Morgunblaðið - 05.01.1988, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. JANÚAR 1988
13
Tímarit Sögufélags
Békmenntir
Erlendur Jónsson
SAGA. XXV—1987. Ritstj. Sig-
urður Ragnarsson og Sölvi
Sveinsson. Sögufélag. Reykjavík,
1987.
Saga hefst að þessu sinni á minn-
ingargrein sem Einar Laxness ritar
eftir Bjöm Þorsteinsson sagnfræð-
ing. Einar rekur ævistarf Bjöms
sem að langmestu leyti tengdist
sagnfræði og sögurannsóknum.
Bjöm var meðal annars ritstjóri
Sögu um nokkurra ára skeið. Bjöm
Þorsteinsson var afkastamikill
fræðimaður og fór inn á ný svið
sögurannsóknum. Merkast af því
taginu vom rannsóknir hans á
ensku öldinni sem hann kallaði svo.
Einar getur þess að Bjöm hafi látið
eftir sig íslandssögu sem koma
muni út á næsta ári.
Lítið hefur farið fyrir skrifum
um kirkju- og kristnisögu í seinni
tíð. í þessari Sögu bregður svo við
að kirkjusagan skipar talsvert rúm.
Lúther í íslenzkri sagnfræði heitir
samantekt eftir Jón Thor Haralds-
son. Jón Thor rekur umsagnir
íslenskra fræðimanna um Lúther
frá siðaskiptum til samtíma og sýn-
ir fram á hvemig hugmyndir manna
um þessa trúarhetju breyttust með
aldanna rás. Menn gerðust ekki
fyrr á tíð háalvarlegri en þegar
nefnt var nafn Lúthers. En alvaran
getur snúist upp í andstæðu sína
þegar inntak orðanna þverr eða
skírskotun þeirra breytist. Og svo
fór hér. Nú er aðeins hægt að
skemmta sér við upprifjun þessara
gömlu alvörumála; til að mynda þá
áréttingu mikils háttar guðfræðings
að Lúther hafi alls ekki séð skratt-
ann á veggnum eins og löngum
hafí verið haldið fram, einungis
svartan hund!
Við rætur kirkjulegs regluveldis
á íslandi nefnist svo ritgerð eftir
Loft Guttormsson. »Regluveldi er
hér notað yfír hugtakið bure-
aucracy;« útskýrir höfundur. Og
enn er kirkjusagan á döfínni í þætti
Gryt Anne Piebenga, Gozewijn
Comhaer Skálholtsbiskup
1435-1446. Eitthvað hljómar það
nafn nú framandlega fyrir eynim.
En Comhaer var reyndar Hollend-
ingur og var skipaður hér biskup á
eftir Jóni Gerrekssyni. Svo fá spor
hefur hann skilið eftir sig að Finnur
Álfadans
og brenna í
Mosfellssveit
FLEST öll félög í Mosfellsbæ
standa fyrir álfadansi og brennu
á þrettándann, 6. janúar. Safnast
verður saman við verslunarhús
Kjörvals þar sem Skólahljóm-
sveitin spilar undir stjórn Birgis
Sveinssonar.
Lagt verður af stað frá Kjörvali
um kl. 8 og gengið eftir Þverholti
í átt að brennunni, sem verður í
brekkunni_ norður af Ásholti og
Álmholti. Á göngunni slást í hópinn
álfakóngur og -drottning svo og
jólasveinar og púkar.
Við brennuna leikur skólahljóm-
sveitin og kóramir í Mosfellsbæ
leiða almennan söng. Félagar úr
flugbjörgunarsveitinni sjá um flug-
eldasýningu við brennuna.
Að þessu loknu kveðja Mosfells-
bæingar álfakóng og -drottningu,
svo og jólasveinana, sem halda til
sins heima á þrettándakvöld. Heyrst
hefur að þetta verði síðasti við-
komustaður þeirra um þessi jól, því
svo ku vera, að heimkynni þeirra
séu í Esjunni, rétt við bæjardyr
Mosfellsbæinga.
