Morgunblaðið - 23.04.1988, Síða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. APRÍL 1988
Til lands og sjávar
Bókmenntir
ErlendurJónsson
Guðmundur Bjðrgvin Jónsson:
MANNLÍF OG MANNVIRKI í
V ATN SLE YSU STRAND AR-
HREPPI. 436 bls. 1987.
Þetta er mikið rit, bæði að efni
og umfangi, texti drjúgur og mjmd-
ir geysimargar. Nákvæmlega er
líka unnið úr efni. Þama er sumsé
fjallað um eina sveit aðeins, einn
hrepp með þéttbýliskjama, Voga,
þannig að höfundur hefur getað
látið eftir sér að gera hverju og
einu ýtarleg skil, ættum jafnt sem
einstaklingum. Hvert býli er tekið
fýrir sér í lagi, ábúendur taldir og
fjölskyldur þeirra, svo og getið um
atvinnu og búskaparhætti. Kafli er
um fræðslu- og menningarmál í
hreppnum, sagt frá prestum á
Kálfatjöm. Og fyrirtækjum hrepps-
búa em gerð ýtarleg skil. Mest er
þetta samtímasaga. Samt er alla
jafna farið nokkuð aftur í tímann;
óvíða þó lengra en seinustu hálfa
aðra öldina eða svo; ýtarlegast sagt
frá síðustu tveim til þrem kynslóð-
um. Persónusögu má kalla þetta.
Fátt er þó um »einkamál«. Beinar
mannlýsingar setja ekki heldur svip
á ritið. Það er saga búsetunnar og
lífsbaráttunnar sem höfundur hefur
sýnilega gert sér far um að halda
til haga öðm fremur. Og það hefur
honum að mínu viti tekist með
ágætum. Ljóslega er bmgðið fýrir
sjónir hvemig búið var fýrmrn og
hvemig búið er nú, hvemig atvinnu-
hættir hafa smám saman breyst og
efnahagur vænkast. Og framar öðr-
um, sem sett hafa saman rit af
þessu tagi, lýsir höfundur því hvem-
ig hreppurinn hefur byggst upp í
bókstaflegum skilningi, hvemig
húsagerð hefur þróast og hýbýli
stækkað með áranna rás. Þó víða
væri vel búið fyrrum fer tæpast á
milli mála að lífskjör hafa jafnast.
Guðmundur Björgvin Jónsson
Mörg rit af þessu tagi hafa kom-
ið út á undanfömum ámm. En þau
hafa yfírhöfuð tekið til heilla sýslna
og höfundar þá verið fleiri. Guð-
mundur Björgvin hefur kosið að
taka fyrir smærri einingu. Fátt mun
því hafa farið framhjá auga hans,
og því síður sem hann er heimamað-
ur, öllum hnútum kunnugur.
íbúar í Vatnsleysustrandarhreppi
hafa löngum lifað af hvom tveggja:
landi og sjó, allt eins hinu síðar
talda. A blómaskeiði togaraaldar
vom sumir aflahæstu skipstjórar
landsins þaðan ættaðir. Vogarnir
em útgerðarstaður. Og í í hreppn-
um er nú eitt stærsta bú landsins.
Ekki er þó stundaður þar hefð-
bundinn búskapur sem svo er kall-
að. En nálægðin við þéttbýli og
flugvöll markar líka svipmót at-
vinnulífsins. Höfundur greinir eins
og fyrr segir frá atvinnu hvers og
eins. Skyggnist maður sérstaklega
eftir þeim þættinum kemur í ljós
að hreppsbúar leggja gjörva hönd
á margt, gagnstætt því sem fyrrum
var meðan sjálfsþurftarbúskapur-
omRon
SIMAR 21150-21370
SOLUSTJ LARUS Þ VALDIMARS
LOGM JOH ÞORÐARSON HOL
Bjóöum til sýnis og sölu meöal annarra eigna:
Skammt frá Bústaðakirkju
Glæsilegt raðhús í Fossvogi. 191,4 fm nettó á pöllum. 4 góð svefn-
herb. i svefnálmu. Sólverönd. Sólsvalir. Góður bílskúr. Eignin er öli
elns og ný.
í gamla góða Austurbænum
Endurbyggð þakhæð 3ja herb. um 80 fm i reisulegu steinhúsi. Stórir
og góðir kvistir. Nýir gluggar. Sólsvalir. í kjallara fylgir ágæt sér-
geymsla. Sanngjarnt verö. Langtímalán geta fylgt.
3ja herbergja ódýrar íbúðir
m.a. við: Leifsgötu, Vesturbraut Hf. og viö Nesveg á Seltjarnarnesi.
