Morgunblaðið - 07.11.1987, Side 70
70
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 1987
■ ROLF SCHAFSTALL þjálf-
ari v-þýska knattspymufélagsins
Schalke, sem hefur staðið í strðgli
að undanfömu, kom heldur betur á
óvart í gær. Þá tilkynnti hann að
Klaus Fichtel, aðstoðarmaður
hans, væri kominn í leikmannahóp
Schalke aftur. Fichtel er aðeins 42
ára - verður 43 ára 19. nóvember.
Þessi gamla kempa, sem var mikill
markaskorari á árum áður, lagði
skóna á hilluna í ágúst 1986.
■ HOLLENSKI landsliðsmað-
urinn í knattspymu Ruud Gullit
^gem leikur með AC Mílanó á Italiu,
fékk frí frá æfíngu í sl. viku. Astæð-
an fyrir því var að hann þurfti að
leika reggae-tónlist með félögum
sínum. Gullit leikur á gítar með
hljómsveitinni Revelation Time,
sem er skipuð skólafélögum hans
frá Hollandi.
ROSSI POVLSEN
■ PAOLO Rossi, ítalska knatt-
spymustjaman frá HM-keppninni á
Spáni 1982 hefur lagt knattspym-
uskóna á hilluna vegna meiðsla í
hné. Rossi er nú orðinn sjónvarps-
stjama. Hann vinnu hjá Canale 5
sem eigandi AC Mílanó, Silvio
Berlusconi, á.
■ ERICH Ribbeck þjálfari v-
þýska liðsins Leverkusen hefur
''■'•öllum að óvömm tilkynnt að hann
ætli sér að hætta með liðið eftir
þetta keppnistímabil. Tveir kunnii-
kappar hajfa verið orðaðir sem eftir-
menn hans. Berti Vogts, fyrrum
leikmaður Gladbach og v-þýska
landsliðsins, sem sér um þjálfun U
20 landslið V—Þjóðvetja og Sepp
Piontek landsliðsþjájrai Dana.
■ SVISSNESKA félagið Grass-
hopper hefur mikinn hug á að
kaupa danska landsliðsmanninn
Lars Lunde frá Bayem Munchen
sem er á sölulista hjá Bæjurum.
Það er ekki pláss fyrir Lunde hjá
Bayem eftir að félagið fékk Mark
Hughes lánaðann frá Barcelona.
Þá hefur Bayem keypt Madjer frá
Porto. Hann mun þó ekki koma til
félagsins fyrr en næsta keppnis-
tímabil.
■ UDO Lattek tæknilegur ráð-
gjafí hjá Köln, hefur mikinn hug á
að kaupa Roland Wohlfarth frá
Bayem til að leika við hliðna á
danska landsliðsmanninum
Flemming Povlsen. Lattek hefur
sagt að þeir Wohlfarht og Povlsen
séu draumatúettinn sinn. Viðræður
standa nú yfír milli Köln og Bayern
um kaupin. Wohlfarht er metinn
á kr. 50 milljónir.
■ MANCHESTAR United hef-
ur augastað á danska landsliðs-
manninum Lars Olsen, sem leikur
með Bröndby.
■ OLEG Blochin rússneski
landsliðsmaðurinn gamalkunni, er
nú efstur á blaði hjá St. Mirren,
yfír leikmenn sem félagið vill fá til
sín. Blochin er 35 ára. Hann leikur
’með Dynamo Kiev.
KNATTSPYRNA / 1. DEILD
Guðjón
ráðinn
þjálfari KA
- „ErumánægðiraðfáGuðjóníher-
búðirokkar," sagði Stefán Gunnlaugs-
son, formaður Knattspyrnudeildar KA
Guöjón Þórðarson, sem náði
góðum árangri með Skagalið
ið í sumar, skrifaði undir
samning við Akureyrariiðið
KA í gærkvöldi. „Ég er mjög
ánægður með þetta tækifæri
sem ég hef fengið hér á Akur-
eyri. Það er mikill hugur i
mönnum hér og vel staðið að
öllu,“ sagði Guðjón Þórðars-
son í stuttu spjalli við
Morgunblaðíð í gærkvöldi.
Guðjón hélt fund með leik-
mönnum KA strax eftir að
hann hafði skrifað undir samning-
inn. „Við byijum að æfa á fullum
krafti í febrúar. Ég fæ mann til
að sjá um æfingar leikmanna hér
á Akureyri. Eg mun aftur á móti
stjóma æfíngum í Reykjavík, þar
sem stór hlutu, tíu leikmenn, em
við nám,“ sagði Guðjón.
Stefán Gunnlaugsson, formaður
Morgunblaöið/Guömundur Svanason
Stefán Gunnlaugsson, formaður Knattspyrnudelldar KA, býður
Guðjón velkomlnn tll starfa.
Knattspymudeildar KA, sagði að
menn væru mjög ánægður með
að Guðjón væri kominn í herbúðir
KA. „Eg efa það ekki að Guðjón
á eftir að ná góðum árangri hér,“
sagði Stefán.
