Morgunblaðið - 26.02.1988, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. FEBRÚAR 1988
Sælgætisverð lægra í matvöruverslunum en sölutumum:
Kemur á óvart en látum
ekki hanka okkur á því
- segir Sigurður Guðjónsson for
maður Félags söluturnaeigenda
FORMAÐUR Félags söluturna-
eigenda, Sigurður Guðjónsson,
sagði í samtali við Morgunblaðið
að sumir söluturnaeigendur
hefðu ekki lækkað verð á sæl-
gæti vegna þess að i turnum
þeirra væru ennþá sælgætis-
birgðir frá þvf fyrir jól en inn-
kaupsverð sælgætis lækkaði um
7 til 11% um sl. áramót vegna
lækkunar á vörugjaldi. Hann
sagði að það kæmi honum á
óvart að sælgætisverð í mat-
vöruverslunum væri lægra en í
söluturnum, eins og fram kom
í könnun Verðlagsstofnunar
sem gerð var 18. og 19. febrúar
sl. Hann sagði að Félag sölut-
urnaeigenda myndi funda um
þetta mál í næstu viku, því sölut-
urnaeigendur létu ekki hanka
sig á því að sælgætisverð væri
lægra í matvöruverslunum en
söluturnum.
„Ef það er rétt,“ sagði Sigurð-
ur, „að sælgætisverðið sé lægra í
sölutumum en matvöruverslunum
þá er það nýtilkomið. Það eru enn-
þá sælgætisbirgðir í sumum sölut-
umum frá því fyrir áramót og það
hefur því ekki verið hægt að lækka
sælgætisverðið í þeim. Sölutumar
kaupa mikið magn af sælgæti í
desember til að eiga nóg af því
yfír jólin og áramótin en salan
dettur svo niður í janúar. Við reyn-
um að geyma birgðimar á köldum
stað til að þær skemmist ekki. Ég
tel hins vegar að birgðimar séu
að verða búnar í sölutumunum og
þær sjálfsagt búnar í einhveijum
þeirra.
Það verður fundur um þetta mál
f Félagi sölutumaeigenda í næstu
viku, því við látum ekki hanka
okkur á því að sælgætisverðið sé
hærra í sölutumum en matvöru-
verslunum. Verðið þyrfti hins veg-
ar að vera hærra í sölutumum en
matvöruverslunum Vegna þess að
sölutumamir eru opnir lengur en
þær. Það er einnig mögulegt fyrir
margar matvöruverslanir að kaupa
inn mikið magn af sælgæti í einu
og fá þannig magnafslátt.
Ég geri ráð fyrir því að við höld-
um okkur við þá smásöluálagningu
sem við höfum haft, þ.e.a.s. 43%
á sælgæti, 28 til 29% á gosi og
12 til 13% á tóbaki. Einn og einn
freistast hins vegar til að bæta
einhveiju ofan á þetta. Sælgætis-
salan er ekki stærsti hlutinn af
heildarsölu flestra sölutuma, tó-
bakið er sennilega um 40 til 50%
af henni og gosið um 20 til 30%,“
sagði Sigurður.
VEÐURHORFUR í DAG, 26.2.88
YFIRLIT í gnr: Um 1300 km suðsuðvestur af landinu er 1042 mb
hæð en 1005 mb lægð um 300 km vestur af Vestfjörðum, fer
austur yfir norðanvert landið en skilur yfir sig lægðardrag vestur
á Grænlandshaf. Heldur er að hlýna í bili en kólnar dálítið norðan-
lands á morgun.
SPÁ: Vestan- og suðvestanátt um land allt, víðast kaldi eöa stinn-
ingskaldi. Súld eða rigning verður vestanlands, en sennilega slydda
á annesjum fyrir norðan. Á austanverðu landinu verður þurrt að
mestu.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA
HORFUR A LAUGARDAG og SUNNUDAG: Vestlæg átt og víðast
frostlaust. Rigning eða slydda um vestanvert landið, en úrkomulít-
ið austanlands.
TÁKN:
Heiðskírt
Léttskýjað
Hálfskýjað
Alskýjað
y, Norðan, 4 vindstig:
Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
10 Hitastig:
10 gráður á Celsius
ý Skúrir
*
V El
= Þoka
= Þokumóða
’ , ’ Súld
OO Mistur_
—[- Skafrenningur
[~<^ Þrumuveður
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12:00 í gær að ísl. tíma
Akureyri Raykjavfk hM 2 3 veóur alskýjað Þokumófia
Bergen 0 snjókoma
Heleinki +6 þokumóða
Jan Mayen +3 skafrennlngur
Kaupmannah. 2 þokumóða
Narasaresuaq 0 snjókoma
Nuuk +9 snjókoma
Osló +6 snjókoma
Stokkhólmur +3 snjókoma
Þórabðfn 6 hólfskýiafi
Algarve 14 helfiskfrt
Amsterdam 2 snjóól
Aþena 13 skýjað
Barcekma 12 Wttskýjafi
Berifn 4 snjókoma
urncago +10 Mttskýjafi
Feneyjar 8 Mttskýjað
Franlrfurt 2 skýjafi
OiasgoMf 3 slydda
Hamborg 2 snjóél
LasPalmaa 21 alskýjafi
London 4 skýjafi
LosAngeles 11 þokumóða
Lúxemborg 0 skýjafi
Madrid 7 Mttakýjað
Malaga 16 þokumóða
Mallorca 7 hálfskýjeð
Montreal +8 hátfskýjað
NewYofk 0 helðsklrt
París 2 skýjað
Róm 6 rigning
Vfn 0 snjókoma
. Washlngton 3 Mttskýjað
Winnlpeg 20 helðskfrt
Valencla 11 Mttskýjað
Morgunblaðið/Sverrir
Bókamarkaður íKringlunni
Bókamarkaður félags islenskra bókaútgefanda hófst á þriðju
hæð Kringlunnar i gær. Á fimmta þúsund titlar eru í boði á mark-
aðnum undir kjörorðinu „Gamla krónan i fullu gildi“.
