Morgunblaðið - 14.01.1988, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. JANÚAR 1988
29
Finnland:
Koivisto vill ekki að f or-
setinn sitji fram í andlátið
Helsinki, frá Lars Lundsten, fréttaritara Morgunblaðsins.
MAUNO Koivisto Finnlandsforseta og’ forsetaefni jafnaðarmanna
og nokkurra annarra flokksbrota finnst það mjög óæskilegt, að for-
seti áítji um ótakmarkaðan fjölda kjörtímabila eins og fyrirrennari
hans Urho Kekkonen heitinn.
Koivisto sagði á kosningafundi
nýlega í Jyváskylá í Mið-Finnlandi
að hann hefði hringt í Kekkonen á
meðan stjómarmyndun stóð yfir
árið 1979 og allt í einu áttað sig á
því að gamli forsetinn væri ekki
lengur hæfur til að hafa forræði í
stjómarkreppu. Koivisto varð þá
forsætisráðherra og hann var síðar
kosinn forseti er Kekkonen veiktist
og lét af störfum 1981.
Koivisto sagðist oft hafa verið í
vandræðum sem forsætisráðherra
vegna þeirra erfiðleika sem elli for-
setans hefði haft í för með sér.
Almenningur varð var við togstreitu
milli forsetans og ríkisstjómarinn-
ar. Ríkisstjómin sigraði og þessi
„sigur" tryggði að vissu leyti kjör
Koivistos þegar Kekkonen var far-
inn frá.
Stefna Koivistos sem forseta hef-
ur verið að draga úr afskiptum
forsetans af daglegri stjórnsýslu.
Koivisto hefur lýst því yfir í kosn-
ingabaráttunni að hann vilji sjálfur
ekki gegna forsetaembætti nema í
tvö kjörtímabil. Hann bendir m.a.
á hve gott það sé fýrir forseta að
geta rætt við fyrirrennara sína um
alvarleg mál. En það tíðkaðist áður
fyrr að forsetar sátu ekki við völd
nema eitt eða tvö kjörtímabil. A
26 ára valdaskeiði Kekkonens var
fallið frá þeim sið.
Finnar kjósa forseta á sex ára
fresti. Tvö kjörtímabil eru því 12
ár, sem er 50% lengra en hámarks-
tími Bandaríkjaforseta. Hingað til
hafa ekki verið nein ákvæði í stjóm-
arskránni um takmörkun á endur-
lqori en Koivisto segist vera
reiðubúinn að samþykkja hana.
Koivisto signrviss
Mjög líklegt þykir að Koivisto
nái endurkjöri í forsetakosningun-
um um næstu mánaðamót. Skoð-
anakannanir sýna milli 50 og 60%
fylgi við hann. Samkvæmt stjórnar-
Sovétríkin:
Fjölmiðlar efli bar-
áttuþrek almennings
Ræða Gorbatsjovs vekur bjartsýni
ritsljóra og menntamanna
Moskvu, Reuter.
SOVÉSKIR ritstjórar og menntamenn virðast bjartsýnir eftir fund-
inn í síðustu viku, þar sem Gorbatsjov fullvissaði þá um að ekki
verði horfið frá umbótastefnunni. Ræða Gorbatsjovs hefur verið birt
í opinberum blöðum og í henni segir að umbótaáætlanirnar hafi
gefið vonum manna byr undir báða vængi, auk þess sem fjölmiðlar
eru hvattir til að efla baráttuvilja landsmanna sem mest á meðan á
efnahagslegum þrengingum standi.
Gorbatsjov segir í ræðunni að á
næstu þrem árum ráðist að miklu
leyti hvernig efnahagslegri og fé-
lagslegri umbótastefnu hans reiðir
af. Þótt mikið hafi áunnist frá því
hann hafi komist til valda árið 1985
séu Sovétríkin enn að uppskera
„ávexti stöðnunarinnar" sem fyrir-
rennarar hans hafi sáð og að erfiðir
tímar séu fyrir höndum áður en
efnahagsástandið batni. Hann segir
að umbótastefna hans hafi gefíð
vonum almennings byr undir báða
vængi og bætir við að eftirspum
Helmingur
V-Þjóðverja
með of næmi
RANNSÓKN á vegum sjúkrahúss
í Mönchengladbach hefur leitt í
ljós að 25 milljónir Vestur-Þjóð-
verja þjást af ofnæmi og astma
eða nær helmingur þjóðarinnar.
Algengasti ofnæmisvaldurinn er
myglusveppur sem finnst víða,
meðal annars í loftræstikerfum
og matvælum.
Hvatar úr myglusveppi eru not-
aðir við framleiðslu kartöflumjöls,
ávaxtamauks og ávaxtasafa. I við-
tali við Welt am Sonntag segir
Wolfgang Jorde ofnæmissérfræð-
ingur að hvatamir úr myglusvepp-
inum séu fjarlægðir að framleiðsl-
unni lokinni en alltaf verður
eitthvað eftir sem ofnæminu veldur.
