Morgunblaðið - 23.04.1988, Síða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. APRÍL 1988
Hallgrímskirkja:
• •
011 orgelverk
Bruhns leikin
Hðrður Áskelsson organisti Hall-
grímskirkju í Reykjavík heldur tón-
leika í kirkjunni síðdegis næstkom-
andi sunnudag 24.apríl og kynnir þar
Nikolaus Bruhns í tali og tónum. Eru
þetta þriðju tónleikarnir þar sem
kynntir eru svokallaðir „norður-
þýskir barokkmeistarar". Að tónleik-
unum loknum verður haldinn aðal-
fundur Listvinafélags Hallgríms-
kirkju en félagið hefur staðið fyrir
þessari tónleikaröð.
Morgunblaðið/Einar Falur
Hörður Askelsson organisti Haligrímrkirkju.
Nikolaus Bruhns var uppi 1665
til 1697 og starfaði sem organisti
og fiðluleikari og til eru nokkur
tónverk eftir hann, orgelverk,
kantötur og tónverk fyrir fíðlu.
Hörður Áskelsson er beðinn að
segja nokkur orð um verkin:
Öll orgelverkin
-Á þessum tónleikum leik ég öll
orgelverk Bruhns en aðeins fimm
verka hans hafa varðveist, Qórar
prelúdíur og einn sálmforleikur eða
kóralfantasía. Þar sem Bruhns dó
ungur hafði hann trúlega ekki náð
að skrifa svo mörg verk en jafnvel
þó svo hafí verið hafa aðeins varð-
veist þau sem mest voru leikin.
Organistar gerðu mikið af því á
þessum tíma að leika af fíngrum
fram og hirtu ekki um að skrifa
eða láta skrifa upp verk sín.
En þótt aðeins séu til þessi fimm
verk eftir Bruhns vitna þau vel um
hugmyndaflug hans og litríka notk-
un orgelsins. Minna þau bæði á
stíl Buxtehudes sem er kallaður
höfuð hins norður-þýska orgelstfls
og ítalska tónlist frá þessum tíma.'
ítalskir hljóðfæraleikarar sem
störfuðu í Þýskalandi báru með sér
áhrif frá heimalandi sínu, með þeim
kom einhvers konar léttleiki og
ferskur blær sem skilaði sér í verk-
um þýskra tónskálda. Þama gætti
líka nokkurra hollenskra áhrifa.
Prelúdíur norður-þýsku barokk-
meistaranna eru oftast samsett
form þar sem skiptast á ftjálsar
tokkötur sem oft eru leiknar eins
og af fíngrum fram og mynda
ramma um stuttar fúgur. Þekktasta
orgelverk Bruhns er prelúdía í e-
moll og er hún mjög oft á efnis-
skrám konsertorganista.
Hörður segir að Bruhns hafí eft-
ir nám í Liibeck starfað um tíma í
Kaupmannahöfn sem fíðluleikari og
var hann ekki síður snjall við fíðlu-
leik en oigelleik. Er sagt að hann
hafí stundum leikið á fíðluna við
eigin undirleik fótspils orgelsins.
Árið 1689 er Bruhns sóttur til
Kaupmannahafnar og beðinn að
taka við starfí organista í Husum
í Þýskalandi sem var í nágrenni
fæðingarbæjar hans. Bruhns er tal-
inn hafa haft mikil áhrif á Bach:
-Bruhns er einn af fyrirrennurum
Bachs sem hafði mikil áhrif á org-
elstfl hans eins og má sjá við saman-
burð á verkum þéirra. Bruhns er
því hiklaust mjög merkilegur hlekk-
ur í þessari keðju.
Þetta tímabil sem kennt er við
norður-þýsku barokkmeistarana er
mjög sérstakt, að þarna skuli hafa
verið svo mikil gróska í tónlist-
arlífí, ekki síst orgeltónlist, að í um
það bil einn mannsaldur hafí þróast
þama sérstakur stfll. Er þetta
næsta einstakt í sögu kirkjutónlist-
arinnar og má telja vist að þetta
hafí ekki síst gerst fyrir þessi er-
lendu áhrif sem ég nefndi áður.
