Morgunblaðið - 14.01.1988, Side 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. JANÚAR 1988
Komið aftan að
sveitarfélögunum
eftir Hjörleif
Guttormsson
Frumvarp til laga um breyt-
ingar á verkaskiptingu ríkis og
sveitarfélaga, sem nú liggur fyr-
ir Alþingi, felur í sér slæma
meðferð á þörfu máli. Þar er
löggjafinn að koma aftan að
sveitarfélögum og fleiri aðilum,
bæði hvað varðar fjármálaleg
samskipti og einstök verkefni.
Frumvarp þetta er af talsmönn-
um ríkisstjómarinnar sagt vera
byggt á áliti tveggja stjómskipaðra
nefnda, sem luku störfum sl. vor.
í þeim áttu einvörðungu sæti sveit-
arstjómarmenn og embættismenn
af höfuðborgarsvæðinu, en engir
fulltrúar af landsbyggðinni og úr
fámennari sveitarfélögum. Alit
nefndanna barst sveitarstjómar-
mönnum síðsumars 1987, en aðeins
fáar sveitarstjómir hafa tekið það
til umræðu. Þessi mál hafa því lítið
verið athuguð í einstökum sveitar-
stjómum, sem búa sem kunnugt
er við afar ólíkar aðstæður.
Eínlitur pakki
Fmmvarpið tekur heldur ekki á
tillögum nefndanna í heild, heldur
eru þar teknir út úr nokkrir mála-
flokkar, og sagt að um sé að ræða
fyrri áfanga af tveimur í tilfærslu
verkefna. I þessum áfanga er um
að ræða málefni fatlaðra, íþrótta-
mál, félagsheimili og æskulýðsmál,
dagvistarheimili, tónlistarskólar,
byggðasöfn, landshafnir og vatns-
veitur. Af þessum verkefnum em
það aðeins málefni fatlaðra, sem
leggja á til ríkisins. Hinir mála-
flokkamir, stofnkostnaður og
rekstur, eiga að færast yfir á sveit-
arfélögin. Létta á af ríkinu öllum
flárhagslegum skuldbindingum í því
'sambandi, nema hvað gert er ráð
fyrir einhveiju framlagi ríkisins í
íþróttasjóð.
Þetta er þannig all einlitur pakki,
þar sem ríkið kemur fram í gervi
skömmtunarstjórans. Það eitt út af
fyrir sig ætti að fá sveitarfélögin
til að staldra við og huga að sínum
hagsmunum.
Hveijir söfnuðu
í pakkann?
í athugasemdum með fmmvarp-
inu er þess getið, að frumvarpið sé
„samið um forgöngu ríkisstjómar-
innar. í fmmvarpinu em sameinað-
ar tillögur tveggja hópa. Ákvæði
I,—IX. kafla em samin af fulltrúum
menntamálaráðuneytis, félags-
málaráðuneytis, fjármálaráðuneytis
og fjárlaga- og hagsýslustofnunar“.
Þetta em kaflamir um verkefnatil-
flutninginn. „Ákvæði X. kafla (um
íjármálaþáttinn — innskot H.G.) og
bráðabirgðaákvæði em í meginat-
riðum byggð á tillögum nefndar
sem félagsmálaráðherra skipaði. í
þeirri nefnd vom Indriði H. Þorláks-
son, skrifstofustjóri tilnefndur af
fjármálaráðherra, Jón G. Tómas-
son, borgarritari, tilnefndur af
Sambandi íslenskra sveitarfélaga
og Húnbogi Þorsteinsson, skrif-
stofustjóri, tilnefndur af félags-
málaráðherra."
Við samningu frumvarpsins
eru það þannig eingöngu fulltrú-
ar ríkisvaldsins sem halda á
penna, nema Jón G. Tómasson.
Hann gerði hins vegar með bréfi
til félagsmálaráðherra sérstaka at-
hugasemd við málsmeðferð, þar
sem hann taldi að „þessi vinnubrögð
jaðri við fölsun."
Byijað á öfugnm enda
í athugasemdum með fmmvarp-
inu og af máli talsmanna þess á
Alþingi hefur mátt ráða, að hér
yrði um slétt skipti að ræða í fjár-
hagslegu tilliti. Vísað er til breyt-
inga á lögum um tekjustofna
sveitarfélaga, sem er einn liðurinn
í þessum „bandormi" ríkisstjómar-
innar. Samkvæmt þeim á að stofna
tvær nýjar deildir við Jöfnunarsjóð
sveitarfélaga, svokallaða sérdeild
og uppgjörsdeild. Um hina fyrri
fegir’ í fmmvarpinu (28. grein):
„Úr sérdeild sjóðsins skal greiða
framlög til jöfnunar milli sveitarfé-
laga vegna aukins kostnaðar
þeirra í Igolfar breytinga á verka-
skiptingu ríkis og sveitarfélaga frá
ársbyijun 1988. Greiðslur þessar
skulu inntar af hendi samkvæmt
reglugerð, sem félagsmálaráð-
herra setur í samráði við Samband
íslenskra sveitarfélaga. í reglugerð-
inni skal m.a. kveðið á um nánari
skilyrði fyrir greiðslum úr sérdeild
sjóðsins." Ekki hafa verið lögð fyr-
ir drög að nefndri reglugerð, aðeins
hugmyndir sem ekkert stjómvald
hefur tekið afstöðu til.
