Morgunblaðið - 10.11.1987, Síða 36

Morgunblaðið - 10.11.1987, Síða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. NÓVEMBER 1987 Útgefandi roMuMts* Árvakur, Reykjavík Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Aöstoöarritstjóri Björn Bjarnason. Fulltrúar ritstjóra Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Fróttastjórar Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aöalstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Kringlan 1, sími 83033. Áskriftargjald 600 kr. á mánuöi innanlands. I lausasölu 55 kr. eintakiö. Stríði Alþýðubandalagi? * Urslit í formannskjöri á landsfundi Alþýðubanda- lagsins eru mikill sigur fyrir Ólaf Ragnar Grímsson, hinn nýja formann flokksins, þótt hann og stuðningsmenn hans hafí degi síðar tapað kosningu til fram- kvæmdasigómar flokksins og álitamál sé hver styrkleikahlut- föllin eru í nýlqorinni miðstjóm. Þessi úrslit eru jafnframt meiri- háttar áfall fyrir gamla valda- hópinn í flokknum, sem tók við pólitískri arfleifð úr höndum Ein- ars Olgeirssonar og Brynjólfs Bjamasonar og hefur glutrað þeirri arfleifð niður. Spumingin sem nú blasir við er sú, hvaða áhrif þessi úrslit hafa á starfsemi Alþýðubandalagsins inn á við og út á við. Þetta er í fyrsta sinn, sem formaður stjómmálahreyfíngar sósíalista kemur ekki úr þeim hópi, sem gömlu kommúnistam- ir, sem stofnuðu Kommúnista- flokk íslands og síðar Sósíalista- flokkinn, hafa velþóknun á. Að vísu var Hannibal Valdemarsson formaður Alþýðubandalagsins um 12 ára skeið, en þá var það kosningabandalag Sósíalista- flokksins og Málfundafélags jafnaðarmanna, en ekki formleg- ur stjómmálaflokkur, eins og það hefur verið sl. 19 ár. Fyrir tæpri hálfri öld mistókst Héðni Valdimarssyni að ráða við kommúnista, en hann hafði gengið til samstarfs við þá um stofnun Sósíalistaflokksins með því að kljúfa Alþýðuflokkinn. Hann hvarf frá því samstarfí kalinn á hjarta. Ifyrir 19 ámm gafst Hannibal Valdemarsson endanlega upp á samstarfí við sósíalista, sem hann hóf í kosn- ingunum 1956 eftir að hann klauf Alþýðuflokkinn. Hann hvarf frá þeirri samvinnu rejmsl- unni ríkari. Nú má spyija, hvort Ólafí Ragnari Grímssyni hafí tekizt það, sem Héðni og Hannib- al mistókst. Svarið er: Það mun ekki liggja fyrir fyrr en á næstu misserum. Þá fyrst kemur í ljós, hvort Ólafur Ragnar nær raun- vemlegum tökum á Alþýðu- bandalaginu eða hvort gamla valdahópnum tekst að halda hon- um í skeQum. Hitt fer ekki á milli mála, að hinn nýi formaður hefur komizt lengra áleiðis en forverar hans tveir. Kosning Ólafs Ragnars í for- mennsku Alþýðubandalags þýðir, að þar verða áframhald- andi átök. Munurinn verður hins vegar sá, að þau verða hatrámm- ari en nokkm sinni fyrr. Pólitískir arftakar Einars og Brynjólfs munu beita öllum hugsanlegum ráðum til þess að koma hinum nýja formanni á kné. Astæðan fýrir því að þeir töpuðu for- mannskosningunni er hins vegar sú, að mjög er af þeim dregið. Þeim hefíir ekki tekizt að end- umýja sig sem skyldi og áttu ekki foringjaefni úr sínum röð- um. Þess vegna má auðvitað spyija, hvort þessi öfl í Alþýðu- bandalaginu hafí nægilegan styrk til þess að takast á við Ólaf Ragnar og hrekja hann úr formannssætinu, sem hlýtur að vera markmið þeirra. Um þetta verður ekkert fullyrt. Það kemur einfaldlega í ljós á næstu mánuð- um og misserum. Andstæðingar Alþýðubanda- lagsins geta búizt við þróttmeira starfí flokksins á næstu vikum og mánuðum. Hinn nýi formaður mun leita stíft eftir fylgi frá Al- þýðuflokki, Kvennalista og Framsóknarflokki, en þar hóf hann pólitískan feril sinn. Hann