Morgunblaðið - 10.11.1987, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 10.11.1987, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. NÓVEMBER 1987 7 Deilt um afgfreiðslutíma í Kringlunni: Kringlan vill hafa opið á sunnudög- um í desember UM 100 félagar í Verslunar- mannafélagi Reykjavíkur sáu til þess að verslanir i Kringlunni lokuðu kl. 16 siðastliðinn laugar- dag í stað kl. 17 eins og fyrir- hugað var. Þá hafði stjém og trúnaðaramannaráð VR ákveðið að grípa til yfirvinnubanns frá kl. 9 á föstudagskvöldi til kl. 9 á mánudagsmorgni ef ekki yrði lokað kl. 16. Viðræður milli VR og Kringlunnar hafa staðið yfir undanfaraar vikur og standa enn, en að sögn Magnúsar L. Sveinssonar formanns VR, hefur Kringlan sótt um leyfi til borgar- ráðs um að hafa opið milli kl. 13 og 17 á sunnudögum í desem- ber. Magnús sagði að VR hefði ekk- ert á móti lengingu verslunar- tímans, en fyrst yrði að semja um skiptingu vinnutímans í vaktir. Vaktaskipting kallar á aukið stafs- fólk sem mikill hörgull er á um þessar mundir og sagðist Magnús hafa skrifað undir tæplega 20 beiðnir frá Hagkaup fyrir erlent vinnuafl frá áramótum. „Það er útilokað að verslunarfólk geti unnið sex daga vikunnar hvað þá ef sunnudagar bætast við,“ sagði Magnús. „Ég staðhæfí að meiri- hluti starfsmanna í verslunum þyrfti að vinna alla daga fram að jólum án þess að fá frí, ef leyft verður að hafa verslanir opnar á sunnudögum." í kjarasamningum verslunar- manna er gert ráð fyrir að verslanir loki kl. 16 á laugardögum en marg- ar verslanir hafa verið opnar til kl. 17 án athugasemda. „Menn verða að halda kjarasamninga hvort sem þeim líkar það betur eða ver, en þegar menn fara að sækja um að hafa opið á sunnudögum þá er mælirinn fullur. Stéttarfélagið get- ur ekki liðið það til lengdar að brotið sé gert samkomulag þó reynt hafí verið að taka vægt á málum,“ sagði Magnús. Ragnar Atli Guðmundsson fram- kvæmdastjóri Kringlunnar sagði að áhugi væri fyrir lengri veslunartíma á laugardögum í ljósi þess að hann hefur verið gefínn fijáls í Reykjavík. Gildandi kjarasamningar þar sem kveðið er á um veslunartíma, er gerður miili Kaupmannasamtak- anna og Vinnuveitenda sambands íslands en Hagkaup og fleiri fyrir- tæki í Kringlunni eru ekki í þeim samtökum. „Við áttum ekki von á svo hörðum aðgerðum en allt fór þó fram með friði og spekt," sagði Ragnar. „Nú ætlum við að athuga málið nánar og leysa við samninga- borðið. Okkur liggur ekkert á því verslunartíminn verður hvort sem er lengdur á laugardögum í desem- ber.“ Morgunblaðið/Júlíus Ragnar Atli Guðmundsson framkvæmdastjóri Kringlunnar og Magn- ús L. Sveinsson formaður Verslunarmannafélags Reykjavíkur skiptust á skoðunum i Kringlunni á laugardag. Morgunblaðið/Júlíus Um 100 félaga í Verslunarmannaf élagi Reykjavíkur voru mættir í Kringluna og stöðvuðu alla verslun. FkÖNSKUSMÁBRAUÐ Hin einu sönnu Frönsku smábrauð fást með 20%kynningarafslætti þennan mánuð.Hafir þú ekki bragðað þau áður er þess vegna upplagt að gera það nú. Ljúffengu Frönsku smábrauðin frá Myllunni eru í bláum, hvítum og rauðum pokum í frystiborðum verslananna. Frönsk smábrauð setja skemmtilegan svip á hvaða máltíð sem er. Þau fást bæði gróf og fín og eru auðvitað sykurlaus. BRAUÐ HF. - SÍMI 83277 P. S. Gott ráð: Að ge/nu tileftii meelum við með að þú takir tvo poka, einn er svo lygilega fljótur að klárast.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.