Morgunblaðið - 14.01.1988, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. JANÚAR 1988
Ástralía:
Islensk kona
í fegurðar-
keppni giftra
kvenna
STEINUNN Bcnediktsdóttir, 35
ára gamall starfsmaður Spari-
sjóðs Hafnarfjarðar, tekur þátt
í Fegurðarsamkeppni giftra
kvenna sem haldin verður á
Golden Coast i nágrenni Bris-
bane í Ástraliu 3. febrúar nk.
Steinunn var valin af Unni
Arngrimsdóttur hjá Módelsam-
tökunum til að taka þátt i
keppninni fyrir Islands hðnd.
„Þetta er í annað sinn sem ég
sendi konu i þessa keppni," sagði
Unnur Amgrímsdóttir. „{ fyrra tók
Þórunn Elva Guðjohnsen þátt í
keppninni, sem þá var haldin á
Hawaiieyjum, og stóð sig mjög vel.
Steinunn hefur verið sýningar-
stúlka hjá mér í mörg ár og komið
fram erlendis, t.d. í Frakklandi,
Bretlandi og Noregi, þannig að hún
er sviðsvön," sagði Unnur.
„Keppnin leggst mjög vel í mig,“
Morgunblaðið/BAR
Steinunn Benediktsdóttir, þátt-
takandi í Fegurðarsamkeppni
giftra kvenna, sem haidin verð-
ur í Ástralíu 3. febrúar nk.
sagði Steinunn. „Þær sem taka
þátt f henni verða að vera orðnar
18 ára og búnar að vera giftar í
a.m.k. eitt ár.
Það má gjaman koma fram að
Flugieiðir og veitingahúsið Evrópa
styrkja mig til fararinnar," sagði
Steinunn sem á 15 ára gamla dótt-
ur og er gift Sverri Friðbjömssyni
póstafgreiðslumanni.
Verðlagsstofnun kannar vöruverð í kjölfar skattkerfisbreytinga:
Brauð hefur hækkað um 4-6%
umfram söluskattshækkun
BRAUÐ hafa að jafnaði hækkað um 4-6% meira en gert var ráð
fyrir vegna söluskatts- og vörugjaldsbreytinganna. Einnig hefur
komið í ljós, við verðkannanir Verðlagsstofnunar, að fleiri vörur
hafa hækkað umfram það sem gert var ráð fyrir vegna þessara
breytinga. Verðlagsstofnun hyggst birta niðurstöður úr verðkönnun-
um, sem nú eru gerðar, upp úr næstu helgi en ofangreint hefur
m.a. komið fram við þær kannanir. Áætlað er að gera skyndikannan-
ir á verði tvisvar í viku eins lengi og þurfa þykir og birta niðurstöð-
umar opinberlega.
Ríkisstjómin hefur beint því til
Verðlagsstofnunar að stofnunin
beiti öllum ráðum sem lög leyfí til
að tryggja að lækkanir á tollum og
vörugjöldum skili sér að fullu til
neytenda og að hækkun vöruverðs
vegna skattabreytinga fari hvergi
fram úr því sem hækkun skatta
gefi tilefni til. Jón Sigurðsson við-
skiptaráðherra kynnti þessi tilmæli
ríkisstjómarinnar á fréttamanna-
fundi í gær og sagði að með þeim
væri verið að fylgja eftir bréfí sem
hann sendi Verðlagsstofnun í des-
ember s.l. þar sem óskað var eftir
að stofnunin gerði sérstakar kann-
anir á vöruverð í tengslum við
þessar breytingar. í þeim mánuði
kannaði Verðlagsstofnun verðlag
sérstaklega og verður tekið mið af
þeirri könnun þegar verðbreytingar
em skoðaðar nú.
Jón sagði að ríkisstjómin beindi
því til verðlagsráðs og Verðlags-
stofnunar að verðlagsþróun verði
veitt strangt aðhald á næstunni
meðan þessar breytingar em að
ganga yfír og beiti í því skyni upp-
lýsingamiðlun og tíðum verðkönn-
unum og skirrist ekki við að frysta
álagningu ef brögð em að því að
verslanir hækki álagningu sína á
þessu viðkvæma tímaskeiði. Til
þessa fengi Verðlagsstofnun aukið
fjárframlag og mannafla ef þurfa
þætti.
Georg Ólafsson verðlagsstjóri
sagði á fundinum að með þessum
tilmælum hefði ríkisstjómin tekið
tímabundna pólítíska ákvörðun því
í stjómarsáttmála segði að stjórn-
völdum beri að hafa sem minnst
áhrif á verðmyndun. Það væri þó
ljóst að viss ringulréið eða misskiln-
ingur ríkti meðal kaupmanna vegna
þessara skattalagabreytinga og það
hefði kallað á þessi viðbrögð.
Guðmundur Sigurðsson deildar-
stjóri hjá Verðlagsstofnun nefndi á
fundinum að í ljós hefði komið við
kannanir undanfarna daga að brauð
hefðu almennt hækkað um 14-16%
en hefðu átt að hækka um rúm
10%. Þessi mismunur hefur verið
skýrður með kostnaðarhækkunum
sem ekki hefði verið búið að taka
tillit til í verði, og sumir kaupmenn
hafa sagt að ef söluskattshækkunin
hefði ekki komið til hefði verð-
hækkun vegna kostnaðarhækkana
orðið meiri en raun varð á.
Björgun breska flugmannsins:
Islenska ríkið
ber kostnaðinn
ÍSLENSKA ríkið ber allan kostn-
að vegna björgunar breska
flugmannsins sem nauðlenti á
sjónum við Snæfellsnes á laugar-
dagskvöldið. Það sama á við um
önnur björgunarstörf sem unnin
eru hér við land.
