Morgunblaðið - 26.02.1988, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. FEBRÚAR 1988
37
Skógey SF-53
Höfn:
Skógey SF-53 kemur
úr endurbyggingu
Höfn, Homafirði.
SKÓGEY SF-53 kom í síðustu
viku úr mikilli endurbyggingu til
Hafnar. Skógey er fimmti bátur-
inn, sem kemur úr endurbygg-
ingu nú á síðustu mánuðum.
Frá því í lok sfldveiða í haust,
eða síðast í nóvember, hefur bátur-
inn verið í Skipasmíðastöð
Njarðvíkur.
Þar var byggt yfir þilfarið, milli-
dekk klætt og einangrað, skutgálg-
ar settir upþ ásamt nýrri stýrivél
og sjálfstýringu. Endumýjað var í
vélarrúmi, meðal annars sett ný
ljósavél, þannig að allt er þar nýtt,
og rafmagnskerfíð var allt yfirfarið.
Áætlaður tími í stöðinni yar 10
vinnuvikur en vegna frosta ða veð-
urs tók verkið viku lengri tíma og
eru eigendur mjög sáttir við hversu
vel verkið vannst.
Báturinn heldur til netaveiða
strax á laugardag. Eigandi Skó-
geyjar er Haukur Runólfsson hf.
og skipsstjóri er Haukur Runólfs-
son. - JGG
Ályktun um brú yfir Dýrafjörð
Núpi, Dýrafirði.
HREPSSNEFNDIR Þingeyrar-
hrepps og Mýrahrepps í Vestur-
ísafjarðarsýslu héldu sameigin-
legan fund á Þingeyri 19. febrú-
ar sl. og gerðu þær eftirfarandi
ályktun:
„Sveitarstjómimar fagna
ákvarðanatöku um byggingu vegar
og brúar yfír Dýrafjörð, úr Lamba-
dalsodda.
Sveitarstjómimar beina þeim
eindregnu tilmælum til ráðherra
samgöngumála, alþingismanna
kjördæmisins og vegamálastjóra,
að. hafist verði handa nú þegar um
að ljúka undirbúningsvinnu og
hönnun mannvirkisins.
Ennfremur að unnið verði fyrir
yeitt fjárframlag þessa árs, þ.e. að
unnið verði að vegalagningu beggja
vegna fjarðarins að brúarstæðinu,
eftir því sem fjárframlag leyfír.
Fundurinn skorar á þingmenn
Vestfjarða að vinna ötullega að
útvegun fjárveitinga til að ljúka
þessu verki.
- Kári
Morgunblaðið/Kári Jónsson
Myndin er tekin við fyrirhugað stæði brúarinnar yfir Dýrafjörð
íeppni sex úrvalspara um sæti í
andsliði.
Pörin em þessi:
Aðalsteinn Jörgensen — ■
Ragnar Magnússon
Bjöm Eysteinsson —
Helgi Jóhannsson
lón Baldursson —
Valur Sigurðsson
Karl Sigurhjartarson —
Sævar Þorbjömsson
Sigurður Sverrisson —
Þorlákur Jónsson
Stefán Pálsson —
Rúnar Magnússon.
Keppni þessi verður sveitakeppni
3g hefst fyrri hluta marzmánaðar.
Spiluð verða a.m.k. 150 spil og að
keppni iokinni verður landsliðið val-
ið. Landsliðsnefnd áskilur sér allan
rétt við væntanlegt val, sem fyrir-
hugað er fyrri hluta aprflmánaðar.
Fréttatilkynning
frá Landsliðsnefnd.
Bridsfélag
Vestur-Húnvetninga
Hvammstanga
Aðalsveitakeppni félagsins er
lokið. Fyrir síðustu umferðina gátu
3 af fjórum sveitanna unnið keppn-
ina. Sveit Aðalbjöms Benediktsson-
ar hlaut .108 stig, sveit Halls Sig-
urðssonar 101, sveit Eggerts Levy
91 stig, Flemmings Jessen 57 stig,
í sveit Aðalbjamar em auk hans
Jóhannes Guðmannsson, Erlingur
Sverrisson og Unnar A. Guðmunds-
son. í sveit Halls Sigurðssonar auk
hans em Marteinn Reimarsson,
Bragi Arason og Ragnar Karl Inga-
son.
2. febrúar var spilaður 5 para
tvímenningur. Marteinn Reimars-
son og Hallur Sigurðsson unnu,
hlutu 55 stig.
9. febrúar var spiluð sveita-
keppni: Unnar Guðmundsson,
Ragnar Karl Ingason, Öm Guðjóns-
son og Einar Jónsson 16 stig gegn
14 stigum sveitar þeirra Jóhannesar
Guðmannssonar, Erlings Sverris-
sonar, Marteins Reimarssonar og
Halls Sigurðssonar.
16. febrúar var svo tvímennings-
keppni — 5 pör og sigmðu þá Unn-
ar Guðmundsson og Erlingur Sverr-
isson, hlutu 52 stig, og Ragnar
Karl Ingason og Bragi Arason sem
hlutu einnig 52 stig.
