Morgunblaðið - 07.11.1987, Blaðsíða 54
Xrl
54
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 1987_
Skattlagning eigna-
tekna í endurskoðun
Kallar á upplýsingamiðlun frá bönkum og fjármálastofnunum
Kaflar úr fjárlaga-
ræðu Jóns Baldvins
Hannibalssonar
í fjárlagaræðu Jóns Bald-
vins Hannibalssonar, fjár-
málaráðherra, sem flutt var á
Alþingi sl. miðvikudag, var
m.a. fjallað ítarlega um endur-
skoðun skattakerfis. Morgun-
blaðið birtir þann kafla
ræðunnar hér á eftir í heild:
Fyrsta skrefið í endurskoðun
skattakerfisins var tekið á öndverðu
þessu ári þegar samþykkt voru hér
á Alþingi lög um staðgreiðslu opin-
berra gjalda og breyting gerð á
lögum um tekjuskatt og eignar-
skatt í þeim tilgangi að einfalda
þau lög og gera þau aðgengilegri
fyrir framkvæmd staðgreiðslu.
Staðgreiðsla skatta
Frá samþykkt laganna hefur ver-
ið unnið að undirbúningi fram-
kvæmdar á vegum fjármálaráðu-
neytisins og embættis ríkisskatt-
stjóra. Nefnd skipuð fulltrúum
þessara aðila og fulltrúum frá Sam-
bandi íslenskra sveitarfélaga var
falið að hafa með höndum umsjón
með undirbúningnum og annast
samræmingu. Stofnuð var sérstök
deild, staðgreiðsludeild, við embætti
ríkisskattstjóra og að henni ráðnir
starfsmenn. Vinnur hún að undir-
búningi staðgreiðslunnar í sam-
vinnu við Skýrsluvélar ríkisins,
ríkisbókhald o.fl. og annast kynn-
ingu á málinu. Sérstakur vinnuhóp-
ur skipaður fulltrúum fjármálaráðu-
neytisins og Sambands íslenskra
sveitarfélaga hefur unnið að undir-
búningi þeirra þátta er snúa að
móttöku og innheimtu gjaldheimtu-
mála. Undirbúningur flestra þátta
er vel á veg komin og ekki ástæða
til að ætla annað en að staðgreiðslu
verði komið á í samræmi við upp-
haflega áætlun.
Fram kom á Alþingi á sl. vetri
þegar framangreind lög voru þar
til umfjöllunar að rétt væri að skipa
nefnd með fulltrúum þingflokkanna
o.fl. til þess að kanna nánar ýmsa
þætti staðgreiðslumálsins og hinna
breyttu laga um tekju- og eigna-
skatt m.a. í ljósi skattálagningar á
þessu ári. Nefnd þessi var skipuð í
sumar og hefur starfað að verkefni
sínu frá því í byrjun september.
Nefnd um staðgreiðslu fjallaði í
upphafi starfs sín um ýmis tæknileg
og framkvæmdaleg atriði í lögum
um staðgreiðslu, sem hafði sýnt sig
í undirbúningsvinnunni að ástæða
væri til að lagfæra. Nefndin skilaði
ráðuneytinu álitsgerð um þessi at-
riði og tillögum um breytingar á
staðgreiðslulögunum. Innan fárra
daga verður lagt fram frumvarp til
laga með þessum breytingum og
fleiri. Þessar breytingar eru eins
og áður sagði fyrst og fremst um
tæknileg framkvæmdaatriði en
breyta ekki staðgreiðslulögunum í
neinum meginatriðum og munu á
engan hátt raska undirbúningi
framkvæmdar.