Fimmta hvert ofnæmistilfelli má
rekja til litarefna og rotvarnarefna
í mat. „Ef við viljum áfram njóta
hinnar geysimiklu fjölbreytni í mat
þá verðum við að gera okkur ofnæ-
mið að góðu,“ segir Jorde að lokum.
skrárbreytingu sem nýlega tók gildi
er sá maður kosinn forseti sem fær
yfir 50% allra greiddra atkvæða.
Ef enginn fær hreinan meirihluta
verða kjörmenn að kjósa forseta
úr hópi þeirra sem vom í fram-
boði. Vegna þess, að Koivisto er
vinsælli meðal almennings en fylgi
Jafnaðarmannaflokksins gefur til
kynna, reyna stuðningsmenn hans
allt sem þeir geta til þess að tryggja
sigur hans í beinu kjöri.
Til þess að nýta stöðu sína sem
best sem forseti hóf Koivisto form-
lega kosningabaráttu sína seint.
Hann fór af stað í lok síðustu viku,
er atkvæðagreiðsla utan kjörstaða
var að hefjast í afskekktum hémð-
um í skeijagarðinum. Hinir íjórir
frambjóðendumir hafa barist um
Uhro Kekkonen
skeið og mörgum fínnst allt benda
til þess að keppinautar Koivistos
hafi eytt púðri sinu áður en barátt-
an hófst fyrir alvöru.
Almenningur sem hefur vanist
því að forsetinn sé frekar fáorður
og torráðinn hefur nú allt í einu
fengið að heyra Koivisto segja
brandara um sjálfan sig og hæðast
að andstæðingum sínum. Gagnrýni
hans á stjómarhætti Kekkonens
hefur einnig komið mörgum á óvart,
Mauno Koivisto
því hingað til hafa fáir þorað að
gagrýna þann forseta Finnlands
sem lengst hefur setið. Kaflinn úr
ræðu forsetans um hmmleika Kek-
konens var ekki í þeim hluta ræðu
hans sem dreift var fyrirfram til
blaðamanna.
Gagnrýni forsetans á Kekkonen
er einnig óbein gagnrýni á Paavo
Váyrynen fyrrum utanríkisráðherra
og núverandi forsetaefni Miðflokks-
ins. Váyrynen hefur reynt að feta
í sömu spor og Kekkonen.
eftir neysluvömm hafi aukist hrað-
ar en framboðið leyfi. Afleiðingam-
ar segir hann þær að nánast sé
skortur á öllu og því skorar hann
á fjölmiðla að auka baráttuþrek
almennings.
Gorbatsjov segir ennfremur að
stjómvöld hafí vanmetið umfang
spillingar og framtaksskorts í þjóð-
félaginu, sem Brezhnev er einkum
kennt um. Hann gagnrýnir einnig
Júrí Andropov og Konstantín
Tsjernenko og segir að laun hafi
hækkað 17% meira en framleiðni-
aukningin á ámnum 1981-84, sem
hann kallar „ógnvekjandi ár“. Þá
segir hann að umbótastefna hans
hafi aukið gæði og framleiðni í iðn-
aði, að hluta til vegna þess að
núverandi stjórnvöld hafi ákveðið
að stöðva „innflutningspláguna".
Hanrvvaraði við því að vegna lægra
olíuverðs og minni sölu á vodka
myndu þjóðartekjur ekki aukast
eins mikið og annars hefði orðið.
Fundurinn var haldinn eftir
nokkurra vikna svartsýnistímabil
meðal vinstrisinnaðrá mennta-
manna í kjölfar þess að Boris
Yeltsin var rekinn úr embætti leið-
toga Kommúnistaflokksins í
Moskvu. Af máli Gorbatsjovs mátti
ráða að Yeltsin væri einn þeirra
vinstrimanna sem héldu því fram
að umbótatilraunimar væm komn-
ar í strand og að skipta þyrfti um
embættismenn til að koma í veg
fyrir að þær yrðu að engu.
Fundargestir virðast mjög bjart-
sýnir eftir þennan fund. Rithöfund-
urinn Viktor Jerofeyev, sem skrifað
hefur nokkrar bækur sem hafa ver-
ið bannaðar, segir að andrúmsloftið
sé gott í augnabfikinu og skáldið
Andrei Voznessenskí segir að ræða
Gorbatsjovs hafi vakið almennan
áhuga fundargesta.
Japan:
Samþykkt að stóref la
herflotann á næstunni
Tókíó, Reuter.
RÁÐAMENN í sjóher Japana,
sem verður stöðugt öflugri, taka
undir þá staðhæfingu Noboru
Takeshita, forsætisráðherra Jap-
ans, að Japanir séu að taka á sig
hluta af byrði Bandaríkjanna í
vömum á Kyrrahafi. Forsætis-
ráðherrann og japönsku ráða-
mennirair sem nú era í
Washington munu og færa
Bandaríkjamönnum boð Japana
um að þeir vilji taka meiri þátt
í kostnaði af veru bandaríska
herliðsins í Japan.
