Morgunblaðið - 14.01.1988, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. JANÚAR 1988
19
fyrir sveitarfélögin að ríkissjóður
ljúki þessu uppgjöri á fjórum árum
og sitthvað bendir til að hér sé
áætluð alltof lág upphæð í þessu
skyni.
Það er síðan kapítuli út af fyrir
sig, að ráðuneyti og flárveitinga-
nefiid Alþingi er ætlað að „skipta
greiðslum úr uppgjörsdeild", þannig
að fulltrúar viðkomandi sveitarfé-
laga munu eftir sem áður þurfa að
hlaupa á milli þessara aðila næstu
árin.
Í umræðu um þetta mál hefur
verið hampað athugun, sem gerð
hefur verið á heildaráhrifum
breyttrar verkaskiptingar á Qárhag
sveitarfélaga á Vesturlandi. Sú at-
hugun varðar ekki aðeins tillög-
ur samkvæmt frumvarpinu,
heldur stóra áfangann sem boð-
aður er síðar. Þá er sveitarfélögum
þar skipt niður í 8 flokka eftir íbúa-
flölda og gert ráð fyrir að með
sérstökum misháum framlögum úr
sérdeild Jöfnunarsjóðs verði þeim
bættur upp kostnaðarauki af
breyttri verkskiptingu. Niðurstöð-
umar eru taldar viðunandi fyrir
sveitarfélögin í heild, enda er þá
gengið út frá „að fjárveitingar
tii sjóðsins (Jöfnunarsjóðs) verði
i samræmi við ákvæði laga um
tekjustofna sveitarfélaga". Sjóð-
urinn hefur hins vegar í reynd verið
skertur verulega á undanfömum
ámm og er ekkert lát á þeirri stefnu
af hálfu ríkisvaldsins.
Illa valin verkefni
Fjárhagsdæmið sem rakið hefur
verið hér að ofan ætti að nægja til
að sannfæra menn um, að með fyr-
irliggjandi frumvarpi er rasað um
ráð fi-am. Sveitarfélögin verða að
fá skýrari heildarmynd áður en far-
ið er að lögfesta einstaka þætti.
Við þetta bætist, að sumt í tíllög-
um nefndanna um verkefnatil-
flutning er vafasamt út frá eðli
máls og einstaka þættir fráleitir.
Dæmi um hið síðast talda eru tón-
listarfræðsla og byggðasöfn.
Rétt er að taka það skýrt fram,
að ég tel fyllilega tímabært að
fara yfir og breyta verkaskipt-
ingu milli ríkis og sveitarfélaga
í ýmsum greinum. Alþýðubanda-
lagið hefur einmitt lagt áherslu á
valddreifingu, en fjárhagsleg og
lagaleg undirstaða verður að vera
reist á traustum grunni. Að mínu
mati hefði verið æskilegt að ráð-
stafa ýmsum svæðisbundnum
þáttum, sem ríkinu eru ætlaðir sam-
kvæmt fyrirliggjandi tillögum, til
millistigs í stjómkerfinu þ.e. til hér-
aða eða fylkja.
Hér er ekki rúm til að íjalla um_
einstakar tillögur um breytta verka-
skiptingu ríkis og sveitarfélaga.
Aðeins skal staðhæft, að mí^gar
þeirra þurfa mun nánari athugúnar
við, áður en tímabært sé að Alþingi
og sveitarfélög taki bindandi áF
stöðu til þeirra.
Kynningu vantar
á frumvarpinu
Það ber ekki vott um góðan
málstað, að talsmenn ríkisstjórn-
arinnar á Alþingi hafa staðið
þvert gegn því, að frumvarpið
um breytta verkaskiptíngu verði
sent út tíl umsagnar og kynning-
ar í sveitarstjómum og hjá fleiri
aðilum. Slíkt þykir þó að jafnaði
eðlilegt, þegar um lagasetningu er
að ræða, sem er einfaldari í sniðum
en þessi „bandormur". Ekki liggur
fyrir álit einnar einustu sveitar-
stjórnar á frumvarpinu, en
margar athugasemdir aðila, sem
komið hafa á fund félagsmála-
nefndar Neðri deildar.