KNATTSPYRNA / NOREGUR
Tekst Brann að fá Teit lausan?
- menn frá Brann eru nú í Svíþjóð til að ræða við forráðamenn Skövde
Tveir menn frá norska félaginu
Brann em nú staddir í Svíþjóð
þar sem þeir vinna að því að fá
Teit Þórðarson lausan frá sænska
3. deildarfélaginu Skövde. Teitur
á eftir eitt ár af samningi sínum
við félagið. Forráðamenn Brann
vijla ólmir fá Teit til Noregs til
að taka við starfí Tony Knapp’s,
sem var rekinn frá félaginu á
dögunum.
Ame Mokkelbmst, markaðsstjóri
Brann, fór til Svíþjóðar til að
ræða við forráðamenn Skövde og
Teit Þórðarson.
Það hefur verið mikið rætt um
Teit í blöðunum í Bergen undan-
fama daga og em þau sammála
um að Teitur sé rétti maðurinn
fyrir Brann.
ÍÞRÓTTAHÁTÍÐ UMSB
Á þriðja hundrað keppendur
TÖLUVERT á þriðja hundrað keppendur verða á fyrstu íþrótta-
hátíð Ungmennasambands Borgarfjarðar sem haldin verður í
Borgamesi í dag, laugardag. Þar á meðal em 39 knattspymulið
og 23 körfuknattleikslið.
Keppendur em frá öllum gmnnskólum héraðsins. Rúnar Guðjóns-
son, sýslumaður Mýra- og Borgarfjarðarsýslu, setur hátíðina
klukkan 9 í dag. Síðan verður keppt í fjölmörgum íþróttagreinum
fram á kvöld. Keppt verður í fijálsum íþróttum innanhúss og víða-
vangshlaupi, skák, körfuknattieik borðtennis, sundi, badminton og
knattspymu.
KNATTSPYRNA / EVRÓPUKEPPNIN
Bremen aftur
til Rússlands
mætir Dynamo Tbilisi í 16-liða úrslitum UEFA
félag Barcelona, Espanol, fékk
aftur á móti erfíðari mótheija.
Espanol leikur gegn Inter Mílanó —
fyrst í Mílanó.
Gríska félagið Panathinaikos frá
Aþenu, sem sló út Juventus, leikur
gegn Honved Budapest. Fyrri leikur
liðanna fer fram í Ungveijalandi.
Feyenoord mætir Leverkusen, Gu-
imaraes frá Portugal fær tékkneska
félagið Vitkovice í heimsókn. Dort-
umd leikur gegn FC Brugge og
Preben Elkjær Larsen og félagar
hans hjá Verona leika gegn Sportul
Bukarest frá Rúmeníu.
Fyrri leikimir í UEFA-keppninni
fara fram 25. nóvember og þeir
seinni 9. desember.
Leikmenn Werder Bremen frá
V-Þýskalandi, sem fóru sögu-
lega ferð til Moskvu á dögun-
um til að ieika gegn Spartak
Moskvu, eiga nú aðra Rúss-
landsferð fyrir höndum.
Bremen mætir Dynamo Tbilisi
í UEFA-bikarkeppninni. Dregið
var í 16-liða úrslit keppninnar
íZurich í gær. Bremverjar leika
fyrri leikinn heima.
Flamurtari Vlora, sem er fyrsta
félagið frá Albaníu til að kom-
ast í þriðju umferð í Evrópukeppn-
inni, mætir Barcelona og leika
Albanamir fyrst á Spáni. Nágrana-
KNATTSPYRNA
Táragas, flugeldar,
handleggs- og fótbrot
Það var heldur betur hama-
gangur á leikvelli Hajduk Split,
í Júgóslavíu, þegar félagið lék
gegn Marseille frá Frakklandi
í Evrópukeppni bikarhafa. Leik-
urinn var rétt hafinn þegar
táragassprengju var varpaðinn
á völlinn og einnig var flugeld-
um skotið inn á völlinn. 30
þús. áhorfendur voru á vellin-
um og trylltust margir af
hræðslu þegartáragasmökk-
urinn barst inn yfir áhorfenda-
bekkina.
ikill troðningur átti sér stað
þegar áhorfendur reyndu að
forða sér. Margir meiddust. Tutt-
ugu áhorfendur vom fluttir á
sjúkrahús og vom sex þeirra hand-
leggs- og fótbrotnir. Þegar spengj-
unni var kastað inn á völlinn kallaði
dómari leiksins leikmenn til bún-
ingsklefa. Stöðva varð leikinn í 30
mínútur. Þessi uppákoma getur
haft alvarlegar afleiðingar fyrir
Hajduk Split, sem á yfír höfði sér
sektir og heimaleikjabann.
Hadjuk vann sigur í leiknum, 2:0.
Það dugði féiaginu ekki til að kom-
ast áfram þar sem franska félagið
vann sigur í fyrri leiknum, 4:0.
Reuter
Lögregluþjónar í Split támðust. Hér sést einn þeirra ganga grátandi af velli.