Nefnd um staðgreiðslu vinnur nú
að síðari hluta verks síns þ.e. að
endurskoða og endurmeta það
álagningakerfi opinberra gjalda,
sem ganga á í gildi um næstu ára-
mót og á að vera grundvöllur
skattheimtu í staðgreiðslu. Hluti af
þessu starfí er að fjalla um hús-
næðisbætur, vaxtaafslátt, sjó-
mannaafslátt, bamabætur o.fl.
atriði sem lögin fjalla um og komu
til umræðu á Alþingi þ.e. framtala
fyrir árið 1986 og álagningu gjalda
á árinu 1987 og með tilliti til þess,
að hvað skattlagningu varðar náist
þau markmið, sem sett voru fram
við undirbúning laganna á síðasta
þingi þ.e. að kerfísbreyting sjálf
breyti ekki sjálfkrafa tekjum ríkis-
sjóðs af skatti þessum né raskaði
vemlega dreifíngu skattbyrði.
Að sjálfsögðu kunna ýmsir að
telja ástæðu til að breyta öðm hvom
eða báðum þessum atriðum. Slík
sjónarmið eiga fullan rétt á sér en
fyrir skýrleiks sakir þykir rétt að
halda þeim aðgreindum frá ákvörð-
un um kerfíð sjálft og mat á því
með hvaða stuðlum verði komist
sem næst því að halda óbreyttu
ástandi í þeim tveimur atriðum sem
nefnd vom. Umræða um breytingar
á þessum atriðum em eðlilegar í
framhaldi af því mati sem nefnd-
inni er ætlað að gera, en era ekki
í verkahring hennar sem slíkrar.
í fjárlagafmmvarpinu er gert ráð
fyrir að skattbyrði af tekjuskatti
verði áþekk því sem áformað var
að hún yrði á árinu 1987 við af-
greiðslu fjárlaga fyrir það ár og
þegar ákveðnar vom breytingar á
tekjuskattslögunum. Mun athugun
nefndar um staðgreiðslu væntan-
lega leiða í ljós, hvort unnt verður
að ná þeirri tekjuáætlun með því
skatthlutfalli 28,5% og á þeim per-
sónuafslætti 139.000 kr. miðað við
febrúarvísitölu 1987, sem nú er í
lögum.
Staðgreiðsla skatta ræðst þó ekki
eingöngu af ákvörðunum ríkisins.
Að óbreyttri álagningu mun um
60% skattheimtu með þessu kerfi
renna til sveitarfélaga sem útsvar.
Hefur hlutur þeirra heldur farið
vaxandi á undanfömum ámm.
Skattbyrði einstaklinga ræðst því
ekki síður af ákvörðunum sveitarfé-
laga en ríkisins.
Staðgreiðslukerfi skatta var
komið á í samvinnu við aðila vinnu-
markaðarins og ekki síst eftir
óskum frá stærstu launþegahreyf-
ingum landsins. Gerð kerfisins eins
og hún birtist m.a. í skatthlutfalli
og ekki síst í skattleysismörkum
var framlag stjómvalda til sam-
komulags um kjaramál á síðasta
ári. Að ekki skuli allt hafa gengið
eftir eins og þá var að stefnt verð-
ur trauðla skrifað á reikning stjóm-
valda, að minnsta kosti ekki á
reikning skattkerfísbreytinganna.
Mikilvægt er að í millum þeirra
aðila sem að þessu máli hafa unnið
haldist fullt traust og að í öllu verði
staðið við þann ásetning sem uppi
var í þessu efni á sl. vetri.
Ríkisstjómin hefur fyrir sitt leyti
lýst vilja sínum, til þess að svo
verði. Kemur það fram í áætlun
fjárlagafrumvarpsins um tekjuskatt
einstaklinga og mun sýna sig í til-
lögugerð stjómarinnar um tekju-
skattslögin í framhaldi af starfi
nefndar um staðgreiðslu.
Ekki skal fullyrt um hveijir verða
endanlegir stuðlar skattkerfisins
fyrr en niðurstöður athugana
nefndar um staðgreiðslu liggja fyrir
og Alþingi hefur á nýjan leik Qallað
um, ef tilefni verður til breytinga.
