Morgunblaðið - 26.02.1988, Page 51

Morgunblaðið - 26.02.1988, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. FEBRÚAR 1988 5Í KÖRFUKNATTLEIKUR / ÚRVALSDEILD Gríndvíkingar unnu upp fjórtán stiga forskot Vals Morgunblaðifl/Kristinn Benediktsson Leikmenn Qrlndavfkurllðslns á varamannabekknum sjást hér þeysa inn á völlinn til að fagna sætum sigri yfir Valsmönnum í gærkvöldi í Grindavík. Þegar Grindvíkingar hættu að rífast og fóru að spila körfu- knattleik eins og þeir gera best, unnu þeir upp fjórtán stiga forskot Valsmanna. Náðu svo að tryggja sér sigur á lokamínútunni f enn einum bar- áttuleiknum, þar sem sigur ræðst ekki fyrr en á síðustu stundu. Rúnar Amason UMFG skoraði fyrstu körfumar fyrir Grindavík með harðfylgi og gaf tóninn um að í væntum væri hörku- ^■^11 leikur. Krístinn Grindvíkingum Benediktsson tókst að ná átta skrifar stiga foiystu um miðjan fyrri hálfleik og komu Valsmönnum í opna skjöldu. Valsmenn komust hægt og rólega í gang og jöfnuðu þegar átta mínútur voru til hálfleiks. Mótlætið setti Grindvíkinga enn einu sinni út af laginu og allt fór í handaskol og rifrildi. í seinni hálfleik náðu Valsmenn 14 stiga forystu og virtust hafa leikinn í hendi sér. Tómas Holton var hrejmt óstöðvandi og skoraði hveija körfuna af annari en annars vann liðið vel saman. Þegar 12. mín. voru eftir af leiknum var Hjálmari Hallgrímssyni UMFG vikið af leikvelli með 5 villur: Hann var mjög ósáttur með dóminn þar sem hann var í hraðaupphlaupi og fékk dæmdan á sig ruðning er Valsmaður stöðvaði hann. Hugsanlega hefur þetta atvik orðið til þess að setja kraft í Grindvíking- ana því þeir skoruðu nú hveija körf- una af annarri. Guðmundur Braga- son var dijúgur að skora, tók mörg fráköst og hindraði skot Vals- manna, en Guðlaugur Jónsson stjómaði spilinu og stal hverri send- ingunni af annarri frá Valsmönn- um. Er tvær mínútur voru eftir jafnaði hann loks leikinn 69-69 og það sem eftir lifði leiksins tókst Grindvíking- um að skora 4 stig á móti tveim og hanga þannig á sigrinum sem oft hefur verið erfítt í taugaspennu lokasekúntanna. Þfálfarl Vals Stawa Bargman, öskrar skipanir til sinna manna á lok- amínútunni. Quðlaugur Jónaaon sést hér skora jöfnunarkörfuna, 69:69, eftir að hafa stolið knettinum frá Valsmönnum. Einn einn spennuleikurinn í Grindavík. Valsmenn urðu að sætta sig við tap UMFG-Valur 73 : 71 - ÍþrótLahúsið Grindavík, úrvalsdeild i körfuknattieik, fímmtudagur 25. febrúar 1988. Gangur leiksins: 4:2, 11:6, 15:16, 23:26, 26:39, 31:45, 38:62, 49:68, 59:62, 69:69, 73:69,73:71. Stig UMFG: Guflmundur Bragason 21, RúnarÁmason 11, Hjálmar Hallgrims- son 9, Guðlaugur Jónsson 9, Steinþór Helgason 8, Jón Páll Haraldsson 6, Eyjólfur Gufllaugsson 5, Ólafur Þór Jóhannsson, Svcinbjöm Sigurðarson 