Morgunblaðið - 07.11.1987, Page 42
42
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 1987
Jómfrúræða Sólveigar Pétursdóttur:
Umræða um kynferðis-
brot ákall til réttarkerflsins
Hér fer á eftir jómfrúræða Sól-
veigar Pétursdóttur (S.-Rvk.) er
flutt var á Alþingi 5. nóvember sl.
Hæstvirtur forseti.
Ég mæli hér fyrir frumvarpi til
laga um breytingu' á núgildandi
hegningarlögum nr. 19/1940.
I 1. gr. þessa frumvarps er gerð
•tillaga um nýtt ákvæði er bætist
við 202. gr. hgl. svohljóðandi: „Sé
brot sérstaklega stórfellt, þá varðar
það fangelsi ekki skemur en 1 ár
og allt að 16 árum.“
í 2. gr. frumvarpsins er gerð til-
laga um breytingu á 1. mgr. 203.
gr., hún verði svohljóðandi: „Kyn-
ferðismök við persónu af sama kyni,
þegar atvik að öðru leyti svara til
þess, er í 194.—198. gr, fyrri mgr.
200. gr. og seinni mgr. 202. gr.
segir, skulu varða þeirri refsingu
er í þeim ákvæðum segir.
í 3. gr. frumvarpsins er síðan
lagt til að lög þessi öðlist þegar
gildi.
Mikil umræða hefur átt sér stað
úndanfarið um kynferðisbrot og þá
ekki síst gagnvart bömum og ljóst
er að allur almenningur lítur þessi
mál mjög alvarlegum augum. Túlka
má þessa umræðu sem nokkurs
konar ákall til íslenska réttarkerfis-
ins og löggjafans um að bregðast
ekki hlutverki sínu þegar slík afbrot
eru annars vegar. Þess eru jafnvel
dæmi að menn hafi haft tækifæri
til að fremja fjölda kynferðisafbrota
á löngu tímabili og getur slíkt haft
það í för með sér að almenn virðing
• fyrir lögum þverri. Sé lögum ekki
framfylgt em þau gagnslaus til að
vama afbrotum af þyí tagi sem
efni laganna tekur til. Á þessu verð-
ur að taka og margir eru þeirrar
skoðunar að of vægt sé tekið á
málum sem snerta kynferðis- og/
eða nauðgunarmál almennt.
Það er alkunna að margvíslegar
hvatir geta legið að baki afbrotum
sem þessum og í sumum tilvikum
hafa afbrotamennimir sjálfír átt við
mikla erfíðleika að stríða, eru jafn-
vel haldnir svonefndum persónu-
leikatmflunum. Samt sem áður
hafa þessir menn verið metnir sak-
hæfír, þ.e.a.s. þeir gera sér grein
fyrir verknaðinum og hugsanlegum
■ afleiðingum og geta því tekið út
refsingu. Nú er það augljóst að
taka þarf tillit til margra sjónar-
miða áður en dómur er upp kveðinn.
Það fer þó ekki hjá því að viðurlög
þykja á tíðum næsta væg, oft að
hluta til skilorðsbundin, þ.e.a.s. þá
er framkvæmd refsingar frestað.
Með það í huga langar mig til að
minna háttvirta þingmenn á um-
mæli föður eins fómarlambsins í
hljóðvarpinu fyrir skömmu, þar sem
ungur sonur átti hlut að máli. Hann
sagði eitthvað á þessa leið: „Maður
hlýtur að velta því fyrir sér hveija
dómstólum er ætlað að veija í máli
sem þessu, fómarlambið eða af-
brotamanninn?"
Það er velþekkt sjónarmið að ein-
staklingur ber ábyrgð gagnvart
samfélaginu á þeim athöfnum
sínum, sem skaða hagsmuni ann-
arra. M.a. á þessu sjónarmiði
byggja hegningarlögin tilvem sína.
En er tilgangur þeirra einvörðungu
sá að refsa mönnum fyrir brot á
ákvæðum þeirra eða býr eitthvað
meira að baki?
Með leyfi hæstvirts forseta lang-
ar mig til þess að vitna í inngang
að þýðingu á hinu margfræga riti
Frelsinu eftir John Stuart Mill, sem
Hið íslenska bókmenntafélag gaf
út 1970. Þar er m.a. fjallað um
löggjafarhugmyndir Jeromys Bent-
ham er John Stuart Mill síðar nefndi
nytjastefnu. Megininntak hennar
varðandi refsingar og réttlætingu
þeirra var sú, „að refsilög beri ekki
að setja til þess að menn fái rétt-
láta refsingu afbrota sinna, heldur
‘ til þess að koma í veg fyrir þá hegð-
un, sem við köllum afbrot. Og
nytjasiðfræðin gerir þá almennu
kröfu að sérhver mannleg athöfn,
hvort heldur lagasetning eða hver
önnur athöfn sem er, sér réttlætt
eða réttlætanleg á grundvelli afleið-
inga sinna fyrir almenningsheill."
