Morgunblaðið - 23.04.1988, Side 1
76 SÍÐUR B
91,tbl. 76.árg.
LAUGARDAGUR 23. APRÍL 1988
Prentsmiðja Morgnnblaðsins
Frönsku forsetakosningamar á sunnudag:
Mitterrand og
Chirac áfram?
Paris. Frá Steingrími Sigurgeirssyni, blaðamanni Morgunblaðsins.
FYRRI umferð frönsku forsetakosninganna fer fram á morgun
og lauk kosningabaráttu frambjóðenda í fjölmiðlum á miðnætti.
Þá ræðst hvaða tveir frambjóðendur taka þátt í úrslitaumferðinni
8. maí.
Líklegast þykir að Francois
Mitterrand, Frakklandsforseti, og
Jacques Chirac, forsætisráðherra,
sigri í þessari umferð, frekar en
þeir Mitterrand og Raymond
Barre, fyrrverandi forsætisráð-
herra.
Margt bendir þó til þess að bilið
milli þessara þriggja helztu fram-
bjóðenda sé að minnka og þeir eru
til sem ekki vilja útiloka Barre
með öllu. Þykir hann hafa náð sér
vel á strik á lokaspretti baráttunn-
ar. Mitterrand hefur lent í vöm,
meðal annars vegna ummæla
sinna um hugsanlegan kosninga-
rétt til handa innflytjendum.
Bæði Chirac og Barre leggja
mikla áherzlu á að þeir muni styðja
þann þeirra, sem fer með sigur
af hólmi í þessari umferð, m.a.
hafa þeir sett á laggimar sameig-
inlega kosningamiðstöð, sem verð-
ur notuð í síðari umferðinni.
Erfitt er að áætla fylgi fram-
bjóðenda síðustu daga fyrir kosn-
ingar þar sem ólöglegt er að birta
skoðanakannanir síðustu vikuna
fyrir kosningar. í könnunum, sem
birtust fyrir síðustu helgi, hafði
Mitterrand 37%, Chirac 22% og
Barre 18%.
Fækkun langdrægra kjarnorkuvopna risaveldanna:
Fimdir Sliultz og sovézkra
leiðtoga áranmirslitlir
í gærkvöldi hermdu Reuters-
fréttir að þremur frönskum gíslum
líbanskra mannræningja yrði
sleppt í Beirút í dag. Franskir
samningamenn flugu til Líbanons
í gær og sagðist sýrlenskur milli-
göngumaður þeirra eiga von á því
að franski sendiherrann í Beirút
myndi taka við gíslunum á Sum-
merlandhótelinu í borginni. Þeim
yrði síðan flogið til Parísar í dag,
daginn fyrir frönsku forsetakosn-
ingamar. Tímasetningin er ekki
sögð tilviljun og hermt að mögu-
leikar Chiracs vænkist, ef afdrif
gíslamálsins verða þau, sem að
framan greinir.
Sjá „Mitterrand og Chirac
beijast...“ á bls. 32.
Til átaka kom við bænahús á Musterishæðinni í
Jerúsalem í gær og slösuðust fimm lögregluþjónar
og nokkrir Palestínumenn. Að lokinni bænastund
gekk hópur Palestínumanna með svarta fána að
lögreglustöð við hlið moskunnar og hóf gijótkast.
Lögreglan reyndi að dreifa mannflöldanum og kom
þá til átaka. Þá féllu tveir Palestínumenn í átökum
hers og mótmælenda á hemumdu svæðunum. Mynd-
in var tekin á Musterishæðinni í Jerúsalem.
Á TÖK VIÐ BÆNAHÚS
Ný stjórn
í Panama
Panamaborg. Reuter.
BÚIST er við að Manuel Solis
Palma, forseti Panama, skipi
nýja ríkisstjórn í dag, að sögn
blaðsins Crítica, sem er hliðholt
stjórn landsins.
Að sögn blaðsins buðust nær ail-
ir ráðherrar ríkisstjómarinnar til
þess að segja af sér til þess að for-
setinn gæti myndað „styijaldar-
ráðuneyti".
Moskvu, Reuter.
GEORGE Shultz, utanríkisráðherra Bandaríkjanna,
gaf til kynna á blaðamannafundi í Moskvu í gær að
tveggja daga viðræður hans og sovéskra ráðamanna
um fækkun kjarnorkuvopna í vopnabúrum risaveld-
anna hefðu litlum árangri skilað. Shultz sagði líkum-
ar á samkomulagi um helmingsfækkun langdrægra
kjarnorkuvopna verða sífellt minni en áfram yrði
reynt að ná sáttum fyrir fund þeirra Míkhaíls S.
Gorbatsjovs Sovétleiðtoga og Ronalds Reagans í
Moskvu í lok maí. Eduard Shevardnadze, utanríkis-
ráðherra Sovétríkjanna, sagði enn hugsanlegt að
samningamönnum risaveldanna tækist að ljúka við
gerð sáttmála um fækkun langdrægra kjarnorku-
vopna fyrir Moskvu-fundinn en sagði að það yrði
mjög erfitt þar sem málið væri gífurlega flókið.
