Morgunblaðið - 07.11.1987, Blaðsíða 63
63
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 1987
ÞRIÐJI BEKKUR
LEIKLISTARSKÓLA ÍSLANDS
Sýnir
„Sjúka æsku“
í Lindarbæ
næstu daga
riðji bekkur Leiklistarskóla
íslands er um þessar mundir
með sýningar á leikritinu „Sjúk
æska“ eftir Ferdinand Bruckner í
Lindarbæ, en hópurinn er nýkom-
inn heim úr ferð til Finnlands, þar
sem þau tóku þátt í Norrænni leik-
listamemahátíð. Þar frumsýndu
þau „Sjúka æsku“ í Kino Hels-
inki, sem er nemendaleikhúsið þar
í borg. Leikritið er síðasta kennslu-
verkefni 3. bekkjar og með því
hefst kynning á þessum árgangi
í leiklistarskólanum, en á næsta
ári munu þau standa að Nemenda-
leikhúsi Leiklistarskólans.
í spjalli við Morgunblaðið sagðist
þeim svo frá ferðinni: „Þátttakend-
ur í þessari leiklistamemahátíð
komu frá öllum Norðurlöndum
nema Noregi. Frá Danmörku komu
tveir hópar, tveir frá Svíþjóð og
þrír frá FinnlandL Síðan vorum við
eini hópurinn frá íslandi. Við sáum
flestar sýningamar hjá hinum hóp-
unum, en auk þess vorum við í
opnum tímum hjá finnska skólan-
um, máttum mæta þar ef við
vildum. í skólanum sáum við einnig
Shakespearekynningu og kynningu
á Medeu. Við fórum líka í hið fræga
Guðsleikhúsið, þar sem við sáum
sýningu sem hét „Amen." Þetta
leikhús varð frægt með endemum
í sumar þegar leikaramir hentu
saur í áhorfendur.
Húsið sem við sýndum Sjúka
æsku í tekur milli 200 og 300 áhorf-
endur og aðsóknin var mjög góð.
Það var um það bil fullt hús. Gagn-
rýnandinn Greta Brother sagði við
okkur eftir sýninguna að það hefði
vakið sérstaka athygli hennar
hversu mikill skaphiti er í sýning-
unni. Henni þótti við lík Finnum í
skaphitanum.
Framhaldið af þessari ferð er að
við fáum að sýna tíu sýningar hér
í Lindarbæ fyrir þá sem áhuga
hafa og eru allir velkomnir. Leikrit-
ið fjallar um erfiðleika fólks á
árunum milli heimsstyijaldanna.
Þetta er mjög heitt sálfræðidrama.
Maður getur gert sér í hugarlund
rótleysi þessara tíma og dauða-
hræðslu. Höfundurinn var mjög
rómaður fýrir þetta verk á sínum
tírna."
Um verkefnavalið sagði hópurinn
að þetta væri sjálfvalið verkefni.
Það hefði orðið fyrir valinu vegna
þess að þeim fínndist ástríðuverk,
sem þau vildu, fyrir utan það að í
verkinu væru hlutverkin svipuð að
stærð og gerðu öll miklar kröfur
til þeirra.
Leikstjóri þriðja bekkjar í þessu
verkefni er Helga Bachmann, en
þýðing er unnin af Þorvarði Helga-
syni. Með hlutverkin í sýningunni
fara: Helga Braga Jónsdóttir og
Steinunn Ólafsdóttir sem leika
Maríu, Bára Lyngdal Magnúsdóttir
sem leikur Desiree, Elva Ósk
Ólafsdtóttir sem leikur írenu,
Steinn Magnússon sem fer með
hlutverk Freders. í hlutverki
Petrells er Ólafur Guðmundsson,
Sigurþór Albert Heimisson og
Christine Carr leikur Lucy.