(Tilvitnun lýkur).
Hegningarlögum er því ekki ein-
ungis ætlað að refsa fyrir afbrot
heldur er þeim ætlað að hafa vam-
aðaráhrif, þ.e.a.s. koma í veg fyrir
að afbrot séu framin, og sérhver
breyting á þeim á að vera til bóta
fyrir almenningsheill. Það er ekki
síst með þetta sjónarmið í huga sem
ég tel rettarbóta þörf.
Viðurlög gegn kynferðisbrotum
hafa verið í íslenskri löggjöf um
langan tíma, allt frá elstu lög-
bókum. Viðurlög hafa þó verið
mismunandi ströng og hafa vafa-
laust mótast nokkuð af hinu
siðræna viðhorfi almennings á
hveijum tíma.
Réttarþróunin hefur orðið sú að
böm og ungmenni njóta nú orðið
betri verndar en áður var. Sem
dæmi má nefna 174. gr. eldri hegn-
ingarlaga frá 1869, þar sem það
varðað hegningarvinnu allt að 8
árum ef maður framdi saurlífí með
stúlkubarni undir 8 ára aldri. Sam-
bærilegt ákvæði er í 1. mgr. 200
gr. núgildandi hegningarlaga sem
íjallar um samræði við bam undir
14 ára aldri og viðurlögin eru
þyngri, eða fangelsi allt að 12 árum.
Er það fyllilega í samræmi við þau
umhyggjusjónarmið sem búa að
baki slíkri löggjöf. Frumvarp þetta
byggir að sjálfsögðu einnig á þess-
um sjónarmiðum.
Lagaákvæði þessa fmmvarps em
í 22. kafla hegningarlaganna og vil
ég af því tilefni vekja sérstaka at-
hygli háttvirtra þingmanna á því,
að bæði 21. kafli og 22. kafli hgl.
um sifskaparbrot og skírlífisbrot
hafa staðið óbreytt í 47 ár eða allt
frá árinu 1940 og má það merki-
legt teljast. Engu er líkara en þessi
afbrot hafi sætt svipaðri meðferð
og óhreinu bömin hennar Evu, eng-
inn mátti sjá þau né um tala.
En nú hefur lokinu verið lyft af.
Mér er kunnugt um það að svoköll-
uð nauðgunamefnd hefur verið
starfandi skv. þingsályktunartillögu
frá árinu 1984. Henni er ætlað að
endurskoða þau ákvæði 22. kafla
hgl. sem fjalla um brot gegn kyn-
frelsi kvenna, þ.e.a.s. greinar
194—199, en ekki þær greinar sem
fmmvarp þetta fjallar um. Vafa-
laust og vonandi verða bæði 21. og
22. kafli hgl. endurskoðaðir í heild
í náinni framtíð, svo sem þegar
hefur verið gert á hinum Norður-
löndunum. En að óbreyttum lögum
tel ég mál þetta það brýnt að það
þoli enga bið. Bæði er það að fjöldi
þessara mála af alvarlegra taginu
virðist fara vaxandi og eins hitt að
borgarar þessa lands standa hér
ekki jafnir fyrir lögum.
í þessu sambandi vil ég sérstak-
lega benda á 194. gr. hgl. um
nauðgun þar sem viðurlög em fang-
elsi allt frá 1 ári og upp í 16 ár
eða jafnvel ævilangt. Það er þó einn
galli á gjöf Njarðar. 194. gr. er
kynbundin, sbr. upphafi hennar:
„Ef kvenmanni er þröngvað til hold-
legs samræðis ...“ o.s.frv.
Fræðimenn í refsirétti segja lög-
jöfnun frá þessu ákæði útilokaða.
Samkvæmt gagnályktun njóta því
karlar ekki þessarar refsivemdar,
né heldur þeir er verða fyrir kyn-
ferðisbroti, þar sem samkynja
persóna á hlut að máli, þ.e.a.s.
homosexual mök. Þetta gildir jafn-
vel þótt verknaðurinn sé framinn
með því ofbeldi eða nauðung sem
194. gr. gerir ráð fyrir. — Þess
má reyndar geta að nauðgunará-
kvæðið er ekki kynbundið á hinum
Norðurlöndunum, að Finnlandi und-
Sólveig Pétursdóttir
anskildu. Fmmvarpinu er ætlað að
bæta úr þessu með því að sambæri-
leg refsing verði lögfest, einnig í
þeim tilfellum þegar um kynferð-
ismök önnur en samræði er að
ræða.
