Morgunblaðið - 23.04.1988, Page 4

Morgunblaðið - 23.04.1988, Page 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. APRÍL 1988 Fyrsta breiðskífa Sykurmolanna: Fyrirframsala í Bret- landi rum 50.000 eintök FYRSTA breiðskífa íslensku hljómsveitarinnar Sykurmol- anna verður gefin út í Bretlandi nk. mánudag og bendir fyrir- framsala til þess að platan eigi góða möguleika á að komast inn á lista yfir tíu söluhæstu plötur þar í landi. Breska popptímaritið Melody Makec birti á miðvikudag heilsíðu plötudóm um plötuna, sem ber heitið Life’s too Good, og er þar farið afar lofsamiegum Ekið á dreng EKIÐ var á 5 ára gamlan dreng á Þorfinnsgötu á fimmtudaginn. Hann slapp án teljandi meiðsla. Slysið varð um kl. 19.40. Dreng- urinn hljóp út á götuna en varð fyrir bifreið, sem var ekið suður hana. Hann hlaut lítil meiðsli af. orðum um hana, m.a. segir gagn- rýnandi blaðsins að platan sé ein besta plata sem út hafi komið. Plötudómurinn kemur í kjölfar forsíðuviðtals á ijórum síðum við hljómsveitina í síðustu viku og herma fregnir að tímaritin Sounds og New Musical Express hyggist gera plötunni ámóta skil. Sykurmolamir gerðu fyrir skemmstu útgáfusamning við bandaríska stórfyrirtækið Electra um útgáfu á Life’s too Good í Bandaríkjunum og um leið samning við One Little Indian, sem gefur plötuna út í Bretlandi. Nú standa yfir samningaviðræður um dreif- ingu á plötunni í öðrum löndum heims og hefur Morgunblaðið heim- ildir fyrir því að til athugunar sé tilboð frá einu af stærstu plötu- útgáfufyrirtækjum í heimi. I samtali við Derek Birkett, sem er einn eigenda One Little Indian, kom fram að þegar hafa selst í fyrirframsölu rúm 50.000 eintök af plötunni Life’s too Good og með sama áframhaldi á hún góða mögu- leika á að komast inn á lista yfir tíu söluhæstu plötur í Bretlandi í fyrstu útgáfuviku. Fyrir skemmstu komu út svokall- aðar tólftommu og sjötommu plötur með laginu Deus, en það hefur nú selst í um 60.000 eintökum og situr í 57. sæti breska vinsældalistans, en er á lista yfir tíu vinsælustu lög í Hollandi. í kjölfar útgáfunnar heldur hljómsveitin í tónleikaferð um Bret- land og Bandaríkin og er þegar uppselt á fyrstu Lundúnatónleikana í þeirri ferð, sem verða 19. maí nk., en þá mun önnur íslensk hljóm- sveit, S.h. draumur, leika á undan Sykurmolunum. VEÐURHORFUR í DAG, 23.4. 88 YFIRLIT ( gmr: Fyrir noröan og austan land er 1,032ja mb hæð, en 990 mb hægfara lægð um 1000 suðvestur af Reykjanesi. Veður fer smám saman hlýnandi. SPÁ: Austan- og suðaustanótt og rigning öðru hverju sunnan- og vestanlands en þurrt víðast norðanlands. Hiti 3—7 stig. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA HORFUR Á SUNNUDAG OG MÁNUDAG:Fremur hæg suðvestlæg átt, dálitlir skúrir eða él við suðvestur- og vesturströndina en bjart veður norðan- og austanlands. Hiti 4—6 stig að deginum en um frostmark víða að nóttunni. TÁKN: Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað Alskýjað Norðan, 4 vindstig: Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. r r r r r r r Rigning r r / * r * r * r * Slydda r * / * * * * * * * Snjókoma * * * 10 Hitastig: 10 gráður á Celsius Skúrir Él Þoka Þokumóða Súld Mistur Skafrenningur Þrumuveður V * V OO 4 K VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tima Akureyri Rsykjavík hltl 2 3.1 veóur heióskirt skýjað Bergen S léttskýjað Helslnki 1 alskýjað Jan Mayen +6 lóttskýjað Kaupmannah. 