Vinsamlegast leitiö nánari upplýsinga.
Gott einbýlishús um 200 fm
óskast til kaups í borginni eöa nágr. Skipti möguleg. á 300 fm úrvals-
eign á útsýnisstaö í Garðabæ. Nánari uppl. á skrifstofunni.
í Selási - hagkvæm skipti
Til kaups óskast 4ra-5 herb. góð íbúö Skipti möguleg á nýju glæsil.
einbhúsi um 150 fm á einni hæö meö mikiö af góðum langtímalánum.
Allar nánari uppl. á skrifstofunni.
Einbýlishús eða raðhús
óskast til kaups. Æskilegir staöir: Sæviðarsund eða nágr., Fossvogur,
Nýi-miðbærinn eöa nágr. Mikil og góð útborgun. Ennfremur eigna-
skipti möguleg á einbhúsi í Smáíbúðahverfi.
Gott skrifstofuhúsnæði óskast
i borginni 200-300 fm á einni hæð. Stærri eign kemur til greina.
Traustur, fjársterkur kaupandi.
Ungur landsþekktur
athafnamaður óskar eftir 4ra-5 herb. ibúö eö íbúöarhæö. Helst í Aust-
urbænum. Grafarvogur kemur til greina.
Opið í dag, laugardag,
kl. 11.00-16.00.
AIMENNA
FASIEIGHASALAN
LAUGAVEG118 SÍMAR 21150-21370
inn var við lýði og atvinnulífíð var
fábreytt. Sýnt er að margfalt fleiri
og fjölbreyttari störf bjóðast núlif-
andi kynslóð en feðrum og mæðr-
um. En að sjálfsögðu hefur Vatns-
leysuströndin, eins og aðrar byggð-
ir þessa lands, séð á bak mörgum
sem freistað hafa gæfunnar annars
staðar. Þótt enn sé búið við land
og sjó býður sérhæfni atvinnulífsins
tæpast lengur upp á að maður sé
í senn sjósóknari og bóndi með sama
hætti og fyrrum. Tími stórheimil-
anna er liðinn.
Myndir bókarinnar eru flestar af
fólki en margar líka af húsum; einn-
ig af skipum. Þama eru hrörleg
hús, sum að falli kominn að því er
virðist. Og þama eru ný hús og
glæsileg sem vitna um endumýjun
lífsins, rýmri efnahag og betri
smekk. Hvort tveggja segir sína
sögu. Engin landsins byggð liggur
í þjóðbraut með þvílíkum hætti sem
Vatnsleysuströndin — með höfuð-
borgina annars vegar, en til hins
endans fjölmenna þéttbýlisstaði og
íslands eina millilandaflugvöll.
Pazzi-kapellan.
Málarinn frá Arezzo
Erlendar bækur
Siglaugur Brynleifsson
Giorgio Vasari: Lives of Artists
I-II. A Selection translated by
George Bull. Penguin Books
1988.
Giorgio Vasari fæddist í Arezzo
1511 og lést 1574. Hann hélt til
Flórens 1524 og hóf listnám hjá
Andrea del Sarto og Bandinelli.
Hann mun hafa kynnst Michelang-
elo um þetta leyti. Hann starfaði
síðan sem listmálari bæði í Flórens
og Róm og víðar. Hann var eins
og fleiri listamenn þessa tímaskeiðs
einnig arkitekt og var fenginn til
að gera uppdrætti að Palazzo
Vecchio í Flórens, Uffízi og gröf
Michelangelo em hans verk. Sem
listmálari var hann dáður á þessum
tímum, en kunnastur er hann fýrir
rit sitt um Ævir bestu listmálara,
myndhöggvara og arkitekta, sem
kom út 1550 og í aukinni útgáfu
1568. Rit þetta telja sumir list-
fræðingar vera einstakt í listasög-
unni (Petur og Linda Murray), sem
telja ritið „það merkasta, sem skrif-
að hefur verið um málaralist". Vas-
ari telur að listum hafí farið aftur
á miðöldum, en landið hafi tekið
að rísa með Riotto. Megin efni
kenningar Vasaris um listir er, að
sönn list hafí síðan risið hæst í
Toskana með Giotto og Cimabue
og siðan þróast með Ghiberti, Bmn-
elleschi og Donatello og náð hátindi
með Michelangelo, Leonardo og
Rafael, en með þeim hafí málaralist
náð þeim hæðum sem gjörlegt er
að ná.
