Morgunblaðið - 23.04.1988, Síða 30

Morgunblaðið - 23.04.1988, Síða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. APRÍL 1988 Eþíópía: Matvælaflutning- ar hefjast að nýju Flylja þurfti þá sem sœrðust í átökunum á Ouvea með flugvél til höfuðborgar Nýju Kaledóníu, Noumea. Nýja Kaledónía: Aðskilnaðarsinnar ráð- ast á franska herstöð Nairobi, Khartoum, Addis Ababa. Reuter. Vörubílar á vegum Sameinuðu þjóðanna hófu að nýju matvæla- flutninga í Norður-Eþíópíu á fimmtudag eftir að Eþíópíustjórn hafði ákveðið að leyfa erlendum starfsmönnum hjálparstofnana að halda áfram störfum i Eritreu og Tigray-héraði. Áður höfðu 40 vörubílar hætt flutningum vegna þess að eþíópíska stjórnin hafði skipað starfsmönnunum að yfir- gefa þessi stríðshrjáðu svæði. Eritreumenn hafa sakað eþíópíska hermenn um að hafa brennt matarbirgðir þegar þeir voru á flótta undan framrás erí- treskra uppreisnarmanna. Talsmenn Sameinuðu þjóðanna í Addis Ababa sögðu á fimmtudag að vörubílamir hefðu að nýju hafið matvælaflutninga frá hafnarborg- inni Masawa við Rauðahaf til Asmara, höfuðborgar Eritreu. Eþíópíustjóm hafði fyrirskipað er- lendum starfsmönnum hjálparstofn- ana að yfirgefa Eritreu og Tigray og lýst yfir að hún myndi sjálf ann- ast hjálparstarfið þar. Stjómin tók þessa ákvörðun eftir að uppreisnar- menn höfðu náð nokkmm borgum á sitt vald og hrakið stjómarhermenn á flótta. Seinna var tilkynnt að þessi fyrirskipun næði ekki til starfs- manna Sameinuðu þjóðanna. Loft- brúarflutningar Sameinuðu þjóð- anna á matvælum til Mekele, höfuð- boðið Sameinuðu þjóðunum menn, sem fara myndu á vegum SÞ til Afganistans og fylgjast með framkvæmd Afganistan- samkomulagsins. Hershöfðing- inn Rauli Helminen, sem yrði yfirmaður slíkrar sveitar Finna ef af verður, segir hins vegar að hann geti ekki sinnt skyldu- störfum sínum nema öryggi manna hans verði tryggt. borgar Tigray-héraðs sem stjómar- hermenn sitja um, stöðvuðust ekki. Verst komu aðgerðir stjómarinnar niður á Alþjóðaráði Rauða krossins, ICRC, sem dreifði matvælum til rúmlega þriggja milljóna fómar- lamba þurrkanna í Eritreu og Tigray áður en starfsmönnum þess var fyr- irskipað að fara. Patrick Johns, talsmaður Kaþ- ólsku hjálparstofnunarinnar í Addis Ababa, sagði á fímmtudag að stofn- unin dreifði matvælum í Mekele og Maychew-borg í suðurhluta Tigray- -héraðs, þar sem vegasamgöngur hafa haldist. Hann sagði að stofnun- in væri að reyna að hlaupa í skarðið fyrir starfsmenn Rauða krossins. Framrás uppreisnarmanna hefði orðið þess valdandi að starfsmenn hjálparstofnanna, sem starfa á yfirr- áðasvæði stjómarinnar, næðu ekki ekki til milljón fómarlamba þurr- kanna. Tekie Beyene, ritari hjálparstofn- unnar Erítreumanna, sagði í vikunni að eþíópískir hermenn hefðu tekið eins mikið af matvælum með sér og þeir hefðu getað, þegar þeir flúðu undan uppreisnarmönnunum, og brennt afganginn. Talsmenn Eþíópíustjómar, sem hefur sakað uppreisnarmenn um að torvelda hjálparstarfsemi á yfirráðasvæði stjómarinnar, hafa ekki svarað þess- um ásökunum. andi, Kanada, Póllandi og Svíþjóð í eftirlitssveitunum. Noumea í Nýju Kaledóníu. Reuter. FJÓRIR lögreglumenn voru myrt- ir og yfir 20 voru teknir í gíslingu í gær þegar til