I fmmvarpinu segir í greinargerð
um 202. gr. hgl. með leyfi hæstv.
forseta:
Greinargerð
Um 202. gr. „202. gr. núgildandi
hgl. hljóðar svo: „Hafi nokkur, þeg-
ar svo er- ástatt, sem í 194.—201.
gr. segir, gerzt sekur um önnur
kynferðismök en samræði, þá skal
beita vægari hegningu að tiltölu."
Þetta orðalag „„vægari hegn-
ingu“, er til refsilækkunar, hins
vegar er það ekkert skilgreint
hvorki í lögunum sjálfum né grein-
argerð og enginn refsirammi til-
greindur. Það er því algerlega á
valdi dómstóla að ákveða viðurlög
við þessum afbrotum. Hinsvegar
má það teljast ljóst að kynferðismök
önnur en samræði geta haft mjög
alvarlegar afleiðingar í för með sér,
sbr. m.a. rit prófessors Jónatans
Þórmundssonar Um kynferðisbrot,
inngangur, en þar segir á bls. 16
með leyfi hæstvirts forseta:
„Hugtakið holdlegt samræði er
hvorki skilgreint í lögum né greinar-
gerð. Samræði hefur í fræðiritum
og framkvæmd verið takmarkað við
hefðbundnar samfarir karls og
konu. Með þessu eru útilokuð kyn-
mök samkynja persóna og mök
karls og konu með öðrum hætti en
notkun kynfæranna einna. Það
kann þó að vera jafnalvarlegt, ef
brotaþola er misboðið kynferðislega
með öðrum hætti, að slepptri þung-
unarhættunni. Má þar nefna
kynferðisathafnir, er beinast gegn
öðrum hlutum líkamans eða fram-
kvæmdar eru með verkfærum."
Réttarþróun víða hefur hnigið í
þá átt að endurmeta refsinæmi
kynferðisbrota og þá ekki síður
ýmsar kynferðisathafnir aðrar en
samræði. Sem dæmi má nefna að
hugtakið „sexual penetration“ í
hegningarlögum Illinoisríkis tekur
til hvoru tveggja. Þá var það lög-
fest 1984 í Svíþjóð að jafna ýmsum
kynferðisathöfnum við samræði, ef
þær veita eða eru til þess fallnar
að veita hinum brotlega kynferðis-
lega fullnægingu.
í 1. mgr. 195. gr. norsku hegn-
ingarlaganna varðar afbrot fangelsi
allt að 10 árum fyrir „utugtlig
omgang" við bam undir 14 ára
aldri, en það varðar fangelsi ekki
skemur en 1 ár ef afbrotið felur í
sér samræði. Hugtakið „utugtlig
omgang" virðist hér nokkuð
víðtækt og felur einnig í sér sam-
ræði.
í 2. mgr. þessarar sömu laga eru
viðurlögin fangelsi allt að 21 ári,
ef afbrotið hefur alvarlegar afleið-
ingar í för með sér. Hér er tekið
fram að kynsjúkdómar falli undir
þetta ákvæði.
2. mgr. 202. gr. hgl. er því ný-
mæli og hljóðar svo: „Sé brot
sérstaklega stórfellt, þá varðar það
fangelsi ekki skemur en 1 ár og
allt að 16 ámm.“
„Sérstaklega stórfellt" tekur til
þess hvérsu gróft brotið í heildina
er, og verður ekki tæmandi talið.
Hér fellur þó undir sú aðferð sem
notuð er, svo sem ofbeldi eða frelsis-
svipting og fjöldi tilvika. Skaðlegar
afleiðingar brots fyrir sálarheill og
líkamlegt heilbrigði brotaþola falla
hér einnig undir, t.d. ef verknaður
hefur kynsjúkdóm eins og eyðni í
för með sér, að uppfylltum ásetn-
ingarkröfum.
I fmmvarpinu segir enn fremur
í grg. um 1. mgr. 203. gr. hgl.,
með leyfi hæstvirts forseta:
Um 203. gr. Þetta ákvæði fjallar
um kynferðismök við persónu af
sama kyni, og hefur falið í sér miklu
lakari vernd en ákvæði er snerta
önnur kynferðisbrot, þegar litið er
til refsimarkanna. Refsihámarkið
hefur verið bundið við 6 ára fang-
elsi, sem er miklu lægri refsing
heldur en lögbundið er, t.d. við
194. gr. 16 ár og 1. mgr. 200. gr.
hgl. 12 ár. Slíkt fær ekki samrýmst
nútímaviðhorfum, hvorki efnislega
né réttarfarslega. Hér er breytingar
þörf og mótast sú þörf ekki síst af
fjölda alvarlegra mála nú síðustu
árin, þar sem brotaþolar em einatt
ungir drengir. Og afbrotamaðurinn
karlkyns.