Sú áætlun um tekjur ríkissjóðs af
tekjuskatti einstaklinga, sem er í
fmmvarpi til fjárlaga miðast við að
skattar þessir verði svipað hlutfall
af tekjum einstaklinga og þær hafa
verið. Var annars vegar höfð til
hliðsjónar sú áætlun um skattbyrði
af tekjuskatti sem fyrir lá þegar
Qárlög fyrir árið 1987 vom sett,
en hún er jafnframt sú áætlun, sem
miðað var við þegar staðgreiðslu-
lögin vom sett. Hins vegar var lítið
til þeirrar skattbyrði, sem varð í
reynd á þessu ári, en hún varð vem-
lega lægri en áætlað hafði verið,
sökum þess að laun hafa hækkað
milli áranna 1986 og 1987 langt
umfram það sem áætlað var í lok
síðasta árs. Tala fjárlagafmm-
varpsins liggur þama á milli en
hana verður að sjálfsögðu að endur-
skoða þegar ljóst er, hver niður-
staða verður komin um skatthlut-
fa.ll, persónuafslátt og annað það,
sem tengist staðgreiðslunni, og
ráða mun tekjum ríkissjóðs af þess-
um stofni.
Setning laga um staðgreiðslu
hafði þann tilgang auk einföldunar
á kerfínu að lækka jaðarskatt m.a.
með því að breikka skattstofninn
og að hækka skattleysismörk, sem
gert var með mikilli hækkun per-
sónufrádráttar. Samkvæmt lögun-
um eins og þau liggja nú fyrir er
tekjuskattshlutfallið 28,5%. Við það
mun bætast útsvarshlutfall, sem
áætlað var að þyrfti að vera 6,25%
þannig að í heild yrði skatthlut-
fallið 34,75%.
Með hliðsjón af verðlagshorfum
má áætla að persónuafsláttur að
óbreyttum skattalögum verði um
169.700 krónur á árinu 1988,
barnabætur með fyrsta bami yrðu
þá um 15.525 krónur og aðrar
bætur hækkuðu í hlutfalli við það.
Gangi þessi áætlun eftir verða
skattleysismörk á árinu 1988 þessi
hjá eftirgreindum skattaaðilum.
Einstaklingur 488.695 á ári eða
40.695 kr. á mánuði að jafnaði.
Bamlaus hjón sem bæði afla
tekna 976.690 á ári eða 81.390 kr.
á mánuði að jafnaði.
Iljón með tvö böm, þegar annað
hjóna aflar tekna, 1.044.000 kr. á
ári eða 87.000 krónur á mánuði að
jafnaði, eftir að tekið hefur verið
tillit til barnabóta.
Einstætt foreldri með tvö börn
819.600 kr. á ári eða 68.300 kr. á
mánuði að jafnaði, að teknu tilliti
til bamabóta.
Eins og áður er sagt em tölur
þessar miðaðar við að álagningar-
regium tekjuskatts verði ekki breytt
frá því sem nú er í lögum og að
útsvar til sveitarfélaga verði ekki
hækkað.
*
Alagming útsvars
Sveitarfélög landsins em stór
aðili að máli þessu. Ákvarðanir
þeirra um álagningu útsvars skipta
hér miklu. Samkvæmt þeim breyt-
ingum á lögum um tekjustofna
sveitarfélaga, sem ákveðnar vom í
tengslum við staðgreiðsluna, er
sveitarfélögum landsins fijálst að
ákveða útsvarshlutfall allt að til-
teknu hámarki, sem er í reynd
nokkm hærra en áður var. Hámark
þetta er 7,5%. En samkvæmt þeim
útreikningum sem gerðir vom næg-
ir sveitarfélögum u.þ.b. 6,25%
útsvar til þess að halda því raun-
gildi útsvarstekna, sem þau hafa
haft á undanförnum ámm. Álagn-
ing útsvars á þessu ári staðfestir
þá niðurstöðu og sýnir að lítið eitt
lægri útsvarsprósenta en 6,25%
hefði nægt sveitarfélögunum til
þess að fá í staðgreiðslu sömu tekj-
ur og þau hafa á þessu ári.