Björn Þorsteinsson
Jónsson hefur það helst um hann
að segja í Kirkjusögu sinni að
»Gozewijn Skálholtsbiskup var ekki
vondur maður og vanrækti alls ekki
skyldur sínar.«
Kjartan Ólafsson heldur áfram
með Dýrafjarðarmálið; undirfyrir-
sögn: Jón forseti og ísfirðingar á
öndverðum meiði. Merkilegast var
mál þetta fyrir þá sök að þar urðu
íslendingar að taka á herðar sér
viðkvæmt utanríkismál (sem Dön-
um þótti reyndar hyggilegt að víkja
sér undan) löngu áður en Iands-
menn fengu annars formleg yfírráð
yfít þeim málum. Jón Sigurðsson
gat hugsað sér samvinnu við
Frakka ef tollalækkanir byðust á
móti. Hann hefur því hugsað svipað
og stjómmálamenn hugsa nú — á
dögum fríverslunar! En ísfírðingar
vom sem sagt á öndverðum meiði,
kunnu ekki að þenkja á efnahags-
bandalagsvísu. Þorleifur Repp var
líka á móti. Hann var mikill Breta-
vinur og þar af leiðandi Frakkaand-
stæðingur. Hann varaði íslendinga
við ásælni stórveldisins og kvað
meðal annars mundu fylgja »hlut-
tekning í eylífum Stjómarbiltingum
Fracka.«
Frá Dýrafírði víkur sögunni svo
til ísafjarðar. Sigurður Pétursson
ritar þáttinn Samvinnufélag ísfírð-
inga. Fyrsta útgerðarsamvinnufé-
lag á Islandi. Stofnun og fyrstu
starfsár. Sigurður gerir grein fyrir
þeim pólitísku og efnahagslegu
sviptingum sem urðu á ísafírði á
þriðja áratug aldarínnar þegar Al-
þýðuflokksmenn komust þar í
meirihluta og stórútgerð í einka-
rekstri lagðist að mestu niður.
Stoftfhðu þá kratamir áðumefnt
samvinnufélag sem þaðan í frá
skyldi standa undir atvinnulífí bæj-
arins. »Samvinnufélagið var nýjung
í íslenskum sjávarútvegi, og vakti
athygli um allt land á sínum tíma,«
segir Sigurður. Athyglisverð er
upprifj'un þessi meðal annars fyrir
þá sök að hún minnir á hversu línur
vom fyirum skarpar á milli hægri
og vinstri; og deilur þá að sama
skapi hatrammar. Þama var vissu-
lega tekist á um grundvallarsjónar-
mið.
Að venju em í Sögu allmargar
umsagnir um bækur, aðallega sagn-
fræðirit. Er þar farið grannt ofan
í rit þau sem fjallað er um, tíðast
í nokkuð löngu máli. Saga hefur
verið, og er, rit sem byggt er á
vísindalegum gmnni. Eigi að síður
höfðar ritið til allra áhugamanna
um sagnfræði, svo er fyrir að þakka
almennum söguáhuga íslendinga
og þeirri hefð að hér skuli jafnan
ritað svo að hver skilji sem skilja
vill.
DÖMUR OG HERRAR
Nú drífiðþið
ykkur í leikfimi!
Tímar við allra hæfi
5 vikna námskeið hefjast
ll.janúar
Leikfimi fyrir konur á öllum aldri.
Hressandi, mýkjandi, styrkjandi
ásamt megrandi æfingum.
Karlmenn
Hinir vinsælu herratímar eru í hádt
ínu.
Þarftu að missa 15 kíló?
Sértímar fyrir konur sem vilja léttast
um 15 kg eða meira. Sértímar fyrir
eldri dömur og þær, sem þjást af
vöðvabólgum.
Frábær aðstaða
Ljósalampar, nýinnréttuð gufuböð og
sturtur. Kaffi og sjónvarp í heimilis-
legri setustofu.
Innritun
og frekari upplýsingar alla virka daga frá
kl. 13-22 ísíma 83295.
JúdódeMÁrmanns
Ármúla 32.
WHu bæta viðtungumálakunnáttu þína?
Ef svo er hafðu samband við okkur sem fyrst.
Josephine Flynn
skólastjóri, enskukennari
Julie Ingham
skólastjóri, enskukennari
★ Alltnámsefni
innifalið
Túngötu 5, sími 25330 og 25900
Innritun hefst f dag.
Við bjóðum námskeið í
ensku spænsku
ítölsku frönsku
þýsku íslensku
VIÐ HJÁLPUM ÞÉR AÐ SKILJA AÐRA!
Enskunámskeið á morgnana, síðdegis og á kvöldin.
. „Happy hour“ enskunámskeið kl. 17-18.30.
Sér námskeið fyrir börn 8-12 ára kl. 15-18.
Sér námskeið fyrir unglinga og samræmduprófsnemendur.
Leikskólatímar fyrir enskumælandi börn 4-6 ára daglega kl. 9-12.
Ath.: Hámark 10 nemendur íbekk.
Jo Clayton
enskukennari
Helen Everett
enskukennari
■ Sérmenntaðir erlendir
T.E.F.L. kennarar
-----------------------
Sanngjarnt
verð
★ Innrituner
þegar hafin
' —______J