Morgunblaðið - 05.01.1988, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 05.01.1988, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. JANÚAR 1988 7 Unnið að reglugerð um eggj astjórnun FÉLÖG eggjabænda hafa óskað eftir því við landbúnaðarráð- herra að tekin verði upp stjórnun á eggjaframleiðslunni með fóð- urbætisskömmtun. í ráðuneytinu er verið að semja reglugerð um stjórnunina og býst Haukur Halldórsson formaður Stéttar- TOGARINN Gullver SU hélt til veiða skömmu eftir áramót án þess að hirt væri um að skrá áhöfnina, eins og reglur kveða á um. Hefur Landhelgisgæslan þegar gert viðeigandi ráðstafan- ir til að snúa skipinu til hafnar þegar til þess næst. Það var embætti sýslumannsins á Seyðisfirði sem gerði Landhelgis- gæslunni aðvart þegar uppvíst var sambands bænda við því að drög að henni verði í dag lögð fyrir fund framkvæmdanefndar Framleiðsluráðs til umsagnar. Eggjabændur eru í tveimur fé- lögum, Sambandi eggjaframleið- enda og Félagi alifuglabænda. Þessi félög hafa löngum deilt um fram- að Gullver hafði haldið til veiða án þess að skráning áhafnar hefði far- ið fram. Að sögn Jóns Magnússon- ar, lögmanns Landhelgisgæslunnar, mun togaranum þegar í stað verða vísað til hafnar í fylgd varðskips þegar til hans næst. Ekki var vitað nákvæmlega síðdegis í gær hvar Gullver var staddur, en Landhelgis- gæslan hafði þá gert viðeigandi ráðstafanir til að hafa upp á honum. leiðslumál en þau náðu samstöðu um framleiðslustjómun og óskuðu eftir henni í desember. Gert er ráð fyrir að stjómunin verði fram- kvæmd með endurgreiðslu fóður- gjalds. Bændur fá þá framleiðslu- rétt út á framleiðslu fyrstu 7 mánaða síðasta árs og endur- greiðslu fóðurgjalds út á fram- leiðslu innan þess marks. Þá hafa eggjabændur lagt til að framleiðslu- rétturinn verði eign viðkomandi bónda sem hann geti framselt öðr- um. Haukur Halldórsson segir að í framhaldi af takmörkun framleiðsl- unnar megi búast við að fram komi kröfur um að verðlagning eggja verði tekin úr höndum framleiðenda sjálfra og falin verðlagsnefndum landbúnaðarins. Kjúklingabændur hafa verið að vinna að útfærslu tillagna um hlið- stæða stjómun og eggjabændur, en undirbúningur þeirra er styttra á veg kominn. Landhelgisgæslan vísar Gullver SU til hafnar: Skráði ekki áhöfn VEÐURHORFUR í DAG, 5.01.88 YFIRLIT á hádegl f gær: 1022 mb hæð yfir Grænlandi en 975 mb lægðasvæfii vifi Skotland og strönd Noregs, þokast heldur austur. SPÁ: Noröaustankaldi eða stinningskaldi ó landinu. Lóttskýjað á Suðvestur- og Vesturlandi, annars skýjað og sums staðar él é Norður- og Austurlandi. Frost á bllinu 3—11 stlg. 1/EÐURHORFUR NÆSTU DAGA HORFUR Á MIÐVIKUDAC: Mínnkandi norðanótt og mjög kalt. Él á Norður- og Norðau9turlandi, en þurrt ó Suöur- og Vesturlandí. HORFUR Á FIMMTUDAG: Vaxandi suðaustanátt og snjókoma eða slydda á vestanverðu landinu, en hæg breytileg átt og léttskýjað á austanverðu landinu. Fremur kalt. Heiðskírt TÁKN: 0 a Léttskýjað & Hálfskýjað ák, Skýjað Alskýjað x Norðan, 4 vindstig: Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. / / / / / / / Rigning / / / * / * / * / * Slydda / * / * * * * * * * Snjókoma -j Q Hitastig: 10 gráður á Celsíus ý Skúrir. * V El = Þoka = Þokumóða ’ , ’ Súld OO Mistur —J- Skafrenningur Þrumuveður VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma Akurayri Reykjavík hiti +7 +7 veAur snjókoma heifiskírt Bergen 1 þoka Helsinki 3 alskýjaA Jan Mayen +24 skafrenningur Kaupmannah. e skýjaA Narsearssuaq +10 heiAskfrt Nuuk +6 snjókoma Osló 1 súld Stokkhólmur 4 alskýJaA Þórshöfn 3 skúrás. klst. Algarve 10 heiAskfrt Amsterdam 6 rigning Aþena vantar Barcelona vantar Berlln 7 léttskýjaA Chlcago +7 skýjaA Fsneyjar vantar Frankfurt 7 skúrásl.klst. Glasgow 2 skýjaA Hamborg 7 skúrásl. klst. Las