Félagsmálaráðherra mun eins og
lög kveða á setja reglugerð um það
hlutfall útsvars sem innheimt verð-
ur í staðgreiðslu. Slíka reglugerð
skal setja að fengnum tillögum
Sambands íslenskra sveitarfélaga
og að teknu tilliti til áforma sveitar-
stjóma um útsvarsálagningu á
komandi ári. Samband íslenskra
sveitarfélaga hefur þegar gert til-
lögu um að innheimtuhlutfallið
verði í hámarki þ.e. 7,5%. Gangi
það eftir og verði álagning í sam-
ræmi við það er hér um að ræða
u.þ.b. 20% hækkun á raungildi út-
svarstekna sveitarfélaga. Miðað við
árið 1987 yrði þessi viðbótarskattur
sveitarfélaganna u.þ.b. 1,5 milljarð-
ur króna. Þessi viðbótarskattheimta
mundi hækka skattbyrði beinna
skatta ríkis og sveitarfélaga um
meira en 1/10 eða úr u.þ.b. 11% í
yfír 12% og hún myndi raska þeim
forsendum sem gengið var út frá
við gerð staðgreiðslukerfisins vem-
lega. M.a. myndi hún hækka
innheimtuprósentuna úr 34,75% í
36% og lækka skattleysismörkin um
ca. 1.400 krónur á mánuði eða
17.000 á ári hjá einstaklingi og um
30—34.000 krónur á ári hjá hjón-
um. Skattahækkunin hjá þeim sem
em ofan skattleysismarkanna yrði
1,25% af heildartekjum þeirra en
vegna þeirra sem em neðan mark-
anna legði ríkissjóður sveitarfélög-
um^til þá fjárhæð.
Ákaflega óheppilegt væri að
sveitarfélög notuðu fyrsta ár stað-
greiðslunnar til að auka skatt-
heimtu sína svo vemlega og ynnu
þannig gegn þeim markmiðum sem
stefnt var að með ákvörðun um
staðgreiðslu á sl. vetri þ.e. að halda
skattbyrði óbreyttri í heild og að
hækka skattleysismörkin. Það verð-
ur að ætla að mat Sambands
íslenskra sveitarfélaga á álagning-
aráformum sveitarfélaganna sé
ekki byggt á raunhæfum gmnni.
Skattlagning
eignatekna
Næstu skref í endurskoðun laga
um tekjuskatt og eignarskatt em
annars vegar lagaákvæði um eigna-
tekjur og hins vegar ákvæði um
skattlagningu fyrirtækja. Unnið er
að undirbúningi í báðum þessum
málaflokkum en nokkuð er enn í
land að tillögur liggi fyrir.
Eignatekjur einstaklinga em skv.
núgildandi lögum að vemlegu leyti
undanþegnar tekjuskatti. Tekur
það til vaxta, affalla og gengis-
hagnaðar af innistæðum í bönkum
og sambærilegum stofnunum svo
og af verðbréfum, víxlum og sam-
bærilegum kröfum. Einnig er arður
af hlutabréfum skattfijáls hjá mót-
takanda að ákveðnu marki auk þess
sem arðgreiðslan er frádráttarbær
hjá fyrirtækinu, einnig að vissu
marki. Ennfremur em kaup á hluta-
bréfum að tiltekinni Ijárhæð frá-
dráttarbær frá skattskyldum
tekjum.
Áðrar tekjur sem em í eðli sínu
eignatekjur að fullu eða að hluta
til, em hins vegar skattlagðar að
fullu, svo sem leigutekjur, ýmsar
arðgreiðslur, söluhagnaður o.fl.
Endurskoðun á skattlagningu
eignartekna mun óhjákvæmilega
snerta mjög skattlagningu eigna,
skattlagningu fyrirtækja og skatt-
lagningu einstaklinga með rekstur.
