Morgunblaðið - 10.11.1987, Síða 16

Morgunblaðið - 10.11.1987, Síða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. NÓVEMBER 1987 Kammersveit Reykiavíkur Tónlist Jón Ásgeirsson Fyrstu tónleikar Kammersveit- ar Reylg'avíkur á þessu starfsári voru haldnir fyrir troðfullu húsi í Áskirkju sl. sunnudagskvöld. Fluttir voru þrír kvintettar eftir Mozart, og á undan hveiju verki las Gunnar Eyjólfsson leikari upp eitt og annað sem vitað er um Mozart, bæði af heimildum og úr bréfum hans en lestexti þessi var tekinn saman af Þorsteini Gylfa- syni. Rut Ingólfsdóttir fiðluleikari hefur bæði stjómað þessu fyrir- tæki og verið leiðandi í leik, en hefur nú samkvæmt læknisráði haldið sér frá öllu spilverki. Það er því mjög ánægjulegt að starf- semi þessi skuli samt sem áður halda sínu striki, og víst er að áheyrendum þykir nokkuð til um þetta framtak, því þeir bókstarf- lega talað troðfylltu kirkjuna. Kvintettamir vom K. 407, ettinn og klarinettukvintettinn K. 581. Allt em þetta dýrðarinnar falleg tónverk og flutningurinn var feikna góður. Flytjendur vom Joseph Ognibene homleikari, Kristján Þ. Stephensen óbóleikari og Guðni Franzson klarinettuleik- ari. Allir léku þeir frábærlega vel og var mjög ánægjulegt að heyra Guðna leika Mozart, eins og hann hafí aldrei gert neitt annað. Júlí- ana E. Kjartansdóttir og Szymon Kuran skiptu með sér verkum að leika 1. fíðlu í fyrri kvintettunum. Lágfíðluleikarar vom Elisabeth Dean og Sesselja Halldóredóttir, en sellóleikari var Carmel Russill, sem nú hyggst yfírgefa okkur íslendinga og fylgir henni hlýhug- ur fyrir vel unnin störf og ósk um að allt verði henni til góðs í ham- ingjuleit hennar. I heild vom þetta einstaklega skemmtilegir tónleikar, góður flutningur og góð tónlist, sem hefur um langan tíma verið aðals- merki Kammersveitar Reylqavík- ur og hlustendur kunna svo Frá vinstrí Guðni Franzson, Elizabeth Dean, Carmel Russill og Szymon Kuran og Júlíana E. Kjart- ansdóttir eru hér að spila Mozart, K.581. Alþýðutónlistarmót homkvintettinn, K. 406, óbókvint- sannarlega að meta. Tónlistarsamband alþýðu, sem á aðild að samnorrænum samtökum, hélt tónleika um síðustu helgi, fyrst með kórtón- leikum í Langholtskirkju, þar sem fram komu gestakórar frá Noregi og Danmörku og í Há- skólabíói, þar sem íslenskir og erlendir þátttakendur stilltu sig saman í söng og hljóðfæraleik. Yfírleitt er hér um að ræða starfsgreinahópa eða framtak er á sér skjól hjá einstaka verka- lýðsfélögum. Nokkuð er það á reiki hvað skal kallast alþýðu- tónlist og það eina, sem í raun Dómkirkjan í Reykjavík. TONLISTARDAGAR DÓMKIRKJUNNAR Tónlistardagar Dómkirkjunnar hófust á orgeltónleikum er franski orgelleikarinn Jacques Taddei stóð fyrir. Á efnisskránni voru verk eftir Boellmann, Cesar Franck og Vieme, en tónleikunum !auk með því að Taddei lék af fíng- rum fram tilbrigði yfír tvö lög er orgelleíkari kirkjunnar, Marteinn H. Friðriksson, skenkti Taddei, en það voru tónhendingar úr Son Guðs ertu með sanni og frönsku lagi. Tónleikamir hófust á Gotnesku svítunni eftir Boellmann, reisu- legu verki í fjórum þáttum, en þriðji þátturinn er hin fræga „Bæn Maríu meyjar". Taddei er trúlega mikill tekniker en samt er leikur hans á köflum flausturelegur og eins