Morgunblaðið - 07.11.1987, Qupperneq 55
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 1987
55
óeðlilegt að skattfríðindi séu notuð
sem söluvara og þessu formi fjár-
festingar gert hærra undir höfði en
öðru. Verður það mál athugað sér-
staklega.
Tollakerf i í
endurskoðun
Samkvæmt starfsáætlun ríkis-
stjómarinnar á ný, samræmd og
einfölduð gjaldskrá aðflutnings- og
vörugjalda að koma til fram-
kvæmda á árinu 1988. Ríkisstjómin
áréttaði þessa stefnumörkun við
afgreiðslu fjárlagafrumvarpsins,
þar sem jafnframt var ákveðið, að
kerfísbreytingin ætti að skila 100
milljón króna tekjuauka í ríkissjóð
á næsta ári.
Allt frá því íslendingar gengu í
Fríverslunarbandalag Evrópu,
EFTA, árið 1970 hafa almennir
tollar farið lækkandi í samræmi við
ákvæði samningsins við EFTA, og
síðar Evrópubandalagið. Til þess
að mæta tekjutapi ríkissjóðs vegna
þessara tollalækkana hefur meðal
annars verið ríghaldið í háa tolla á
þeim vömm, sem ákvæði fríverslun-
arsamninganna náðu ekki til, og
jafnframt lögð margvísleg auka-
gjöld á sömu vömr. Þetta hefur
aftur leitt til mikils misræmis milli
innflutningsverðs og innlends vöm-
verðs og þar með óhjákvæmilega
haft áhrif á neysluVal innanlands.
Jafnframt hefur orðið að grípa til
umfangsmikilla undanþága frá
gjaldtöku af hráefnum, vélum og
tækjum til iðnfyrirtækja, til þess
að jafna sem mest samkeppnisstöðu
þeirra gagnvart erlendum aðilum.
Allt þetta hefur síðan orðið til þess
að torvelda mjög framkvæmd og
eftirlit með álagningu og innheimtu
aðflutningsgjalda. Þess vegna verð-
ur að teljast löngu tímabært að
samræma og einfalda álagningu
aðflutningsgjalda. Það er megintil-
gangur þessarar kerfisbreytingar.
Kerfisbreytingin gerir ráð fyrir,
að tollkerfið verði í stómm dráttum
byggt á tveimur tekjustofnum, al-
mennum tollum og vörugjaldi í einu
eða tveimur þrepum, í stað margra
smærri gjaldstofna. Þannig er ráð-
gert að fella niður eftirtalin gjöld:
Sérstakt vömgjald af innflutningi
og innlendri framleiðslu, tollaf-
greiðslugjald og byggingariðnaðar-
sjóðsgjald. Jafnframt verða hæstu
tollar lækkaðir, úr 80% í 30%, að
tóbaki og bensíni undanskildu. Þá
er gert ráð fyrir því að tollur á
matvælum falli alveg niður.
Loks er gert ráð fyrir að stíga
lokaskrefíð í átt til samræmingar í
álagningu aðflutningsgjalda á at-
vinnurekstur með því að fella niður
alla tolla og vömgjöld af vélum,
tækjum og varahlutum ýmiss konar
til landbúnaðar og þjónustuiðnaðar.
í staðinn verður tekið upp nýtt,
samræmt vömgjald, sem lagt verð-
ur bæði á neysluvömr og bygginga-
vömr, með sem fæstum frávikum.
Með þessu er stefnt að sömu álagn-
ingu á hliðstæðar vömr í stað þess
sem nú er, þar sem sumar vömr
bera háa tolla og vömgjöld, en aðr-
ar sambærilegar vömr hvorki toll
né vömgjald. Þannig er leitast við
að tryggja sem mest samræmi milli
innlends vömverðs og innflutnings-
verðs.