mun leitast við að gefa Alþýðu- bandalaginu meira sósíaldemó- kratískt yfírbragð og getur þess vegna orðið erfíður keppinautur fyrir Alþýðuflokk Jóns Baldvins. Ymsir stuðningsmenn Ólafs Ragnars, og þá ekki sízt úr menntamannaröðum, gera sér grein fyrir því að gömlu vígorðin um marxisma og þjóðnýtingu eru úrelt og fráhrindandi, ekki sízt fyrir ungt fólk. Slík sjónarmið höfðu þó visst brautargengi á landsfundinum og fíngraför Fylkingarinnar sem náði vissum árangri í átökum þessarar heljar- slóðarorustu eiga eftir að verða hinum nýja formanni íþyngjandi veganesti. Á hinn bóginn sýnir fengin reynsla, að Ólafí Ragnari Grímssyni er ýmislegt betur lag- ið en ná vinsældum meðal almennings og þar með atkvæð- um. Árangur Alþýðubandalags- ins í Reykjaneskjördæmi í síðustu kosningum, þar sem Ölafur Ragnar skipulagði kosn- ingabaráttu flokksins og var í baráttusæti, sýndi, að hann á undir högg að sækja hjá kjósend- um. Þegar frá líður munu innan- flokksátök setja mark sitt á Alþýðubandalagið. Eins og reynsla bæði Álþýðubandalags- manna og annarra sýnir hafa slík átök lamandi áhrif á allt flokksstarf. Kannski má segja, að þessi landsfundur Alþýðu- bandalagsins sé ekki lokapunkt- ur á tímabili átaka í flokknum, heldur upphaf lokaorustunnar. Á þessari stundu getur enginn sagt til um, hvemig henni lyktar. Sovéskur kafbátur strandaður i sænska skeijagarðinum. Sovétríkin, Sví * mt o g kafbátami eftírÁke Sparring Svíar hafa látið undan Sovét- mönnum og í raun viðurkennt rétt sovéska flotans til athafna í sænskri landhelgi, segir friðarrannsókna- maðurinn Milton Leitenberg í nýútkominni bók sinni Soviet Sub- marine Operations in Swedish Waters 1980—1986. (Ferðir sov- éskra kafbátar í sænskri lögsögu 1980-1986.) í stuttu máli eru fullyrðingar Leitenbergs þessar: Eftir atburðina í Hársfjárd 1982 gerðu Svíar sér grein fyrir því í ' hvert óefni var komið. Þeir áttu aðeins um tvennt að velja, annars vegar að láta hart mæta hörðu, hins vegar að leyfa Sovétmönnum að fara sínu fram. Ef gripið hefði verið til gagnaðgerða hefði tak- markið verið aö sökkva kafbáti en það eitt hefði getað komið í veg fyrir frekari brot Sovétmanna á sænskri landhelgi. En einmitt það að sökkva kaf- báti var hlutur sem sænska ríkis- stjómin vildi fyrir alla muni komast hjá. Annars vegar til að spilla ekki sambandinu við Kremlveija meira en orðið var, hins vegar vildu stjóm- völd forða því að upp kæmu aðstæður sem sýndu að Sovétmenn virtu ekki hlutleysisstefnu Svía, að hlutleysið væri orðið gagnslaust sem öryggistæki. Þó ríkisstjómin hljóti vita að kafbátamir em rússneskir vili hún ekki fóma hlutleysinu en kýs að dvelja áfram í eigin draumaheimi þar sem allt er eins og áður. Árs- fjórðungslega, þegar skýrslur hersins um nýjustu landhelgisbrotin berast, gefur ríkisstjómin út yfirlýs- ingu um að hún líti málið mjög alvarlegum augum. En tengslin við Sovétríkin eru óbreytt eftir sem áður. Leitenberg er vel þekktur meðal vísindamanna á sviði afvopnunar og vamarmála. Hann hefur búið í Svíþjóð í tíu ár og starfað, fyrst við friðarrannsóknastofnunina SIPRI, siðar í tengslum við Utanrík- ismálastofnunina. Bók Leitenbergs um sovézku kafbátana í sænskri lögsögu er fyrsta ritið um þetta efni á ensku. Það er því ekki útilokað að með tímanum verði bókin nk. grannrit sem móti skilning Vesturlandabúa á málinu. Virtur sérfræðingur í flotamálum, Michael MacGwire, rit- ar á bókarkápu og er sýnilega mjög hrifínn. Ummæli hans ljá ritinu blæ áreiðanleika og sænskri utanríkis- stefnu hið gagnstæða. Vilji og geta Leitenberg gengur út frá tveimur framforsendum: 1) Landhelgisbrotin era raun- veraleg og fara fram í þeim mæli sem fram kemur í skýrslum hersins. 