Shultz, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, spjall-
ar við Míkhaíl S. Gorbatsjov við upphaf fundar
þeirra.
Shultz kom til Moskvu á fimmtu-
dag til viðræðna við þá Gorbatsjov
og Shevardnadze. Ræddi hann í níu
klukkustundir við Shevardnadze og
Fundu tankskip í ljósum logum
en engin merki um áhöfnina
St. John’s, Nýfundnalandi. Reuter.
GRÍSKT tankskip brotnaði í
tvennt á miðju Atlantshafi og
stóðu báðir hlutar þess í Ijósum
logum í gær. Sást reykjarmökk-
urinn 50 sjómílna leið. Leitar-
og björgunarmenn hafa enga
visbendingu fundið um afdrif
áhafnarinnar.
Óljóst er hvað gerst hefur um
borð í skipinu því það sendi ekki
út neyðarkall. Kanadíska rann-
sóknarskipið Hudson kom að því
í gærmorgun 800 sjómílur undan
Nova Scotia og Nýfundnalandi í
Kanada, skammt frá fískimiðum
á Georgsbanka. Voru þá tvær
sjómflur á milii skipshlutanna.
„Hér er hrikalegt um að litast.
Það er ekkert lífsmark um borð
og það brennur allt, sem brunnið
getur í skipinu. Eldtungur standa
út um glugga á yfírbyggingunni
og því útilokað að þar sé nokkur
á lífí. í gegnum kolsvartan reykj-
armökkinn sýndist okkur sem
björgunarbátinn hægra megin
vantaði," sagði skipstjórinn á
Hudson í talstöðvarsamtali í gær.
í gær flugu tvær kanadískar
leitarflugvélar og ein bandarísk á
vettvang. ítölsk, norsk og pólsk
skip tóku einnig þátt í leit að
áhöfninni. Talið var að um væri
að ræða gríska tankskipið Athen-
ian Venture, sem er milli 30 og
40 þúsund tonn. Á því var 25
manna áhöfn, alit Pólveijar.
í gær átti hann þriggja klukkustunda
fund með Gorbatsjov. Sovéska
fréttastofan Tass skýrði frá því í gær
að Gorbatsjov hefði mótmælt um-
mælum Ronalds Reagans um Sov-
étríkin í ræðu er hann flutti á
fímmtudag og hvatt Bandaríkja-
menn til að sýna meiri stillingu S
málflutningi sínum. Ella kynnu sam-
skipti ríkjanna tveggja að færast í
verra horf.
Shultz skýrði frá því á blaða-
mannafundinum í Moskvu að þeir
Shevardnadze hefðu orðið ásáttir um
að hittast aftur áður en Reagan
færi til Moskvu. Hins vegar hefði
ekki verið ákveðið hvenær fundur
utanríkisráðherranna færi fram.
Risaveldin eru sammála um að
stefna beri að helmingsfækkun lang-
drægra kjamorkuvopna og sam-
þykktu þeir Reagan og Gorbatsjov
á fundi sínum í Washington í des-
embermánuði að fela samninga-
mönnum risaveldanna að gera drög
að slíkum sáttmála. Einkum er tek-
ist á um svonefnd „undirmörk" eða
leyfilega samsetningu kjamorkuher-
aflans. Risaveldin greinir á um leyfí-
legan hámarksfjölda stýriflauga í
skipum, kafbátum pg flugvélum. Þá
er deilt um hvort banna beri með
öllu hrejrfanlegar landeldflaugar og
hvernig standa beri að eftirliti. Loks
er deilt um hvemig tengja beri geim-
vamaáætlun Bandaríkjastjómar
slíkum sáttmála. Reagan Banda-
ríkjaforseti sagði i ræðu á fimmtu-
dag að litlar líkur virtust á því að
jafna þennan ágreining fyrir
Moskvu-fundinn.
Shevardnadze sagði á blaða-
mannafundi sínum í Moskvu í gær
að til greina kæmi að skjalfesta
þann árangur sem þegar hefði náðst
á leiðtogafundinum í Moskvu en
bandarískir embættismenn munu
vera mótfallnir þeirri hugmynd.
Noregur:
Taugatitringur
í stjórnmálalífi
Osló. Frá Rune Timberlid, fréttaritara
Morgunbladsins f Noregi.
FRÉTTIN um að Framfara-
flokkurinn sé orðinn næststærsti
stjórnmálaflokkur Noregs, hefur
valdið taugatitringi í norsku
stjóramálalífi.
Flokkurinn nýtur stuðnings
23,5% kjósenda. Fylgi flokksins í
kosningunum 1985 var 3,7%.
Sjá „Framfaraflokkurinn
margfaldar fylgi sitt“ á bls. 33.