Meginsjónarmið við umíjöllun
eignatekna er að meðhöndla allar
tekjur eins, án tillits til þess hvaðan
þær koma. Slíkt sjónarmið stangast
hins vegar á við sjónarmið þeirra
sem vilja nota þennan þátt skatta
til að þjóna öðmm markmiðum en
tekjuöflun, svo sem að hvetja til
spamaðar eða örva eignamyndun í
einu formi fremur en öðra. Þessi
sjónarmið þarf að vega og meta,
bæði með tilliti til þess hvort skatta-
kerfið hafi í þessu efni raunvemleg
áhrif, þegar litið er til langs tíma,
og með tilliti til þess, hvort þau
áhrif em þess virði sem þau kosta
bæði í sköttum, sem taka þarf þá
með öðmm hætti,,og með flóknara
skattkerfi, þar sem hætta á skatt-
undanvikum er meiri en ella væri.
Verði farið út í almenna skatt-
lagningu eignatekna að hætti
flestra grannþjóða okkar verður
ekki undan því vikist að koma á
upplýsingamiðlun frá bönkum og
öðram íjármálastofnunum svo og
öllum sem versla með hvers lags
verðbréf og fasteignir til skattyfir-
valda. Án slíkra upplýsinga yrði öll
skattheimta óömgg og eftirlit
óframkvæmanlegt.
Skattar á fyrirtæki
Ákvæði skattalaga um fyrirtæki
em í endurskoðun. Um þau gilda
að mörgu leyti sömu meginsjónar-
mið og um skattlagningu einstakl-
inga, þ.e. að undanþáguákvæði,
sérreglur og misræmi valda erfið-
leikum í framkvæmd og takmarka
möguleika til virks eftirlits.
Auk þess sem að skattaákvæði
um fyrirtæki í heild em í endurskoð-
un em tiltekin atriði í sérstakri
athugun m.a. með tilliti til þess,
hvort rétt sé eða e.t.v. nauðsynlegt
að gera á þeim breytingar, áður en
að hinni almennu endurskoðun
kemur. Að hluta er um að ræða
atriði sem tengjast þeirri breytingu
sem gerð hefur verið á skattlagn-
ingu einstaklinga, en önnur em
þessi eðlis að ekki er í sjálfu sér
þörf á að bíða heildarendurskoðun-
ar.
Eitt þeirra atriða, sem snerta
skattlagningu einstaklinga er skatt-
hlutfall fyrirtækja. Jaðarskattur
fyrirtækja er 51%. Mismunur á því
hlutfalli og því sem einstaklingur
greiðir af jaðartekjum sínum er
orðinn allt of mikill og getur leitt
til tekjutilfærslna, sem byggjast
eingöngu á skattalegum forsend-
um. Til athugunar er að lækka
hlutfall þetta jafnframt því að felld
yrðu niður skattfríðindi framlaga í
varasjóð og íjárfestingarsjóð og
útborgaðs arðs.
Af öðmm atriðum, sem em í
sérstakri athugun, má nefna af-
skriftareglur og flýtifymingar, tap
á útistandandi viðskiptaskuldum og
mat á vömbirgðum. Ennfremur
einkaneysla og fríðindi eigenda eða
starfsmanna, sem látin em í té á
kostnað fyrirtækja, draga úr skatt-
greiðslum þess og em ekki talin
njótendum til tekna. Stefnt er að
því að hluti þessara breytinga geti
tekið gildi á næsta ári og að jafn-
framt verði þá séð til þess að þær
auknu tekjur af sköttum fyrirtækja,
sem fjárlagaframvarpið gerir ráð
fyrír, skili sér.
Ónefnt er eitt mál tengt skatta-
reglum fyrirtækja, þar sem em
fjármögnunarleigur. Sýnt þykir að
uppgangur slíkra fyrirtækja á
síðustu mánuðum stafi að minnsta
kosti að hluta til af því að þjónusta
þeirra er boðin og seld á þeirri for-
sendu að notandinn hafi af því
vemlegt skattahagræði. Hvort sem
það hagræði er til lengdar eða að-
eins í bráð, þ.e. skattfrestun, er