Morgunblaðið - 05.01.1988, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. JANÚAR 1988
27
Evrópumót skákmanna 16 ára og yngri:
Þresti dugar jafntefli
í síðustu umferðinni
AÍ:
Kenneth
Frampton
flytur fyr-
irlestur
KENNETH Frampton heldur
fyrirlestur á vegnm Arkitektafé-
lags íslands i Norræna húsinu í
kvöld, 5. janúar. Fyrirlesturinn
nefnist „Regionalism in Arc-
hitecture".
Kenneth Frampton er fæddur í
Englandi árið 1930 og stundaði
nám við Architectural Association
skólann í London. Hann hefur starf-
að jöfnum höndum sem arkitekt og
fræðimaður og er hann sem stendur
deildarforseti við arkitektadeild
Columbia-háskólans í New York.
Frampton hefur kennt við ýmsa
skóla, ritstýrt fagtímaritum og
sknfað bækur.
í fréttatilkynningu segir að Ken-
neth Frampton sé í hópi virtustu
sérfræðinga heims í þróunarsögu
nútíma arkitektúrs og einn eftir-
sóttasti fyrirlesari í arkitektaheim-
inum.
Fýrirlesturinn sem hefst kl. 20.00
verður í Norræna húsinu en ekki í
Asmundarsal eins og fram kom í
grein eftir Börk Bergmanii í Morg-
unblaðinu 31. desember sl.
Skíðalyfturnar
í Bláfjöllum:
Ný gjaldskrá
ákveðin
ÁKVEÐIN hefur verið gjaldskrá
fyrir skíðalyfturnar í Bláfjöllum
og mun nýja gjaldskráin gilda í
vetur.
í fréttatilkynningu frá Bláfjalla-
nefnd er sérstök athygli vakin á
að verð árskorta lækkar frá í fyrra,
en árskortin munu nú kosta kr.
5.000 fyrir fullorðna og kr. 2.500
fyrir börn, en kostuðu í fyrra kr.
5.700 og kr. 2.700. Er það von
nefndarinnar að lækkunin verði til
að auka sölu árskorta, öllum til
þæginda.
Dagkort kosta nú kr. 450 fyrir
fullorðna og kr. 200 fyrir böm.
Kvöldkort kosta kr. 350 fyrir full-
orðna og kr. 150 fyrir böm. Átta
miðar kosta kr. 200 fýrir fulorðna
og kr. 100 fyrir börn. Þá er einnig
hafin sala á svokölluðum æfinga-
kortum og er verð þeirra kr. 2.20.0.
ÞRESTI Árnasyni dugar jafn-
tefli í síðustu umferð Evrópu-
móts skákmanna 16 ára og yngri
í dag, til að tryggja sér sigur á
mótinu. Aðeins einn skákmaður
getur síðan komist upp fyrir
Þröst, þótt hann tapi síðustu
skákinni. Guðfríður Lilja Grét-
arsdóttir á möguleika á öðru
sæti í stúlknaflokki.
Þröstur gerði í gær jafntefli við
Appel frá Austur-Þýskalandi í 8.
umferð mótsins. í umferðunum á
undan tapaði hann fyrir Frakkanum
De Grave en vann ísraelann Boin.
Þröstur er með 6V2 vinning eftir 8
umferðir en hann vann fyrstu sex
skákimar. Næstir honum eru De
Grave, Boin og Markovic frá Pól-
landi með 5'/2 vinning. Þótt Þröstur
tapi síðustu skákinni og þessir þrír
ynnu getur aðeins De Grave komist
upp fyrir Þröst þar sem hann hefur
unnið hina tvo. í lokaumferðinni
mun Þröstur að öllum líkindum tefla
við skoskan pilt, sem nú er í 7-8.
sæti.
Guðfríður Lilja gerði jafntefli við
hollenska stúlku í gær eftir að hafa
haft unna stöðu en tapað henni nið-
ur í tímahraki. Júgóslavneska
stúlkan Bojkovic er efst í kvenna-
flokki með 7'/2 vinning en Guðfríður
Lilja er sú eina sem náð hefur af
henni stigi með jafntefli í 7. um-
ferð. 1 2-3. sæti eru tvær stúlkur
með 5V2 vinning en Guðfríður Lilja
kemur næst með 5 vinninga.
Þröstur teflir gegn Frakkanum De Grave.
Pressens Bild
Við stöndum með ykkur í baráttunni og komum
aukakílóunum fyrir kattarnef á heilsusamlegan
og skemmtilegan hátt.
'TÍ jí 'irA* V W ^
Ný námskeið að hefjast. Láttu skrá þig núna í síma 65-22-12.
Opið alla daga.
Megrunarleikfimi -
Líkam
Morgunleikfimi
Leikfimi fyrir barnshafandi konur
imi fyrir konur meft barn á
(low impact)
brjóstiB
Mjúk Erobik
Erobik án j
Old boys
.ilazzballett (5—1 5 ára)
Róleg kvennaleikfimi
Fimleikadans (5—14 ára)
36 peru Ijósabekkir með 3 andlits-
Ijósum. Vatnsgufubað.
Hjá okkur kenna eingöngu lærðir
íþróttakennarar.
Þú ert 7 mínútur úr Breiðholtinu.
Ukámsrært cx; ijos
BÆJARHRAUNI4 IVIÐ KERAVÍKURVECWNI SÍMI 65 2212