átaka kom milli innfæddra aðskilnaðarsinna og herlögreglu í Nýju Kaledóníu, sem er frönsk nýlenda f sunnanverðu Kyrrahafi. Til átaka kom víða í Nýju Kale- dónfu í gær milli innfæddra, kanaka, og herlögreglu. í bænum Paita sem er 25 km norður af höfuðborginni, Noumea, var ráðist inn í bæjarskrif- stofur og kveikt í snemma í gær- morgun. Nokkrum klukkustundum síðar réðust 30 kanakar á eyjunni Ouvea á franska herstöð. Þrír herlög- reglumenn féllu í átökunum og einn lést af sárum sínum á sjúkrahúsi skömmu síðar. Sjö særðust illa í átök- unum. Tóku árásarmennimir yfir tuttugu gísla og fluttu þá með sér í hella á austanverðri eyjunni. Um 200 franskir hermenn voru fluttir til Ouvea frá nærliggjandi eyjum og umkringdu þeir hellana. í bænum Temala á stærstu eyj- unni í Nýju Kaledóníu réðust grímu- klæddir menn inn á heimili fransks manns og tóku fjölskyldu hans í gíslingu. Kveikt var í húsi annars staðar í bænum. Aðskilnaðarsinnaðir kanakar, hafa hótað því að sniðganga fyrri umferð frönsku forsetakosninganna, sem fram fer á sunnudaginn. Stærsti stjómmálaflokkur aðskilnaðarsinn- aðra kanaka (FLNKS) segir kosning- amar aðeins miða að því að halda innfæddum, sem em um 43% af 145.000 íbúum eyjanna, í.skefjum. Hótuðu forsvarsmenn flokksins að grípa til aðgerða vegna kosninganna til að beina athygli heimsins að kjör- um innfæddra í Nýju Kaledóníu. Jacques Chirac, forsætisráðherra Frakklands, hélt í gær ríkisstjómar- fund að beiðni Francois Mitterrands forseta, til að ræða ástandið í Nýju Kaledóníu. Mitterrand og Chirac eru helstu keppinautar um forsetaemb- ættið sem kosið verður um 24. apríl og 8. mai næstkomandi. Deilur magnast innan sovéska kommúnistaflokksins: Harðlínumen koma höggi Afganistan: Finnar bjóða lið til eftirlits SÞ Helsinki, Reuter. FINNSKA ríkisstjórnin hefur Utanríkisráðuneyti Finnlands tilkynnti í gær, að Finnar væru reiðubúnir þess að leggja SÞ til níu yfirmenn úr hemum. Fyrir- hugað er að SÞ geri um 100 manns út af örkinni — 50 herfor- ingja frá ýmsum ríkjum og um 50 embættismenn samtakanna — til þess að fylgjast með brottflutn- ingi innrásarhers Sovétríkjanna úr Afganistans. Helminen sagði finnskum fréttamönnum í New York að yfír- lýsing afganskra skæruliða um eftirlitssveitina lofaði ekki góðu, en í dagblaðinu Uusi Suomi hafði það eftir fulltrúum skæruliða í Genf, að litið yrði á hvem þann, sem aðstoðaði leppstjómina í Kab- úl við að halda völdum, sem óvin. „Þetta er ekki stórfenglega uppör- vandi yfirlýsing," sagði Helminen. „Við getum ekki sinnt skyldu- störfum okkar nema öryggi okkar sé tryggt." Helminen segir að hann muni reyna að koma samskiptum á milli Kabúl-stjómarinnar og skæmliða og aðstoða við skipu- lagningu heimfarar þeirra millj- óna útlægra Afgana, sem em í Pakistan og íran. Talið er að auk Finna verði herforingjar frá Austurríki, Dan- mörku, Fiji-eyjum, Ghana, írl- á Míkhaíl S. Gorbatsiov ÞRÁLÁTUR orðrómur hefur verið á kreiki í Moskvu undan- farna daga þess efnis að völd Jegors Ligatsjovs, annars valda- mesta manns Sovétríkjanna, hafi verið skert verulega. Sovétsér- fræðingar segja engan vafa leika á því að deilt sé af hörku um stefnu Míkhaíls S. Gorbatsjovs og þykja ummæli opinberra