Morgunblaðið - 10.11.1987, Síða 56
56
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. NÓVEMBER 1987
rFATASKÁPAR i
H. O-ff-h-ÆJL
LÆKJARGÖTU 22 HAFNARFIRÐI SÍMI 50022
Ingólfur Theodórs-
son - Afmæliskveðja
í dag, 10. nóvember, er Ingólfur
Theodórsson 75 ára. Það er nokkuð
hár aldur, en þegar um Ingólf
frænda er að ræða, þá finnst mér
hann svo langt frá því að vera gam-
all.
Ingólfur er fæddur og uppalinn
á Siglufirði. Foreldrar hans voru
Guðrún Ólafsdóttir og Theodór
Pálsson skipstjóri.
15 ára gamall byijaði Ingólfur
að læra þá iðn sem hann hefur
unnið við alla tíð síðan, eða í 60 ár.
1937 stofnaði hann í Reykjavík,
ásamt öðrum, sitt fyrsta netaverk-
stæði. Þannig að í ár eru 50 ár
sfðan.
Á þessu ári var haldið uppá 40
ára afmæli Netagerðar Ingólfs í
Vestmannaeyjum. Svo það má með
sanni segja að hann eigi fjórfalt
afmæli á árinu 1987.
Hann frændi minn er og hefur
alltaf verið alveg sérstakur. Það var
aldrei nein halfvelgja hjá honum.
Þar sem hann var, þar var eitthvað
að gerast. Röddin hans hijúfa og
hjartalagið góða hefur spilað vel
saman.
Ég minnist hans sem góða, glæsi-
lega frændans, sem kom norður
með síldinni. Hjá mér var sumarið
ekki komið fyrr en hann Ingólfur
frændi var kominn með sína menn.
Þeir bjuggu yfirleitt í bröggum og
þegar ég lít til baka, þá finnst mér
þeir hafa búið í þeim flestum.
Mér sem smástelpu fannst mjög
gaman að eiga þennan frænda, sem
fór svo mikið fyrir og allir þekktu.
Netamennimir hans Ingólfs, sem
voru þeir sömu ár eftir ár, urðu
vinir mfnir. Það er fallegur ljómi
yfir þessum liðnu sfldarárum. Vest-
manneyingar voru og eru kannski
ennþá alveg sérstaklega skemmti-
legt fólk, söngelskt og glaðvært.
Það var mikið um það, að þeir
kæmu norður á sumrin og Siglfirð-
ingar fóru á vetrarvertíð til Eyja.
Þessi mikli samgangur á milli ungs
fólks á þessum árum leiddi til
Alveg sjálfsagt
Öllum finnst okkur sjálf-
sagt að hafa rafmagn. Það er
svo snar þáttur í lffi okkar að
við veitum þvf varla athvgli.
Við þrýstum á hnapp og heim-
ilistækið eða vélin á vinnustað
er reiðubúin til þjónustu við
okkur.
Rafmagnsveita Reykjavíkur
leggur metnað sinn í að dreifa
rafmagni til notenda sinna
stöðugt og hnökralaust. Dreif-
RAFMA3NSVEITA
REYKIAVlKUR
SUÐURLANDSBRAUT34 SÍMIÓ86222
ingarkostnaður greiðist af
orkugjaldi. Ógreiddir rafmagns-
reikningar valda auknum lán-
tökum og hærri rekstrar-
kostnaði.
Jafnsjálfsagt og það er að
hafa stöðugt rafmagn ætti að
vera sjálfsagt að greiða fyrir
það á réttum tíma.
Láttu rafmagnsreikninginn 1
hafa forgang! I
margra hjónabanda. Ingólfur var
einn þeirra sem kvæntist Eyjarós,
Sigríði Sigurðardóttur frá Skuld,
og eiga þau 5 böm.
Þau hafa búið allan sinn búskap
í Eyjum, nema gosárið 1973, þegar
þau fluttust til lands og Ingólfur
kom sér upp aðstöðu í Grindavík
til að þjóna Eyjabátum.
En þau hjónin vom samtaka með
að snúa aftur heim til Eyja. Þar
líður þeim best og þar vilja þau vera.
Ingólfur minn, í dag vil ég þakka
þér alla þá vinsemd og gleði sem
þú hefur gefíð mér. Ég gleymi
aldrei frændanum góða, sem stakk
aur í litla hendi og tók mig og syst-
ur mínar með í bátsferð úr í
Kambalá, en þangað var farið til
að tína ber. Það vom aðrir tímar
þá og lítið um aura og ferðalög.
Þess vegna man ég þetta kannski
svona vel.
Elsku Ingólfur, við Bessi sendum
þér og allri flölskyldunni heillaóskir
á þessum tímamótum. Guð gefi að
heilsan fari batnandi hjá ykkur
hjónunum og að Sigga þín komi
heim af sjúkrahúsinu sem allra
fyrst.
Elskulegur frændi, lifðu heill.
Sigga — Tóta.
Ingólfur er að heiman.
Alþýðusamband
Vesturlands;
Atkvæði
um hvort
leggja eigi
sambandið
niður
ALMENN atkvæðagreiðsla fer
fram í öllum aðildarfélögum AJ-
þýðusambands Vesturlands um
það hvort leggja beri sambandið
niður dagana 19. og 20. nóvember
næstkomandi. Þetta var sam-
þykkt á fundi stjórnar Alþýðu-
sambands Vesturlands 18.
október.
Ákvörðun um atkvæðagreiðsluna
er tekin í samræmi við samþykkt
5. þings Alþýðusambands Vestur-
lands, þar sem samþykkt var með
21 atkvæði gegn 19 að leggja ætti
sambandið niður og að allsheijat-
kvæðagreiðsla færi fram um það í
öllum félögunum.
Aukaþing sambandsins verður
haldið 28. nóvember, þar sem úrslit
allsheijaratkvæðagreiðslunnar
verða kynnt og endanleg ákvörðun
tekin um framtíð sambandsins. Al-
þýðusamband Vesturlands var
stofnað í marsmánuði 1977 og aðild-
arfélög þess eru 12. Formaður er
Jón Agnar Eggertsson, Borgamesi
og varaformaður Kjartan Guð-
mundsson, Akranesi.