Stjórnarandstaðan á Alþingi hef-
ur haldið uppi harðri gagnrýni á
frumvarpið og vinnubrögðin sem
því tengjast af hálfu stjómvalda.
Þeim þingmönnum fer fjölgandi í
stuðningsliði ríkisstjómarinnar,
sem taka uadir þessa gagnrýni.
Nú er það sveitarstjórnarmanna
að taka við sér og gera kröfu tíl
þess, að þeir fái að kynna sér
málavöxtu áður en lengra er
komið út í ófæmna.
Sinfóníuhljómsveit Islands:
Arlegir Vínartón-
leikar um helgina
ARLEGIR Vínartónleikar Sin-
fóníuhljómsveitar íslands verða
haldnir i íþróttahúsinu á Akra-
nesi föstudaginn 15. janúar kl.
20.30 og endurteknir i Há-
skólabíói á laugardag klukkan
17.00.
Að vanda verður efnisskrá vid
allra hæfi og Qölbreyttur tónlistar-
flutningur. Með hljómsveitinni
syngja .Kór Fjölbrautaskólans á
Akranesi og kirkjukórinn þar og
einsöngvari er austuríska sópran-
söngkonan Sylvana Dussmann.
Stjómandi á tónleikunum verður
austuríski stjómandinn og fiðluleik-
arinn Peter Guth, en kórstjóri er
Jón Ólafur Sigurðsson.
A efnisskrá verða polkar og vals-
ar eftir Johann Strauss yngri og
eldri og flutt verk úr óperunum
Leðurblökunni og Sigaunabarónin-
um. Til dæmis verður fluttur valsinn
„An der Schönen Blauen Donau"
fyrir kór og hljómsveit.
Stjómandinn, Peter Guth, nam
fyrst fiðluleik í Vínarborg og síðar
í þijú ár í Moskvu hjá David
Oistrach. Hann hefur tekið þátt í
tónleikaferðum um allan heim, leik-
ið inn á hljómplötur og unnið við
kennslu og kynnt nýja fiðlutækni.
Hann er mikill áhugamaður um
samtíðartónlist, en samt ekki síður
þekktur fyrir flutning á Vfnartón-
list. Hann hefiir sagt um hana:
„Hin tímalausa Vínartónlist, sem
þekkt er um allan heim og aldrei
tapar aðdráttaraflinu, er það list-
Peter Guth stjórnandi á Vínar-
tónleikum Sinfóníuhljómsveitar
íslands.
form sem einna jákvæðustu áhrif
hefur á fólk. Umhyggja fyrir henni
er mér alvarleg skylda sem tónlist-
armanni frá Vínarborg."
Auk þess að stjóma hljómsveit-
inni leikur Peter Guth á fíðlu í öllum
verkunum. Sylvana Dussmann, sem
er 26 ára sópransöngkona, er ný
stjama á uppleið í klassískum söng
og hefur náð miklum vinsældum í
heimalandi sínu, Austurríki.
(Úr fréttatilkynningu)
FR deild 4 tíu ára í dag
FR DEILD 4 er 10 ára í dag.
Deildin var stofnuð 14. janúar
1978 og var stofnfundurinn hald-
inn að Hlégarði í Mosfellssveit.
Á stofnfundinn mættu um 130
manns.
FR deild 4 hefur á þessum ámm,
sem liðin em, ávallt verið stærsta
deildin innan Félags farstöðvaeig-
enda á Islandi. Deildin hefur um
nokkurra ára skeið starfrækt FR
radio 5000 og nú hin síðari ár að
hluta til í samvinnu við landsstjóm
félagsins. Þessi starfsemi hefur
mælst mjög vel fyrir og er ekki
ofsögum sagt, að FR radio 5000
gegni mikilvægu hlutverki fyrir alla
FR-félaga sem leið eiga til
Reykjavíkur. Það sinnir því ekki
aðeins félögum deildarinnar.
