Morgunblaðið - 26.02.1988, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. FEBRÚAR 1988
47
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
1691282 KL. 10-12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
Bílatryggingar:
Rannsaka þarf for
sendur hækkana
Til Velvakanda.
Það má heita árviss viðburður
að tryggingafélögin þykist þurfa
að fá meiri peninga úr vösum bif-
reiðaeigenda.
Oftast nær er tjónakostnaðurinn
sem stunið er undan og satt er það
að mörg verða slysin og dýr.
Núna 1. mars eða á sama tíma
og reikningsár tryggingafélaganna
byijar taka nú umferðarlög gildi
og nota tryggingafélögin það óspart
kröfum sínum til stuðnings en með
nýjum lögum fellur burt greiðsla
sjálfsáhættu af ábyrgðartrygging-
um og tryggingarsvið er víkkað út.
En ég og sjálfsagt fleiri eru þeirr-
ar skoðunar að ekki sé allt sem
sýnist.
Undanfarin ár hefur bifreiðaeign
landsmanna aukist gífurlega og al-
gengt er að tveir eða jafnvel þrír
bflar séu á heimili.
Það er því ljóst að nú þegar
sækja tryggingafélögin stærri fúlg-
ur en áður var í vasa almennings
og heimilanna þrátt fyrir að áhætta
hafí ekki vaxið að sama skapi, því
vitað er að þó slysum hafi fjölgað
er það ekki nærri því í sama takti
og fjölgun bifreiða hefur verið.
Skora ég því á stjómvöld að
kanna vel hvemig öllum þessum
málum er háttað áður en leyfðar
verða umtalsverðar hækkanir á ið-
gjöldum ábyrgðartrygginga.
Snorri Bjarnason,
ökukennari.
Gulbröndótt læða
Þetta er mynd af henni Skottu.
Hún á heima í Njörvasundi 24.
Skotta hefur ekki sést síðan 22.
febrúar. Hún er ómerkt, gulbrönd-
ótt og hvít en hefur appelsínugula
ól um hálsinn. Þeir sem orðið hafa
hennar varir vinsamlegast hringi í
síma 33077.
Burt með kennitöluna
S.Þ. hringdi:
„Ég vil taka undir það sem
fram kemur í greininni „Mótmæl-
um kennitölu" er birtist í Velvak-
anda laugardaginn 20. febrúar.
Ég er sammála höfundi greinar-
innar um að ótækt sé að skylda
fólk til að gefa upp aldur sinn í
tíma og ótíma. Éflaust stendur
mörgum á sama en það eru líka
margir sem kæra sig ekkert um
að gefa upp aldur sinn. Ég hvet
fólk til að láta þetta ekki yfír sig
ganga. Burt með kennitöluna."
Upplýsingaskylda
afgreiðslufólks
Bjarni Valdimarsson hringdi:
„Er Alþingi að innleiða anda
laga einræðisríkja um aðstoð við
skæruliða með upplýsingaskyldu
afgreiðslufólks um ölvun við akst-
Mótmælum kenmtölu
K*ri VehrakandL
Landsmenn hafa nú rétt fengið
snýðrþefinn af notkun kennitólu (
1 nsfnnúmers. Enn aem komið er
notar einungia hið opinbers og fáein
fyrirtæki kennitölu, en hugmyndin
er, að kennitala ryðji nafhnúmeri
viðaat hvar úr vegi innan akamma.
Einhvem veginn gnmar mig, að fleir-
um en mér aé nú farið að finnast
það hekiur Utið tilhlökkunarefni að
þurfa ai og ae að aegja til um aldur
■inn. Við hðfum einungia fengið for-
amekkinn af því aem koma akal.
Uörgu fólki, ekki aíst konum, að ég
hygg, mun þykja þetta hvimleitt, upp
f það að vera óþolandi, og ef ekki (
byrjun, þá slðar á ævinnl
Þegar hið opinbera kynnti kenni-
töluna fyrir um það bil tveim árum,
varö nokkur umraeða um nauðayn
menn, þö að yfirbðfuð enga knýjandi
nauðayn beri tíL Nú man ég ekíd 5U
rök með og á mótí kennitölu úr
umrapAinni forðum, en það er ahreg
Uöat að þeasi kerfiabreyting er ekk-
ert nauðaynjamli, og þar að auki
■törkoatlega knatnaðaraðm. Hin ein-
faida lauan þess máls er, eina og
bent befur verið á, að nota áfram
nafnnúmer, að þvl alepptu að ekki
er iengur unnt að úthluta nafnnúm-
erum þannig að þau fyigi nöfnum (
Btafrófsröð. Þeaai eiginiriki akiptír (
fæstum tilfellum nokkru máii, og
hann er nú ekld dýrmaetari en gvo,
að kcnnitalan hefur hann ekki.
