Morgunblaðið - 10.11.1987, Side 42

Morgunblaðið - 10.11.1987, Side 42
pjt . T?fií or fnjoAniTWTíM mnA tpvíttosom 42 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. NÓVEMBER 1987 Áþreifanleg reynsla af blómafrj ókorninu eftir Gissur Guðmundsson Ég tel mér skylt og ljúft að skýra frá reynslu minni af „High Des- ert“-blómaftjókominu, notkun þess og áhrifum, svo fremi það yrði til þess, að fleiri færu að neyta þess sér til heilsubótar. Hætt er við að ekki komi allir eiginleikar blóm- aftjókomsins fram í þessari stuttu frásögn, því þeir em ótrúlega marg- ir. Ég mun samt reyna að skýra frá því áþreifanlegasta og þeirri undur- samlegu breytingu, sem það átti eftir að hafa á heilsufar mitt til hins betra. Áður en lengra er haldið verð ég að skýra stuttlega frá forsögu þessa máls og aðdraganda, er varð til þess að ég datt niður á þetta kom. Mitt aðalstarf var húsasmíði um langt árabil. Ég lærði þá iðn og fékk réttindi 1933 til að standa fyrir húsbyggingum. Minn vett- vangur var aðallega vestur á fjörðum. Mestu umsvifin stóðu yfír frá stríðsbyijun og fram undir 1970. Var þá oft langur og strang- ur vinnudagur og í mörgu að snúast. Húsasmiðin var ákaflega erfíð á þeim tíma, ekki síst úti á landi þar sem lítið var um hjálpar- tæki til að létta störfín. Það var um sextugsaldur, sem ég fór að fínna verulega til mæði, einkum þó er ég þurfti að bera timb- ur á öxl mér eða taka upp þunga Gissur Guðmundsson „Nú skeði undrið og skriðan fór af stað. Verkir úr liðum hurfu, margt fleira fylgdi í kjölfarið, svo sem þrek, þol og lífslöngun hefur vaxið mikið.“ hluti sem ekki var ósjaldan. Ég fór þá að nefna þetta við lækni minn, sem þá var Guðsteinn Þengilsson og búsettur á staðnum, góður og gegn læknir. Hann skoðaði mig mjög nákvæmlega, eins og hans var vandi. Eftir þá athugun kvað hann upp þann úrskurð, að ég væri með þröngar kransæðar og fleira væri ekki í sem bestu lagi, svo sem slit í liðum og bólgnir vöðvar, væri því best fyrir mig að slaka nú á og hætta allri þungavinnu og það helst strax, ella hlytist verra af, ég gæti jafnvel dottið dauður niður. Þetta þóttu mér ekki góð tíðindi. Eftir þetta fékk ég tungurótartöflur, sem ég hafði alltaf í vasanum upp frá því og lét undir tunguna, ef ég gekk upp brekku eða gerði eitthvað sem þurfti átök við. Þegar hér var komið sögu fór ég smám saman að skipta yfír í léttari vinnu. 1972 fluttist ég alfar- inn til Reykjavíkur og fékk inni hjá Öryrkjabandalagi íslands. 1975 varð ég húsvörður hjá því í Hátúni 10B, þegar það var tekið í notkun. Eftir rúmlega 9 ára starf varð ég Fulningahurðir Fura - greni Verð frá kr. 10.530.- _____BÚSTOFN Smiðjuvegi 6, Kópavogi, símar 45670 og 44544. Orðsending til Verslunar- MANNA í MIÐBÆNUM Föstudaginn 13. nóvember kl. 14:00 opnar Gula línan upplýs- ingamiöstöð í Turninum á Lækjar- torgi. Þangað mun almenningur leita eftir upplýsingum um vörur og þjónustu miðbæjarins. Ferða- fólk (innlent og erlent), fólk af landsbyggðinni og við hin sem erum ekki alveg viss, fáum í Turn- inum greinagóðar upplýsingar um vörur og þjónustu þátttakenda í Gulu línunni. Turninn á Lækjar- torgi verður þannig samncfnari fýrir þá fjölþættu þjónustu sem hægt er að fá í miðbænum. Þú veröur aö vera meö því fiað er sjálfsögö fijónusta við neytendur! Þú veröur aö vera með til aö missa ekki af viöskiptum! Þú veröur aö vera meö til aö taka þátt í aö gera miöbœinn aö heil- steyptara og eftirsóknarveröara verslunarsvœöi! Þú veröur meö af fiví aö skráning kostarfrá 26 krónum á dag. VERÐUR ÞÚ MEÐ LÍKA? 62-33-88 I Cíuli Turninn :i Ixkjartorgi að hætta vegna vanheilsu. Eitt og annað hijáði mig á þessu tímabili, en