í athugasemdum með fmmvarp-
inu „er taliðað um 200 m. kr.
útgjöld færist frá ríki til sveitarfé-
laga en sveitarfélögunum em
jafnframt tryggðar auknar tekjur-
með meiri framlögum frá Jöfnunar-
sjóði sveitarfélaga". Þessi huggun
við sveitarfélögin er fólgin í því að
dregið er úr skerðingu ríkis-
valdsins á Jöfnunarsjóðnum, sem
Hjörleifur Guttormsson
„Þetta er þannig all ein-
litur pakki, þar sem
ríkið kemur fram í
g’ervi skömmtunar-
stjórans. Það eitt út af
fyrir sig ætti að fá
sveitarfélögin til að
staldra við og huga að
sínum hagsmunum.“
nemur „allt að 100 milljónum króna
til greiðslna til sérdeildar" á árinu
1988. Eftir sem áður er Jöfnun-
arsjóðurinn skertur verulega. í
athugasemdum með fmmvarpinu
er þó ekki hikað við að staðhæfa
um fjárhagsþáttinn, að „niðurstöð-
ur þessara athugana Fjármála-
nefndar benda til að fjárhagur
sveitarfélaganna muni fremur
styrkjast við verkefnaflutning og
breyttar úthlutunarreglur Jöfnun-
arsjóðs og er þá miðað við að
fjárveitingar til sjóðsins verði í sam-
ræmi við ákvæði laga um tekju-
stofna sveitarfélaga"!
Óljóst uppgjör
Uppgjörsdeild við Jöfnunarsjóð
sveitarfélaga „skal á ámnum 1988
til og með 1991 greiða sve.itarfélög-
um og félagasamtökum framlög
vegna áfallinna skuldbindinga ríkis-
sjóðs er rætur 'eiga að rekja til
framkvæmda við árslok 1987 við
félagsheimili, íþróttamannvirki og
dagheimili. Við mat á áföllnum
skuldbindingum ríkissjóðs í þessu
sambandi skal miða við reglur um
kostnaðarhlutdeild ríkissjóðs í þess-
um framkvæmdum er giltu til
ársloka 1987. Greiðslum úr upp-
gjörsdeild skal skipt af fjárveitinga-
nefnd milli þeirra sveitarfélaga og
félagasamtaka sem hér um ræðir,
að fengnum tillögum viðkomandi
ráðuneytis". (28. grein, b-liður.)
Við þetta er margt að athuga.
Samkvæmt athugasemdum með
frumvarpinu „er talið“ að „áætluð
skuld ríkissjóðs" vegna þessa upp-
gjörs „verði rúmlega 400 milljónir
króna“. „Stefnt er að því að þessi
skuld verði gerð upp með ríkis-
framlagi á næstu fjórum árum ...
eftir þvi sem fé er veitt til þess
í gegnum uppgjörsdeild Jöfnun-
arsjóðsins".
Ekkert heildstætt yfirlit liggur
fyrir um þetta uppgjör og aðeins
hafa verið nefndar slumptölur,
áætlaðar af ríkinu. Samt er í
ákvæði til bráðabirgða í frumvarp-
inu gert ráð fyrir fastri upphæð,
100 milljónum króna, sem færa
skal til uppgjörsdeildar Jöfnunar-
sjóðsins í þessu skyni. Engin
trygging er samkvæmt lögunum
ALLSKONAR
KRAKKAR
og allskonar úr
Vertu með í skemmtilegri keppni allra krakka, 6-11 og
12-16 ára. Teiknaðu eða búðu til líkan af úri eins og þér
dettur í hug og þú getur unnið ferð til Sviss eða nýtt
armbandsúr. Aðalverðlaunin verða ekki kynnt fyrr en í
lokakeppninni í Sviss, þegar keppt er til úrslita milli allra
Norðurlandanna. Hjá úrsmiðnum þínum færðu bækling með
r nánari upplýsingum um keppnina.
Best er að byrja strax - því ekki er ráð nema í tíma sé tekið.
Tillögur þurfa að vera komnar til úrsmiðsins eða í næsta
Iðnaðarbanka fyrir 6. febrúar 1988. Mundu að merkja tillöguna vel.
1927-1987
URSMIÐAFELAG ISLANDS
© Iðnaðarbankinn