Morgunblaðið - 05.01.1988, Blaðsíða 1
72 SIÐUR B
2. tbl. 76. árg.
ÞRIÖJUDAGUR 5. JANÚAR 1988 Prentsmiðja Morgunblaðsins
Afganistan:
Franskur bladamaður
dæmdur fyrir njósnir
Islamabad, Reuter.
FRANSKUR blaðamaður, sem
komst inn fyrir landamæri Afg-
anistans í fylgd með afgönskum
frelsissveitum, var í gær dæmdur
í tíu ára fangelsi fyrir njósnir.
Sérstakur „byltingardómstóll"
kvað dóminn upp og sagði út-
varpið i Kabúl, höfuðborg
Afganistans, að blaðamaðurinn
hefði verið staðinn að því að afla
hernaðarlega mikilvægra upp-
lýsinga fyrir erlendar leyniþjón-
ustur.
Saudi-Arabía:
Tekjur út-
lendinga
skattlagðar
Alain Guillo var handtekinn 12.
september sakaður um njósnir og
fyrir að hafa hvatt skæruliða til
áframhaldandi baráttu gegn afg-
anska stjómarhemum, sem nýtur
stuðnings innrásarliðs Sovétmanna.
Fjöldi vestrænna blaðamanna og
ljósmyndara hefur komist inn yfir
landamæri Afganistans í fylgd með
frelsissveitum á þeim níu ámm sem
15ðin em frá því átök blossuðu upp
í landinu. Landið hefur verið lokað
frá því Sovétmenn gerðu innrás
árið 1979 og fátt er um áreiðanleg-
ar fréttir af gangi styrjaldarinnar.
A sunnudag staðfesti óvilhallur
heimildarmaður Reuters-fréttastof-
unnar að stjómarhemum og innrás-
arliðinu hefði tekist að koma
hjálpargögnum til bæjarins Khost,
sem skæmliðar höfðu setið um í
þrjá mánuði. Skæmliðar segjast
enn sitja um bæinn.
Reuter
Egypskir lögfræðingar efndu í gær til mótmæla í Kaíró vegna þeirrar ákvörðunar ísraelsstjórnar að
vísa níu Palestínumönnum úr landi. Mennimir kveiktu í pappaspjaldi með mynd af ísraelska fánanum
en mótmælin fóm friðsamlega fram.
Riyadh, Reuter.
TEKJUR útlendinga sem starfa
í Saudi-Arabíu verða skattlagðar
á þessu ári samkvæmt konung-
legri tilskipun, sem birt hefur
verið í fjölmiðlum. Síðustu tólf
árin hafa útlendingar ekki þurft
að greiða tekjuskatt í Saudi-
Arabíu og hefur fjöldi erlendra
sérfræðinga látið freistast af
skattleysinu.
Frá og með 21. janúar verður
útlendingum gert að greiða skatt
af launum sínum og munu þeir sem
hafa yfir 620.000 ísl. kr. í árslaun
lenda í efsta skattþrepinu, sem
kveður á um að þriðjung tekna
beri að greiða í ríkissjóð.
Ibúar Saudi-Arabíu munu eftir
sem áður njóta skattleysis. Að sögn
starfsmanna erlendra sendiráða
voru símalínur rauðglóandi í gær
er fréttir bárust um ákvörðun yfir-
valda. Var því almennt spáð að
menn myndu flykkjast úr landi en
talið er að um fjórar milljónir út-
lendinga búi og starfí í Saudi-
Arabíu.
ísraelar hyggjast vísa níu Palestínumönnum úr iandi:
Egyptar vara við versn-
andi samskiptum ríkjanna
Amman, A-Ram, Damaskua, Tel Aviv, Kuwait, Beirút, Reuter.
RÍKISSTJÓRNIR flestra arabaríkja hafa fordæmt þá ákvörðun
stjórnvalda i ísrael að vísa níu Palestínumönnum úr landi. Mennirn-
ir eru sakaðir um að hafa hvatt til mótmæla Palestínumanna á
hernumdu svæðunum í síðasta mánuði. Bandaríkjastjórn hefur lagst
gegn ákvörðun þessari .og Egyptar, sem einir arabaríkja hafa gert
friðarsáttmála við Israela, hafa varað við því að þetta kunni að
spilla samskiptum rikjanna. Óeirðir brutust út á vesturbakkanum i
gær og samtök öfgafullra Palestínumanna hafa hótað grimmilegum
hefndum fyrir loftárásir ísraela á Libanon um helgina.
