Morgunblaðið - 05.01.1988, Blaðsíða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. JANÚAR 1988
Tollalækkanir og
hagstæð magninnkaup:
15 til 40% verðlækkun á
26 vörutegundum.
Ball pentel 12 stk. i kassa áöur 744,- nú 520,-
Super ball 12 stk. I kassa áöur 828,- nú 580,-
Fineliner 12 stk. í kassa áöur 744,- nú 520,-
CHEŒE&-
Hallarmúla 2, S 83211
hagstæð magninnkaup:
15 til 40% verðlækkun á
26 vörutegundum.
DISKLINGAR „BULK“
25 stk. í pk. 5VV DS DD áöur 63,- pr. stk. nú 49,-
pr. stk.
CIS DISKLINGAR
CIS 51/<" DS DD 10 stk. i plastkassa áður 124,-
pr. stk. nú 93,- pr. stk.
CIS 5’/4" HD 10 stk. i plastkassa áður 304,- nú
221,- pr. stk.
CIS 3W DS 10 stk. I kassa, áöur 320,- pr. stk.
nú 229 pr. stk.
Hallarmúla 2, S 83211
$
flö PIONEER
ÚTVÖRP
Á að byggja ráðhús í
for, en
eftir
Leif Sveinsson
„Sérhver borg eða heimili, sem
sjálfu sér er sundurþykkt, fær eigi
staðist." (Matteus 12.25.)
Það er að bera í bakkafullan
Tjamarlækinn að auka enn við þær
ritsmíðar, sem samdar hefa verið
vegna byggingar ráðhúss í
Reykjavík. Þó leyfi ég mér að vitna:
í Nýja Testamentið og skora á
menn að rasa ekki um ráð fram í
þessu máli, þannig að aldrei verði
úr bætt.
Það er ekki einhugur um stað-
setningu ráðhússins við Tjömina.
Menn skiptast í tvo flokka með eða
á móti og ráða þar engar stjóm-
málaskoðanir afstöðu manna. Þess
vegna á að hætts við byggingu ráð-
húss á Bámlóð.
Auk þess vil ég benda á eftirfar-
andi atriði:
1. Óvíst er, hvort tæknilega sé
kleift að byggja húsið á 14 metra
djúpri for í Tjöminni, og þar
leiðbeinir guðspjallamaðurinn
Matteus einnig, því skrifað
stendur: „Hygginn maður bygg-
ir hús sitt á bjargi" (Matteus
7.24).
2. Rétt er að fresta byggingu ráð-
- húss vegna hættu á óðaverð-
bólgu, sem stafar m.a. af
byggingu of margra stórhýsa
samtímis.
3. Þeir húseigendur, sem byggðu
hús við friðsæla Ijamargötu á
fyrstu áratugum þessarar aldar
og afkomendur þeirra hljóta að
eiga einhvem rétt til þolanlegs
lífs. Nú er líf þeirra gert að víti
ekkia
Leifur Sveinsson
„Þeir húseigendur, sem
byggðu hús við friðsæla
Tjaraargötu á fyrstu
áratugnm þessarar ald-
ar og afkomendur
þeirra hljóta að eiga
einhvern rétt til þolan-
legs lífs.“
með hávaðamengun frá bifreið-
um og flugvélum, vinnuvélum
úr öllum áttum, en nú á að
hrekja þá endanlega burtu með
mengun þeirra, sem leiða mun
af aukinni bflaumferð vegna ráð-
hússbyggingarinnar. Bifreiðum
bjargi?
í Reýkjavík hefur fjölgað úr
24.000 árið 1970 í 64.000 árið
1986. Við Miklatorg er mengun
vegna útblásturs bifreiða komin
að hættumörkum. Á að gera
miðbæ Reykjavíkur sömu skil?
Borgarsjóður verður að gera sér
ljóst, að ef þessum ágangi held-
ur áfram, þá verður Reykjavík-
urborg að leysa þessi hús sín
og greiða fullar bætur fyrir.
4. Sköpum skiptir þó að leggja
Reykjavíkurflugvöll af, því þá
hverfur hávaðamengunin af
völdum flugvéla og nóg rými
verður á flugvallarsvæðinu fyrir
mikið ráðhús og'fima stórt ráð-
hústorg.
Þann 29. desember 1955 á 45
ára afmæli þáverandi borgarstjóra,
samþykkti borgarstjóm Reykjavík-
ur einróma að reisa stórhýsi í
Tjöminni og nefna ráðhús. Fyrir
skömmu reistu Reykvíkingar styttu
af Gunnari Thoroddsen á austur-
bakka Tjarnarinnar í þakklætis-
skyni fyrir, að hann lét ekki verða
af samþykktinni frá 1955. Verði
nú hætt við í annað sinn að hola
ráðhúsi niður í Tjömina, þá býð ég
lóð við Tjömina vestanverða til þess
að eia styttu af Davíð Oddssyni,
þannig að Reykvíkingar framtíðar-
innar geti haft fyrir augum minnis-
varða um tvo borgarstjóra, sem
vom svo vel af guði gerðir, að þeir
þrátt fyrir veldi sitt, hlustuðu eftir
röddum borgaranna og tóku söns-
um.
Höfundur er lögfrseðingur i
Reykjavík, tilheimilis i Tjamar-
götu 36