Sýningar þriðja bekkjar hófust í
gærkvöldi, föstudagskvöld. Næstu
sýningar er í dag klukkan 16.00
og á morgun, sunnudag, klukkan
16.00. Síðan mánudag, þriðjudag,
fímmtudag og föstudag klukkan
20.30. Laugardaginn 14. nóvember
og sunnudaginn 15. nóvember
verða sýningar klukkan 16.00 og
síðasta sýning verður mánudaginn
16. nóvember klukkan 20.30
Morgunblaðið/BAR)
Þriðji bekkur Leiklistarskóla íslands, ásamt leikstjóra sinum, Helgu
Bachmann
í hárgreiöslu og hamtimíi,,
í Iþróttahúsin
í^jnnudaginn 8. nÖyejyjfifé,
NÝJASTI
FJÖLSKYLDU-
MEÐUMURINN!
aýa
40 ára reynsla
á íslandi
d(|g
Sogkrafturinn
stillanlegur, allt
að 1200 Wy eða
alsjálfvirkur
ap:
Allir fylgi-
hlutir í vélinni
808
Tengjanleg við
teppahreinsara
°Ö°
Lág bilanatíðni
ótrúleg ending
H0LLAND ELECTRO
>
SÖLUAÐILAR:
Hainartjöröur: Rafha - Kaupf. Hafnf
Kópavogur: Rafbúöin, Auðbrekku
Reykjavik: BV-búsáhöld, Hólagarði -
Kaupstaður I Mjódd - Gos hf„ Nethyl -
Rafvörur, Langholtsvegi 130 - Ljós & orka
- Búsáhöld & gjafavörur, Kringlunni -
JL-húsiö hf. - Rafbraut, Bolholti 4
Mossfellsbær: Mosraf
Akranes: Trésmiðjan Akur
Borgarnes: Kaupf. Borgfirðinga
Ólafsvik: Versl. Vík
Stykkishólmur: Húsið
Búöardalur: Kaupf. Hvammsfjarðar
Patreksfjöröur: Kaupf. V-Barðstrendinga
Bolungarvik: Versl. Einars Guðfinnssonar
ísafjöröur: Vinnuver
Hólmavik: Kaupf. Steingrimsfjarðar
Boröeyrl: Kaupf. Hrútfirðinga
Hvammstangi: Kaupf. V-Húnvetninga
Blönduós: Kaupf. Húnvetninga
Sauöárkrókur: Kaupf. Skagfirðinga
Ólafsfjöröur: Vers. Valberg
Akureyri: Kaupf. Eyfirðinga, Raftækni, Rafland
Húsavík: Kaupf. Þingeyinga
Kópasker: Kaupf. N-Þingeyinga
Raufarhöfn: Kaupf. N-Þingeyinga
Þórshöfn: Kaupf. Langnesinga
Vopnafjöróur: Kaupf. Vopnfirðinga
Neskaupstaður: Kaupf. Fram
Esklfjörður: Pontunarfélag Eskifirðinga
Egilsstaóir: Kaupf. Héraðsbúa
Seyöisfjörður: Kaupf. Héraðsbúa
Reyðarfjöröur: Kaupf. Héraðsbúa
Fáskrúðsfjöróur: Kaupf. Fáskrúðsfirðinga
Höfn: Kaupf. A-Skaftfellinga
Kirkjubæjarklaustur: Kaupf. Skaftfellinga
Vlk I Mýrdal: Kaupf. Skaftfellinga
Vestmannaeyjar: Kjarni
Hvolsvöllur: Kaupf. Rangæinga
Rauóalækur: Kaupf. Rangæinga
Hella: Kaupf. Þór
Þykkvibær: Versl. Friðriks Friðrikssonar
Húðlr: Versl. Grund
Selfoss: Kaupf. Arnesinga
Hverageröi: Bygg.v.versl. Hveragerðis
Njarðvlk: Kaupf. Suðurnesja, Samkaup
Keflavik: Versl. Stapafell