Palmas vantar London 8 rigning Los Angeles 13 alskýjaA Lúxemborg 3 rignlng Madrld vantar Malaga vantar Mallorca vantar Montreal +6 alskýjaA NewYork 0 snjókoma París 8 rignlng Róm vantar Vín 4 skýjaA Washlngton +2 Iskorn Wlnnipeg +28 skafrenningur Valencia 10 léttskýjaA Morgunblaðið/Helena Isnjónum á Fáskrúðsfirði Seinkun söluskattslaganna: Kemur sérstaklega illa við kaupmenn - segja fulltrúar Kaupmannasam- takanna og Félags stórkaupmanna „ÞETTA kemur sérlega illa við þá stórkaupmenn sem þjóna at- vinnuvegunum, og þá sérstak- lega sjávarútveginum," sagði Árni Reynisson, framkvæmda- stjóri Félags fslenskra stórkaup- manna í samtali við Morgun- blaðið vegna þeirrar stöðu, að engar undanþáguheimildir frá söluskatti eru í gildi, þar til ný söluskattslög eru komin frá Al- þingi. Guðjón Oddsson, formaður Kaupmannasamtakanna taldi seinkun á nýjum söluskattslögum koma illa við sína félagsmenn, vegna mikillar vinnu við tvöfalt uppgjör. Ami Reynisson taldi þetta vera óþolandi biðstöðu fyrir stórkaup- menn, enda þyrftu margir að leysa út vörur í snatri, til dæmis fyrir skip sem væru að fara úr höfn. Þeirra viðskiptamenn yrðu síðan fyrir tilfmnanlegu tjóni við það að missa af endurgreiðslum. „Þing- menn virðast ekki hafa hugsað út í þetta þegar þeir frestuðu málinu fram yfir áramót," sagði Ámi. Eins og fram kom í frétt Morgun- blaðsins síðastliðinn sunnudag, lækkaði söluskattur um áramótin um 1%, úr 25% í 24%, vegna þess að þá féllu úr gildi lög um sér- stakan 1% söluskatt vegna fjár- mögnunar húsnæðislánakerfisins. Er það svo þar til ný söluskattslög hafa verið samþykkt. Guðjón Oddsson, formaður Kaupmannasamtakanna, sagði í samtali við Morgunblaðið að það væri svo sem ekkert nýtt að breytt söluskattsstig tæki gildi eftir að nýr mánuður væri hafinn og yrðu kaup- menn að taka þessu með jafnaðar- geði sem áður. „Menn eru hins vegar ekki sáttir við vinnubrögð sem þessi, enda er verið að gera mönnum erfiðara fyrir.“ Vegna mismunandi söluskattsprósentu verða kaupmenn að gera mánuðinn upp í tvennu lagi. Sagði Ámi að þetta þýddi mikla vinnu, þá sérstak- lega fyrir matvörukaupmenn og ykist hætta á vitleysum til mikilla muna við þetta. Guðjón taldi þann tíma er liði frá áramótum fram að gildistöku nýju laganna vera of stuttan og mismun- inn of lítinn, til þess að 1%-lækkunin hefði nokkur áhrif á verðlagið. Hvítanes farið til Portúgal: Rekstrartap Nesskipa áætlað 6-7 milljónir TAP Nesskipa vegna strands Hvítaness við Höfn í Hornafirði nemur um 6-7 milljónum, að sögn Guðmundar Ásgeirssonar forstjóra. Er þetta aðallega vegna rekstrartaps en skipið var á strandstað frá 22 desem- ber til 1. janúar. Kostnaður við að losa skipið af strandstað fell- ur á tryggingafélög skipsins og sagðist Guðmundur ekki vita hve mikill sá kostnaður yrði en það yrðu einhverjar milljónir. Hvítanesið losnaði af strandstað á nýársdag og sagði Guðmundur að skipið hefði ekki verið mikið skemmt. Gert var við skipið til bráðabirgða og átti það síðan að fara áleiðis til Portúgal og Spánar í gærkvöldi eða nótt. Skipið fer síðan í viðgerð. Hvítanes var með 1100 tonn af saltfiski innanborðs þegar það strandaði og var stórum hluta farmsins skipað upp í Ljósa- foss. Einnig komst vatn í neðstu saltfisklög á 87 brettum og verður sá saltfiskur endurunninn. Sjópróf vegna strandsins fóru fram í gær á Höfn. Guðmundur sagði að aðalorsök strandsins hefði verið talsvert innfall eftir að há- flæði var samkvæmt almanaki. Þegar skipinu var siglt inn í Hornafjarðarós og því beygt fyrir svokallaðan Amaifyörutanga, hafi aðfallið lent á skipinu og hrakið það upp á grynningar áður en það komst í innsiglingarrennuna. Guð- mundur sagði að hafnsögumaður hefði verið um borð.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.