Morgunblaðið - 23.04.1988, Qupperneq 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. APRÍL 1988
AF INNLENDUM
VETTVANGI
EFTIR ÞÓRHALL JÓSEPSSON
Ákvæði í öðrum kjara-
samningum setja samninga-
mönnum skorður
EFTIR að hafa fellt tvær samn ing-atillögnr, er verslunar- og skrif-
stofufólk nú í verkfalli. Krafa þeirra er, að lægstu laun verði við
skattleysismörk, um 42.000 krónur á mánuði. Þessu hafna vinnuveit-
endur og telja sig bundna af gerðum samningum við aðra. Morgun-
blaðið ræddi við fólk úr röðum VR, bæði almenna félagsmenn og
forystumenn, einnig var rætt við fulltrúa vinnuveitenda og VMSÍ.
Hvers vegna hafnar verslunar-
og skrifstofufólk samningum
og fer í verkfall þegar aðrir eru
búnir að semja? Þegar grafist er
fyrir um orsakimar í röðum verslun-
arfólks, kemur ávallt sama svarið,
hvort heldur spurt er í Reykjavík
eða úti á landi: Launin. Það er e.t.v
eðlilegt svar, en hvers vegna höfn-
uðu þeir þá meiri launahækkunum
en aðrir fengu? Verslunarmenn
höfnuðu grunnkaupshækkun upp á
um 2.500 krónur á mánuði, á með-
an aðrir samþykktu minna, um
2.000 krónur.
Milljarða fjárfestingar -
lág dagvinnlulaun
Magnús L. Sveinsson formaður
VR bendir á nokkrar skýringar. Að
hans mati er það veigamest að í
röðum verslunarfólks er flölmennur
hópur, sem hefur ekki önnur laun
en þau, sem taxtar segja til um. Á
hinn bóginn hafi annað verkafólk
margskonar viðbótargreiðslur svo
sem bónus og námskeiðsáiag. Þær
greiðslur valdi því, að mánaðarlaun
verkafólks hækka mun meira, en
taxtahækkunin segi til um. Þá seg-
ir Magnús, að fólk sætti sig ekki
lengur við að vera á lágum dag-
vinnulaunum, á sama tíma og fjár-
festingar í atvinnugreininni nema
milljörðum og vinnuveitendur bjóða
hver um sig margfalt hærra kaup
til ákveðinna hópa. Og hann segir
verslunarfólk ekki trúa því, að dag-
vinnulaun þess þurfi að vera lág, á
meðan 80% yfírvinnuálag sé al-
gengt.
Til viðbótar þessu kemur mikið
vinnuálag. Þar hefur laugardags-
opnun verslana verið efst á baugi.
Þetta atriði er verslunarfólki í
Reykjavík ofarlega í huga og það
vill tryggja að það neyðist ekki til
að vinna eins langan vinnutíma og
verið hefur. Síðan nefnir Magnús
utanaðkomandi þætti, sem hafa
mikil áhrif og auka mjög á óánægju
verslunarfólks. Þar eru skatta-
hækkanir stærsti liðurinn, einkum
matarskatturinn. Þegar allir þessir
þættir koma saman, segir Magnús,
er mælirinn einfaldlega fullur. Fólk-
ið segir hingað og ekki lengra og
krefst launahækkana. Krafan er:
Hærri dagvinnulaun og, einkum hjá
afgreiðslufólki í Reykjavík, styttri
vinnutími.
Brást forystan?
Hvers vegna nú, eftir að samn-
ingamir hafa verið felldir í tvígang?
Hvers vegna setti VR ekki strax
fram kröfu um 42.000 króna lág-
markslaun? Magnús L. Sveinsson:
„Hefði ekki verið sagt, að við vær-
um bijálaðir menn, ef strax hefði
komið krafa um tíu þúsund króna
hækkun?" Forysta VR hefur verið
gagnrýnd fyrir að vera ekki í sam-
bandi við hina almennu félagsmenn,
komi það sambandsleysi best í ljós
nú, þegar tvisvar hafa verið felldir
samningar, undirritaðir af forsvars-
mönnum félagsins. Forystumenn
VR benda hins vegar á það, að í
reynd hafi mun fleiri félög tvífellt
samningana. VR fór fyrst af stað
með atkvæðagreiðslu og þegar
samningum var hafnað þar, þá
kipptu hin félögin að sér höndunum
og biðu átekta. Síðan, þegar seinni
samningurinn var felldur, hafi fé-
lögin í reynd verið að fella báða
samningana.
