Morgunblaðið - 26.02.1988, Page 2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. FEBRÚAR 1988
Ríkisútvarpið
leyst undan Rás 2
BIRGIR ísleifur Gunnarsson
menntamálaráðherra, segist ætla
að beita sér fyrir, að þeirri skyldu
verði létt af Ríkisútvarpinu, að
senda út tvær hljóðvarpsdag-
skrár.
Þetta kom fram í svari ráðherra
við fyrirspum frá Inga Bimi Alberts-
syni á Alþingi í gær, um hvort ráð-
herra hyggðist stuðla að sölu Rásar
2 eða leggja starfsemina niður. í
svári menntamálaráðherra segir:
„Samkvæmt 16. gr. útvarpslaga frá
1985 ber Ríkisútvarpinu skylda til
að senda út tvær hljóðvarpsdagskrár
til landsins alls og næstu miða. Dag-
skrárrásum verður ekki fækkað án
þess að Alþingi hafi áður samþykkt
bréytingu á áðumefndu ákvæði út-
varpslaganna.
Nú stendur yfir endurskoðun út-
varpslaga og er stefnt að því að
henni ljúki þannig að næsta haust
verði frumvarp lagt fram. Ég mun
beita mér fyrir því, að við þá endur-
skoðun verði þeirri skyldu létt af
Ríkisútvarpinu að senda út tvær
hljóðvarpsdagskrár. Fallist Aiþingi á
þetta sjónarmið er það sjálfstætt
úrlausnarefni hvemig vinna ber að
málum þegar sú stefnumörkun ligg-
ur fyrir. Það er ekki tímabært að
ræða það á þessu stigi.“
Skákmótið í Linares:
Jóhann gerði jafn-
tefli við Nicoíic
JÓHANN Hjartarson gerði jafn-
tefli við Júgóslavann Predrag
Nicolic eftir æsispennandi skák
í 3. umferð skákmótsins í Linar-
es. Aðeins fengust úrslit í þremur
skákum i umferðinnL
Leifur Jósteinsson fréttaritari
Morgunblaðsins í Linares sagði að
skák Jóhanns og Nicolic hefði verið
mjög spennandi og skemmtileg.
Jóhann, sem hafði svart, fómaði
skiptamun í 15. leik og fékk fyrir
hann frípeð og vænlega stöðu. Nic-
olic gaf skiptamuninn til baka á
réttu augnabliki og þá var kóngs-
staða Jóhanns orðin hálf veikluleg.
En Jóhann hélt sínum hlut, og eftir
40 leiki bauð Nicolic jafntefli sem
Jóhann þáði.
Beljavskíj vann Chandler í 3.
umferð og er efstur með 2*/2 vinn-
ing. Portisch og Georgiev gerðu
jafntefli en aðrar skákir fóm í bið.
Timman á unna skák gegn Nunn,
skák Ljubojevics og Illescas er jafn-
teflisleg og Júsupov hefur peði
meira gegn Tsjiburdanidze en skák-
in er samt jafiiteflisleg.
Jóhann komst að því í gær að
verðlaunaféð á mótinu skiptist lfkt
og á IBM skákmótinu í Reykjavík
í fyrra. Þannig skiptast 3 milljónir
peseta, eða um 1 milljón íslenskra
króna á milli allra keppendanna
eftir því í hvaða sæti þeir lenda.
Síðan skiptast 2 milljónir peseta,
eða um 700 þúsund íslenskar krón-
ur, milli þeirra í réttu hlutfalli við
unnar skákir. Þetta var keppendum
tilkynnt í bréfi, sem var á spönsku
og Ljúbojevic þýddi fyrir Jóhann í
gær.
■■ ■
■
y
- - • >. ,,v
Morgunblaðið/ Snorri Böðvarsson
Sprengingin varð þegar verið var að logsjóða gat á botni svartolíugeymisins. Hann er sjö metrar
á lengd og tveggja metra breiður.
Maður fórst þegar svartolíugeymir sprakk
RÚMLEGA fertugur maður lézt í Ólafsvík í
gær, þegar svartolíugeymir, sem hann var að
logsjóða, sprakk.
