsins
- segir Guðmundur Jónsson, sem féll fyrir borð á Halamiðum
„EF ÉG hefði ekki verið í bún-
ingnum þá væri ég ekki hér“
sagði Guðmundur Jónsson, 19
ára gamall háseti á Grindvíkingi
GK, en hann datt fyrir borð á
Halamiðum á þriðjudagsmorgun-
inn, og var bjargað eftir 10
míútna volk í sjónum. Ahöfnin á
Grindvíkingi keypti öll vinnuflot-
búninga fyrir viku siðan, og er
óhætt að segja að sú fjárfesting
hafi borgað sig, og vel það.
Morgunblaðið náði tali af Guð-
mundi þegar Grindvíkingur var að
landa loðnu í Grindavík um hádegis-
bilið í gær. Hann var fyrst beðinn
að lýsa aðdraganda slyssins. „Við
vorum að draga inn nótina," sagði
Guðmundur, „það var farið að
hvessa og það kom stjómborðshalli
á skipið, og mér skrikaði fótur og
datt útbyrðis."
Það var dimmt þegar þetta gerð-
ist, um 6 leytið á þriðjudagsmorg-
uninn, en ekki mjög slæmt í sjóinn;
Guðmundur sagðist giska á að það
hefðu verið eitthvað um fjögur vind-
stig, og kominn smávegis öldugang-
ur. „Ég bjóst ekki við að hafa það
af þegar ég datt út fyrir og fór
fyrst í kaf, en síðan róaðist ég að-
eins eftir að ég fann að ég flaut í
búningnum" sagði Guðmundur.
Félagar Guðmundar tóku strax
eftir því að hann hafði fallið út-
byrðis, og hófust þegar handa við
björgunartilraunir. Guðmundur fór
aldrei langt frá bátnum, mest 2-3
metra, og honum tókst að komast
aftur að kraftblökkinni á skipinu,
og ná taki á nótinni eftir að skip-
stjórinn hafði bakkað til hans. Síðan
hentu skipveijar björgunarhring til
Guðmundar, og sagðist hann hafa
orðið ömggur um að honum yrði
bjargað þegar hann náði taki á
hringnum. Guðmundur var síðan
hífður um borð í björgunametinu
Markúsi.
Guðmundur var í sjónum í um
10 mínútur, en hann sagðist ekki
hafa verið orðinn mjög kaldur þeg-
ar hann kom um borð, þó að
sjávarhitinn á þessum slóðum sé
aðeins um 1-3 gráður. Hann þakk-
aði það flotbúningnum, en auk þess
að halda mönnum á floti á sjónum
einangrar búningurinn frá kulda á
svipaðan hátt og blautbúningar sem
kafarar nota. Guðmundur sagðist
hins vegar hafa verið næstum sólar-
hring að róast niður eftir „sjokkið"
sem hann fékk, og hann ætlar að
hvíla sig í viku til tíu daga áður
en hann fer næst á sjóinn.
Það er aðeins ein vika liðin síðan
áhöfnin á Grindvíkingi festi kaup á
flotbúningum sem nota má við
vinnu, af gerðinni „66 gráður norð-
ur“, en áður var unnið í venjulegum
gúmmígöllum uppi á dekki. „Sú
fjárfesting er búin að borga sig
heldur betur“ sagði Guðmundur.
Skipveijar á Grindvíkingi sögðu að
það væri nokkur galli að vatn læki
inn í búningana þegar verið væri
að draga inn nótina, en ekki kæmi
samt annað til greina en að nota
þá að staðaldri. „Þeir eru búnir að
sanna ágæti sitt“ sagði einn skips-
félagi Guðmundar.
Guðmundur er 19 ára Grindvík-
ingur, og hann byijaði á sjónum nú
í vor. Hann sagðist ekki hafa ákveð-
ið hvort hann ætlaði að leggja
sjómennsku fyrir sig, en hann ætlar
að fara í annan túr þegar hann er
búinn að taka sér hvíld í nokkra
daga, til að sjá hvort enn sitji beyg-
ur eftir í honum eftir hina óþægi-
legu lífsreynslu sem hann varð fyrir
á Halanum á þriðjudaginn.
Morgunblaðið/RAX
Guðmundur Jónsson (annar frá vinstri) í flotbúningnum góða á bryggjunni á Grindavík þar sem verið
var að landa loðnu upp úr Grindvikingi GK. Með Guðmundi á myndinni eru þrír skipsfélaga Guðmund-
ar sem unnu að björgun hans (f.v.): Ævar Ásgeirsson, Kristinn Á. Kristinsson, og Þorvaldur Þorvaldsson.
— milljónir, á hverjum laugardegi. Upplýsingasími: 685111.