Morgunblaðið - 26.02.1988, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. FEBRÚAR 1988
23
Reuter
Stuttur stans á strútsbaki
Suður-afriski landbúnaðarverkamaðurinn Gert Hendriks ætlaði
að nota strútinn sem reiðskjóta og hefur þá líklega haft í huga,
að „knapinn á hestbaki (eða strútsbaki) er kóngur um stund“,
en heldur varð upphefðin endaslepp eins og sjá má. Strútar
hafa verið nokkuð ræktaðir i Suður-Afríku vegna fjaðranna en
notkun þeirra og annarra náttúrulegra efna fer óðum minnk-
andi. Hafa þvi sumir brugðið á það ráð að temja fuglana og
nota til veðhlaupa. Eru þeir setnir í hlaupunum en það mun víst
ekki heiglum hent að fá þá til að halda réttu striki.
Endurminningar Gromýkos:
Mao áformaði að varpa
kjarnorkusprengjum
á bandaríska hermenn
New York, Reuter.
I endurminmngum Andreis
Gromýkos, forseta Sovétrikjanna,
sem bráðlega verða gefnar út í
■ Moskvu er sagt frá leynilegri
áætlun Kinveija frá árinu 1958
um að lokka bandarískt herlið inn
í Kina og láta siðan sovéskum
kjarnorkuvopnum rigna yfir það.
New York Times birti glefsur úr
endurminningunum i vikunni,
hafði blaðið fengið þær frá frétta-
ritara sinum í Moskvu.
Gromýko sem var utanríkisráð-
herra Sovétríkjanna frá árinu 1957
til 1985 segir að Mao Tse Tung leið-
togi Kínveija hafi leitað stuðnings
Sovétmanna við þessari áætlun gegn
Bandaríkjamönnum. Gromýko segist
hafa faríð leynilega til Peking í ágúst
áríð 1958 til að hafna tilboðinu. í
New York Times segir að viðræður
Gromýkos og Mao hafí verið þær
sömu og sovéskir sagnfræðingar
vitna til er þeir segja að Mao hafi
sagt að Kínveijar gætu lifað af Iq'am-
orkustyijöld. Mao á að hafa sagt að
jafnvel þó 300 milljónir Kínveija
færust í kjamorkustyijöld þá væri
nóg eftir af fólki til að beijast með
hefðbundnum vopnum gegn öllum
innrásarheijum. Samræðumar áttu
sér stað um það leyti sem samskipti
Kina og Sovétríkjanna fóru versn-
andi. Ári síðar drógu Kremlveijar til
baka loforð sitt um að sjá Mao fyrir
kjamorkuvopnum og sökuðu hann
um ábyrgðarleysi.
í endurminningum Gromýkos er
einnig minnst á fundi hans með
ýmsum leiðtogum Bandaríkjanna og
Sovétríkjanna en Gromýko er einn
reyndasti og harðsnúnasti samninga-
maður þessarar aldar með 48 ára
starfsferil að baki í utanríkisþjón-
ustunni. Hann var þrítugur árið 1939
þegar hann hóf störf í Washington.
Fjórum árum síðar varð hann sendi-
herra Sovétríkjanna þar í landi.
Ford steig' ekki í vitið
Hann lýsir Franklin Roosevelt for-
seta með aðdáun og segir hann hafa
haft einhvem „léttleikablæ sem bar
vitni innri þrótti sem nauðsynlegur
var til að leyna þungri sorg“. Gro-
mýko, sem margir vestrænir samn-
ingamenn óttuðust vegna þess hve
óútreiknanlegur hann var, er ómyrk-
ur í máli þegar aðrir bandarískir for-
setar eiga í hlut: Harry Truman
„leyfði honum ekki komast upp með
neinn dónaskap". Dwight Eisen-
hower „var ekki samkvæmur sjálfum
sér í utanríkismálum en undir lokin
virtist hann gera sér grein fyrir nauð-
syn friðsamlegrar sambúðar risa-
veldanna". Að sögn Gromýkos
Andrei Gromyko
gleymdi Nixon forseti allri hug-
myndafræði og Gerald Ford var sá
forsetanna sem hvað minnst átti
skylt við gáfumann. Jimmy Carter
er helst að minnast fyrir það að hann
gerði nokkrar misheppnaðar tilraunir
til að tala rússnesku.
Gromýko virðist hafa verið hrifínn
af John F. Kennedy og segir hann
hafa haft góða framkomu. Á hinn
bóginn fer hann hörðum orðum um
Henry Kissinger, fyrrum utanríkis-
ráðherra: „Kissinger er gæddur eig-
inleika sem hann lætur vera að geta
í eigin éndurminningum. Honum
veitist ótrúlega létt að laga sig að
valdaklíku hvers tíma án þess að
skeyta um eigin grundvallarviðhorf."
Ekki fer Gromýko mörgum orðum
um Ronald Reagan, núverandi for-
seta Bandaríkjanna" en segir að
Nancy Reagan sé „kraftmikil og full
sjálfstrausts".
Hvað sovéska leiðtoga varðar þá
má af orðum Gromýkos ráða að hann
hafí litið á Jósef Stalín sem velviljað-
an leiðtoga. Reyndar virðist svo sem
köflum hafí verið bætt inn í minnin-
gamar eftir að Gorbatsjov komst til
valda þar sem Stalín er gagnrýndur
harðlega.
Dauði Stalíns
Eins og fram kom í Morgunblaðinu
á þriðjudag hafa komið fram nýjar
úpplýsingar um það hvemig dauða
Stalíns bar að höndum. Hann fékk
heilablóðfall eftir að hafa farið í
gufubað sem var líkast til of heitt.
Sagnfræðingurinn sem greint hefur
frá þessum tildrögum andláts leið-
togans heitir Sergo Mikójan og er
sonur Anastas Mikójans sem var for-
seti Sovétríkjanna í valdatíð
Khrústsjovs.
SILKI
HINN SÍGILDI TÓNN
Styrkleiki 30 ára þróunar
HÖRPUSILKI, þessi
einstaka inni- og
útimálning, vakti
verðskuldaða athygli
fyrst þegar hún kom á
markaðinn, fyrir
slitþol og óvenju
mikla þekjueiginleika.
HÖRPUSILKI er þó
ekki sama málningin
nú og húnvar fyrir 30
árum. Hún hefur
þróast í takt við
tímann og kröfuharða
neytendur.
HÖRPUSILKI
- láttu reynsluna ráða.
HÖRPUSILKI er
akrýlbundin,
r vatnsþynnanleg
plastmálning með
5% gljástigi, auðveld
í notkun og þrifum og
litamöguleikarnir nær
óteljandi.
HARPA gefur lífinu lit.