og t.d. í Tokkötunni, sem er síðastí þáttur svítunnar, þar var hraðinn það mikill að viðhafnar- legur ritháttur verksins rann út i eitt. Kóralamir þrír eftir Cesar Franck em meðal merkust orgel- verka Frakka. Taddei lék annan og þriðja kóralinn og báða undar- lega órólega, með ósannfærandi hraðaskiptingum. Síðustu verkin voru svo þrjú stykki eftir blinda orgelleikarann Louis Vieme. Ann- að verkið heitir Vatnadísin og var það nokkuð hrátt í flutningi, en Tunglskin (þriðja verkið) aftur á móti fallega flutt. Að loknum þessum tónleikum lék Taddei af fíngmm fram og þar sýndi hann mikla leiktækni og víða skemmtileg tónræn tilþrif og hugmyndir. Að leika af fíng- mm fram byggist á æfíngu, góðri leikkunnáttu og hugkvæmni, en margir þeir sem íjallað hafa um þessa „listgrein" telja „ímprovis- ation" í raun ekki til, :iema sem ftjálsa útfærslu á því sem þegar hefur verið æft. Hvað nem þessu líður er Taddei fimur apunamað- ur, enda mjög leikinn orgelleikari. Það kann að valda nokkm um leikútfærelu Taddei, að orgelið í Dómkirkjunni er ekki „nægjan- lega" rómantískt fyrir menn eins og Boellmann og Franck, og þá ekki heldur Vieme, sem var nem- andi Francks og Vidors, þó svona göslulegur leikur, eins og heyra mátti í nærri öllum viðfangsefn- unum, hafí verið meiri en þörf var á og alls ekki við hæfí af jafn færum orgelleikara og Taddei. stendur eftir þegar allt hefur verið tínt til, er að um sé að ræða áhugastarf fólks sem ekki hefur hlotið mehntun á sviði tónlistar, fólks sem aðallega stundar iðn- og erfíðisstörf. Það voru Fom-Grikkir sem fyrstir greindu á milli listiðju leikmanna og menntaðra og þó að þeir reyndu að gera tónlist að „fínni“ námsgrein, tókst það ekki vegna vinsælda alþýðlegrar iðkunar, svo að um síðir taldi hin menntaða yfírstétt sér ekki sæmandi að fást við hljóðfæra- leik. Enn eru menn að basla við þessa 2500 ára gömlu aðgrein- ingu, þrátt fyrir þá staðreynd, að flest öll æðri listsköpun hafí alla tíð verið sótt í sjóði al- þýðunnar, sem fram á okkar daga tókst að varðveita sér- kenni sín. Þessi sérkenni hafa dofnað fyrir tilverknað tón- og mynd- miðlunar nútímans, svo að skilin eru að mestu kunnáttulegs eðl- is, en viðfangsefnin meira eða minna alþjóðleg og :ið mestu í takt við það sem fjölmiðlamir hafa gert vinsælt. Á þessu móti kom það fram í verkefnum eins og negrasálmum, raddsetning- um á lögum eftir Theodorakis, lögum úr bandarískum söng- leikjum, dægurlögum og jafnvel alþýðulögum, sem allt var svo meira eða minna „djassað" sam- kvæmt formúlunni, „vinsæl tónlist“. KORTONLEIKAR Aðrir tónleikamir á tónlistar- dögum Dómkirkjunnar voru aðallega helgaðir kórtónlist en auk söngs Dómkórsins var ein- leikur á orgel, sem Bjöm Steinar Sólbergsson sá um, Dómkórinn er allvel skipaður og þó söngur kórsins í heild sé nokkuð hrár á köflum var margt fallega gert en betur má ef duga skal og þar bjargar ekkert betur en meirf æfíngar og að stöðugt sé verið að keppast að ná valdi á erfíðum verkefnum. Einsöngvari með kómum var Sigrún Þorgeire- dóttir. Hún hefur mikla og nokkuð hljómskarpa rödd en mun enn vera í námi, svo að frammistaða hennar lofar góðu og líklegt að hér sé á ferðinni efnileg söngkona. Bjöm Seinar Sólbergsson er frábær orgelleikari