Þessi breyting hefur í för með
sér talsverða röskun á verðhlutföll-
um hér innanlands. Þess em jafnvel
dæmi, að einstakar vömtegundir
lækki um 40—50% í verði, meðan
aðrar hækka um 20—30%. Hjá
þessu er erfítt að sneiða, nema með
því að ganga þvert á þann megintil-
gang breytingarinnar, að einfalda
álagningu og bæta eftirlit með inn-
heimtu aðflutningsgjalda og jafn-
framt samræma verðhlutföll á
hliðstæðum vöram. Það segir sig
sjálft, að áhrif svo umfangsmikilla
tollbreytinga em ákaflega vand-
metin. Þetta á jafnt við um áhrif á
tekjuhlið ríkissjóðs og raunar ekki
síður verðlagsáhrifin eins og þau
koma fram í vísitölum framfærslu-
og byggingarkostnaðar.
Með þessum fyrirvömm má þó
ætla, að lækkun tolla og niðurfell-
ing hinna ýmsu gjalda hafí í för
með sér rúmlega 4 milljarða króna
tekjutap fyrir ríkissjóð á næsta ári,
sem álagning vömgjalds eða vöm-
gjalda þarf að brúa.
Söluskattur
í starfsáætlun ríkisstjómarinnar
er því lýst yfír, að undanþágum frá
núverandi söluskatti verði fækkað
í áföngum, sem aðdraganda að
nýju skattkerfí. Fyrstu skrefín í
þessu efni vom tekin á liðnu sumri
með sérstökum 10% söluskatti á
ýmsa flokka matvöm og þjónustu-
greinar. Næsta skref er ráðgert um
næstu áramót, en fallið var frá
áformum um að flýta þeirri aðgerð,
til þess að greiða fyrir þeim viðræð-
um um kjarasamninga sem nú fara
í hönd.
Söluskattur er nú 25%. Ekki þarf
að fara mörgum orðum um það
hvílík freisting undandráttur frá
þessum skatti sem er svo hár hlýtur
að vera. Við þetta bætist, að undan-
tekningar eða undanþágur frá
skattinum em svo fjölskrúðugar,
að eftirlit með innheimtu og jafnvel
álagning þessa skatts er illfram-
kvæmanleg. Undanþágur frá
sköttum eiga vafalaust flestar rétt
á sér, þegar þröngt er skoðað. Það
er hins vegar mannlegt, að leita að
smugum í skattakerfinu. Undan-
þágufarganið og smugumar verða
um síðir svo margar og flóknar, að
brestir myndast í skattakerfinu.
Þannig er nú komið fyrir söluskatt-
skerfínu. Við þetta bætist, að vegna
uppsöfnunaráhrifa söluskatts er
kerfíð dragbítur á framþróun og
verkaskiptingu í atvinnulífi og á
viðskipti milli landa. Brestir núver-
andi söluskattskerfis em svo
alvarlegir og ágallamir svo miklir,
að ekki er um annað að ræða, en
að byggja upp nýtt kerfi, taka upp
virðisaukaskatt.
Virðisaukaskattur
Virðisaukaskattur hefur á
síðustu áratugum verið tekinn upp
í flestum löndum V-Evrópu. Kostir
þessa skattakerfis em einkum þeir,
að skatturinn er hlutlaus gagnvart
atvinnurekstri og neysluvali. Hann
hvorki ívilnar eða íþyngir einstökum
aðilum. Fmmvarp til laga um virðis-
aukaskatt hefur þrisvar verið lagt
fyrir Alþingi, en ekki náð fram að
ganga. Efnisleg umfjöllun um málið
hefur hins vegar verið lítil á stund-
um, m.a. á síðasta þingi þegar frv.
þessa efnis lá síðast fyrir. Þá sætti
umfang og eðli hliðarráðstafana
vemlegri gagnrýni, sem og skatt-
hlutfallið, sem þá var ráðgert 24%.
Við undirbúning málsins er nú mjög
byggt á fyrra framvarpi, en miðað
við að skatthlutfallið verði mun
lægra eða 21—22% og verði '/2—1%
lægra en skatthlutfall í söluskatti.
Upptaka virðisaukaskatts mark-
ar þriðja og síðasta skrefið í
umskipan söluskattskerfisins skv.
verkefnaskrá ríkisstjómarinnar.