Maðurinn var starfsmaður Fiskimjölsverksmiðj-
unnar og var hann að logsjóða í gat á botni svart-
olfugeymisins. Við það myndaðist gas í geyminum,
sem olli sprengingunni en tankurinn var lokaður.
Botninn þeyttist úr geyminum og á manninn, sem
kastaðist 14 metra, og er talið, að hann hafí látist
samstundis.
Geymirinn er rúmir 7 metrar á lengd og tveggja
metra víður. Botninn úr honum þeyttist 40 metra
við sprenginguna.
Vanskilaskuldir Rík-
isskips 356 milljónir
Samgönguráðherra óskar eftir greinar-
gerð um fjárhagsstöðu útgerðarinnar
SAMGÖNGURÁÐHERRA, Matthfas Á. Matthiesen, hefur faríð þess á
leit við Rikisendurskoðun að gerð verði athugun á fjárhagsstöðu Skipaút-
gerðar ríkisins i kjölfar upplýsinga nm sivaxandi skuldir útgerðarinnar
við rikissjóð og Ríkisábyrgðasjóð. Samkvæmt heimildum Morgunblaðs-
ins nema uppsafnaðar vanskilaskuldir Skipaútgerðar ríkisins á árunum
1982 til 1987 um 356 milfjónum króna. Samgönguráðherra staðfesti i
samtali við Morgunblaðið að mál þetta hefði veríð til umfjöllunar i ráðu-
neytinu nú siðustu daga og jafnframt verið rætt tvisvar i ríkisstjórn.
, Skuldasöfnun Skipaútgerðar ríkis-
ins má rekja til áranna 1982 og
1983, þegar útgerðin stofnaði til
verulegra flárfestinga með kaupum
á tveimur skipum, Heklu og Öskju,
og smíði eins skips, Esju. Jafnframt
var byggð ný vöruskemma við
Reykjavíkurhöfn, sem tekin var í
notkun árið 1982. Samkvæmt heim-
ildum Morgunblaðsins nema skuldir
útgerðarinnar við fjármálaráðuneyt-
ið, vegna greiðslu afborgana af
skipakaupalánum og uppsafnaðra
launaskulda tæplega 73 milljónum
króna og vanskilaskuldir við Rfkis-
ábyrgðasjóð rúmlega 283 milljónum
króna. Samtals er þvf hér um að
ræða vanskil upp á 356 milljónir
króna og af þeim nema dráttarvextir
til Ríkisábyrgðasjóðs og launaskuldir
rúmum 168 milljónum króna eða um
47%.
Samgönguráðherra sagði að í
framhaldi af upplýsingum um erfiða
stöðu fyrirtækisins hefði hann óskað
eftir athugun og greinargerð ríkis-
endurskoðunar á fjárhagsstöðu
Skipaútgerðarinnar og orsökum
þessa uppsafnaða vanda, svo og
raunhæfu mati á efnahag fyrirtækis-
ins um síðustu áramót. Hann kvaðst
vænta þess að greinargerð þessari
yrði lokið sem fyrst, ekki síst með
hliðsjón af þvi að nú væri unnið að
sérstakri könnun á vegum ráðuneyt-
isins um framtíð strandflutninga, þar
á meðal þörf fyrir þjónustu Skipaút-
gerðarinnar og annarra strandsigl-
inga sem njóta ríkisstyrkja. Á fjár-
lögum 1988 er gert ráð fyrir 155
milljóna króna framlagi til Skipaút-
gerðar rfkisins.
Akureyri:
Kamilla Rún Ung-
frú Norðurland ’88
Akureyri.
KAMILLA Rún Jóhannsdóttir,
18 ára Akureyringur f 2. bekk
Menntaskólans á Akureyrí, var
kosin f Sjallanum f gær Ungfrú
Norðurland 1988, besta fjós-
myndaf yrirsætan og vinsælasta
stúlkan. Með sigrinum fær
Kamiila rétt til þátttöku S
Ungfrú ísiand-keppninni sem
haldin verður á Hótel íslandi í
maí nk.