Samkvæmt' upplýsingum jap-
önsku stjómarinnar em þessar
greiðslur sem Takeshita og Kawara
vamarmálaráðherra bjóða Banda-
ríkjamönnum óbeinar greiðslur fyrir
flotavernd sem Bandaríkjamenn
veita japönskum olíuskipum á Pers-
aflóa. Japanir hafa vaxandi
áhyggjur af auknum umsvifum sov-
éska hersins í Austur-Asíu og á
Kyrrahafi. Því ákvað stjórnin á
síðasta ári að hækka þak sem sett
var á fjárveitingar til hemaðar fyr-
ir tíu ámm.
Bandaríkjamenn hafa ámm sam-
an þrýst á Japani að efla her sinn
en án árangurs. Efasemdir ná-
granna Japans sem hafa bitra
reynslu úr síðari heimsstyijöldinni
og sterk andstaða meðal japanskra
vinstrisinna og fleiri hafa staðið í
vegi fyrir uppbuggingu japanska
hersins þar til nú að stjómin sam-
þykkir að stórefla japanska flotann.
Útgjöld til flotans aukin
Áætlun stjómar Takeshita um
endurreisn herflotans tekur gildi
1. apríl næstkomandi. Stjórnin hef-
ur samþykkt að veita 29 milljónum
dollara til flotans. Er það 5,2%
meira en veitt var til vamamála í
Japan á síðasta ári. Þetta er ann^ð
árið í röð sem útgjöld vegna hersins
fara fram úr því marki sem sett
var fyrir tíu ámm þegar ákveðið
var að framlög til hernaðar skyldu
ekki vera meiri en sem nemur 1%
af þjóðarframleiðslu. Ef við þessa
upphæð em lögð fjárútlát vegna
lífeyrisgreiðslna til hermanna, em
Japanir í þriðja sæti þegar litið er
á fjárframlög til hermála í heimin-
um. Aðeins Bandaríkin og Sovétrík-
in veija meim fé til þeirra mála.
Búist er við að fjárlagafmm-
varpið fari í gegnum japanska
þingið nær óbreytt þar sem Takes-
hita og flokkur hans hafa þar
hreinan meirihluta. Stjórnin hefur
samþykkt öll útgjaldaáform flotans
þar á meðal kaup á 7.200 tonna
herskipi af gerðinni Aegis, nýjum
árásarflugvélum, eldflaugum sem
skjóta má af landi á skip, tölvu-
væddum kafbátaleitar-þyrlum og
langdrægum radartækjum. Öll
þessi tæki miða að því að Japanir
geti varið lögsögu sina 1.000 sjómíl-
ur á haf út.
Yfirburðir í tækni
Stjómarskrá Japana kemur í veg
fyrir að þeir Sendi eigin herskip til
Persaflóa til að vemda olíuskip sín.
Samkvæmt stjómarskránni ráða
Japanir ekki yfir sjóher, heldur að-
eins því sem þeir sjálfír nefna „lið
til að veija siglingar á heimaslóð-
um.“ Tundurduflaflotann kalla þeir
„fylgdar-flota". Japanir búa yfir
mestri þekkingu allra á sviði há-
tækni vegna hemaðar. Svo miklir
em yfirburðir þeirra að bandarísk
fyrirtæki hafa leitað eftir aðstoð
Japana á sviðum leysi- og radar-
tækni.
Sjóher Japana hefur getið sér
sériega gott orð fyrir gagnkaf-
bátahernað á sameiginlegum
æfingum Japana og Bandaríkja-
manna. Eftir að við japanska
flotann bætast flugskeyti verður
hann íjölhæfasti floti heims, sem
bæði getur varist árásum flugvéla
og eldflauga. Nýlega var sagt frá
því í japanska dagblaðinu Yomiuri
Shimbun að i ráði væri að bæta við
flugmóðurskipum árið 1990 til að
auka loftvamir flotans. Eftir að
þessari áætlun um eflingu flotans
hefur verið hmndið í framkvæmd
verður hann öflugri en nokkm sinni
frá því í Kyrrahafs-stríðinu. Og
mun ekki eiga sinn líka utan Banda-
ríkjanna.
Vamarmálaskrifstofan í Japan
hefur í hyggju að koma upp, í sam
vinnu við Bandaríkjamenn, stjórn-
stöð fyrir gagnkafbátahemað. Með
því vilja þeir bæta upp þann skaða
sem óleyfiíeg sala Toshiba-fyrir
tækisins á hátæknibúnaði til
Sovétmanna olli á síðasta ári.
Bandaríkjamenn halda því fram að
Sovétmenn hafi notað búnaðinn til
að framleiða hljóðlátari skrúfur sem
geri erfiðara en ella að finna kaf-
báta.