Starf deildarinnar byggist fyrst
og fremst á því, að þetta er fjar-
skiptafélag. Þó hefur verið reynt
að halda uppi félagsstarfi með fé-
lagsvist og öðru slíku. Þeir sem til
þekkja telja að talstöðin sem í dag-
legu tali er kölluð FR-talstöð geti
verið hið þarfasta þing. Því er ekki
að leyna, að til em þeir sem líta
öðmvísi á málin og nota talstöð
sína aðeins til að skemma fyrir
öðmm. FR deild 4 telur, að eitt
brýnasta verkefnið sé að bæta
umgengnina í loftinu og að því er
stefnt. Laugardaginn 16. janúarnk.
kl. 15.00 verður boðið til afinælis-
kaffis í félagsheimili deildarinnar í
Dugguvogi 2.
Félagar deildarinnar og aðrir
velunnarar em hvattir til þess að
líta inn.
Núverandi formaður deildarinnar
er Tómas Ragnarsson FR 2170.
(Fréttatilkynning)
Við byrjum hvem dag /'„ heilsumánuðinum “ með lauflóttum morg-
unteygjum íKringlunni kl. 9.30 undir stjóm Janusar Guðlaugssonar
iþróttakennara. Þú getur gert þessar æfingar hér i Kringlunni
með okkur eða hvar sem er. Þær eru sérstaklega ætlaðar vinn-
andi fólki: íbúðinni, frystihúsinu, eldhúsinu, við tölvuna, ritvélina
eða núna meðan þú lest Moggann. Munið að gera þessar æfing-
ar rólega og anda eðlilega á meðan.
iht m
Þú hallar höfötnu rólega til skiptistil beggja hlióa.
‘I i I
Pá teygir þú hendumar
róiega upp til skiptis.
Siðan lyftir þú öxlunum
rólega upp og lætur
þærsigaafturnióur.
Loks heldur þO annarri
hendinni uppi og beygir
þig rólega til hliöar.
ídag kl. 9.30 mun Val-
geir Guðjónsson kynna
kínverskar alþýðu-
æfíngar. Á morgun
kemur Ingi Jakobsson
innanhússarkitekt i
heimsókn og verðurrætt
við hann um það hvernig
góð hönnun geti stuðlað
að betri heilsu. Hingað
kemur síðan gestur i
heimsókn á hverjum
morgni til mánaðamóta.
Vertu með okkur i lau-
fléttum morgunteygjum í
Kringlunni, á Bylgjunni
eða bara núna.
Dagskráin á „heilstutorgum "
Kringlunnar í dag,
fímmtudaginn 14. janúar, erþannig að öðru leyti og munu þá
eftirtaldir aðilar kynna starfsemi sína:
Kl. 15-19: Landlæknlsembættlð
Kl. 15-18: Melnatæknar
Kl. 14-16: LJósmæður
Kl. 15-17: Snyrtlfræðlngar
Komdu við ogfúðu ráð og upplýsingar hjá sérfrceöingum um
BETRIHEILSUÁ NÝJU ARI“ á „heilsutorgum “ Kringlunnar.
Starfsfólk Kringlunnar
OPINN FUNDUR A HOTEL SOGU I KVÖLD
Ástand og horfur í
efnahagsmálum
Framsóknarfélag Reykjavíkur efnir til fundaríkvöld,
fimmtudagskvöld, meö Steingrími Hermannssyni, for-
manni Framsóknarflokksins, íÁtthagasal Hótel Sögu
kl. 20.30.
Fundarefni: Ástand og horfur í efnahagsmálum.
Eftir framsöguræöu svarar Steingrímur Hermannsson
fyrrispurnum.
Fundarstjóri: Valdimar K. Jónsson, prófessor.
Allir velkomnir.
FRAMSÓKNARFÉLAG REYKJAVÍKUR
Höfundur er alþingismaður Al-
þýðubandalagsins fyrir Austur-
landskjördæmi.