Bókamarkaðurinn stendur til sunnudagsins 6. mars og verður opinn
mánudaga til fimmtudaga frá 10-19, föstudaga kl. 10-20, laugardaga
firá 10-18 og sunnudaga frá 12-18.
Átta ára fangelsi
fyrir manndráp
HÆSTIRÉTTUR hefur staðfest
dóm sakadóms Reykjavíkur yfir
Árna Óla Friðrikssyni, sem var
fundinn sekur um að hafa veitt
konu áverka, sem leiddu hana til
dauða. Árni Óli var dæmdur i 8
ára fangelsi.
Málsatvik voru þau, að Ámi Óli
réðst á hreyfihamlaða konu í íbúð
hennar að Hátúni 12 f Reykjavík,
þann 13. september 1986. Hann
felldi hana og barði höfði hennar
nokkrum sinnum f gólfið og ætlaði
sér að hafa samfarir við hana þrátt
fyrir óvilja hennar. Hann féll frá
því, en skildi konuna eftir líflitla,
eftir að hafa veitt henni höfuð-
höggin, sem drógu hana til dauða.
Konan fannst látin um IV2 sólar-
hring síðar.
Ekki þótti sannað að það hafi
verið ásetningur mannsins að svipta
konuna lífi. Hæstiréttur staðfesti
átta ára fangelsisdóm undirréttar
og var Áma Óla einnig gert að'
greiða allan sakarkostnað. Til frá-
dráttar refsingunni kemur gæslu-
varðhald hans frá miðjum september
1986.
Útsýn hættír við ferð
til Suður-Afríku
Ferðaskrifstofan Útsýn hefur
ákveðið að fella niður fyrirhug-
aða heimsreisu til Suður-Afríku
vegna tilmæla utanrikisráðherra.
Helgi Magnússon, forstjóri Útsýn-
ar, sagði í samtali við Morgun-
blaðið í gær að ferðaskrifstofan
væri hlutlaust og ópólitiskt fyrir-
tæki og hefði skipulagt heimsreis-
ur án tillits til stjómarfars við-
komandi rílga, en forsvarsmenn
Útsýnar teldu að það bæri að
virða tilmæli stjómvalda í þessu
sambandi.
í bréfi Steingríms Hermannsson-
. ar, utanríkisráðherra, til Félags
islenskra ferðaskrifstofa frá því á
þriðjudag segir m.a.: „í ljósi [stefnu'
ríkisstjómar íslands og rikisstjóma
Norðurlanda gagnvart Suður-
Afrikuj er það von mín að íslenskar
ferðaskrifstofur standi ekki fyrir
skipulögðum hópferðum íslendinga
til Suður-Afríku þar eð slíku má
jafna við atvinnustarfsemi á sama
hátt og vöruviðskiptum við Suður-
Afríku sem ég legg mikla áherslu á
að ekki fari fram meðan mannrétt-
indi svarta meirihlutans þar í landi
eru ekki virt og lýðræðislegu stjóm-
arfari komið á.“
V erslunarmannafélag Reykjavíkur:
Flug til Kölnar í
stað Luxemborgar
FYRIRHUGAÐUR samningur
Verslunarmannafélags
Reykjavíkur við Lion Air urn sum-
arleyfisferðir félagsmanna, hefur
verið tekinn til endurskoðunar
eftir að tilboðið breyttist. Boðið
er upp á flug til Kölnar í Vestur
Þýskalandi i stað Luxemborgar
eins og upphaflega var gert ráð
fyrir.
Að sögn Magnúsar L. Sveinssonar
formanns Verslunarmannafélagsins,
settu samningamenn Lion Air það
skilyrði þegar á reyndi, sem ekki var
í upphaflegu tilboði, um að samning-
urinn yrði gerður í gegnum flugfé-
lag. „Nú eru þeir búnir að staðfesta,
að þeir séu tilbúnir að standa við
sitt fyrra tilboð ef lent verði í Köln,“
sagði Magnús. Verslunarmannafé-
lagið mun næstu daga kanna hvort
gengið verður til samninga við Lion
Air.