2. Stig Vals: Tómas Holton 25, Einar Ólafsson 13, Leifur Gústafsson 13, Þorvaldur Geirsson 10, Torfi Magnús- son 5, Svali Björgvinsson 2, Bjöm Zðega 2, Jóhann Bjamason 1. Dómarar: Sigurður Valur Halldórsson og Ómar Scheving dæmdu erfiflan leik ágætlega. Ahorfendur 152. íkvöld ■ Einn leikur verður i úrvalsdeildinni [ körfuknattléik I kvöld. Njarðvikingar fá Hauka i heimsókn kl. 20. ■ Þrir leikir verfla leiknir í 2. deildar- keppninni f handknattleik karla og heflast þeir allir kl. 20. Reynir - Ar- mann, Fylkir - Grótta og Afturelding - Haukar. 3. deild karla: ÍH - ÍS kl. 20 og UMHÖ - ÍA kl. 20. 2. deild kvenna: Grótta - iBK kl. 20. BADMINTON Pyrsti sigurinn yfir Austurríki 3:2 íTomas Cup í Amsterdam í gærkvöldi Badmintonlandsliðið vann sinn fyrsta sigur, 8:2, yfír Aust- urríki í landsleik í gærkvöldi - í heimsmeistarakeppninni (Tomas Cup), í Amsterdam. „Broddi Kristjánsson vann fyrst í einliða- leik, en þeir Þoreteinn Páll Hængsson og Guðmundur Adolfs- son töpuðu. Eftir það komú tveir góður sígrar í tvfliðaleik. Broddi og Þoreteinn PáU léku þá saman og Ámi Þór Hallgrimsson og Ár- mann Þorvaldsson léku saman,“ sagði Pétur Hjálmtýsson, farar-. Btjóri. Kvennalandsliðið tapaði stórt, 0:6, fyrir írlandi í kvennakeppninni (Uber Cup), sem fór einnig fram í Amsterdam. Karlaliðið leikur gegn Finnlandi 1 dag og þá leikur kvennaliðið gegn Wales. HANDKNATTLEIKUR / 1. DEILD KVENNA Stjaman veitti Fram harða keppni STJÖTNUSTÚLKURNAR veittu íslandsmeisturum Fram harða keppni í gærkvöldi. Þaö var ekki fyrr en um miðjan seinni hálfleik aö Framstúlkunum tókst að brjóta Stjörnustúlk- urnar á bak aftur, en þá voru lelkmenn Stjörnunnar of bráö- ar - brutu á Framstúlkunum og voru sendar af lelkvelll til kælingar. Þetta nýttu Fram- stúlkurnar sér og tryggöu sár sigur, 18:14. Guðríður Guðjónsdóttir, stór- skytta Framliðiðsins, var tekin úr umferð allan leikinn. Jóhanna Halldórsdóttir var best hjá Fram og skoraði sex mörk. Ragnheiður Stephensen, 5/2 og Guðný Gunn- steinsdóttir vom bestu leikmenn Stjömunnar. Víkingur vann yfírburðarsigur, 29:16, yfir Þrótti. Svava Baldvins- dóttir og Inga Þórisdóttir skoruðu sín hvor sjö mörkin fyrir Víking, en Ágústa Sigurðardóttir skoraði sex mörk fyrir Þrótt. FH-stúIkumar Iögðu Valsstúlkum- ar að velli, 14:13, á miðvikudags- kvöldið. Guðný Guðjónsdóttir, Guð- rún Kristjánsdóttir og Krístfn Am- þóredóttir skoruðu allar þijú mörlæ- fyrir Val, en Eva Balduredóttir, Inga Einaredóttir og Berglind Hreinsdóttir skoruðu þijú mörk fyr- ir FH. Haukar unnu stóreigur, 24:14, yfír KR. Ragnheiður Júlfusdóttir skor- aði 7 mörk fyrir Hauka og Halldóra Mathiesen 6. Birthe Bitsh skoraði 5/2 mörk fyrir KR og Snjólaujf" Benjamfnsdóttir flögur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.