Grímuball á Hólmavík
H&lmavík.
GRÍMUBALL fyrir börnin
var haldið á öskudagskvöld í
félagsheimilinu á Hólmavík.
Verðlaun vora veitt fyrir þrjá
fallegustu og frumlegustu bún-
ingana. Fyrstu verðlaun hlutu
grænar geimvemr, er vom al-
settar rauðum blikkljósum.
Ballið hófst kl. 20 og mættu
mjög margir. Bömin vom á öll-
um aldri, það yngsta tveggja
ára. Yngstu bömin, smáfólkið,
gaf þeim eldri ekkert eftir í dans-
inum og búningar þeirra vom
síst lakari en hinna. Margir for-
eldrar fylgdu bömum sínum og
afí og amma vom þar líka.
Grímuballinu lauk kl. 22 og
vom það. ánægð, en jafnframt
þreytt böm, er héldu heim á leið.
- Baldur Rafn
Morgunblaðið/Baldur R. Sigurðsson
Geimverur þessar hlutu fyrstu verðlaun á grímuballinu.
Aðalfundur Garðyrkjubændafélags Borgarfjarðar:
Miklar vonir bundnar við nýjan
uppboðsmarkað Sölufélagsins
Kleppjárnareylqum.
AÐALFUNDUR Garðyrlgu-
bændafélags Borgarfjarðar
var haldinn 19. febrúar. Auk
venjulegra aðalf undarstarfa
var Garðar Árnason nýráðinn
garðyrkjuráðunautur Búnað-
arfélags íslands á fundinum.
Aðalmál fundarins var um þau
áhrif sem tollabreytingar og sölu-
skattsbreytingar, sem ríkisstjómin
samþykkti í vetur, hefðu á sam-
keppnisstöðu okkar. En innflutt
grænmeti lækkar nokkuð í verði
og innlent hækkar sem nemur
söluskatti. Gerir þetta stöðu garð-
yrkjunnar verri í samkeppninni við
innflutt niðurgreitt grænmeti.
Töldu fundarmenn innlent græn-
meti svo miklu betra að gæðum
og ferskara auk þess að það er
að mestu laust við eiturefni að
neytendur veltu því ekki fyrir sér
að kaupa fsienskt grænmeti.
Nokkuð var fjallað um nýjan
uppboðsmarkað sem tekur senn
til starfa á vegum Sölufélags garð-
yrkjumanna. Em bundnar miklar
vonir við markaðinn þar sem versl-
unarfrelsinu er fullnægt eins og
hægt er og ættu því neytendasam-
tökin að verða nokkuð ánægð með
þá stefnu sem mörkuð hefur verið
í sölu á grænmeti.
Garðar Ámason hefur verið ráð-
in fyrir nokkm sem garðyrkju-
ráðunautur hjá Búnaðarfélagi ís-
lands. Tók hann við starfi af Óla
Val Hanssyni sem látið hefur af
störfum. Garðar flutti erindi um
ræktun á tómötum og papriku og
það nýjasta sem er á döfínni til
að bæta og auka uppskeruna.
Einnig flutti hann okkur erindi um
notkun koltvísýrings við ræktun,
en það er að verða nokkuð algengt
að garðyrlcjubændur noti hreinan
koltvísýring frá sjóefnavinnslunni
á Reykjanesi í gróðurhúsin sín.
Aðalsteinn Símonarson á Lauf-
skálum var gerður að heiðursfé-
laga en alls era fjórir heiðursfélag-
ar í félaginu: auk Aðalsteins þau
Anna Sigfúsdóttir frá Skrúð, Sig-
urborg Þorleifsdóttir frá Björk og
Benedikt Guðlaugsson frá Víði-
gerði.
í stjóm Garðyrkjubændafélags
Borgarfjarðar sitja Þórður Þórðar-
son, Reit, Kári Aðalsteinsson,
Atthaga-
félag Sand-
ara með
árshátíð
ÁTTHAGAFÉLAG Sandara
heldur árshátíð sína nk. laugar-
dag, 27. febrúar i Félagsheimili
Seltjarnarness.
Boðið verður upp á þorrmat,
skemmtiatriði og dans. Aðalræðu
kvöldsins flytur Bjami Ansnes fyrr-
um skólastjóri á Hellissandi. Flutt
verður gamanmál eftir Kristin
Kristjánsson kennara og Soffía
Guðmundsdóttir og Sverrir Berg-
mann skemmta með söng.
Heiðursgestir Sandarafélagsins
að þessu sinni verða hjónin Guðrún
Guðlaugsdóttir og Vigfús Pétursson
en þau hafa alla tíð átt heima á
Hellissandi.
Að loknu borðhaldi og léttri dag-
skrá skemmtir hljómsveitin Upp-
lyfting til kl. hálf þrú e.m.
Laufskálum, og Bemhard Jóhann-
esson, Sólbyrgi.
— Bemhard
SANDVIK
HANDVERKFÆRI
Fást í öllum helstu
byggingavöruverslunum
um allt land