Morgunblaðið - 07.11.1987, Side 62
62
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 1987
félk í
fréttum
Reuter
Grace sýnir sundföt eftir Miguel Cruz ásamt félögum sínum.
GRACE JONES
Farin að heilsu
sýnir hún föt
Grace Jones hefur látið af
söngnum í bili enda hafa
síðustu plötur hennar ekki selst
sem skyldi og hafa gagnrýnendur
ekki farið um þær lofsamlegum
orðum. Hún hefur snúið aftur til
síns gamla starfa.og sýnir nú föt
af kappi . Meðfylgjandi myndir
voru teknar af henni og kollegum
hennar á tískusýningu í New York
þar sem voru sýnd föt eftir Migu-
el Cruz.
Fróðir menn segja að hún sé
fljótlega á förum til Parísar sér
til hvfldar og heilsubótar þar sem
henni þyki hið ljúfa líf New York-
ur hafa tekið sinn toll af æskufjör-
inu. Eru kraftar hennará þrotum
auk þess sem áfengið hefur gert
henni lífíð leitt að undanfömu.
Grace er fjölhæf kona og sér ekki ástæðu til að leyna hæfileik-
um sínum. Hér sjáum við hvers hún er megnug í leiklistinni.
KVIKMYNDIR
Anita
aftur í bað
Hún er hin ókrýnda kvikmyndadrottning Ítalíu, hún Anita Ekberg.
Eins og nafnið bendir til, þá er hún sænsk að uppruna og er orð-
in heillra 56 ára, en það þykir víst ekki hár aldur, ekki einu sinni á
kynbombum. Anita varð fræg á sínum yngri árum fyrir frækna frammi-
stöðu sína í „Hinu ljúfa lífi“ Fellinis, þar sem hún baðaði sig í gosbrunni
ásamt Marcello Mastroianni. Síðan þá hefur hún búið á Italíu og vill
hvergi annars staðar vera. Hún hefur vaxið að ummáli og þrótti enda
era liðan allmörg ár frá baðinu sögulega sem olli hryllingi siðprúðra
kvikmyndaáhorfenda um heim allan.
Þau Fellini era hinir mestu mátar og um daginn léku þau Marcello
saman í glænýrri myndi Fellinis, „Viðtalinu“ og böðuðu sig enn á ný
í gosbranni.
Fróðleiksþyrstum lesendum til upplýsingar segjum við að framleiðandi
myndarinnar er sjálfur Ibrahim Moussa, en hann er eins og öllum er
sjálfsagt kunnugt, eiginmaður Natössiu Kinski.
SUÐUR-AFRÍKA
Afrí sk
þolfimi
er öðruvísi
Verslunarmaðurinn Sango Bam
kennir þolfimi (eróbikk) í frístund-
um í heimalandi sínu Suður-
Afríku. Bam er af Xhosa-ætt-
flokknum og svartur á húð og
hár. Hann notfærir sér arfleifð
forfeðra sinna og kennir nemend-
um sínum Afríkudans sem hann
segir vera fyrirtaks leikfimi. Við
kennsluna sveipar hann sig geitar-
skinnum og smyr sig stríðsmáln-
ingu áður en hann dansar. Hann
æpir á nemendur sína sem era í
stóram meirihluta hvítar húsmæð-
ur, á máli forfeðra sinna en það
Reuter
Bam og húsmæðurnar á fullu í
Af r ikudansi num.
einkennist af smellum og skellum
í góm auk annara furðuhljóða sem
ekki verður lýst nánar. Auk þessa
notar Bam flautu og hnúðaprik til
að halda taktinum í Afríkudansin-
um sem menn era nú nýlega búnir
að uppgötva að sé fyrirtaks leik-
fími. „Fyrst var ég dauðhræddur
við uð reyna eitthvað nýtt,“ segir
Bam og svitinn lekur yfir græna
og gula stríðsmalninguna. „En
þegar ég náði taktinum, komu
æfingamar að sjálfum sér og allir
urðu vitlausir af hrifningu“.
Bam segir að það hafi verið
faðir hans sem hafi hvatt hann til
að fara að kenna Afríkudans, því
hann mætti ekki gleyma menningu
þjóðar sinnar, sem uppgötvaði
þolfímiæfingamar mörgum öldum
á undan íþróttaspekingum vestur-
landa.