Vasari hóf snemma að safna
teikningum eftir kunna listamenn
og einnig að skrifa niður sögur af
þeim. Safn mynda hans var ein-
stakt á sínum tíma, þetta safn hef-
ur að mestu leyti glatast, en þó
hafa stöku myndir verið varðveitt-
ar. Vasari fékk hugmyndina að
Ævum listamanna í Rom. Hann
dvaldi þar um tíma í þjónustu Far-
nese kardínála og það var oft að
hann snæddi kvöldverð með kardín-
álanum ásamt ýmsum listamönnum
og skáldum. Eitt kvöldið var rætt
um söfn listaverka og sagna af
kunnum listamönnum og i þeim
umræðum beindi kardínálinn máli
sínu til Vasaris og taldi hann á að
safna saman þeim sögum sem hann
hafði skrásettar um listir og lista-
menn. Svo fór að Vasari hófst
handa að safna frekari heimildum
og úr því varð þetta fræga rit. Þetta
átti sér stað 1546. Bókin kom út
§órum árum síðar og þegar önnur
útgáfa kom út, var fyrsta prentun
uppgengin, svo að ritið hefur orðið
mjög vinsælt strax.
Heimildir Vasaris voru úr ýmsum
áttum, munnlegar, skriflegar og
einnig prentaðar, en hann var
óþreytandi safnari og honum tókst
að setja saman fróðlegt rit, þar sem
kennir e.t.v. full margra grasa, sem
ekki snerta beint viðfangsefnið,
ævir listamannanna og þá verður
lesefnið á stundum þreytandi, eink-
um þegar hann fer að fílósófera eða
móralísera, en hann dettur ekki oft
í þá gryfju. Hann er skemmtilegast-
ur þegar hann lýsir verkum, sem
hann hefur hrifist verulega af, þar
nær hann sér á strik og þakklæti
hans til listamanna slíkra verka er
einlæg. í þeim köflum skrifar hann
stíl, sem jafnast á við ritsnilld bestu
höfunda Toskana.
Vasari var frumlegur í mati lista-
verka, hann hélt t.d. fram áhrifum
bysanskra og gotískar listar á list
sinna tíma og einnig mat hann að
verðleikum listamenn Feneyja, sem
voru margir hveijir taldir bijóta
listkröfur Toskana. Vasari segir
venjulega einhveijar sögur, sem
snerta tilurð listaverksins, sem
hann ijallar um. Skoðanir hans
stangast oft á við skoðanir list-
fræðinga síðar á öldum ekki síst
skoðanir hans á eigin málverkum,
en sú fordæming á mannerismanum
sem var lengi viðtekin, er nú að
fjara út meðal margra ágætra list-
fræðinga nú á dögum.
Morgunblaðið/Sverrir
Björg Þorsteinsdóttir myndlistarkona framan við „Vogrek", eitt 49
verka á sýningu hennar í Norræna húsinu. Þar eru stórar og smáar
myndir unnar í akríl, pastel og kol. Síðasti sýningardagur er á
morgun.
Sýningfu Bjargar
lýkur á sunnudag
Akranes
- veitingastaður
Til sölu veitinga- og grillstaður
í fullum rekstri. Góð velta. Verð
1800 þús.
Hallgrímur Hallgrímsson,
lögg. fasteignasali,
Akranesi, twg
sími 93-11940. UfS
VERK eftir Björgu Þorsteins-
dóttur myndlistarkonu eru nú til
sýnis í kjallara Norræna hússins.
A sýningunni eru 49 akrilverk,
pastelmyndir og kolateikningar.
Myndimar eru flestar unnar á
síðasta ári og að sögn Bjargar
hefur sala þeirra gengið vel.
Sýningin er opin frá klukkan 14
til 22 en henni lýkur á morgun,
sunnudaginn 24. aprU.
Þetta er tólfta einkasýning Bjarg-
ar, en hún hefur tekið þátt í fjölda
samsýninga hér og erlendis. Um
þessar mundir á hún teikningar á
samsýningu í Júgóslavíu og grafík-
myndir á Ítalíu. Síðustu einkasýn-
ingar listakonunnar voru í Slunka-
ríki á ísafirði í fyrra og í Norræna
húsinu og Gallerí Borg 1985. Sama
ár hélt hún sýningu á verkum sínum
í París.
Björg lagði stund á myndlist-
amám í Reykjavík, Stuttgart og
París. Hún vinnur jöfnum höndum
við grafík og málverk, en segir
ástæðu þess að engar grafíkmyndir
séu á sýningunni í Norræna húsinu
vera þá að erfitt sé að vinna grafík-
myndir á sama tíma og önnur
myndverk. Verk Bjargar eru í eigu
listasafna hérlendis, safna og stofn-
ana á Norðurlöndum, í Frakklandi,
Hollandi, Póllandi, Júgóslavíu og á
Spáni.