En hvers vegna bar forystan
seinni samningana á borð fyrir fé-
lagsmenn sína, án þess að hafa náð
fram launahækkunum sem orð er
á gerandi? Samninganefndarmaður
segir: „Síðan gerðist það, sem
þrengdi stöðu okkar mjög mikið,
að rétt eftir að við felldum samning-
inn í Glæsibæ, var skrifað undir
heldur lægri samning á Akureyri
af félögunum sem gengu út á sínum
tíma hér í Reykjavík og þar með
var staðan orðin þannig, að við töld-
um ekki fært annað en að ganga
að miðlunartillögunni frá sátta-
semjara og vita hvemig félagamir
tælqu henni."
Þegar félagsmenn VR eru spurð-
ir, hvort forystan hafi brugðist, fást
ekki einhlít svör. Afgreiðslumaður
í sérverslun segir: „Nei, það held
ég ekki. Verkalýðshreyfingunni
allri hefur mistekist að ná upp al-
mennilegum töxtum og það gefur
atvinnurekendum léttan leik, að
yfirborga menn, þó þeir borgi varla
lífvænleg laun. I okkar félagi þar
sem em svona miklar yfírborganir,
kannski of almennar, þá eru færri
félagar virkir, það gefur auga leið.
En með því að beija í borðið núna
og ná upp lægstu laununum, þá tel
ég að forystan standi gagnrýni af
sér.“
Afgreiðslustúlka í stórmarkaði
sagði, að á hennar vinnustað hefði
verið óánægja með forystuna, eink-
um Magnús L. Sveinsson. Hún
sagði að fólki hefði ekki þótt hann
hafa unnið nægilega vel fyrir versl-
unarmenn. „Við erum orðin lang-
lægst í kauptaxta, eins og hann
sjálfur viðurkennir. í þessari búð
sem ég vinn í, finnst þeim að hann
eigi að fara frá. Það getur svo ver-
ið að það snúist svo á eftir, ef hann
fær eitthvað út úr þessu."
Skrifstofumaður hjá stórfyrir-
tæki segir: „Það fer eftir niður-
stöðu, hver árangurinn verður eftir
þessi átök og hver staðan verður
eftir átökin, það er ekki gott að spá
í það núna. Ef árangurinn verður
lélegur hlýtur forystuliðið að verða
fyrir félagslegum skakkaföllum."
Starfsstúlka í stórmarkaði: „Mér
finnst hann standa sig mjög vel
hann Magnús," segir hún og telur
sína félaga ánægða með forystuna.
„Það var nú ekki ánægt þegar það
felldi samningana, en ég held að
það hafí breyst heilmikið."
Enginn viðmælenda blaðsins ut-
an stjómar VR taldi sig hafa orðið
varan við flokkspólitískar hræring-
ar í tengslum við samningagerð nú.
Hins vegar taldi stjómarmaður sig
hafa vissu fyrir því, að viss pólitísk
öfl væm að reyna að sæta lagi nú,
til þess að koma höggi á stjóm VR.
Ólíkir hagsmunir -
Er VR í kreppu?
Þátttakendur í þessu allsheijar-
verkfalli em ekki aðeins afgreiðslu-
menn í matvömbúðum, á lægstu
töxtum. VR er einnig félag skrif-
stofufólks og svo er einnig um önn-
ur félög í verkfalli. Um skrifstofu-
fólk gildir ekki það sama og um
verslunarfólk, þegar rætt er um
laun og vinnutíma. Spurt hefur ver-
ið, hvaða samleið þetta fólk eigi í
kjarabaráttu. Er tímabært að skipta
VR upp í deildir, sem starfí sjálf-
stætt að kjarasamningum og öðmm
sérstökum hagsmunamálum?
Magnús L. Sveinsson segir að
e.t.v. sé nauðsynlegt að deildaskipta
félaginu. Það hefur verið rætt í
stjóm og verður haldið áfram að
ræða það á þeim vettvangi. Al-
mennt töldu skrifstofumenn tíma-
bært að skipta félaginu. Verslunar-
fólk hafði minna hugsað út í það
mál, tóku þó jákvætt undir. Við-
mælendur Morgunblaðsins vom á
einu máli um það, að ekki er verið
að ræða um sömu hagsmuni, þegar
annars vegar em verslunarmenn,
hins vegar skrifstofumenn. Þó var
í röðum skrifstofufólks lýst fullum
stuðningi við þessar verkfallsað-
gerðir.
í samtölum við skrifstofufólk
kom fram, að við allsheijarat-
kvæðagreiðsluna, þar sem samn-
ingamir vom felldir í annað sinn,
hafi margt fólk úr þeirra röðum
setið heima, vegna þess að það taldi
sig ekki hafa rétt til afskipta af
deilum um lágmarkslaun, enda
sjálft á hærri launum.