Læknisfræðilegar líkur benda til
þess að einmitt þessi tegund af-
brota geti haft mjög skaðlegar
afleiðingar í för með sér fyrir brota-
þola, og er þá m.a. átt við kynsjúk-
dóm eins og eyðni. Því þykir full
ástæða til þess, að lögum óbreytt-
um, að í lagaákvæði þessu sé einnig
vísað til 2. mgr. 202. gr., sem get-
ið er um í frumvarpinu. Að öðm
leyti vísast til framangreindrar grg.
með 200 gr. hgl.
Til frekari stuðnings þessu fmm-
varpi um breytingu á hegningarlög-
um má leiða að því rök að
brotaþolar, sérstaklega böm, .piga
oft erfíðara með að sýna fram á
það að þau hafí verið beitt nauðung
eða ofbeldi við afbrot af þessu tagi
þannig að 194. gr. eigi við Almennt
eiga þau erfiðara með að bera hönd
fyrir höfuð sér og því er það skylda
okkar að vemda þau gegn misneyt-
ingu af þessu tagi.
Hæstvirtur forseti. Það er ekki
refsigleði er ræður gjörðum flutn-
ingsmanns í máli þessu, heldur brýn
þörf á réttarbót. Þessi afbrot em
almennt litin mjög alvarlegum aug-
um og þau hljóta að snerta alla
þjóðfélagsþegna. Ennfremur gætir
þess misræmis í þessum kafla hgl.
að ekki verður lengur við unað.
E.t.v. má finna hér nokkra skýringu
á þeim tiltölulega vægu viðurlögum
er beitt hefur verið 'i dómum síðustu
ára. Ef löggjafinn hefur fmmkvæði
að því að samræma og herða refsi-
löggjöf við kynferðisbrotum þá felur
það í sér vísbendingu til dómstóla
um breytt refsimat.
Að sjálfsögðu er ekkert eitt sjón-
armið sem ræður ákvörðun refsing-
ar fremur en setning refsilaga.
Meta skal refsihæð hveiju sinni
eftir öllum atvikum máls og per-
sónulegum högum sökunauts, að
því leyti sem máli getur skipt.. Ég
verð þó að skýra frá því hér, hátt-
virtir þingmenn að núna í morgun
frétti ég að búið væri að kveða upp
dóm í kynferðisbrotamáli, þar sem
afbrotamaðurinn var karlmaður en
fórnarlambið 9 ára drengur. Dóm-
urinn hljóðaði upp á 8 mánuði
fangelsi, þar af 6 mánaða skilorðs-
bundið sem þýðir í raun að afbrota-
maðurinn mun aðeins sitja 2 mánuði
í fangelsi, svo fremi sem hann biýt-
ur ekki skilorðið. Það skýtur því
óneitanlega skökku við, svo að
dæmi sé tekið, að dómar í ölvunar-
akstursmálum eru oft óskilorðs-
bundnir og munu almennt
varnaráhrif ráða þar talsverðu um,
þ.e.a.s. vegna þeirrar hættu sem
slík brot hafa í för með sér. Án
þess að gera lítið úr alvöru þeirra
afbrota þá hlýtur að mega gera
kröfu til þess að svipaðra sjónar-
miða sé gætt við kynferðisbrot, og
þá ekki síst þau sem beinast gegn
börnum.
Hæstvirtur forseti. Ég legg til
að lokinni umræðu, að frumvarpinu
verði vísað til 2. umræðu og hátt-
virtar allheijamefndar.
Ný hljómplata með Reyni
GEFIN hefur verið út hljómplata
með harmoníkueinleik Reynis
Jónassonar sem nefnist Leikið
tveim skjöldum. Áður hafði
Reynir sent frá sér tvær plötur
og leikið sem aðstoðarmaður
annarra á nokkrum plötum.
Meðal laga plötunnar eru Viki-
vaki og Söngur jólasveinanna eftir
Jón Múla Amason, Tangó fyrir
Bubba eftir Ríkharð Öm Pálsson,
Ástartöfrar eftir Valdimar Auðuns-
son, Ástarsæla eftir Gunnar
Þórðarson og Stolt siglir fleyið
mitt eftir Gylfa Ægisson, auk laga
eftir Amsten Johansen, Malando,
Andrew Walter og Frosini.
Reyni til aðstoðar á plötunni eru
Friðrik Karlsson gítarleikari, Þórð-
ur Högnason bassaleikari, Sveinn
Óli Jónsson trommuleikari, Szymon
Kuran fiðluleikari, Reynir Sigurðs-
son sem leikur á ásláttarhljóðfæri,
auk þess sem Anna Maguire leikur
á lágfiðlu og Lovísa Fjeldsted á
knéfiðlu.