Þeir sem skipuðu dómnefndina
voru Ólafur Laufdal veitingahúsa-
eigandi, Þráinn Lárusson veit-
ingamaður, María Einarsdóttir
verslunarstjóri, Erla Haraldsdóttir
danskennari og Friðþjófur Helga-
son ljósmyndari. Friðþjófur
Helgason og Guðmundur Svans-
son Ijósmyndarar völdu Kamillu
bestu ljósmyndafyrirsætuna og
hinir keppendumir kusu hana vin-
sælustu stúlkuna.
Jóhanna.
Morgunblaðið/Guðmundur Svansson.
Kamilla Rún Jóhannsdóttir
Bygginganefnd:
Ráðhúsið kynnt nágrönnimum
MEIRIHLUTI bygginganefndar
Reykjavíkur hefur samþykkt, að
vfsa væntanlegri ráðhússbygg-
ingu í fjögurra vikna grenndar-
kynningu. Fá þá eigendur nær-
liggjandi húsa tækifæri til að
leggja fram athugasemndir til
borgaryfirvalda. Minnihluti
bygginganefndar bókaði mót-
mæli og vildi fresta afgreiðslu
málsins á þeim forsendum að
þeim hefði ekki öllum verið gef-
inn kostur á að kynna sér málið.
„Það var samþykkt með þremur
atkvæðum gegn tveimur að senda
málið í grenndarkynningu og til
skipulagsnefndar," sagði Hilmar
Guðlaugsson formaður bygginga-
nefndar. „Fulltrúar minnihlutans
óskuðu eftir frestun og töldu það
hefð í bygginganefnd, að ef óskað
er eftir frestun í bygginganefiid
þá væri fallist á það en það hefur
aldrei verið hefð, að fresta málum
milli funda þegar um grenndar-
kynningu er að ræða. Grenndar-
kynning tekur einn mánuð og þann
tíma nota menn til að kynna sér
málið. Við ætluðum ekki að sam-
• þykkja eitt eða neitt á þessum
fundi."
Minnihlutinn ber það einnig fyrir
sig, að fulltrúi Alþýðuflokk8Íns í
nefndinni hafi ekki getað kynnt sér
fyrirhugaða ráðhússbyggingu.
„Hann hefur auðvitað ekki sérstöð
fram yfir aðra nefndarmenn," sagði
Hilmar. „Við fengum hönnuð bygg-
ingarinnar Margréti Harðardóttur
til að koma á fundinn og kynna
væntanlegt ráðhús og gerði hún
það mjög ýtarlega. Nefndarmenn
eru því allir jafn kunnugir þessu
eftir daginn í dag.“
Eigendur húsanna Tjanargata
5b til og með 18 fá tækifæri til
að láta skoðun sína í ljós ásamt
eigendum að Vonarstræti 10 og 12.
Reykjavíkurskákmótið:
Tíu skákmenn jafn-
ir með 2V2 vinning
Sigfússon, Míkhaíl Gurevitsj sem
vann Tisdall, Ralf Akeson og Walt-
er Browne sem gerðu jafntefli, og
eins Va8Ílios Kotronias og Carsten
Hoi sem gerðu jafntefli. Tíu skák-
menn eru síðan með 2 vinninga.
Skemmtilegasta skákin var milli
Hannesar Hlífars Stefánssonar og
Margeirs Péturssonar, en hún fór
í bið. Hannes tefldi skákina vel og
var lengstaf með mun betri stöðu.
Hann stendur enn betur í biðstöð-
unni en þó er talið að Margeir nái
að halda jafntefli.
TÍU skákmenn eru efstir og
jafnir með 2'/2 vinning eftir
þriðju umferð Reykjavíkur-
skákmótsins, og eru Helgi
Ólafsson, Jón L. Áraason og
Karl Þorsteins þar á meðal.
Helgi vann Torben Sörensen i
3. umferðinni í gærkvöldi og
Karl gerði jafntefli við Pol-
ugajevskíj. Jón L. vann Jón
Garðar Viðarsson eftir slæman
afleik Jóns G. í tímahraki.
Hinir skákmennimir I hópnum
eru Zsuzsa Polgar sem vann Daða