Morgunblaðið - 05.01.1988, Blaðsíða 63

Morgunblaðið - 05.01.1988, Blaðsíða 63
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. JANÚAR 1988 63 —rz Urriðafoss lestar síld til Sovét- ríkjanna Grindavík. URRIÐAFOSS lestaði saltsíld til Sovétrikjanna i Grindavik á mánudag. Veruleg seinkun hafði verið á að skipið byrjaði lestun hér suðvestanlands, því ráðgert var að þessi farmur, alls 19 þúsund tunnur, færi fyr- ir áramót. Keflavík lestaði hins vegar svipað magn á Ausfjörð- um um miðjan desember og var i gær væntanleg til Noregs i bakaleiðinni og tekur 25 þús- tmd trétunnur vegna viðbótar- söltunar sem hefst fljótlega. Urriðafoss átti að byija að lesta í Grindavík upp úr miðjum desem- ber en þá varð skipið fýrir seinkun vegna veðurs þegar það var á heimleið frá Túnis með saltfarm. Þegar skipið hafði losað salt- farminn kom í ljós bilun á botn- tönkum þess og tafði það enn að lestun gæti hafist. Kr.Ben. Síldartunnumar hifðar um borð í Urriðafoss. Morgunblaðið/Kr.Ben. Mosfellsbær: Kartöf lur með jólasteikinni KARTÖFLUR voru víða teknar upp fyrir jólin. Morgunblaðið sagði ný- lega frá því að Mýrdælingar hefðu haft nýuppteknar kartöflur með jólasteikinni og Hákon Kristgeirs- son segist hafa tekið upp kartöflur í Mosfellsbæ rétt fyrir jól og hafi þær verið notaðar á jólunum hjá sinni fjölákyldu og fleirum. Hann sagðist hafa átt von á lélegum kart- öflum en þær reynst mjög góðar. Knattborðsstofa. opnuð í Keflavík Lýsa fyllsta stuðningi við fiskveiðistefnu sjávarútvegsráðherra - Keflavik. Knattborðsstofa Suðurnesja var nýlega opnuð í Keflavík. Knattborðsstofan er í nýju hús- næði í Grófinni 8 og hefur hvei-gi veríð til sparað til að búa allt sem best úr garði og má þar nefna fjölda listaverka sem prýða hús- næðið, en þau er öll eftir Suðumesjamenn. Þá er fyrir- hugað að koma upp aðstöðu fyrir pílukastara á næstunni í húsnæði knattborðsstofunnar. Eigandi Knattborðsstofu Suður- nesja er Börkur Birgisson. Börkur sagði í samtali við Morgunblaðið að húsnæðið væri um 430 fermetr- ar og væri hann með sjö 12 feta borð. „Borðin heita Riley Aristokrat og eru ein bestu borðin sem fáanleg eru á markaðinum í dag. Ég ákvað strax að búa stofuna þannig úr garði að hægt yrði að halda stærri mót Gott rými er á milli allra borð- anna og ég er að vonast til að fá að halda Islandsmótið í snóker í Keflavík." Börkur sagði ennfremur að byij- endum yrði boðið uppá kennslu í „billiard" og yrði hún tvenns konar, verkleg og sýnikennsla af mynd- bandsspólum. Tveir fyrrverandPj - Suðumesjameistarar í „snóker“ önnuðust verklegu kennsluna, en á myndböndunum sýndu þekktir knattborðsleikarar • ýmis undir- stöðuatriði og sýnt væri frá keppni meistara á stærri mótum. BB STJÓRNIR fjögurra hagsmuna- félaga innan sjávarútvegs hafa í sameiginlegu skeyti lýst fyllsta stuðningi við frumvarp sjávarút- vegsráðherra um stjórnun fisk- veiða til næstu ára. Jafnframt eru vinnubrögð Alþingis átalin, þar sem ekki hafi veríð sett lög um stjórnun fiskveiða á grund- velli frumvarps sjávarútvegsráð- herra fyrir upphaf nýs árs. Það eru Vélstjórafélag íslands, Skipstjóra- og stýrimannafélagið Sindri, Austurlandi, Skipstjóra- og stýrmannafélagið Aldan, Reykjavík og Vélstjórafélag Vestmannaeyja, sem að skeyti þessu standa. Texti þess fer hér á eftin „Stjómir undirritaðra félaga lýsa yfir fyllsta stuðningi við fiskveiði- stefnu sjávarútvegsráðherra, Halddórs Ásgrímssonar, eins og hún kom fram í frumvarpi til laga nr. 410 að lokinni annarri umræðu í efri deild Alþingis þann 22. desem- ber síðastliðinn. í umfjöllun um fmmvarpið hafa komið fram óskir um að einum út- gerðarflokki verði gert hærra undir höfði en öðrum með því að færa honum veiðiheimildir umfram afla- reynslu viðmiðunaráranna. Við teljum að slíkar breytingar raski úthlutunargrundvelli þessarar fisk- veiðistjómunar og með þeim sé verið að færa einum hópi auknar veiðiheimildir á kostnað annarra. Slík stjómun skapar óréttlæti og óeiningu meðal þeirra, sem eftir verða að starfa. Einnig áteljum við vinnubrögð Alþingis fyrir það að hafa ekki þeg- ar sett lög um stjómun fiskveiða, sem tekið hefðu gildi við upphaf nýs árs á grundveili frumvarps sjáv- arútvegsráðherra, sem hagsmuna- aðilar höfðu í meginatriðum sameinazt um.“ Morgunbladið/Bjöm Blöndal Börkur Birgisson í húsakynnum Knattborðsstofu Suðumesja sem er til húsa í Grófinni 8 í Keflavík. " t$0r CA PIOINIEER HUÓMTÆKI DANSSROLIAUÐAR HARAIDS ANTHONY TIMMS, kennari f rá Englandi, sem þjálfað hefur mörg helstu keppnispör Englands, kemur og kennir við skólann í 2 mánuði. Þeir nem endur sem áhuga hafa á einkatímum hafi samband sem fyrst. Barnadansar og samkvæmisdansar fyrir böm frá 3ja ára aldri. Ath! Innifalin í námskeiðunum em grímuböll. 4ra mánaða námskeið kr. 3600,- ROCK'NROLL 10 tima námskeið kr. 3200,- Kennum allt það nýjasta í suður- amerískum dönsum og „standard" dönsum fyrir byrjendur og framhald. Innritun alla daga í síma 656522 frá kl. 13-19. Kennsla hefst mánudaginn 11. janiíflr. Nemendur sem voru f yr- ir jól mæti á sama tíma á sama stað. Fjölskylduafsláttur. Meiriháttar jazz-dansar og lotur. Kennarar nýkomnir f rá London með allt það nýjasta. 4ra mánaða námskeið kr. 4400,- Kennslustaðir: Skeifan 17, Gerðubergi Breiðholti, KR-heimilið v/Frostaskjól. Hafnarfjörður: íþróttahús Hafnar- fjarðar v/Strandgötu. Keflavík: Hafnargötu 31. Innritun í síma 92-13030 alla virka daga frá kl. 16-19. D/t/VSS Auðar h a r a Félag íslenskra danskennara FÍO
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.