Orgelvika í Þýskalandi
Eins og á fyrri tónleikum í þess-
ari röð orgeltónleika mun Hörður
kynna hvert verk sérstaklega og
drepa á nokkur atriði úr ævi
Bruhns. Tónleikamir heijast klukk-
an 17. Miðar eru seldir við inngang-
inn en félagar Listvinafélags
Hallgrímskirkju þurfa ekki að
greiða aðgangseyri. Að tónleikun-
um loknum hefst síðan aðalfundur
Listvinafélagsins. En hvað er svo
framundan hjá Herði Áskelssyni:
-Auk starfanna hér í Hallgríms-
kirkju er framundan tónleikaferð
til ífyskalands næsta haust. Sérstök
norræn orgelvika verður haldin í
St. Aposteln kirkjunni í Köln þar
sem organistum frá Norðurlöndum
er boðið að leika og verð ég fulltrúi
Islands. Á tónleikum þar leik ég
meðal annars verk eftir Jón Nordal
og Þorkel Sigurbjömsson og frum-
flyt verk eftir Áskel Másson.
Skoðanakönnun
Skáíss og HP:
Kvennalist-
inn fékk
mest fylgi
KVENNALISTINN fékk mest
fylgi í skoðanakönnun Skáiss og
Helgarpóstsins um siðustu helgi.
Meirihluti þeirra sem tóku af-
stöðu í könnuninni styður ekki
ríkisstjórnina.
Alls voru 748 spurðir um afstöðu
þeirra til stjómmálaflokka, þar af
tóku 458 afstöðu eða 61,2%.
Kvennalistinn fékk fylgi 30,3%
þeirra sem tóku afstöðu, Sjálfstæð-
isflokkurinn fékk 28,4% fylgi,
Framsóknarflokkurinn fékk 17,9%,
Alþýðuflokkur 10,9%, Alþýðu-
bandalag 9%, Borgaraflokkur 2,4%,
Þjóðarflokkur 0,9% og Flokkur
mannsins 0,2%. Aðrir flokkar og
stjómmálasamtök komust ekki á
blað.
Þegar spurt var um stuðning við
ríkisstjómina tóku 624 afstöðu eða
83,4% úrtaksins. Þar sögðust 56,1%
ekki styðja ríkisstjómina en 43,9%
sögðust styðja stjómina.
Afhent trúnaðar-
bréf í Egyptalandi
SVERRIR Haukur Gunnlaugsson
sendiherra hefur afhent Hosni
Mubarak forseta Egyptalands
trúnaðarbréf sitt sem sendiherra
íslands í Egyptalandi.
Hann hefur aðsetur í Genf. Trún-
aðarbréfið var afhent 14. aprfl
síðastliðinn.
Karpov nægir jafn-
tefli í síðustu umferð
Margeir Pétursson
ANATOLY KARPOV, fyrrum
heimsmeistari I skák, stendur
langbezt að vigi fyrir siðustu
umferð heimsbikarmótsins i
Brussel. Karpov er heilum vinn-
ingí & nnflan næstu mönnum,
sem eru landi hans Valery
Salov og Engiendingurinn John
Nunn. I siðustu umferð hefur
hann hvítt gegn Svíanum Ulf
Andersson, sem til þessa hefur
verið friðsamastur allra kepp-
enda og gert 14 jafntefli í 16
skákum. Það eru þvi allar líkur
& þvi að þeirri skák ljúki með
stórmeistarajafntefli. f ððrum
skákum má hins vegar búast
við þvi að hart verði barist, þvi
auk þess sem há verðlaun eru
veitt fyrir efstu sætin er keppt
um heildarverðlaun fyrir bezta
frammistöðu i öllum mótunum
sex.