Sagnfræðingar segja Israels-
stjórn beita fyrir sig 40 ára gömlu
lagaákvæði sem leitt var í gildi er
Bretar réðu þessu landsvæði sem
Snjólaust íþýsku Ölpunum
Reuter
Einmana fjallageit horfír yfir skíðasvæðið í Oberstdorf í Vestur-
Þýskalandi, en undanfarna daga hefur fjölmörgum skíðamótum verið
frestað í Ölpunum vegna snjóleysis. í Oberstdorf neyddust menn til
að nota gervisnjó til þess að keppni í skíðástökki gæti farið fram,
en engu að síður mættu þúsundir manná til að fylgjast með mótinu.
þá hét Palestína. Yitzhak Yzem-
itsky, leiðtogi skæruliðahreyfingar
gyðinga, sem nú er betur þekktur
sem Yitzhak Shamir, forsætisráð-
herra Israels, var þá rekinn úr landi
í samræmi við lagaákvæði þetta.
Yitzhak Shamir sagði í viðtali í
gær að brottvísun væri þyngsta
refsing sem unnt væri að beita
gegn verstu óeirðaseggjunum og
því væri ákvörðun stjórnvalda fylli-
lega réttlætanleg. Um 1.200
Palestínumenn voru handteknir í
óeirðum á hernumdu svæðunum í
síðasta mánuði en 240 hefur verið
sleppt. 24 féllu fyrir byssukúlum
ísraelskra hermanna í óeirðunum.
Talsmaður stjómvalda í Egypta-
landi sagði í gær að ísraelskum
ráðamönnum hefði verið tilkynnt
að brottvísun Palestínumannanna
gæti haft alvarlegar afleiðingar fyr-
ir samskipti ríkjanna. Fréttir herma
að stjórnvöld hafí neitað að ræða
við fulltrúa ísraelsstjómar um
ástandið á hemumdu svæðunum.
Frelsissamtök Palestínu (PLO) hafa
hvatt Egypta til að loka sendiráði
ísraela í Kaíró og hryðjuverkasam-
tök, sem kennd em við Abu Nidal,
hafa lýst yfir því að þess verði hefnt
grimmilega geri ísraelar mennina
brottræka. Fleiri arabaríki hafa for-
dæmt Israelsstjóm fyrir ákvörðun
þessa.
Palestínumenn á vesturbakkan-
um grýttu ísraelska hermenn í gær
sem beittu gúmmíkúlum og tára-
gasi til að dreifa mannfjöldanum.
Gífurleg reiði ríkir í röðum Pal-
estínumanna vegna þess að ísra-
elskur hermaður skaut 25 ára
gamla konu til bana í óeirðum á
sunnudag. Þá hafa samtök öfga-
fullra Palestínumanna, sem njóta
stuðnings Sýrlendinga, hótað að
hefna loftárása ísraela á búðir Pal-
estínumanna og drúsa í Suður-
Líbanon um helgina, sem urðu 19
manns að bana.
Sjá einnig „ísraelar gera loft-
árásir . . .“ á bls. 28.
Gaslindir f inn-
ast í Barentshafi
Osló, Reuter.
TALSMAÐUR norska olíufyrir-
tækisins, Statoil, skýrði frá því í
gær að gaslindir hefðu að líkind-
um fundist á hafsbotni í austan-
verðu Barentshafi.
Fundur þessi hefur orðið til þess
að vekja vonir manna að nýju um
að í Barentshafi leynist verulegar
olíu- og gaslindir. Hákon Larvik,
talsmaður Statoil, sagði í viðtali við
Reuters-fréttastofuna að tilrauna-
boranir á þessum slóðum lofuðu
góðu en kvað enn of snemmt að
segja til um hversu mikið gas væri
þar að finna. Á síðasta ári voru
fimm holur boraðar á botni Barents-
hafs en þar reyndist engar auðlindir
að finna.
Að sögn Larviks hefur gas ekki
fundist svo austarlega áður en
bæði Norðmenn og Sovétmenn hafa
borað í tilraunaskyni á þessum slóð-
um á undanfömum árum.
Hlutabréf
hækkaí
New York
New York, Reuter.
HLUTABRÉF snarhækkuðu
í verði á fjármálamarkaðin-
um í Wall Street í gær og
er þetta fjórða mesta hækk-
un i sögu hlutabréfaviðskipta
í New York.
Dow Jones-hlutabréfavísital-
an hækkaði um 76,42 stig og
var hún skráð á 2.015,25 stig
er viðskiptum lauk í gærkvöldi.
Sérfræðingar voru sammála
um að hækkun á gengi dollars
í gær hefði valdið mestu um
verðhækkun hlutabréfanna auk
þess sem jákvæðar hagtölur
bárust frá Bandaríkjunum.
Dollarinn styrktist í gær gagn-
vart helstu gjaldmiðlum er
seðlabankar Sviss, Vestur-
Þýskalands og Japans gripu til
samræmdra aðgerða til að
forða frekara falli hans.
Sjá einnig „Aðgerðir seðla-
banka . . .“ á bls. 29.