Pétur Einarsson flugmálastjóri
segir að ef bjarga þurfí fólki eða
aðstoða sé aldrei talað um hver
greiði kostnaðinn, það sé ríkisvaldið
sem gerir það.
„Þetta eru prýðilegar æfingar.
Við þurfum að halda uppi neyðar-
þjónustu og halda fólki í þjálfun og
ef ekkert gerist fara fram sérstakar
æfíngar," sagði Pétur.
Hann sagðist ekki sjá neina
ástæðu til að fara fram á að aðrir
greiddu fyrir þessa þjónustu, enda
væri það ekki oft sem eitthvað slíkt
gerðist. Margir teldu að flugmenn
og rjúpnaskyttur ættu að vera sérs-
taklega tryggðir, en hann væri ekki
talsmaður þeirrar skoðunar. Þess
væri krafíst i nokkrum löndum, til
dæmis í Grænlandi, þar sem leit
gæti orðið mun umfangsmeiri og
dýrari en til dæmis hér á landi.
Gunnar Bergsteinsson forstjóri
Landhelgisgæslunnar sagði að í
fyrstu grein laga um stofnunina
væri ákvæði um að henni bæri að
bjarga mannslífum. „íslenska ríkið
gerir út þessa þjónustu og hefur
ekki miðað við að sú útgerð standi
undir sér,“ sagði hann.
VEÐURHORFUR í DAG, 14.01.88
YFIRLIT kl. 15.00 í gær: Hæðarhryggur á leiö yfir ísland en lægð
á Grænlandshafi á hreyfingu norð-norð-austur.
SPÁ: í dag verður minnkandi norðan- og norð-austanátt á landinu
með éljum á Norður- og Austurlandi og norðantil á Vestfjörðum
en björtu veðri syðra.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA
HORFUR Á FÖSTUDAG: Framan af degi lítur út fyrir hæga, breyti-
lega átt og víða vægt frost inn til landsins, en síðdegis þykknar
upp með vaxandi suð-austan átt suö-vestanlands.
HÓRFUR Á LAUGARDAG: Stíf sunnanátt og hlýindi um allt land.
Rigning víða um land, síst á Norð-Austurlandi.
TÁKN:
Heiðskírt
Léttskýjað
Hálfskýjað
m Skýjað
Alskýjað
s, Norðan, 4 vindstig:
Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / #
/ * / * Slydda
/ * /
* * #
* * * # Snjókoma
* * *
10 Hitastig:
10 gráður á Celsius
V Skúrir
V éi
= Þoka
= Þokumóða
’ , ’ Súld
OO Mistur
—j- Skafrenningur
Þrumuveður
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12:00 í gær að ísl. tíma
Akureyri Reykjavík hltl +1 1 v«Aur snjókoma skýjað
Bergen 7 rignlng
Helsinki 3 þokumóða
Jan Mayen +9 hálfskýjað
Kaupmannah. 4 þokumóða
Narssarssuaq +8 snjókoma
Nuuk +8 úrkoma
Osló S skýjað
Stokkhólmur 3 skýjað
Þórshöfn 6 skúr
Algarve 13 alskýjað
Amsterdam 6 skýjað
Aþena 12 skýjað
Barcelona 10 þokumóða
Bertln 1 léttskýjað
Chicago +12 heiðskfrt
Feneyjar 6 þokumóða
Frankfurt 3 skýjað
Glasgow 8 háifskýjað
Hamborg 3 skýjað
Las Palmas vantar
London 8 rlgnlng
Los Angeles 10 léttskýjað
Luxemborg S skýjað
Ma.drid S rigning
Malaga 13 rigning
Mallorca 12 súld
Montreal 1 snjóél
NewYork 1 slydda
Parfs 9 alskýjað
Róm 11 rlgning
Vín 3 léttakýjað
Washington 2 mistur
Winnipeg +31 þoka
Valencla 12 alskýjað
Þ or skafli j ókst
um 8% milli ára
Heildarafli síðasta árs 1.577.599 lestir
ÞORSKAFLINN á síðasta ári
varð 375.940 lestir. Það er litlu
minna en spáð hafði verið, en
rúmum 8% meira en veiddist árið
áður. Loðnuafli varð 91.830 lest-
um minni en 1986 og heildarafl-
inn 42.525 lestum minni.
Botnfiskafli í heild jókst um
45.312 lestir milli áranna.
Heildaraflinn á síðasta ári varð
1.577.599 lestir, en var árið áður
1.620.124. Mismunurinn skýrist
fyrst og fremst af minni loðnuafla.
Veiðar á öðrum físktegundum \Jaru
í nær öllum tilfellum meiri 1987 en
1986. Þorskafli jókst úr 347.748
lestum í 375.940, afli af öðrum
botnfíski fór úr 261.167 lestum í
278.323 og rækjuafli jókst um 10%,
úr 30.398 í 33.806.
Aflinn í desember 1987 varð
33.068 lestum meiri en 1986 og
munar þar mestu um aukinn loðnu-
afla í mánuðinum. í desember 1986
veiddust 101.107 lestir af loðnu en
nú 136.990. Þorskaflinn í mánuðin-
um var nánast sá sami milli ára,
jókst úr 17.289 í 17.998 lestir, ann-
ar botnfiskafli jókst um rúmar
3.000 lestir. Síldarafli varð nú 5.220
lestir en var 1986 11.475. Síldar-
afli allt árið varð hins vegar meiri
1987 en 1986.