Mótið er búið að vera töluvert
spennandi. Eftir slaka byijun tók
Karpov mikinn sprett, fékk sex
vinninga úr sjö skákum og náði
forystunnL Hann hefur síðan
haldið henni, þar sem enginn af
keppinautum hans hefur verið í
virkilegu banastuði. Portisch og
Beljavsky stóðu t.d. báðir mjög
vel að vígi um miðbikið en döluðu
síðan. Árangur þeirra Salovs og
Nunn kemur töluvert mikið á
óvart. Hvorugur þeirra hefur áður
teflt af jafn miklu öryggi og nú.
Staðan fyrír síðustu
umferð:
1. Karpov IOV2 v.
2. -3. Nunn og Salov 9V2 v.
4. Beljavsky 9 v.
5. -7. Andersson, Portisch og
Ljubojevic 8V2 v.
8. Speelman 8 v.
9. Tal 7V2 v.
10. -12. Nikolic, Timman og So-
kolov 7 v.
13. Nogueiras 7 v. Hefur lokið
sfnum skákum.
14. Seirawan 6V2 v.
15. Korchnoi 6 v.
16. Sax 5V2 v.
17. Winants 2V2 v.
Það vekur athygli að af þeim
skákmönnum sem töpuðu sfnum
einvígjum f Saint John, er það
einungis Salov sem hefur náð að
hrista af sér slenið. Hinir, þeir
Sokolov, Seirawan, Korchnoi og
Sax eru allir f námunda við botn-
inn. Korchnoi er alveg úti að aka
í þessu móti, honum hafa orðið á
hrikalegar yfírsjónir.
Við skulum lfta á tvær bráð-
skemmtilegar skákir sem báðar
skiptu sköpum f baráttunni um
efsta sætíð. í hinni fyrri beijast
Sovétmennimir Beljavsky og
Salov af gífurlegri hörku:
Hvítt: Alexander Beljavsky
Svart: Valery Salov
Bogo-indversk vörn
1. d4 - Rf6 2. c4 - e6 3. Rf3
- Bb4+
Bogoindverska vömin er uppá-
haldsbyijun Salovs og sú vöm
nýtur mikilla vinsælda um þessar
mundir. Helsti kostur hennar er
að hún er miklu minna rannsökuð
en drottningarindverska vömin,
sem kemur upp eftir 3. — b6. Á
millisvæðamótinu í Szirak vann
Salov Beljavsky með tízkuafbrigð-
inu 4. Bd2 — c5!?, en nú velur
hann eldri leið.
Hvítt: John Nunn
Svart: Mikhail Tal
Caro-Kann vörn
I. e4 - c6 2. d4 - d5 3. Rd2 -
dxe4 4. Rxe4 — Rd7 5. Rg5 —
Rdf6
Þetta furðulega afbrigði er
skárra en 5. — h6? 6. Re6! —
Da5+ 7. Bd2 - Db6 8. Bd3 -
fxe6?? 9. Dh5+ - Kd8 10. Ba5
eins og Nunn fékk að leika með
hvftu gegn Georgiev í Linares um
daginn, en 5. — Rgf6 er auðvitað
miklu eðlilegra.
6. Rlf3 - e6 7. Re5 - Rh6 8.
Bd3 - Bd6 9. c3 - Dc7 10. De2
- c5?!
Það þarf ekki sérfræðing til að
sjá að byijun svarts er misheppn-
uð og hann á erfíða vöm fyrir
höndum. Það virðist þó skárra að
hróka stutt en hafa kónginn á
miðborðinu.
II. Bb5+ - Ke7 12. 0-0 - cxd4
13. cxd4 - Rf5 14. Be3 - Rxe3
Hér eða í næsta leik hefði svart-
ur getað lengt þjáningar sínar
með Hh8-f8, en Tal hefur yfírsézt
glæsileg flétta andstæðingsins.