5 skýjað Narssarssuaq 4 skýjað Nuuk +4 heiðskírt Ostó 3 snjóél Stokkhólmur 3 skýjað Þórshöfn 4 hálfskýjað Algarve 20 hálfskýjað Amsterdam 10 skýjað Aþena vantar Barcelona 18 skýjað Berlín 9 léttskýjað Chlcago 8 alskýjað Feneyjar 20 þokumóða Frankfurt 13 skúr Glasgow 8 alskýjað Hamborg 8 skýjað Las Palmas 22 léttskýjað London 10 mlstur Los Angeles 11 léttskýjað Lúxemborg 13 skýjað Madríd 17 skýjað Malaga 23 skýjað Mallorca 20 skýjað Montreal 3 skýjað New York 6 heiðskírt París 18 skýjað Róm 19 þokumóða Vín 12 skúr Washington 8 skýjað Winnipeg +3 skýjað Halldór Vilhjáhnsson, fram- kvæmdastjóri fjármálasviðs. Pétur J. Eiríksson, fram- kvæmdastjóri markaðssviðs. Tveir nýir framkvæmda- stjórar hjá Flugleiðum TVEIR nýir framkvæmdastjórar starfa nú hjá Flugleiðum i kjöl- far skipulagsbreytinga innan fé- lagins, þeir Pétur J. Eiríksson, framkvæmdastjóri markaðssviðs og Halldór Vilhjálmsson, fram- kvæmdastjóri fjármálasviðs. Báðir hafa þeir starfað hjá Flug- leiðum frá 1981. Pétur J. Eiríksson er fæddur í Reykjavík 5. maí 1950, sonur hjón- anna Eiríks Hreins Finnbogasonar, cand. mag. og Jóhönnu Péturs- dóttur fóstru. Pétur varð stúdent frá MH 1970 og lauk hagfræði- prófi frá Edinborgarháskóla 1975. Hann var síðan við framhaldsnám við Gautaborgarháskóla í eitt ár. Pétur var um tíma blaðamaður á Morgunblaðinu og síðan aðstoðar- framkvæmdastjóri og ritstjóri hjá Frjálsu framtaki. Hann réðst til Flugleiða í júní 1981 og vann fyrst við markaðsrannsóknir. Þá tók hann við starfí deildarstjóra far- skrárdeildar en fluttist stuttu síðar til Svíþjóðar þar sem hann gegndi starfí forstöðumanns söludeildar Flugleiða á Norðurlöndum þar til nú að hann tekur við starfí fram- kvæmdastjóra. Pétur er kvæntur Erlu Sveins- dóttur flugfreyju og á eina dóttur. Halldór Vilhjálmsson er fæddur 5. nóvember 1946 í Reykjavík, son- ur Vilhjálms A. Guðmundssonar verkfræðings, sem nú er látinn, og Bimu Halldórsdóttur húsmóður. Hann varð stúdent frá VÍ 1967 og cand. oecon frá viðskiptafræðideild Háskóla íslands 1971. Halldór var aðalbókari Olíuverslunar íslands 1973-1981 er hann tók við starfí forstöðumanns innri endurskoðunar Flugleiða, sem hann hefur gegnt fram að þessu. Hann sat í stjóm Félags viðskiptafræðinga og hag- fræðinga 1972-1974. Kona Hall- dórs er Bryndís Helgadóttir skrif- stofustjóri og eiga þau 3 böm. Vopnafjörður: Rannsókninni haldið áfram ENN er óvíst hvað olli harmleikn- um á Vopnafirði, þar sem tveir menn fundust látnir á þriðjudag. Nú er Ijóst orðið að skotin, sem bönuðu mönnunum, komu úr sömu byssunni. Rannsókn málsins er ekki Iokið hjá RLR. Það var á þriðjudagsmorgun sem maður á Vopnafírði tók eftir að haglabyssa hans, af gerðinni Kongs- berg, var ekki á sínum stað. Skömmu síðar fór maðurinn að svip- ast um eftir Tryggva Viðari Gunn- þórssyni, sem bjó á heimili hans. Að nokkrum tíma liðnum fannst Tryggvi Viðar á vinnustað sínum og var þá látinn. Við hlið hans lá haglabyssan og teiur lögregla fullvíst að hann hafí svipt sig lífí. Það var um fjórum stundum síðar sem maður nokkur átti erindi við bóndann að Hámundarstöðum I í Vopnafírði, Gunnar Ingólfsson. Hann kom á Gunnari látnum og hafði hann verið skotinn í bijóstið með haglabyssu. Ekki er vitað ná- kvæmlega hvenær það gerðist, en talið er að hann hafí látist aðfara- nótt þriðjudagsins, milli kl. 2 og 8. Skothylki, sem fannst á staðnum, reyndist vera úr byssunni, sem fannst við hlið Tryggva Viðars. Tryggvi Viðar hefur látist nokkrum stundum eftir að Gunnar lést. Tryggvi Viðar Gunnarsson var 45 ára gamall trésmiður, með lög- heimili á Grenivík, en hafði starfað um hríð á Vopnafirði. Hann var ein- hleypur. Gunnar Ingólfsson var 33 ára bóndi, til heimilis að Hámundar- stöðum I í Vopnafjarðarhreppi. Hann lætur eftir sig þijú böm og sambýliskonu. Léstaf slysförum MAÐUR, sem ekið var á á Hverf- isgötu síðdegis á miðvikudag, lést að kvöldi þess dags. Maðurinn varð fyrir bifreið á móts við Hverfisgötu 96. Hann var fluttur á gjörgæsludeild, þar sem hann lést um kvöldið. Hann hét Friðrik Guðmundsson, til heimilis á Nesvegi 64 f Reylgavík. Friðrik var á 82. aldursári, fæddur 15. sept- ember 1906. Friðrik Guðmundsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.