mál- gagna taka af öll tvímæli um það. Þangað til í gær hafði Lígatsjov ekki sést á opinberum vettvangi í rúma viku. En í gær tók þátt í hátíðahöldum í minn- ingu Vladimírs Leníns á Rauða torginu í Moskvu. Talsmaður Sovétstjórnarinnar sagði i gær að engar breytingar hefðu verið gerðar á flokksforystunni og að Ligatsjov hefði verið í leyfi. Fréttaritari The New York Times í Moskvu segir að fjallað hafi verið um deilu þeirra Lígatsjovs og Gorb- atsjovs vegna umbótastefnu þess siðamefnda á sérstökum fúndi stjómmálaráðs flokksins, sem hald- inn var um miðjan mars. Á fundin- um lýsti stjómmálaráðið á ný yfir stuðningi við stefnu Gorbatsjovs og veitti Lígatsjov væga áminningu. Á síðustu tveimur árum hefur Jegor Lígatsjov. Lígatsjov oftlega gefíð til kynna að hann telji heppilegt að fara að öllu með gát og að Gorbatsjov fari of geyst í umbótaviðleitni sinni. Hins vegar herma fréttir að deilur þess- ara tveggja manna hafi aldrei verið alvarlegri en nú. Gorbatsjov gagnrýndur Deilan mun hafa blossað upp í marsmánuði er dagblaðið Sovj- etskaja Rossija birti grein þar sem haldið var uppi vömum fyrir stjóm- arhætti Jósefs Stalíns, sem Gorb- atsjov hefur þráfaldlega fordæmt í ræðu og riti. í greinni var og vikið að stjómarháttum Gorbatsjovs og var hann gagnrýndur fyrir of mikið fijálslyndi. Fjölmörg smærri dag- blöð víðs vegar um Sovétríkin birtu einnig greinina. í byijun apríl birti Pravda, málgagn sovéska komm- únistaflokksins, grein á forsíðu þar sem skrif Sovjetskaja Rossija voru harðlega fordæmd. Heimildarmenn fréttaritara The New York Times í Moskvu segja að Lígatsjov hafi hvatt til þess að Sovjetskaja Rossija birti greinina umdeildu og fullyrt er að hann hafi fylgt henni eftir þar til hún birtist. í blaðinu sagði að ónefndur efnafræðikennari frá Leníngrad hefði ritað hana. 14. mars, daginn eftir að greinin birtist, boðaði Lígatsjov ritsjóra nokkurra dagblaða á sinn fund til að ræða stefnu flokksins. Gor- batsjov var ekki viðstaddur þvi hann var þá í heimsókn í Júgóslavíu og dyggasti stuðningsmaður hans í stjómmálaráðinu, Alexander Jak- olev, var í Mongólíu. Að sögn þeirra sem sátu fundinn fór Lígatsjov lof- samlegum orðum um greinina í Sovjetskaja Rossija og hvatti hann blaðamenn til að sýna hófsemi í skrifum sínum. Gorbatsjov snýst til varnar Er Gorbatsjov sneri aftur til Sov- étríkjanna frá Júgóslavíu boðaði hann meðlimi stjómmálaráðsins til aukafundar en þá hafði Lígatsjov brugðið sér af bæ og var á ferða- lagi í Vologda, skammt norður af Moskvu. Gorbatsjov bað stjóm- málaráðið um stuðningsyfírlýsingu og sagði birtingu greinarinnar um Stalín óþolandi með öllu. Allir þeir 11 sem viðstaddir voru greiddu at- kvæði með stuðningsyfirlýsingu við Sovétleiðtogann. Þá herma fréttir að samþykktar hafi verið vítur á Valentin V. Chikin, ritstjóra Sov- jetskaja Rossija og að Lígatsjov hafi verið veitt „formleg aðvörun" vegna fundarins með ritstjórunum. Heimildarmenn Eeuíers-fréttastof- unnar segja að Lígatsjov hafi ekki setið vikulega fundi fulltrúa mið- stjómarinnar með ritstjórum Moskvu-blaða frá því þetta gerðist. Sögusagnir og leyndarhyggja Málið vakti þegar mikla athygli

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.