einkum þó slitgigt, sem olli óþol- andi þrautum í flestum liðum, ennfremur stífír vöðvar og mæði, enda átti ég orðið erfítt um gang. Ég fór oft í rannsóknir á þessu tímabili og síðar vegna alls konar kvilla sem hijáðu mig. Allt var reynt til að lina þrautir, svo mér liði bet- ur. Þrisvar fór ég í sjúkrameðferð, ennfremur las ég bækur um svæða- nudd og kom mér upp iljanuddi. Það var nokkuð gott, svo langt sem það náði. Ég las um bætiefnaþörf líkamans og prófaði ýmsa kúra á sjálfum mér, en forðaðist öll lyf eftir mætti. Þetta allt virtist stefna í rétta átt og vera til bóta í sumum tilfellum. Á síðustu 5 árum hafa verið smíðuð hjálpartæki handa mér, vinnuborð og stóll við lestur og skrift, hvort tveggja sérsmíðað, ennfremur reimaðir teygjuhólkar um hnén til stuðnings þegar ég gekk. Ég var líka farinn að ganga með staf. Nú hefí ég sleppt hólkun- um og stafnum. Þegar ég las um blómafijókomið fannst mér að þama væri eitthvað á ferðinni, sem vert væri að athuga nánar. Ég fór að spyijast fyrir í heilsubúðum og lyfjaverslunum. Jú, það stóð heima, þetta var víða til, en leiðbeiningar, sem áttu að fylgja, vom af skomum skammti. Eg keypti þetta undraefni í Iðunnar apóteki, þar sem ég fékk góðan leiðarvísi með. Ég keypti þetta í töfluformi til að byija með. Eftir rétta 2 mánuði var ég þúinn að borða 90 töflu skammt. Á þessum tíma hafði lítil breyting orðið til batnaðar. Næst keypti ég mér box, sem innihélt komið í lausu formi. Nú fyrst fór ég að auka skammtinn allvemlega og þá fór líkami minn heldur betur að taka við sér. Nú skeði undrið og skriðan fór af stað. Verkir úr liðum hurfu, margt fleira fylgdi í kjölfarið, svo sem þrek, þol og lífslöngun hefur vaxið mikið, þannig að á ný fínnst mér sjálfsagð- ur hlutur að fara í langar göngur dag hvem, sem ég veigraði mér við áður og gat ekki með góðu móti. Hjartaslög em í fullkomnu lagi, sjóntmflanir horfnar, og hef nú lagt frá mér lesgleraugu, sem ég hef þurft á að halda í 37 ár. Óþægindi í ristli hef ég haft í mörg ár, en em nú horfín. Ég átti erfítt með að losna við þvag og hafði þrautir, en er nú einkennalaus. Innvortis óþægindi hafa plagað mig lengi, svo sem magasýmr, sveppir í þörmum og ristli, þetta allt hefur lagast mikið. í dag er ég fullkomlega ánægður með lífíð og nú fínnst mér gaman að lifa, en slíkri tilfínningu hefur ekki skotið upp í mörg ár. Ég er núria tæplega áttatlu og eins árs. í allmörg ár hef ég byijað hvem dag með öndunaræfingum út við opinn glugga, því næst tek ég nokkrar líkamsæfíngar í um það bil 10—15 mínútur. Að því loknu borða ég léttan morgunverð og les það markverðasta í einu dagblað- anna. Síðan fer ég í fyrri göngu dagsins. Fyrir nokkm setti ég mér það markmið, að ganga ekki skemur en 5 km daglega, ef aðstæður leyfa. Nú tek ég 20 g af „High Desert“- blómafijókomi hvem dag, meiri- hlutann að morgni á fastandi maga og skola því niður með 1—2 glösum af köldu vatni, læt svo líða 2 tíma minnst þar til ég borða. Ég tel þetta góða aðferð til að ná góðum árangri. Ég mun ekki hætta að taka þetta kom, sem hefur gert svo stóra hluti fyrir mig. Síðustu 5 árin hefur frú Hildur Viðar verið heimilislæknir minn. Ég var með þeim fyrstu, sem skráði mig hjá henni þegar hún gaf kost á sér fyrir íbúa Öryrkjabandalags- ins. Ég tel mig hafa verið mjög heppinn með þá ákvörðun, henni er einstaklega annt um heilsufar sjúklinga sinna og ávallt reiðubúin þegar til hennar er leitað. Hún hef- ur lagt blessun sína yfír það, sem skráð er hér að ofan, að rétt sé farið með þau 5 ár sem hún hefur verið iæknir minn. Höfundur er ellilífeyrisþegi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.