Skrifstofumaður hafði þetta að
segja: „Eins og allir vita er stór
hluti skrifstofufólks yfirborgaður.
Það fólk var og er að velta því fyr-
ir sér, hvaða siðferðilegan rétt það
hefði til atkvæðagreiðslunnar, aðal-
lega vegna þess að fólki fannst að
deilan snerti eingöngu afgreiðslu-
fólkið sem er á þessum lágu töxt-
um. Þá hugsaði margt fólk: „Ég
hef hvorki siðferðilegan rétt til þess
að greiða atkvæði með eða móti,
þetta höfðar ekki til mín.“ Margir
tóku þessa afstöðu. Þó að lágu laun-
in snerti þetta fólk ekki beint, vill
það ekki verða til þess, að þeir sem
em á lágmarkslaunum komist ekki
upp úr feninu.“
Spuming er, hvort þetta fólk sé
reiðubúið til, að taka þessa afstöðu
aftur. Ef ekki, mun það væntanlega
taka meiri þátt í næstu atkvæða-
greiðslu, sem verður væntanlega
um sáttatillögu þegar hún kemur
fram.
Erfið samnings-
staða beggja aðila
Báðir samningsaðilar, verslunar-
menn og vinnuveitendur em í erf-
iðri stöðu við samningaborðið. For-
ystumenn verslunarmanna em und-
ir miklum þrýstingi frá félagsmönn-
um sínum um að ná fram kröfunni
um skattleysismörkin, 42.000
króna lágmarkslaun. Þótt vinnu-
veitendur vildu verða við þessum
kröfum, er það ekki svo einfalt
mál. í fyrsta lagi er ekki gefíð
mál, að þeir sem yfirborgaðir em
og á góðum launum sætti sig við
minni hækkanir en hinir lægstu fá.
Einn viðmælandi blaðsins, skrif-
stofumaður, taldi að fólk sætti sig
við eitthvað minna, a.m.k. hlutfalls-
lega. Annar, kona á skrifstofu, var
þess fullviss að þeir hærra launuðu
sættu sig ekki við, að fá minna eða
að launabilið raskaðist.
Það sem verslunarmenn hafa þó
einna mestar áhyggjur af, er ekki
beinlínis vilji vinnuveitenda til að
hækka laun hinna lægst launuðu
verslunarmanna. Það em samning-
ar Verkamannasambandsins sem
setja stærsta strikið í þessar samn-
ingaviðræður. í þeim em ákvæði,
sem segja, að hækki laun hjá stór-
um félögum eða félagasamböndum
utan VMSÍ sem einhveriu nemur
umfram samninga VMSI, þá geti
VMSÍ krafist endurskoðunar á
launaliðum samninganna. Þetta
þýðir einfaldlega það, að ef verslun-
armenn fá kröfiim sínum ffarn-
gengt, þá mun VMSÍ krefjast
hækkana sinna launa til samræmis
við það. Það hefði áhrif á laun um
40 þúsunda manna. Ekki verður
séð, að vinnuveitendur gangi að því.
Krókaleiðir
Þannig standa mál nú, að versl-
unarmenn krefjast að lægstu laun
verði við skattleysismörk, 42.000
krónur á mánuði. Vinnuveitendur
segja þvert nei og vísa m.a. til
ákvæða í samningum VMSÍ, auk
þess sem þeir segja að slík hækkun
væri svik við þá sem búið er að
semja við nú þegar og myndi koll-
varpa þeirri launa- og efnahags-
stefnu sem mótuð hefur verið. For-
ysta verslunarmanna getur ekki
komið til sinna umbjóðenda enn á
ný með samning, sem gefur lægst
launaða fólkinu ekki meiri laun en
fyrri tillögur. Slíkt gæti kostað
„hallarbyltingar" hjá félögunum.
Þrýstingur er mikill á báða aðila
að ná samningum. Því er líklegt,
að reynt verði að ná saman eftir
krókaleiðum. Það þýðir, að sett
verða inn í samningana ákvæði, sem
geta hækkað lægstu launin hlut-
fallslega, án þess að teljast grunn-
kaupshækkanir. Einnig koma til
greina skilyrtar launahækkanir, t.d.
að námskeið gefi ákveðnar hækk-
Fimmta verkfall VR
Verkfallið nú er hið fímmta í
sögu VR. Félagið hefur ýmist far-
ið í verkfall eitt sér eða í sam-
floti með öðrum félögum. Fyrri
verkföll hafa verið sem hér segin
10. des. - 13. des 1963
3. mars - 9. mars 1966
17. feb. - 28. feb. 1976
10. júní - 11 júní 1982
22. aprfl - .... 1988