15. fxe3 — Bxe5 16. dxe5 —
Dxe5
17. Dd3!! - Dxg5 18. Da3+ -
Kd8 19. Hadl+ - Bd7 20. Bxd7
og hér varð Tal að gefast upp,
því eftir 20. - Rxd7 21. Hxf7
er orðið stutt í mátið.
4. Bd2 — De7 5. g3 — Rc6 6.
Bg2 - Bxd2+ 7. Rbxd2 - d6
8. e4 — e5 9. d5 — Rb8 10. b4
- a5 11. a3 - Ra6 12. 0-0 -
0-0 13. Db3 - Bg4 14. Hfbl
í skákinni Psakhis-Petrosjan,
Sovétríkjunum 1982, lék hvftur
14. Hfcl, en svartur náði að jafna
taflið eftir 14. - c6 15. Rel -
axb4 16. axb4 - c5! 17. b5 - Rb4.
14. - c6 15. Rel - axb4 16.
axb4 — c5! 17. Rd3 — cxb4 18.
Rxb4 - Rc5 19. De3 - Dc7 20.
f4!
Þar sem svartur hefur komist
vel frá átökunum á drottningar-
væng með sterkan riddara á c5,
verður hvítur að leita hófanna á
kóngsvæng.
20. - exf4 21. gxf4 - Hae8 22.
Dd4 - Rfd7 23. Rc2 - Bh5 24.
Ha3 — f5
Með þessu veikir svartur stöðu
sfna, en leikurinn þjónar bæði
þeim tilgangi að sundra hvíta
peðamiðborðinu og opna Bh5 út-
gönguleið.
25. Hg3 - Bg6 26. exf5 - Hxf5
27. Hfl - Hf7 28. f5 - Bh5
29. Dh4 - Rf6 30. Rd4
Beljavsky er nú reiðubúinn til
að leika 31. Re6 sem myndi
tryggja honum yfírburðastöðu.
Það liggur því lífíð á fyrir svart
að fínna mótspil og það tekst
Salov:
30. - Db6 31. Khl - Db2 32.
Df4
32. - Rce4 33. Rxe4?!
Beljavsky leggur svo mikið
kapp á að koma riddara til e6 að
hann er tilbúinn til að gefa skipta-
mun til að ná þvf markmiði. Betra
virðist hins vegar 33. Hd3! og
staðan er tvísýn, því 33. — Rc5
má svara með 34. Hh3. Það er
mjög líklegt að svartur hafí átt
að leika hinum riddaranum til e4
í 32. leik, því þá er 33. Hd3 auð-
vitað ekki mögulegt
33. — Rxe4 34. Re6 — Rxg3+
35. hxg3 - Be2 36. Hf2 - Dc2
37. Bfl?
Hvítur fellur f laglega gildru.
Hann varð að leika 37. Dxd6, þvi
37. — Hxf5? 38. Dd7 gengur ekki.
37. - Dbl! 38. Kg2 - Bxfl+
39. Hxfl - Dd3.
Það er enn ekki hlaupið að því
að vinna skákina fyrir svart, en
Salov teflir næsta hluta skákar-
innar mjög vel.
40. Hf3 - De2+ 41. Hf2 - Dd3
42. Hf3 — Dbl 43. Hfl - Db4
44. Dh4 - h6 45. f6 b5! 46. Hf4
- bxc4 47. Dh5 - Db2+ 48.
Hf2 — De5 49. Dxe5 - dxe5
50. Hc2 - gxf6 51. Hxc4 - Hd7
52. Kf3 - Hxd5 53. Rc7 -
Hd3+ 54. Ke4 — Hed8 55. Re6
- H8d6 56. Hc7 - Hd7 og hvítur
gafst upp.
Mikhail Tal hefur unnið marga
glæsta sóknarsigra með hvítu
gegn Caro-Kann vöm. Það þótti
því ýmsum Bleik bragðið er hann
tefldi hana með svörtu gegn enska
sóknarskákmanninum John
Nunn.