2) Kafbátamir era sovéskir. Þessi er einnig skoðun flestra Svía, leikra sem lærðra. Sögulega séð hefur ritið ekkert nýtt fram að færa. Það er byggt á framheimildum og athuganir höf- undar á þeim era ekki gallalausar. Nokkra texta hefur Leitenberg mis- skilið. Niðurstöður hans era það sem mestu máli skiptir. Leitenberg vitnar í opinberar kenningar en samkvæmt þeim skal hlutleysisstefnu framfylgt með nægilega öflugum landvömum og skjalfestum vilja að beita þeim. í Hársfjárd kom í ljós að vamar- getan er engin. Með vamarmála- samþykkt sænsku ríkisstjómarinn- ar 1972 var herinn gerður ófær um kafbátaleit. Enginn annar her í heiminum er svo illa staddur. Atburðimir í H&rsfjárd vora _há- punkturinn á langri þróun. Árið 1981 strandaði rússneskur U-137 kafbátur á litlu skeri innan umráða- svæðis Karlskrona-herstöðvarinn- ar. Að mistök hafi valdið því er mjög ósennilegt. Árið 1980 fannst sovéskur kafbátur við utö, eyju í skeijagarðinum við Stokkhólm. í stað þess að yfirgefa svæðið hóf hann eltingaleik við leitarmenn. Það kom ekki í ljós fyrr en löngu síðar að báturinn var móðurskip eins eða fleiri smákafbáta og gat því ekki horfið á braut. í báðum þessum tilfellum vora viðbrögð yfírvalda máttlítil. Hvorki atvikið við Utö né U-137 uppákom- an leiddi til annars en málamynda- hækkana á ijárveitinum. Svíar glötuðu þessu tækifæri til að sýna ákveðni og héldu áfram að lifa í eigin ímyndunum. Eftir hvem elt- ingaleik við kafbát hefur fólk reynt að telja sjálfu sér trú um að þetta sé sá síðasti. Ekki einungis mátturinn, heldur einnig viljinn var lítill og Rússar gerðu sér fulla grein fyrir því. Stjómvöld þorðu ekki að beita þeim herstyrk sem til var. Að vísu hótaði Palme forsætisráðherra þrisvar sinnum að láta sökkva kafbátum innan landhelginnar, á tímabilinu frá 1983—1985, en fyrirmæli hers- ins vora fyrst og fremst þau að þvinga bátana upp á yfírborði sjáv- ar. Það mátti skemma bátana en ekki drepa áhafnir þeirra. Því var nauðsynlegt að sprengjumar springu í vissri íjarlægð frá þeim. Tæknilega séð var þetta nánast óframkvæmanlegt og árangurinn var eftir því. Þegar bæði viljann og getuna skortir getur aðeins farið á einn veg. Með sænsku stjómina í vamar- stöðu áttu Rússar alla möguleika á að gera innrás. Sökina átti fómar- dýrið sjálft. Fullyrðingar um sovéska kafbáta undan ströndum Svíþjóðar voru gripnar á lofti af ýmsum íhaldssömum hópum sem vildu ijúfa tengslin milli landanna tveggja. Sænsk utanríkistefna var orðin lítt traustvelqandi. Banda- rískir blaðamenn komust yfir fölsuð skjöl þar sem Svíar afhentu Banda- ríkjunum herstöðina í Karlskrona og svo framvegis. Kjarkurinn brást ríkisstjóminni. Sænskir kafarar búa sig undir að Eftir atvikið í Hársfjard staðhæfði óháð nefnd að kafbátamir væra sovézkir. Síðan hafa stjómvöld haldið því statt og stöðugt fram að ómögulegt sé að ákvarða heimaiand þeirra. Þar að auki hefur Sten And- ersson, utanríkisráðherra, lýst því yfir að utanríkisstefnan verði að byggjast á staðreyndum en ekki tilgátum. Með þessu hefur tekist að halda samskiptum ríkjanna eðli- legum þrátt fyrir að landhelgis- brotin haldi áffam. Með háttalagi sínu, segir Leitenberg, hefur sænska ríkisstjómin haldið frá þjóð- um heims mikilvægum upplýsing- um um annað stórveldanna. Aðrar túlkanir Harðar en þetta er vart hægt að dæma ríkisstjóm. Því mótmælir enginn að vamimar eru ófullnægj- —I"

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.