Aðdragandinn felur hins vegar í sér
vemlegar breytingar á söluskatti
með fækkun undanþága. Að þessu
máli er unnið samhliða endurskoðun
frv. um virðisaukaskatt. Reiknað
er með því, að söluskattur geti um
næstu áramót lækkað í um 22%,
en söluskattur á þjónustu verði
nokkm lægri.
Samhliða því að söluskattur verð-
ur lagður á fleiri vömflokka en nú,
verður ráðist í all umfangsmiklar
hliðarráðstafanir til þess að bæta
þeim tekjulægstu áhrif söluskatts á
matvömverð. í þessu skyni er m.a.
ráðgert sérstök hækkun á bótum
lífeyristrygginga, en ríkisstjórnin
væntir þess að öðm leyti, að gott
samstarf megi takast við aðila
vinnumarkaðarins um framkvæmd
þessara ráðstafana. í þessu sam-
bandi kemur auðvitað sérstaklega
til athugunar lækkun skatta í stað-
greiðslukerfi, hækkun barnabóta,
bamabótaauka og persónuafslátt-
ar. Með staðgreiðslukerfinu opnast
nýir möguleikar til tilfærslna til
þeirra sem við rýmst kjör búa.
Tekjutilfærslur um kerfi óbeinna
skatta til tekjulágra þjóðfélagshópa
munu alltaf missa marks að stómm
hluta. Miklu vænlegra er að slíkar
tilfærslur fari um tekjuskattskerfí
eða fjölskyldubætur.
Verðlagsáhrif söluskattsbreyt-
inga og breytinga á tollum og
vöragjöldum er eðlilegt að skoða í
einu lagi, enda ráðgert að þessar
breytingar taki gildi samtímis. Auð-
vitað verður ekki sagt fyrir um þær
með vissu fyrr en hliðarráðstafanir
hafa verið skilgreindar, en reikna
má með því að verðlagshækkun á
mælikvarða framfærslukostnaðar
svari til 1 */2—2%, en um V2% í vísi-
tölu byggingarkostnaðar.
Launaskattur
Af endurskoðunarverkefnum
skal hér að lokum minnst á launa-
skatt. Markmið endurskoðunarinn-
ar er að samræma þessa skatttöku
í því skyni að eyða þeirri mismunun
sem nú er í þessu efni milli atvinnu-'
greina.
Ekki er nú greiddur launaskattur
af launum fyrir sjómannsstörf né
af launum í fískverkun, iðnaði og
landbúnaði. Hins vegar er greiddur
3,5% launaskattur af öllum öðmm
launum og þóknunum. Fyrirhugað
er að stíga fyrsta skref til samræm-
ingar strax á næsta ári.
Samkvæmt fmmvarpi til breyt-
inga á lögum um launaskatt, sem
lagt verður fram hér á Alþingi inn-
an tíðar verður gert ráð fyrir að frá
og með næstu áramótum verði lagð-
ur 1% launaskattur á allar launa-
greiðslur, sem nú em undanþegnar
skattinum, nema laun vegna starfa
í landbúnaði. Tekjuauki ríkissjóðs
vegna þessara breytinga er áætlað-
ur 400 milljónir króna á næsta ári
og em tekjur ríkissjóðs af launa-
skatti þar með áætlaðar um 2,6
milljarðar í heild á því ári.
Lambakjötið er Ijúffengur matur. Það er á mjög góðu verði
í KRON verslunum núna. Úrval af lambakjöti í allskonar rétti.
Frampartar Marinerað kjöt
Læri Úrbeinað kjöt
Lærissneiðar London lamb
Hryggur Hangikjöt
Kótilettur Saltkjöt
Svið
KKM
5
Kauptu inn hjá KRON, það er hagstætt.
v/Norðurfeil v/Stakkahlíð Stórmarkaður,
v/Tunguveg v/Dunhaga Skemmuvegi
i v/Furugrund, Kóp. Kaupstaður í Mjódd.