Morgunblaðið - 10.11.1987, Page 50

Morgunblaðið - 10.11.1987, Page 50
50 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. NÓVEMBER 1987 Eftir vigsluathöfnina var öllum boðið til kaffidrykkju. Eyrarbakki: Dvalarheimilið Sól- vellir tekið í notkun Selfossi. DVALAJtHEIMILI fyrir aldraða var vigt og tekið í notkun á Eyr- arbakka sunnudaginn 1. nóvem- ber. Heimilið heitir Sólvellir og er í gamla læknisbústaðnum sem var gerður upp fyrir forgöngu Samtaka áhugamanna um dval- arheimilið á Eyrarbakka. Undirbúningur að stofnun dval- arheimilisins hófst fyrir fimm árum þegar Ási Markús Þórðarson hóf undirskriftasöfnun og starf í þá veru að fá gamla læknisbústaðinn fyrir dvalarheimili. Ifyrir tveimur árum voru stofnuð samtök áhuga- fólks um stofnun dvalarheimilisins og þau hafa haft forgöngu um framkvæmdir við að lagfæra húsið að utan og innan. Mjög mikil sjálfboðavinna hefur Sigrfður Gunnarsdóttir, Prestshúsi, Ágústa Magnúsdóttir, Einars- höfn, og Helga Jónsdóttir, Frambæjarhúsi, verða meðal fyrstu dvalargesta. Með þeim á myndinni er Ási Markús Þórðarson. Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Vilhjálmur Einarsson, 94 ára, aldursforseti Eyrarbakka, var meðal gesta. Við hlið hans stendur Vigdís Jónsdóttir bamabarn hans og barnabamabarnið Jón Ólafsson situr á gólfinu. verið unnin við dvalarheimilið og margir aðilar, fyrirtæki og einstakl- ingar gefið efni og vinnu. í máli Ingu Láru Baldvinsdóttur sem hafði orð fyrir samtökunum kom fram að gjafir til byggingarinnar næmu einni og hálfri milljón en auk þess hefðu borist margar fleiri gjafir. Heildarkostnaður byggingarinnar er í kringum 5 milljónir króna. Inga Lára gat þess að við endumýjun hússins hefði verið valin mun ódýr- ari leið við að skapa öldruðum aðstöðu en viti afhenti Samtökun- um um dvalarheimilið gjafaafsal fyrir húsið en það var í eigu hrepps- ins og byggt 1946. Hann sagði að endumýjun hússins sem dvalar- heimilis sýndi að það væri ekki nauðsynlegt að sveitarfélagið hefði fmmkvæði í öllum málum. Það gæfi allt eins góða raun að sveitar- félagið styddi við bakið á áhugafólki um_ framfaramál. Á Sólvöllum er rúm fyrir 11 vist- menn og þar muna var afhent píanó að gjöf frá Guðlaugi Pálssyni kaup- manni, bömum hans og tengda- bömum. Einnig barst mikið af blómum og heillaóskum. Meðal gesta var elsti íbúi Eyrarbakka, Vilhjálmur Einarsson 94 ára, og það fólk sem fengið hefur pláss á dvalarheimilinu. Að lokinni vígslu- athöfninni á Sólvöllum var öllum boðið til kaffidrykkju í félagsheimil- inu. — Sig. Jóns. Heimaland undir Eyjafjöllum: Fjölsótt skemmt- un listafólks frá Hvíta-Rússlandi Morgunblaðið/Halldór Gunnaraaon Nina Kozlova og Jaroslav Evdókimov sungu saman i lok dagskrárinnar. Holti undir Ejjafjöllum. LISTAFÓLK frá Hvita-Rússl- andi hefur undanfarið ferðast um landið í tilefni sovéskra daga á 70 ára byltingaraf- mæli Sovétríkjanna. Föstu- dagskvöld 30. október kom þetta listafólk að Heimalandi undir Eyjafjöllum og skemmti fjöida áheyranda. Lástafólkið hefur ferðast um á vegum MÍR, Menningartengsla íslands og Ráðstjómarríkjanna, og var heimsóknin að Heimalandi undirbúin í samvinnu við kvenfé- lagið Eygló í sveitinni, sem undirbjó móttöku fyrir listafólkið. Dagskráin hófst með ræðu for- svarsmanns frá Hvíta-Rússlandi sem var túlkuð. Síðan söng óperu- og konsertsöngkonan Nína Kozlova, þjóðdansaflokkurinn „Kryshatsjok" dansaði ýmsa þjóð- dansa í hinum ýmsu og ákaflega litfögru búningum, einsöngvari við ríkisútvarpið í Hvíta-Rússlandi, Jaroslav Evdókimov, söng rúss- nesk þjóðlög og samleikur og % i» * m Arséní Vanftski, formaður rússn- eska vináttufélagsins. einleikur fór fram á tsimbal, píanó og fíðlu. Vakti þessi dans- og tónlistar- viðburður mikla ánægju þeirra sem sóttu víðs vegar að úr Rangár- vallasýslu. Aðspurður kvað Arséní Vaníski, formaður rússneska vináttufélags- ins, það hafa verið þessu listafólki frá Hvíta-Rússlandi mikil gleði að fá tækifæri til að heimsækja ís- land, landið þar sem leiðtogar stórveldanna hittust og lögðu drög að samkomulagi um frið og kjam- orkuvopnalausan heim, sem síðar ætti vonandi eftir að ná betur fram. Þjóðdansaflokkurinn væri áhugafólk sem væri við nám í hin- úm ýmsu greinum við ríkisháskóla Hvíta-Rússlands, en hefði engu að síður hlotið viðurkenningu víða. Tónlistarfólkið væri í fremstu röð í sínu heimalandi. Vansíski sagði að fólkið vissi heilmikið um ísland, menningu þess og bókmenntir og nefndi sérstaklega bækur Halldórs Laxness sem væri vel þekktur. Samvinna landanna væri að auk- ast á ýmsum sviðum og svona heimsóknir stuðluðu að gagn- kvæmri hlýju og virðingu. Hann hefði t.d. fundið að tónlistin og dansinn frá listafólkinu hefði kom- ið frá hjarta flytjenda og náð til hjarta þeirra sem sáu og heyrðu. Þau hefðu komið til landsins 27. október og komið víða og alls stað- ar mætt gestrisni, hlýju og virð- ingu og fyrir það vildi Vanískí þakka sérstaklega. — Fréttaritari

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.