og lék hann fyrst G-dúr fantasíuna eftir Bach, sem mun vera samin um 1712, er meistarinn starfaði í Weimar. Verk þetta þykir ótrú- lega laust unnið nema miðhlut- inn, sem er fímmradda kontrapunktískur meistaravefn- aður. Selnna verkið sem Bjöm Steinar flutti var þriðji kórallinn af þremur eftir Cesar Franck. Þar var leikur Bjöms Steinars feikna vel útfærður. Dómkórinn flutti tvo fallega bænasöngva eftir Hugo Wolf og lítið og fallegt lag eftir Hjálmar Ragnarsson er hann nefnir Gam- alt vers. Þar næst voru tvö verk eftir Þorkel Sigurbjömsson, 121. sálm Davíðs og Hosíanna. Mot- etta eftir Jacob Handl (1750—1791) var þama nokkuð utan gátta í allri þessari nútíma- rómantík en fallegt er samt tónmál gömlu meistaranna og litlu hefur í raun verið bætt við síðan þeir sungu guði lof og dýrð. Tvö síðustu verkin voru Hymn to St. Cecilia, eftir Britten og gimsteinninrt Requiem eftir Jón Leifs. Þar vantaði nokkuð á sön- greynslu kóreins, séretaklega í Sesselíusöngvunum og í sálu- messu Jóns Leifs hefði þurft að leggja meiri áherslu á hægferð- ugt tónferli, til að einföld og sérkennileg hjómskipanin nyti sínsem best. Á fýrri tónleikum Tónlistar- sambands alþýðu, sem haldnir voru í Langholtskirkju sl. föstu- dag, komu fram þrír kórar og fyrst kvennakór frá Þelamörk. Á efnisskránni var fyrst trúar- leg tónlist, sem var þokkalega, en sérlega dauflega sungin. Þá komu nokkrir negrasálmar er eins og ávallt, þegar söngvar em fluttir á milli menningar- svæða, hljómuðu annkanalega. Tvö síðustu lög kvennakórsins frá Porsgrunn í Þelamörk eru eftir Schubert og Mendelssohn. Ekki eitt einasta lag frá heima- högum kórsins, sem trúlega hefði orðið nokkuð meiri skemmtun að, en að heyra t.d. Heilig ist der Herr, eftir Schu- bert, sem allir kórar hafa fyrir löngu ofsungið. Danski kórinn, sem nefnist HK-kórinn, starfar í tengslum við verkalýðsfélögin í Silkiborg. í efnisskrá stendur að kórinn leggi „höfuðáherslu á rytmiska" tónlist. Það er heldur grunn skilgreining að kalla þá tónlist sem kórinn flutti sérstaklega „rytmiska" rétt eins og annar „rytmi" sé ekki til í tónlist og að „skurka“ eða !*éttara sagt að „beija“ \mdir á píanó er hvo flatneskjulegt og ómúsíkalskt, að engu tali tekur. Það var eins og kórinn hefði kastað trölls- hamrinum er sungin voru tvö lög eftir Carl Nielsen, svona fallegur söngur var allur ann- arrar ættar, eins og þegar menn syngja sína eigin tónlist, en reyna ekki að herma eftir öðr- um, það sem haldið er að sé vinsælt. Þriðji kórinn var norskur, frá Rjukan I Þelamörk. Efnisskráin var hinn undarlegasti samsetn- ingur, öllu hrært saman, lögum eftir Theodorakis, Kem, Egil Hovland, dægurlögum, negra- sálmum og alþýðulögum. Kórinn frá Rjukan var sönglega séð betur í stakk búinn til að færa upp tilþrifamikinn söng en fyrri kóramir, enda mun fjöl- mennari. Framhjá því verður ekki komist, að þrátt fyrir að söngtækninni sé ábótavant er það ekki meinið varðandi þessa alþýðustarfsemi, heldur að hún er orðin bergmálandi undirlægja þess smekks sem fjölmiðlamir hafa skapað og gerir ekki, að því er séð verður, tilraun til andófs eða að halda sínum merkjum hátt á lofti, svo að merkt verði hveijir séu á ferð.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.