Notkun kennitölu er enn nýög Iftil
og enn er lag að stöðva þeaaa óa-
vinnu. Ég veit að margir aðrir en
ég hafa nú fyrst áttað aig á, hvað
þeir em að fá yfir aig. Ég akora á
Aðrir aöilar eiga að fyigja eftir, og
mér hefur ekki tekiat aö finna neinn
aem aér hag I breytingunnl Ég hvet
einkaaðila til að akoða ábyrgö aina,
áhrifamátt og hagamuni ( þeaau
máli, en láta *frki teyma sig út f vit-
leysuna. Ég vfl benda á, að ef hið
opinbera þumbast við þrátt fyrir
mótmæli, þá geU einkaaðflar aamt
firrt landsmenn þeaau ótánl að miklu
leyti. Hið opinbera hyggat hætU að
gefa út nafnnúmer í áralok. Fari
svo’ geU Ld. cinhver samtök f einka-
geiranum aéð um alflta útgáfii. Mörg
fyriitseki mundu apara aér vemlegan
koatnað við kerfiabreytínguna. Um
einhvern aukakoatnað gmii að vlsu
orðið um að raeða ( aumum þeim til-
vikum, þegar einkaaðilinn þarf að
akipU við hið opinbera, en ég vil þá
ur? Er það í þágu kvenna og
æskulýðs, sem oft stunda af-
greiðslustörf og bensínafgreiðslu,
að etja þeim gegn drykkjusvolum
sem sveija að hefna sín?“
Góðir neytendaþættir á
Stöð2
Húsmóðir hringdi:
„Ég vil þakka Kristínu Kvaran
fyrir frábæra þætti um neytenda-
mál á Stöð 2. Þessir pislar hennar
mætu gjaman vera oftar og ættu
forráðamenn Stöðvar 2 að athuga
hvort það væri ekki hægt. 011
umfjöllun um neytendamál er
ákaflega þörf, ekki síst nú þegar
verðbólga og matarskattur hafa
rýrt mjög afkomu alls almenn-
ings.“
Notuð föt
Kona hringdi og spurðist fyrir
um hvort einhver verslun i
Reykjavík tæki notuð fot í sölu.
Plastpoki
Plastpoki með handklæði,
sundskýlu og gleraugum fannst í
Skeiðarvogi fyrir skömmu. Upp-
lýsingar í síma 36466.
Gleraugu
Ljósbrún gleraugu töpuðust á
sunnudagskvöld við Háskólabíó.
Finnandi vinsamlegast hringi í
síma 78716. Fundarlaun.
Er ekki rétt að
fara að rumska?
Heiðraði Velvakandi.
Vinur minn heimsótti mig um
daginn. Ja, nú er það svart, sagði
hann. Hugsaðu þér:
í mesta góðæri landsins er allt í
standandi vandræðum. Erlendar
skuldir hrúgast upp og hafa aldrei
verið blómlegri... Greiðslujöfnuð-
urinn mínus og allir plúsar hverf-
andi. . . Landbúnaðurinn kominn
langt niður í jörðina og þegnamir
þ.e. „fijálsræðishetjumar góðu“
heimta erlenda kjúklinga og egg.
Nýbúgreinar allar í vaski gráta
framan í stjómvöld. Laxaseyði flutt
á erlendan vettvang, vitanlega til
að auka samkeppnina og hjálpa
Islendingum til að eiga sinn lax
heima. Sjávarútvegurinn og físk-
vinnslan í marandi ,kafí. Bátum
ijölgað á minnkandi sjávarafla og
kvótamir úti að aka. Iðnaður á nú
sitt' undir Rússanum, sérstaklega
úr ull. Bflainnflutningur setur fhet
mánaðarlega og auðvitað er verslað
út á VISA og KRÍT.
Utanlandsferðir á fullri fart svo
jafnvel BSRB og önnur þjóðleg
samtök komast ekki lengur fyrir í
flugvélum flugleiða eða Amarflugs
og flýja á náðir hjálpartækja ann-
arra landa og ferðaskrifstofum
fjölgar og fjölgar ...
Samningar laqsir, sjónarmiðum
fjölgar, tölvur og heilabú malandi
allan daginn og enginn niðurstaða.
Það sjá allir heilvita menn ef hin
vinnandi hönd skapandi arðinn, fær
of mikla umbun, setur það þjóð-
félagið beint á hausinn, gagnstætt
þeim sem púla í opinbera geiranum
og í braskinu, hinum fijálsa mark-
aðsgeira því hann hreyfír ekkert.
Aldrei hafa verið fleiri gjaldþrot.
Mannafla vantar til að gera þau
upp og voru þó margir fyrir.
Launamismunur alltaf að þenjast
út, óslqalfestanlegur. Allir vita
þetta en enginn sér það. Stað-
greiðslukerfí skatta hrópar á heilar
stormsveitir ... og söluskatturinn
lækkar verðlagið nema hjá þeim
sem borga hann. Mjög einfalt. Og
innsigluðu kassamir — svartir kass-
ar — og allir eins ... Lögbirtingar-
blaðið tútnar út. Og vimugjafar ein-
ir mestu blóðgjafar ríkissjóðs, vant-
ar viðbót.
Bankamir í harðri samkeppni. við
fjárfestingarfélög sem þeir þó eigk
aðild að. En þessi félög „bjarga"
neyð þeirra sem húsnæðismála-
stofnunin hefir svikið. Semsagt.
Allt í þessu fínasta fína. Þessu
ástandi á svo að bjarga úrræðalitið,
íhald, steinmnninn Framsóknar-
flokkur og hugsjónalausir kratar.
Ja, Drottinn minn, hefði hann séra
Ámi einhvemtímann sagt. Er ekki
rétt að fara að mmska?
Árni Helgason
M©INIiO©IIIMN
Hefndaræði
Æðisleg spennumynd, sem heldur þór föstum,
með Brad Davis,
stjörnunni úr „Midnight Express" og
Jonathan Banks,
þekktum úr „Beverly Hill Cops“ og „48 hours“.
- Þeir fara hér á kostum -
Sýnd kl. 3, 5,7,9 og 11.15.
Stranglega bönnuð innan 16 ára.